Morgunblaðið - 19.10.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 19.10.2021, Qupperneq 21
langt gengið krabbamein. Silla hafði þá um nokkurt skeið gengið milli heilbrigðisstofnana og bent á að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera, sárkvalin. Það er sárt til þess að hugsa að þetta þurfti ekki endilega að fara svona. Það var einmitt það sem Sillu var um- hugað um; að komist yrði að því hvað fór úrskeiðis í hennar tilviki, að lærdómur yrði dreginn af hennar veikindasögu og að hlust- að væri á konur, svo þær lifðu af. Þannig var Silla, fyrst og síðast að hugsa um aðra. Elsku Haddi, Davíð, Ásta Rak- el, Sara, Birkihvammssystkinin og fjölskyldur ykkar allra, blessuð sé minning Sillu, góðrar systur og mágkonu. Ágúst Þór Gunnarsson og Hólmfríður Sigurðardóttir. Elsku Silla frænka. Þú varst eins og önnur mamma fyrir mér og mun verða svo erfitt og tómt að hafa þig ekki lengur hjá okkur. Þú varst alltaf svo góð við mig og hugsaðir svo vel um mig. Þú varst alltaf mætt í heimsókn þegar ég var að koma heim úr skólanum og alltaf var jafn gaman að koma heim og spjalla við þig. Ég horfði alltaf á þig og sá fal- lega, duglega konu sem var alltaf svo fín og hárið þitt svo krullað og flott. Þú varst alltaf til í að klippa mig og hafði ég aldrei farið annað í klippingu fyrir 18 ára aldur. Elsku Silla, það er erfitt að hafa ekki getað kvatt þig almennilega, þú fórst því miður alltof fljótt frá okkur. Ég veit að afi og amma taka vel á móti þér. Takk fyrir allar góðu stundirn- ar elsku frænka, ég mun sakna þín mikið. Þín Eva. Elsku mágkona. Þessi orð eru erfið og ótímabær. Ég minnist þess að eftir að ég kynntist Gunnhildi, systur þinni, að mín fyrsta heimsókn var til ykkar hjónanna. Gunnhildur vildi auðsýnilega fá hreinskilið sam- þykki fyrir ráðahagnum frá stóru systur. Miðað við framvindu þess máls þá hefur hún fengið þitt sam- þykki. Þetta var upphafið á mikl- um og góðum samskiptum sem ég á eftir að sakna um ókomna fram- tíð. Takk fyrir alla samveruna, veislurnar, ferðalögin og ástúðina þessi 30 ár. Takk fyrir alla hjálp- ina með dætur okkar Gunnhildar sem var ómetanleg. Takk fyrir öll árin. Erfið eru þó tárin. Þau lækna víst sárin. Takk fyrir öll árin. Þinn mágur og vinur Rannver. Nú er fallin frá mín besta og elskulegasta vinkona, elsku Silla okkar, farin úr blóma lífsins eftir erfið veikindi. Við Silla kynntumst í Víghólaskóla 14 ára gamlar og höfum fylgst að allar götur síðan. Var ég eins og heimalningur í Birkihvamminum hjá Sillu og hennar fjölskyldu í gegnum ung- lingsárin. Var okkar vinátta ein- læg og góð og var hún mér virki- lega dýrmæt. Við áttum margt sameiginlegt og höfðum einstakan áhuga á að skoða fasteignir og inn- anhússhönnun og var hún Silla mikill fagurkeri. Árin hennar í Noregi skrifuðumst við reglulega á og áttum við stöllur alltaf eftir að lesa bréfin okkar saman en ég mun ylja mér yfir þeirri lesningu og rifja upp gamla góða tíma. Undir lok veikinda hennar vorum við duglegar að hittast, fara í stutta göngutúra og horfa saman á Heimsókn með Sindra og njóta líðandi stundar. Ég kveð þig með sárum söknuði og hlýju í hjarta. Þín vinkona, Þorbjörg Sigurjónsdóttir (Tobba). MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021 Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍNBORG BERNÓDUSDÓTTIR, Miðstræti 11, Vestmannaeyjum, lést aðfaranótt 17. október á sjúkrahúsinu í Eyjum. Útförin verður auglýst síðar. Ölver Jónsson Svanhildur Inga Ólafsdóttir Hinrik Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð samúð og hlýhug í veikindum og við fráfall okkar ástkæra GUNNLAUGS V. SNÆVARR. Auður Adamsdóttir Þórhildur Erla Pálsdóttir Jóna G. Snævarr Ingibjörg A. Snævarr Stefanía Rósa Snævarr Ingimar Einarsson Stefán Þór Ingimarsson Anna Guðrún Birgisdóttir Inga Jóna Ingimarsdóttir Gunnar Jakob Briem Ástkær móðir okkar, HÓLMFRÍÐUR GESTSDÓTTIR, Sunnubraut 8, Kópavogi, andaðist í Sunnuhlíð 15. október. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 1. nóvember klukkan 15. Gestur Jónsson Helga Jónsdóttir Skafti Jónsson Gunnar Jónsson og fjölskyldur Okkar ástkæra ÞÓRDÍS BERGSDÓTTIR frá Ketilsstöðum, Öldugötu 11, Seyðisfirði, fv. heilbrigðisfulltrúi og framkvæmdastjóri Ullarvinnslu Frú Láru, lést 8. október. Útförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju föstudaginn 22. október klukkan 14. Kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahúss Seyðisfjarðar. Bergur Tómasson Ásdís Benediktsdóttir Sigurður Tómasson Hildur Tómasdóttir Valdimar Jörgensen Þórdís Tómasdóttir Emil Tómasson María Michaelsdóttir Tómas Tómasson barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn, makar og aðrir aðstandendur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HALLDÓRA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR frá Bólstaðarhlíð í Vestmannaeyjum, lést í faðmi fjölskyldunnar á Hraunbúðum miðvikudaginn 13. október. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 29. október klukkan 13. Athöfninni verður streymt á vef Landakirkju, landakirkja.is. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Hraunbúða. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Hraunbúða fyrir einstaka umönnun og væntumþykju. Halldór Ingi Guðmundsson Anna Þóra Einarsdóttir Guðmundur Guðmundsson Sigríður Stefánsdóttir Ólafur Guðmundsson Valgerður Karlsdóttir Eygló Guðmundsdóttir Þór Kristjánsson Bjarni Ólafur Guðmundsson Guðrún Mary Ólafsdóttir Þröstur Guðmundsson Erna Björnsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn ✝ Hólmfríður Inga Guð- mundsdóttir, eða Fríða eins og hún var alltaf kölluð, fæddist í Reykjavík 2. október 1954. Hún lést á LSH í Fossvogi 12. októ- ber 2021. Foreldrar henn- ar voru Arndís Theódórs, f. 5.5. 1918, d. 30.12. 2007, og Guð- mundur Marías Guðmundsson, f. 23.6. 1922, d. 21.8. 1982. Bræður Fríðu eru Borgar Skarphéðinsson, f. 3.4. 1949, og Guðmar Finnur Guðmundsson, f. 28.10. 1952. 2015. 3) Rakel Rut, gift Kristni Tý Gunnarsyni, f. 19.11. 1976, börn þeirra eru Alexía Rós, f. 15.7. 2003, Aþena Inga, f. 28.6. 2007, Theodór Týr, f. 24.5. 2011, Gunnar Máni, f. 11.4. 2017. Fríða bjó með Sveini Inga Sigurðssyni, f. 2. maí 1964, frá 1988 til dánardags. Fríða ólst að mestu leyti upp í Litlaholti, Saurbæ í Dalasýslu, og flutti með fjöldskyldu sinni til Suðureyrar við Súgandafjörð á unglingsárum. Hún bjó í nokk- ur ár á Eyrarbakka en hefur búið á Reykjavíkursvæðinu síð- an 1981. Framan af starfaði Fríða við verslunarstörf og fiskvinnslu, hér af átta ár hjá Pizzahúsinu. Hún hóf störf hjá Olís 1. febrúar 1991 og starfaði þar fram að andláti sínu. Útför Fríðu fer fram frá Garðakirkju í dag, 19. október 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. Hún giftist Sig- urði Inga Svav- arssyni, f. 14.11. 1949, þau slitu sam- vistum 1983. Börn þeirra eru: 1) María Ósk, f. 11.2. 1975, maki Anders Bram- sen, f. 20.12. 1974, börn hennar eru Gabriel Christian, f. 17.5. 2001, Ísak Snorri, f. 7.2. 2003, og Esja Ósk, f. 26.8. 2010. 2) Arnar Ingi, f. 22.11. 1976, maki Sigurveig Benedikta Þórhalls- dóttir, f. 24.9. 1983, dætur þeirra eru Bríet Klara, f. 20.4. 2006, Malín Salóme, f. 24.4. 2012, og Íris Kristjana, f. 7.10. Kæra Fríða. Nú þegar þú hefur kvatt eftir stutta en snarpa baráttu við íllvíga sjúk- dóma, koma upp í hugann örfá kveðjuorð. Þakka þér fyrir þann tíma sem við áttum saman, þakka þér fyrir börnin okkar, Maríu, Arn- ar og Rakel, og hversu vel þú hefur sinnt þeim og barnabörn- unum sem öll búa í Danmörku, einnig þakka ég fyrir að vin- skapur okkar hefur haldist alla tíð, börnum og barnabörnum til mikillar ánægju. Þá vil ég votta fjölskyldu þinni, Svenna, ættingjum og vinum mína dýpstu samúð. Sigurður Ingi. Það er með miklum trega sem ég kveð hana Fríðu vinkonu mína og samstarfskonu til 30 ára. Hún kvaddi okkur allt of fljótt eftir skammvinn en erfið veikindi. Leiðir okkar Fríðu lágu fyrst saman fyrir 50 árum á Suður- eyri þegar við vorum báðar búð- arkonur í búðinni hans pabba, þá var hún 16 og ég 12 ára. Á þessum árum er aldursmunur- inn mikill og frekar að ég liti upp til hennar en að við næðum að verða vinkonur. Ég minnist þess alltaf hvað pabbi var ánægður með hana og störf hennar og hvað hann bar mikið traust til hennar. Við Fríða hittumst svo á ný fyrir 30 árum þegar við hófum báðar störf hjá Olís með mán- aðar millibili og var það hún sem tók á móti mér í mínum fyrsta bensínstöðvarrúnti en þá var hún vaktstjóri í Gullinbrú. Þarna hófust kynni okkar að nýju og úr því þróaðist traust og góð vinátta. Nú síðustu árin höf- um við starfað saman á mann- auðssviði Olís og er á engan hallað þó ég segi að það er vand- fundin sú manneskja sem býr yfir meiri vinnusemi og vilja til að ganga í og leysa öll verk sem vinna þarf. Fríða var alltaf mætt fyrst á morgnana og var notalegt að fá „góðan daginn“- kveðju frá henni þegar maður kom til vinnu og oft settumst við niður yfir góðum kaffibolla og tókum smá spjall í upphafi dags. Fríða vann stöðugt að því að efla þekkingu sína og færni. Þetta gerði hún með því að sækja námskeið og ekki síður með því að vera alltaf reiðubúin að tak- ast á við ný og ögrandi verkefni sem gerðu kröfur til hennar. Ég minnist þess ekki að hún hafi sagt nei eða gefist upp við við nokkurt verkefni sem kom inn á hennar borð, hvort sem það tengdist starfi hennar beint eða var bara eitthvað sem þurfti að leysa. Dugleg, þrautseig, úrræða- góð, traust, skemmtilegur félagi og góður vinur eru orð sem lýsa Fríðu svo vel og þeim minning- um sem ég á um hana. Það verður erfitt að fylla það skarð sem Fríða skilur eftir sig hjá Olís því ekki aðeins var hún með svo ótalmörg verkefni á sinnu könnu heldur var hún svo mikill og góður félagi, vinur og samstarfsmaður. Verkefni hennar, sem sérfræðingur á mannauðssviði, tengdust starf- semi Olís um allt land og var hún óþreytandi að koma með góðar ábendingar og hugmyndir um það sem hún sá tækifæri í eða að mátti betur fara. Fríða var mikil fjölskyldu- kona og elskaði að heimsækja börnin sín og fjölskyldur þeirra hvenær sem tækifæri gafst, en þau eru öll búsett í Danmörku. Barnabörnin voru henni mjög dýrmæt og var mikil gleði að hún og Svenni náðu að vera með þeim í ágúst síðastliðnum þegar tvö þeirra fermdust. Ég bið góðan guð að blessa allt fólkið þitt, Svenna, Maríu, Rakel, Arnar og fjölskyldur þeirra og gefa þeim styrk í sorg sinni. Ég þakka af heilum hug góða vináttu og samstarf sem aldrei bar skugga á og kveð þig, elsku vinkona, með vissu um að við hittumst á ný. Far þú í friði, elsku Fríða. Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir. Hólmfríður Inga Guðmundsdóttir Í huganum var alltaf sólskin í Keflavík þegar ég hugsa til æskuár- anna og vinkonu minnar Hjördís- ar sem ég kveð nú. Við vorum þriggja, fjögurra ára tátur þegar við urðum vinkonur. Áttum heima rétt hjá hvor annarri. Þá var mikið og öflugt mannlíf, átta til tíu börn í hverju húsi. Mikil samkennd og mikil gleði. Fólk hjálpaðist að og það skipti máli. Litlu hlutirnir urðu stórir. Heima hjá Hjördísi voru þau tíu systk- inin, heima hjá mér voru börnin átta. Pabbi Hjördísar, Ólafur, átti stóran vörubíl með „boddíi“ eins og það var kallað. Það var mikið ævintýri að fá að sitja þar á dív- an, þó ekkert væri útsýnið. Keyra út vörur með Ólafi eða fara í berjamó með stórfjölskyldunni. Ég fékk alltaf að koma með. Og sólin skein. Við vinkonurnar fylgdumst að í lífinu. Fórum sam- an á unglingsárunum í hús- mæðraskólann að Staðarfelli. Þar Hjördís Ólafsdóttir ✝ Hjördís Ólafs- dóttir fæddist 5. júní 1949. Hún lést 2. október 2021. Hjördís var jarð- sungin 8. október 2021. lærðum við undir- stöðuatriði í hús- haldi og handavinnu ýmiss konar. Það var ómetanlegur tími og mikið sól- skin. Við kynntumst báðar ástinni ungar. Hún Sigurði sínum og ég Björgvini mín- um. Við eignuðumst líka börnin okkar þrjú hvor á svipuð- um árum. Og það var mikið sól- skin. Hjördís vinkona mín var fal- leg kona og vel gerð, henni var margt til lista lagt, hún elskaði söng og hún elskaði börn. Sinnti öllu sínu af alúð. Það dró fyrir sólu hjá elskulegri vinkonu minni þegar hún missti manninn sinn og besta vininn, hann Sigurð, allt- of fljótt. Stór verkefni voru henni færð síðustu árin í hennar eigin veikindum. En sólskinið bjó innra með Hjördísi. Hún stráði geislum sínum til barna sinna og ástvina. Nú er kveðjustundin runnin upp. Ég þakka Hjördísi, minni ást- kæru æskuvinkonu, árin öll og allar yndisstundirnar. Veri hún góðum Guði falin í ljóssins landi. Guð blessi börnin hennar öll. Guð blessi minningu Hjördísar Ólafs- dóttur. Hafdís Sigurbergsdóttir, Dalvík. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.