Morgunblaðið - 19.10.2021, Page 20

Morgunblaðið - 19.10.2021, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021 ✝ Sigurlaug Gunnarsdóttir fæddist í Reykjavík 28. ágúst 1962. Hún lést á Landspít- alanum 8. október 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Ásta Halldóra Ágúst- dóttir, f. 26.10. 1935, d. 9.5. 2021, og Gunnar Sæmundsson, f. 17.2. 1935, d. 12.8. 2011. Systkini Sigurlaugar eru Ágúst Þór, f. 1957, Ólafur Sævar, f. 1959, Hulda Björk, f. 1960, Gunnhildur, f. 1967, Valdi- mar, f. 1968, og Gunnar, f. 1981. Eiginmaður Sigurlaugar er Hafsteinn Gunnar Haraldsson, f. 9.1. 2015, 3) Sara Gabríella, f. 26.6. 1996. Sigurlaug ólst upp í Kópavogi í stórum systkinahópi. Hún gekk í Kópavogsskóla og Víghóls- skóla. Að loknum grunnskóla stundaði hún nám í Iðnskólanum í Hafnarfirði og útskrifaðist það- an með sveinspróf í hárgreiðslu. Sigurlaug vann við hár- greiðslu í nokkur ár. Að þeim tíma liðnum starfaði hún í 16 ár við póstburð hjá Póstinum. Síð- ustu ár vann hún í mötuneyti Ás- landsskóla. Sigurlaug og Hafsteinn kynntust í Iðnskólanum í Hafn- arfirði. Þau hófu búskap í Hafn- arfirði og bjuggu þar alla tíð fyr- ir utan nokkur ár í Noregi. Sigurlaug og Hafsteinn voru gift í nærri 40 ár. Áhugamál hennar voru m.a. prjónaskapur, samneyti við fólk og göngutúrar. Útför Sigurlaugar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 19. október 2021, klukkan 15. 15.6. 1958. Þau giftu sig 29.5. 1982. Foreldrar hans eru Sigurbjörg Sæ- mundsdóttir, f. 24.9. 1928, d. 8.10.1994, og Har- aldur Hafliðason, f. 6.5. 1929, d. 21.9. 2016. Börn þeirra eru: 1) Davíð, f. 30.9. 1982, maki Unnur Björk Þór- arinsdóttir, f. 28.9. 1985. Dætur þeirra eru Júlía Björg, f. 14.4. 2008, og Ellie Sigurlaug, f. 29.11. 2020. 2)Ásta Rakel, f. 19.5. 1987, maki Sigurður Jónsson, f. 27.10. 1986. Börn þeirra eru Dagur, f. 26.8. 2006, Karen Eva, f. 28.2. 2011, og Jón Hafsteinn, f. Elsku besta Silla, ég elska þig. Ég hef aldrei skrifað þér ástar- bréf. Einhver sagði betra seint en aldrei, ég man þegar ég sá þig fyrst í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Þú sast á tröppunum, ég horfði á þig og dáðist að þínu fallega brosi og þessum brúnu krullum. Ég var bú- inn að sjá þig oft og á endanum þorði ég að bjóða þér út. Þann 9. nóvember bauð ég þér í bíó á gamanmynd, það var vont veður úti, snjókoma og rok, þú bara 17 ára og ég 21. Ég elska þig. Og svo gerðist það þetta kvöld fyrir utan Birkihvamm 5 að ég kyssti þig einn koss, þá varstu mín kærasta, þá var ekki aftur snúið. Ég elska þig. Frá þessu kvöldi hef ég elskað þig og virt. Við vorum góð saman og miklir vinir við byrjum að búa í Köldukinn 6 í kósý risíbúð, þar nutum við okk- ar, áttum margar góðar minningar, þar byrjaði ástin að blómstra, ég elska þig. Ég lofaði Sillu að ég skyldi kvænast henni ef hún væri góður kokkur og hún stóð við það og ég stóð við mitt loforð þann 29. maí 1982. Ég elska þig. Eins og lífið býður upp á komu tímar sem voru erfiðir hjá okkur, en þá studdir þú við mig og ég við þig. En þeir tímar sem voru góðir sem við áttum voru mörgum sinum fleiri þar sem þú sýndir mér ást og hlýju. Þessi ást og hlýja leiddi af sér þrjú börn sem þú gafst mér og okk- ur og ekki minnkaði ást mín á þér við það. Við gáfum þeim alla ást sem við áttum og afrakstur eru 5 falleg barnabörn og ekki minnkaði ástin við það, ég elska þig. En svo gerist það einn dag að dimm ský og óveður skella á okkur og reyna að rífa okkur sundur, við reynum að berjast og stundum náðum við að hafa betur með sól í hjarta en þetta óveður er það sem við ráðum ekki við, það nær taki á Sillu minni og rífur hana frá mér og hún hverfur mér frá og eftir það er hjartað mitt brotið, ég elska þig. Hví þurfti þetta að gerast? Af hverju nú? Hví ekki þegar við yrðum gömul? Af hverju þú? (Katrín Ruth) Ástarkveðja, ég elska þig að eilífu. Hafsteinn G. Haraldsson. Elsku fallega mamma mín. Trúi því ekki að þú sért farin frá mér. Þú fórst frá mér allt of fljótt, ég er bara 25 ára ég var svo langt frá því að vera tilbúin að missa þig elsku mamma mín. Það er ekki hægt að lýsa því hversu mikið ég sakna þín og hversu óraunverulegt það er að hafa þig ekki hjá mér lengur. Hjartað mitt er svo tómlegt án þín. Ég veit við eigum endalaust af minningum en ég myndi þurfa að skrifa heila bók ef ég ætti að skrifa þær allar hérna, okkur fannst svo gaman að baka saman, fórum svo mikið saman í heimsókn- ir til vinkvenna þinna og fjölskyld- unnar okkar, gerðum alveg ótal- margt skemmtilegt saman. Svo smá gaman að segja frá því að það var nú alltaf þannig þegar þú frétt- ir það að ég væri að stinga saman nefjum með strák að þá vildir þú alltaf fá alla ævi söguna hans strax þér var sko ekki sama hvern ég var að hitta, mér fannst það nú alveg óþolandi. Ég vildi óska að ég hefði fengið að búa til mun fleiri minn- ingar með þér. Svo langaði mig bara til þess að þú vitir að þú ert ástæðan fyrir því að mér gengur svona vel í lífinu, ég var alltaf að spyrja hvort ég megi ekki bara fara og búa og leigja með vinkonum mínum en þú harðbannaðir mér það alltaf sagðir að ég færi ekki að heiman fyrr en ég væri búin að safna fyrir og kaupa íbúð, í dag er ég endalaust þakklát fyrir það því ég ætti ekki þetta fallega hús í dag ef það væri ekki fyrir þig og þín góðu ráð elsku mamma mín. Þú hefur bara kennt mér svo ótal margt. Takk fyrir að passa Emmuna mína. Takk fyrir alla hjálpina, alltaf til í að hjálpa mér með allt. Takk fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig. Takk fyrir að gefa mér bestu ráðin með allt. Takk fyrir að kenna mér á lífið. Takk fyrir að kenna mér að spara. Takk fyr- ir að vera besta mamma í heim- inum! Ég lofa að passa vel upp á fal- lega hringinn sem þú gafst mér svo fallega og innilega nokkrum dögum áður en þú fórst frá mér, og hugsa til þín á hverjum ein- asta degi þegar ég sé hann því hann er svo mömmulegur og mér þykir svo vænt um þennan fal- lega hring sem þú gafst mér. Ég sakna þín svo mikið, Elska þig endalaust mamma mín! Ég lofa að passa vel upp á besta pabba í heimi, ég skal hugsa vel um hann fyrir þig, elsku mamma mín. Elska þig, þínar stelpur, Sara og Emma. Elsku mamma, ég mun minn- ast þín fyrir þá hlýju og kærleik sem þú gafst mér, þína yndislegu nærveru og þitt fallega bros. Þú gafst mér líf og mun ég alltaf vera litli strákurinn þinn sem þér þótti svo vænt um og vildir allt fyrir gera. Þú varst alltaf tilbúin að hlusta þegar ég var lítill í mér og leið illa, alltaf náðir þú að hressa mig við, allir kaffibollarn- ir sem við drukkum saman, alveg ómetanlegar stundir, göngu- túrarnir, samtölin um falleg ís- lensk heimili, að horfa á þig með Júlíu og Ellie, það eru þessar litlu stundir sem eiga eftir að lifa í minningunni. Í mínu lífi varst þú alltaf miðpunkturinn, sú sem ég horfði til í myrkri, þú varst ljósið sem ég þurfti. En nú ertu farin á betri stað og í góðum félagsskap hjá okkar fólki, en stundum vildi ég bara að við gætum verið sam- an þar til allt verður eins og það var, að við gætum bara lokað augunum til að sjá ekki það sem var að og bara gleymt því í eitt augnablik. Ég mun halda minningunni þinni á lífi, segja Ellie Sigurlaugu frá þér, segja henni að þú varst besta amma í heimi og ég veit að Unnur og Júlía munu hjálpa mér að halda minningu þinni lifandi. Núna ertu alltaf hjá okkur í anda og ég mun hugsa til þín þegar ég fæ mér morgunbollann og þegar sólin skín inn um stofugluggann þar sem þú áttir fastan stað á okkar heimili. Elska þig að eilífu, mamma mín. Þinn strákur, Davíð. Ég hef verið treg til að setjast niður og byrja að skrifa! Held það sé af því mér finnst þetta ennþá svo sárt, óraunverulegt og ósann- gjarnt! Aldrei hef ég upplifað jafn mikinn andlegan sársauka eins og daginn sem þú kvaddir! En þegar ég horfi fram hjá því stendur eftir þakklæti! Þakklát fyrir að hafa átt þig sem mömmu og ömmu barnanna minna. Þakk- lát fyrir að eiga bleikan sem uppá- haldslit með þér! Þakklát fyrir að vera besta vinkona þín og síðast er ég svo þakklát að þú beiðst eftir mér og leyfðir mér að halda í höndina þína síðasta klukkutím- ann þinn. Það var dýrmætasti klukkutími sem ég hef upplifað! Minningarnar okkar saman eru óteljandi og mun ég ylja mér við þær þegar ég sakna þín. Við Siggi og krakkarnir munum halda minningunum lifandi með því að rifja þær upp og hlæja, gráta og dást að því hversu skemmtileg, dugleg, hlý, góð, þolinmóð og ljúf þú varst! Betri konu er ekki hægt að finna! Takk fyrir að sýna okkur öllum hvernig alvöru skilyrðislaus ást er! Ég elska þig! Þín, Ásta Rakel. Elsku Silla mín. Ég er viss um að flestir hafa heyrt um hræðilegar tengdamæð- ur í gegnum ævina. Tengdamæð- ur sem eru afskiptasamar og virð- ist sem þær reyni að gera allt til þess að vera pirrandi. Þegar ég mætti í Einihlíðina í fyrsta skipti þá var það ekki einhver hræðileg kona sem tók á móti mér heldur yndisleg móðir, sem frá fyrsta degi sýndi mér væntumþykju og áhuga. Við fórum frá því að vera tengdamóðir og tengdadóttir í að verða góðar vinkonur, sem bæði gátum hlegið saman og talað um lífið og tilveruna. Ég er svo ótrú- lega þakklát fyrir það að það varst þú sem varst tengdamóðir mín og amma dætra okkar Davíðs. Ynd- isleg amma sem var alltaf til í að leika og spjalla. Meistari í að gera skonsur og baka föstudagspizzu. Hugsunin um það að við eigum ekki eftir að fara í bæjarferð, drekka kaffi og ræða um nýjasta múminbollann eða bara sitja og spjalla aftur er mér eiginlega óskiljanleg. Ég trúi því varla að við séum að kveðja þig strax. Þú barðist eins og hetja alla leiðina og þú skilur eftir þig stórt holrúm í hjarta okkar allra. Ég vona inni- lega að þú hafir fundið ró og að amma Ásta og Gunni afi hafi tekið á móti þér með opnum örmum. Þú verður alltaf í huga okkar og þín verður sárt saknað. Ég elska þig, Silla mín, og ég veit að þú munt vaka yfir okkur. Þín tengdadóttir, Unnur. Elsku amma. Því miður var okkar tími saman allt of stuttur. Ég veit að pabbi, mamma og Júlía eiga eftir að segja mér margar góðar sögur um þig og þína ást til fjölskyldunnar þinnar. Ég mun bera nafnið þitt með stolti og munt þú lifa í minn- ingu minni. Við kveðjum þig, kæra amma, með kinnar votar af tárum. Á ást þinni enginn vafi, til okkar, við gæfu þá bárum. Horfin er hönd þín sem leiddi á hamingju- og gleðifundum, ástúð er sorgunum eyddi, athvarf á reynslustundum. Margt er í minninga heimi mun þar ljósið þitt skína. Englar hjá guði þig geymi, við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Þitt barnabarn, Ellie Sigurlaug. Elsku amma mín. Ég vill þakka þér fyrir að hafa verið yndisleg amma. Alltaf bros- andi og hlý. Ég á eftir að sakna þín svo. Takk fyrir að ýta mér í hest- ana. Ég hugsa svo oft um það sem þú sagðir við mig. Að ég ætti alltaf að prufa og aldrei sleppa. Takk fyrir þig, elsku amma mín. Elska þig. Hvíldu í friði. Hér að hinstu leiðarlokum ljúf og fögur minning skín. Elskulega amma góða um hin mörgu gæði þín. Allt frá fyrstu æskudögum áttum skjól í faðmi þér. Hjörtun ungu ástúð vafðir okkur gjöf sú dýrmæt er. Hvar sem okkar leiðir liggja lýsa göfug áhrif þín. Eins og geisli á okkar brautum amma góð, þótt hverfir sýn. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þitt barnabarn, Júlía Björg. Silla systir mín tapaði sinni bar- áttu við krabbameinið. Núna er hún komin í hlýjan faðm foreldra okkar. Að missa móður sína og systur á sama árinu er þungbært. En ég er þó þakklátur fyrir að þú skyldir hafa séð Tinnu Sóleyju, náð að halda á henni og vera við- stödd skírnina hennar og óvæntu giftinguna. Það er mér gríðarlega dýrmætt. Þú varst alltaf til í að passa stelpurnar mínar. Er mér minnisstætt þegar þú tókst Lilju og Brynju í næturgistingu helgina þegar við vorum að flytja í Gerð- hamra. Það var skemmtilegt og spennandi fyrir mínar stúlkur. Silla var mikill Hafnfirðingur og bjó víða í bænum. Ég var tíður gestur á heimili hennar og Hadda í minni barnæsku. Hvort sem það var á Skerseyrarvegi, Suðurvangi, Stuðlabergi eða í Einihlíðinni. Frá öllum þessum stöðum á ég góðar og ljúfar minningar. Brauð með banana og skyr var nokkuð oft á matseðlinum þegar ég og Davíð vorum litlir pjakkar. „Alltaf það sama“, sagði hún við mig nokkrum dögum fyrir andlátið þegar ég var að rifja upp fortíðina með henni. Silla hafði einstakt lag á að hræra gott skyr og það var alltaf best hjá henni. Alveg sama hvað ég og mamma reyndum heima, okkur tókst ekki að hræra jafngott skyr. Föstudagspizzan hjá Sillu var alltaf fastur liður á föstudögum og ef vel áraði hjá Sillu þá bauð hún mér og foreldrum okkar í lamba- hrygg á sunnudagskvöldi. Þetta var einfalt og gott fyrirkomulag. Óþarfi að flækja lífið. Silla var dugleg til vinnu. Hún bar út póst- inn í mörg ár í norðurbænum í Hafnarfirði. Hún hafði mikinn áhuga á að hafa fallegt í kringum sig, bæði handavinnan og garð- verkin léku í höndunum á henni. Hún var einnig hárgreiðslukona nokkurra fjölskyldumeðlima og klippti oft á mér hárið þegar ég var yngri. Hún kom mjög reglu- lega í Birkihvamminn að laga á mömmu hárið. Silla var mikil mömmustelpa enda skírð í höfuðið á móðurömmu sinni. Mæðgurnar eru nú sameinaðar á himnum, ásamt pabba. Tengdamamma þín tekur einnig vel á móti þér en hún féll frá á sama degi fyrir 27 árum. Hvíldu í friði, kæra og ljúfa systir, tilveran er fátæklegri án þín. Þinn bróðir, Gunnar. Elsku Silla systir. Auðvitað var aðdragandi en þetta er svo sárt og hefði ekki þurft að gerast. Þú varst of kurt- eis við heilbrigðiskerfið, var sagt, og það brást þér algjörlega. Að sitja hér og skrifa minning- argrein um það, elsku systir, er svo óraunverulegt og ósann- gjarnt. Minning okkar um þrautseigju þína, þína fallegu framkomu við alla og heimilið þitt sem var þinn griðastaður og allir velkomnir. Veislurnar með hnallþórunum og öllu hinu góðgætinu töfraðir þú bara fram. Ég minnist elsku þinnar til okk- ar systkina, systkinabarna og fal- legu gjafanna sem þú gafst okkur. Svo þegar barnabörnin þín komu – aðeins að róa sig, Silla. Þú tókst þetta hlutverk mjög alvarlega og elskaðir þau meira en allt. Við systur minnumst sumar- búðstaðaferðanna, Spánarferð- anna, Boston og sumarsins á Vest- fjörðum 2020. Allt dásamlegar minningar og þú í essinu þínu. Elskaðir sólina. Hulda minnist þess þegar þið voruð litlar að þú komst og skreiðst upp í til hennar því þú gast ekki sofnað. Þetta gerðist oft og er yndisleg minning. Þú varst dugleg að passa okkur litlu systkinin þín en þegar þú varst unglingur og fékkst vinkon- ur í heimsókn fékk ég ekki að koma inn. Við vorum alltaf mjög nánar og þú náðir að plata mig til Hafnar- fjarðar. Þar sem þú sagðir að væri best að búa. Við bjuggum saman í 20 ár í Setberginu. Góður göngu- túr var á milli okkar. Það var ynd- islegt að fá þig í kaffi og þú elsk- aðir að fara út að labba með börnin, barnabörnin og hundana. Þeim var ekkert hlíft við að ganga upp á fjallið til mín. Þú bara hafðir svo gaman af útiveru og fannst þína ró í göngu- túrunum. Elsku Silla. Við viljum af öllu hjarta þakka fyrir samfylgdina og vitum að þú ert komin í faðm foreldra okkar og elskulegu tengdaforeldra þinna. Þínar systur, Hulda og Gunnhildur. „Þarna er góða konan í skólan- um mínum,“ hvíslaði lítið stelpu- skott að ömmu sinni þegar hún sá Sillu í afmæli hjá okkur. Þetta voru orð að sönnu því elsku Silla umgekkst börn sem jafningja, með eftirtektarverðri hlýju og virðingu. Hún var með eindæmum blíð og mild auk þess að vera traust, heiðarleg og falleg. Þær ylja minningarnar frá þeim tíma þegar stóri bróðir hjálpaði litlu systur við lesturinn og heimalærdóminn. Eins þegar við í sameiningu svæfðum og bíuð- um „litlu krakkana“ en það var samheiti yfir þau Gunnhildi og Valdimar. Þegar sást til Sillu voru „litlu krakkarnir“ ekki langt und- an enda var hún einkar viljug að hafa ofan af fyrir þeim. Það voru hvorki bægslagangur né læti þar sem Silla var á ferð. Hún var miðjubarnið í sjö systk- ina hópi þar sem eðlilega var bar- ist um athygli foreldranna. En það var seigt í Sillu. Það kom vel í ljós þegar henni var falið, aðeins 15 ára, að hugsa um „litlu krakkana“, heimilið og pabba eftir að hann lenti í alvarlegu vinnuslysi og mamma hóf að sækja vinnu úti á landi til að sjá fyrir heimilinu. Hún axlaði þessa ábyrgð af stakri sam- viskusemi og prýði. Það hefur án efa markað spor í barnshugann. Silla kynntist Hadda sínum ung og fyrr en varði stækkaði fjöl- skyldan. Hún bjó Hadda og börn- unum þremur fallegt heimili sem bar smekkvísi hennar gott vitni. Það var yndislegt að koma í heim- sókn, góður andi, hlýleiki og gest- risni. Silla var mikil fjölskyldu- manneskja og naut sín best innan um fólkið sitt. Silla greindist með brjósta- krabbamein á frumstigi fyrir fjór- um árum og eftir brjóstnám talin læknuð af meininu. Fyrir ári greindist hún aftur og þá með Sigurlaug Gunnarsdóttir Okkar elskaði sonur og bróðir, SNORRI HARÐARSON, varð bráðkvaddur á heimili sínu, Asparfelli 8, Reykjavík. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 22. október klukkan 14. Sigríður Ása Einarsdóttir og fjölskylda Ástkær sonur okkar og bróðir, EINAR VIGNIR SIGURJÓNSSON, Álfaskeiði 127, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 20. október klukkan 13. Elín S. Hallgrímsdóttir Sigurjón E. Einarsson Hrafnhildur Elínardóttir Íris Sigurjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.