Morgunblaðið - 19.10.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.10.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimi m. Milan kl. 10.30. Leshringur kl. 11.15 Handavinna kl. 12-16. Karlakórinn Kátir karlar kl. 12:45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Boðinn Haustfagnaður Boðans kl. 14:00, Örn Árnason skemmtir af sinni alkunnu list, veglegt brauð/tertuborð. Ganga/stafganga kl. 10:00. Fuglatálgun kl. 13:00. Bridge og Kanasta fellur niður v/ Haustfagn- aðar. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl.13.30 Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar Kristjáns- dóttur djákna og Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Súpa og brauð eftir stundina. Félagsstarf eldri borgara kl. 13 Steinunn Leifsdóttir íþróttafræðingur fræðir okkur um mikilvægi jafnvægisæfinga og kennir einfaldar æfingar. Verið velkomin í gott og gefandi samfélag. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Prjónað til góðs kl. 8:30-12:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12:30-15:30. Svanur Heiðar Hauksson. „Gleðin er besta víman“ kl. 13:30. Bónusrútan kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Bókabíllinn kl. 14:45. Garðabær Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jóns- húsi kl. 10:00. Qi-Gong í Sjál kl. 9:00. Stólajóga kl. 11:00 í Jónshúsi. Leikfimi í Ásgarði kl. 12:15. Boccia í Ásgarði kl. 12:55. Smíði kl. 9:00 og 13:00 í Smiðju Kirkjuhv. Fyrirlestur í Jónshúsi kl. 13,30 „Að næra dell- una sína“ Áhugamál –Tengsl - Lífsgæði Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30 og 13 til 16 opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 9 til 10.15 Qigong æfingar í hreyfi- og aðalsal. Kl.16 til 18 Nafnlausi leikhópurinn með námskeið í upplestri og framsögn. Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 19. október verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13:00-15:00. Gestur í opna húsinu verður Kristín Snorradóttir. Kristín mun spila á hug- leiðsluskálar. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti að opna húsinu loknu. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst kl. 12. Að henni lokinni er boðið upp á léttar veitingar gegn vægu gjaldi. Gullsmári Myndlist kl. 9.00 Boccia kl 10.00Tréútskurður og Kanasta kl. 13.00 Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli 9:00-11:00. Handavinna með leiðbeinanda kl 9:00-12:00. Dans með Auði Hörpu kl 10:30. Félagsvist kl 13:00 þátttökugjald er 200kr, léttar veitingar seldar í hléi. Hraunsel Billjard: Kl. 8-16. Dansleikfimi kl. 9. Qi Gong kl. 10.00. Bridge kl. 13.00. Hvassaleiti56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleik- fimi kl. 9:45. Jóga með Rakel Írisi kl. 9:00. Bridge í handavinnustofu 13:00. Bingó kl. 13:15 Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Listmálun í Borgum kl. 9:00 þátttökuskráning. Morgunleik- fimi í Borgum kl. 9:45 Boccia kl. 10 í Borgum. Helgistund í Borgum kl. 10:30 og leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 11:00 Margrét leiðbeinir uppbókað. Spjallhópur í Borgum kl. 13 og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 14. Lagt af stað kl. 09:00 stundvíslega frá Borgum í dagsferð Korpúlfa á morgun. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Sr. Skúli S. Ólafsson fjallar um Hósea spámann úr Gamla testamenninu. Kaffiveitingar. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist bútasaumshópur í handa- vinnustofu milli kl. 09-12. Hópþjálfun verður í setustofu 2. hæðar milli kl. 10:30-11:00. Þá verður tölvu og snjalltækjaaðstoð í setustofu milli kl. 11:00-11:30. Bókband er í smiðju 1. hæðar milli 13:00-16:30. Milli kl. 13:30-14:30 hlustum við saman á hlaðvarp í handavinnustofu. Þá leg- gjum við af stað í göngu með viðkomu í verslun kl. 15:00 úr móttöku. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10. Kaffikrókur frá kl. 9.00. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfim í Hreyfilandi kl. 11.30. Helgi9stund á Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14.00. Örnámskeið roð/leður kl. 15.30. Vantar þig fagmann? FINNA.is Færir þér fréttirnar mbl.is ✝ Árni Marinós- son fæddist á Akranesi 30. júlí 1945. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 12. októ- ber 2021. Foreldrar hans voru Hansína Guð- mundsdóttir frá Akranesi, f. 26. júní 1913, d. 27. janúar 2001, og Marinó Einar Árnason frá Bolungarvík, f. 5. nóvember 1912, d. 2. júní 2007. Systkini Árna eru Þórir, f. 10. september 1935, Atli, f. 20. febrúar 1942, og Valgerður, f. 1. júní 1951, d. 23. júní 2020. Hinn 15. júlí 1972 kvæntist Árni eftirlifandi eiginkonu sinni, Höllu Valdísi Friðbertsdóttir frá Súðavík, f. 29. júní 1949. For- eldrar Höllu voru Kristjana Magnea Jónatansdóttir, f. 23. desember 1927, d. 24. janúar 2019, og Friðbert Halldórsson, f. 29. september 1919, d. 18. júní rafeindavirkjun. Einnig sótti hann sér menntun til Danmerk- ur og Bretlands í tengslum við störf sín. Árni starfaði allan sinn starfsferil í tengslum við sigl- inga- og skipatæki. Hann hóf starfsferill sinn hjá Friðriki A. Jónssyni og stofnaði svo Sínus ehf. ásamt öðrum. Síðar stofnaði hann og rak Radíóþjónustu Árna Marinóssonar og seinna fyrir- tækið Elcon ehf. sem hann rak þar til hann varð að hætta vegna veikinda. Árni var mikill áhugamaður um íþróttir og æfði knattspyrnu með ÍA og Fram á sínum yngri árum. Hann hafði einnig mikið dálæti á útivist og göngum og var í gönguhóp í mörg ár. Árni hafði mikla ánægju af ferðalög- um og ferðaðist bæði innanlands og utan með fjölskyldu og vin- um. Hann hafði mikinn áhuga á fornsögum og sótti mörg forn- sögunámskeið og ferðaðist á söguslóðir. Árni var einnig virk- ur félagi í Frímúrarareglunni í tugi ára. Útför Árna fer fram frá Grensáskirkju í dag, 19. október 2021, klukkan 15. 2007, og voru þau bæði frá Súðavík. Árni og Halla eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Berglind, f. 18. maí 1974, sambýlis- maður hennar er Kristján Kristjáns- son, f. 3. maí 1975. Synir þeirra eru Marinó og Atli. 2) Magnea, f. 14. maí 1978, eiginmaður hennar er Ás- geir Örn Ásgeirsson, f. 7. júní 1973. Þau eiga soninn Árna Geir og dætur Ásgeirs og stjúpdætur Magneu eru Valgerður og Gunn- hildur. 3) Marinó Einar, f. 22. júlí 1984, sambýliskona hans er Iwona Posiadala, f. 1 júní 1987. Árni ólst upp á Akranesi og kláraði gagnfræðapróf þar. Eft- ir það lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hann stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík og lauk þaðan sveinsprófi í útvarps- virkjun og síðar meistaranámi í Það er skrýtið að hugsa til þess að hitta pabba ekki aftur og eftir situr sorgin í hjarta. Minningarnar eru margar og var hann besti pabbi sem hægt er að hugsa sér. Þegar ég hugsa um pabba er það traust, dugnaður, gleði, kærleikur, barn- góður og prinsipp sem kemur upp í hugann. Pabbi vann mikið og langa vinnudaga og naut þess, en gaf sér alltaf tíma í að vera með okkur systkinunum komandi heim þreytt- ur. Hann kvartaði aldrei og setti það ekki fyrir sig eftir langa vinnu- viku að hanga utan á húsinu í Furu- gerði að sinna viðhaldi. Hann slapp alveg við eldamennsku sem var á höndum mömmu annars hefðu það verið gellur í öll mál. Pabbi slakaði á með bók við hönd eða setti plötu á fóninn og hækkaði vel í UB40 eða Bob Mar- ley svo eitthvað sem nefnt. Ég þurfti oft að hækka vel til að heyra í minni tónlist ef pabbi var að hlusta á efri hæðinni. Prinsipp maður var hann og fengum við oft að heyra prinsippin. Eitt var að það væri prinsipp að setja bensín á bílinn ef ljósið væri komið á því maður keyrði ekki á loftinu, í það skiptið keyrði pabbi vestan úr bæ með bensínbrúsa þar sem frumburðurinn var bensínlaus á Miklubrautinni. Okkur fannst prinsippin mörg en öll þessi prin- sipp voru leiðarvísir okkar fyrir framtíðina og lífið. Pabbi æfði fótbolta með ÍA og Fram og eftir að hann hætti mætti hann á leiki hjá báðum liðum sem og landsleiki og þá fékk ég að fylgja með það mótaði minn fótbolta- áhuga og með hvaða liði var haldið í íslensku eða ensku deildinni, liðin hans pabba. Pabbi hafði unun af því að ferðast bæði innanlands sem og ut- an og voru ferðalög tíð bæði vegna vinnu og með mömmu erlendis. Undantekningalaust gerði hann sér ferð til þess að kaupa dýrindi- skjóla og annað á okkur systur. Við systkinin nutum þeirra forréttinda að ferðast með mömmu og pabba frá unga aldri. Pabbi hvatti okkur áfram í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur sama hvaða ævintýri það var. Ef eitthvað bjátaði á eða við þurftum að leita til hans þá fann hann lausn og studdi við bakið á okkur. Pabbi var einstakur þegar kom að börnum og hve barngóður hann var. Afabörnin hans voru hans augasteinar og yndi og dekraði hann og mamma þau endalaust. Marinó og Atli hafa notið þess í gegnum árin. Mamma og pabbi tóku þá á hverju sumri í ferðir á bílnum þar sem þeir áttu dýrmæt- ar stundir með þeim. Jólaböllin hjá Frímúrurunum með afastrákana var fastur liður og alltaf mikil spenna að fara á. Fyrir rúmum fimm árum greindist pabbi með mergæxli og hafa síðustu ár verið honum erfið og kvalafull. Það hefur verið erfitt að horfa upp á hvernig sjúkdóm- urinn hefur þróast án þess að geta gert mikið annað en að vera til stað- ar fyrir pabba í þessum erfiðu veik- indum. Mamma hefur verið hans klettur og hjúkrað allt til loka. Nú er þeirri þrautargöngu og baráttu við þennan illvíga sjúkdóm lokið og ég veit að pabbi er nú kominn á betri stað til afa og ömmu og Val- lýjar án allra verkja. Hvíl í friði elsku pabbi minn, minningin um yndislegan pabba og afa lifir í hjörtum okkar um ókomna tíð. Þín (demants) dóttir Berglind. Það er sárar en orð ná að lýsa hversu erfitt er að kveðja elsku pabba. Hann var alltaf stór hluti af mínu lífi og mikil fyrirmynd sem ég lærði mikið af. Pabbi var mikill fjölskyldu- maður og setti fjölskylduna alltaf í fyrsta sæti. Umhyggjusemin gagnvart okkur systkinunum og mömmu var ómæld og hann vildi alltaf allt fyrir okkur gera. Ein af sætustu æskuminningunum mín- um er þegar pabbi fór svo oft út í bíl á undan okkur á veturna til að skafa og hita bílinn svo að við þyrftum ekki að fara í kaldan bíl. Það var alltaf hægt að leita til pabba og hann tilbúinn að veita góð ráð eða aðstoða, hvort sem það voru ráðleggingar varðandi nám eða vinnu eða til að koma á miðri nóttu til að aðstoða mig við að skipta um sprungið dekk. Hann var einnig einstaklega barngóður og ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem barnabörnin fengu að njóta með honum. Á meðan hann hafði heilsu til gaf hann sig allan í leik og gleði með þeim. Pabbi var mjög vinnusamur maður og ósérhlífinn, hann starf- aði stóran hluta af sínum starfs- ferli í eigin fyrirtæki og hafði mikla unun af starfi sínu. Hann var sérstaklega vel gefinn og hafði mikinn áhuga á tækjum og rafmagni. Rafmagnið var okkar sameiginlega áhugamál og það var ómetanlegt að finna stuðning hans og stolt þegar ég ákvað að fara í rafmagnsverkfærði. Hann sýndi náminu mínu mikinn áhuga og við áttum margar góðar stundir þar sem við ræddum námsefnið, fræðin og praktíkina. Það var ekki verra þegar það átti að smíða spennubreyti frá grunni í náminu að geta leitað til pabba og annar eins gæða spennubreyt- ir hafði varla sést, leit nánast út fyrir að hafa komið úr verk- smiðju. Hann tók líka ekki annað í mál en að kenna mér að skipta um perustæði og kló áður en ég útskrifaðist, ég bý enn að þeirri þekkingu í dag. Pabbi rak fyrirtækin sín og starfaði á Grandanum og hann tal- aði oft um hvað grandaandinn væri góður. Hann var hluti af samfélagi þar sem tengdist skipaiðnaðinum og það var alltaf jafn gaman að fara á Grandann með pabba. Þegar ég var lítil voru farnir ófáir sunnu- dagsbíltúrar þangað og bátarnir og umhverfið skoðað, það var algjör ævintýraheimur í augum barnsins. Pabbi var prinsippmaður sem var með allt sitt á hreinu. Hann var góður og heiðarlegur og hafði mikið jafnaðargeð. Umfram allt var hann þó hress og skemmti- legur og mikið fyrir grín og glens. Það var mikil lífsgleði í honum og alltaf gaman að vera í kringum hann. Pabbi naut sín best innan um fjölskylduna eða í góðra vina hópi og lagði mikla rækt við sitt nánasta fólk. Síðustu ár pabba einkenndust af veikindum hans og sjúkdóm- urinn reyndi mikið á hann. Þrátt fyrir þessi miklu veikindi var hann alltaf sami ljúfi pabbi minn sem sýndi mér og mínum ást og umhyggju. Maður fann hvað hann var stoltur af okkur og ánægður með son minn og nafna sinn. Pabbi trúði á framhaldslíf og ég trúi því að hann sé núna á góð- um stað með foreldrum sínum og systur þar sem gleðin og kærleik- urinn eru við völd og verkir og veikindi horfin. Eftir standa ljúf- ar minningar um einstakan pabba. Magnea Árnadóttir. Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. (Denver/Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Þinn ástkæri sonur, Marinó Einar Árnason. Elsku Árni minn. Það voru mikil forréttindi að fá að kynnast þér og vera tengdasonur þinn. Þú varst einstakur maður á svo margan hátt. Þú varst fyndinn, traustur, duglegur, gjafmildur og barngóður. Börnin okkar áttu einstaklega góðan afa. Það var svo mikill léttleiki og glettni yfir hversdagslífinu í kringum þig. Fiskur og hafragrautur, en ekki kjúklingur. Fótbolti, Frímúrarn- ir, Doudge-inn og Grandinn. Já, Grandinn var draumaland raf- magnsverkfræðings þar sem allt úði og grúði af rafmagnstækjum, íhlutum, loftnetum og verkfær- um. Að vera með þér á Grand- anum var mikil gæðastund. Ég á eftir að sakna mikið allra gæða- stundanna sem ég átti með þér. Ásgeir Örn Ásgeirsson. Elsku afi, takk fyrir allar sam- verustundirnar sem þú gafst okk- ur, öll ferðalögin og veiðiferðirnar. Þú studdir okkur í því sem við vorum að gera, bæði í skólanum og íþróttum. Þú hafðir alltaf mik- inn áhuga á hvernig okkur gengi og hvattir okkur áfram. Sjúkdómur þinn hefur verið þér erfiður og það er erfitt að kveðja en nú ertu verkjalaus hjá englunum. Við munum alltaf sakna þín, elsku afi, og við munum passa upp á ömmu. Hvíl í friði elsku afi, takk fyrir ótakmarkaða ást og kærleika. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Marinó og Atli. Árni Marinósson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviá- gripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráð- legt að senda myndina á net- fangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.