Morgunblaðið - 19.10.2021, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021
Fólk Ferðamenn leynast víða á höfuðborgarsvæðinu þótt komið sé langt fram í október og er ástandið því töluvert frábrugðið því sem var síðasta haust þegar tómlegt var um að litast og fáir á stjá.
Árni Sæberg
Í dag á fundi borg-
arstjórnar munum
við sjálfstæðismenn
leggja fram tillögu
þess efnis að fallið
verði frá því að
þrengja að vaxt-
arsvæði Borgarholts-
skóla í nýju að-
alskipulagi sem
samþykkja á í dag.
Um þau áform hefur
skólameistari skól-
ans, Ársæll Guðmundsson, tjáð
sig í Fréttablaðinu, en þar segir:
„„Bygging hjúkrunarheimilis á
þessum stað er vægast sagt glap-
ræði,“ segir Ársæll.“ Hann gagn-
rýnir ekkert samráð borgarinnar
við íbúa Grafarvogs né sig sem
skólameistara Borgarholtsskóla
og segir engin svör að fá neins
staðar. Ársæll segist hafa hrópað
eftir samtali í mörg ár, „ég er al-
gjörlega hunsaður“. Þessu viljum
við sjálfstæðismenn breyta og
leggjum það til í dag að fallið
verði frá þessum áformum. Svæð-
ið er hjartað í Grafarvogi og það
er ótrúlegt að eiga ekkert samráð
við samfélagið í Grafarvogi þegar
gerðar eru jafn stórar breytingar
sem verða til þess að stærsti
vinnustaður Grafarvogs hefur
ekki lengur sömu tækifæri og áð-
ur til þess að stækka.
Korpuskóli verði
opnaður á ný
Við leggjum líka til að Korpu-
skóli verði opnaður á ný. Sem er
auðvitað hálfgerð þversögn því þó
svo honum hafi verið
lokað fyrir nem-
endum í Grafarvogi
hefur hann verið „op-
inn“ nánast alla daga
frá því honum var
lokað árið 2020 því
þar hafa verið börn
úr öðrum skólum sem
flúið hafa lekavanda-
mál og myglu í sínum
skólum. Það er alger-
lega galið að for-
eldrar keyri börnin
sín úr sínum hverfum
í skóla á meðan foreldrar úr öðr-
um hverfum koma keyrandi með
sín börn í Staðahverfið til þess að
stunda sitt nám þar. Því er mik-
ilvægt að hefja uppbyggingu íbúð-
arhúsnæðis á þeim reitum sem
kynntir voru fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar 2018 og eru í
kringum Staðahverfið í Graf-
arvogi. Þannig fjölgum við börn-
um í hverfinu og getum boðið
börnum þar að sækja skóla í sínu
nærumhverfi.
Eftir Valgerði
Sigurðardóttur
» Svæðið er hjartað í
Grafarvogi og það
er ótrúlegt að eiga ekk-
ert samráð við sam-
félagið í Grafarvogi
þegar gerðar eru jafn
stórar breytingar.
Valgerður
Sigurðardóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins
valgerdur.sigurdardott-
ir@reykjavik.is
Leggjum til upp-
byggingu í skóla-
málum í GrafarvogiUndanfarin ár hefur
nánast eingöngu verið
byggt íbúðarhúsnæði í
háhýsum í Reykjavík.
Þegar ekið er um borg-
ina blasa víða við háir
íbúðablokkarturnar sem
hafa verið byggðir á síð-
ustu árum, þar sem
þéttleiki bygginga er
gríðarlegur. Engin
svæði eru skipulögð fyr-
ir lægri byggð, s.s. rað-
hús, parhús, sambýlishús eða einbýlis-
hús. Lóðir undir sérbýlishús eru
greinilega á bannlista hjá núverandi
meirihluta, ekki síst lóðir undir ein-
býlishús. Afleiðingin er sú að þúsundir
Reykvíkinga hafa flutt í önnur sveit-
arfélög.
Há fjölbýlishús hafa verið byggð
áður í Reykjavík en ekki með þeim yf-
irgengilega hætti sem átt hefur sér
stað víða í borginni undanfarin ár.
Lóðaverð hefur hækkað verulega á
síðustu árum og átt stóran þátt í stöð-
ugt hækkandi byggingarkostnaði. Í
öllum nágrannasveitarfélögum borg-
arinnar og nokkrum öðrum sveit-
arfélögum, aðallega á Suðurlandi, er
fjölbreytni nýbygginga með allt öðr-
um hætti og tugþúsundir Reykvík-
inga hafa valið að flytja þangað.
Rándýrar íbúðir
Afleiðingar af stefnu meirihlutans í
skipulags- og lóðamálum eru ekki síst
þær að ungt fólk ræður ekki við kaup
á rándýrum íbúðum í þessum háhýs-
um sem byggð hafa verið víða í borg-
inni innan um miklu lágreistari byggð.
Hagkvæmar og ódýrari íbúðir í fjöl-
býli eru vart í boði á hinum almenna
íbúðamarkaði í Reykjavík. Er þessi
lóða- og byggingarstefna meirihlutans
í dag sú stefna sem meirihlutinn ætlar
að viðhafa næstu fjögur árin, ef hann
heldur stöðu sinni eftir næstu
borgarstjórnarkosningar
í maí 2022?
Nýlegt „afrek“ meiri-
hlutans í íbúabyggð í
Reykjavík er fyrirhuguð
bygging 700 íbúða í
Nýja-Skerjafirði, eins og
meirihlutanum finnst
heppilegt að nefna þetta
svæði þétt við flugvöllinn,
og hefur í för með sér
stóraukinn akstur bif-
reiða á nærliggjandi
svæðum. Engin bílastæði
í húsagötum og heldur
ekki bílastæði á lóð né
bílskýli á einstökum lóðum. Bíla-
geymsluhús, fyrir 400-450 bíla og
reiðhjól, verða staðsett miðsvæðis í
hverfinu. Þeir sem nota einkbílinn
eiga að hjóla eða ganga til og frá heim-
kynnum sínum í bílageymsluhúsið.
Fjölmennur hópur íbúa í Skerja-
firði gerði alvarlegar athugasemdir
við þessi byggingaráform, en mót-
mæli þeirra voru að engu höfð. Sömu
sögu er að segja af mótmælum íbúa
víðsvegar í borginni vegna bygging-
arframkvæmda í rótgrónum hverfum
sbr. mótmæli íbúa í Bakka- og
Stekkjahverfi vegna fyrirhugaðra há-
hýsa í Neðra-Breiðholti. Á íbúana er
hlustað lítillega en í langflestum til-
vikum ekkert gert með mótmæli og
ábendingar þeirra líkt og gerðist með
fyrirhugað BioDome-risamannvirkið í
Elliðaárdalnum.
Er verið að grínast?
Nýlega bættist svo við þéttingar-
áform meirihlutans í tillögum/
hugmyndum að hverfaskipulagi Bú-
staðahverfis um 17 húsbyggingar
meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ í
mikilli nálægð við næstu fjölbýlishús á
svæðinu. Þær tillögur/hugmyndir eru
að sjálfsögðu algjörlega fráleitar. Enn
eitt dæmið um vanhugsuð þétting-
aráform. Um er að ræða uppbyggingu
á afar þröngu svæði fast við Bústaða-
veg og í mikilli nánd við íbúabyggð
sem þar er fyrir.
Þessar hugmyndir og/eða tillögur
eru að sjálfsögðu algjörlega fráleitar.
Enn fráleitari eru tillögur/hugmyndir
í þessum svokölluðu „vinnutillögum“
sem meirihlutinn er nú að kynna, hug-
myndir um stórfellda byggð blokka
meðfram Háaleitisbraut og Miklu-
braut, þétt við núverandi byggð á
þessu svæði. Hvar endar þessi yf-
irgangur gagnvart núverandi byggð í
Reykjavík?
Tillitsleysi og valdhroki
Skýrt dæmi um yfirgang borgar-
yfirvalda er uppbygging á þröngum
reit milli Furugerðis og þétt við Bú-
staðaveg. Í upphaflegu skipulagi
þessa reits var miðað við 4-6 íbúðir en
samþykktar 30 íbúðir gegn háværum
og vel rökstuddum mótmælum íbúa.
Tillitsleysi meirihluta borgarstjórnar
gagnvart íbúum á mörgum rót-
grónum íbúasvæðum er víða í borg-
inni, fer sívaxandi og mun aukast fái
núverandi meirihluti endurnýjað um-
boð í næstu borgarstjórnar-
kosningum.
Nýlega var haft eftir skólameistara
Borgarholtsskóla að borgarstjóri
hefði ekki svarað beiðni sinni um fund
vegna fyrirhugaðrar byggingar nýs
hjúkrunarheimilis á lóð Borgarholts-
skóla í meira en tvö ár. Tillitsleysið al-
gjört. Vonandi leggur niðurstaða
komandi borgarstjórnarkosninga
grunn að breyttum stjórnarháttum í
borginni, þar sem valdhrokinn ræður
ekki ferðinni.
Eftir Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson » „Tillitsleysi meiri-
hluta borgarstjórnar
gagnvart íbúum á mörg-
um rótgrónum íbúðar-
svæðum víða í borginni
fer sívaxandi.“
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Höfundur er fv.borgarstjóri.
Háhýsabyggð í forgangi