Morgunblaðið - 19.10.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021
30 ÁRA Jóhanna ólst upp að mestu
á Seltjarnarnesi en býr í Vesturbæ
Reykjavíkur. Hún er með BA í skap-
andi tónlistarmiðlun frá Lista-
háskóla Íslands og er skrifstofu-
fulltrúi á umhverfis- og skipulags-
sviði Reykjavíkurborgar. Hún er í
Kór Langholtskirkju. „Áhugamálin
mín eru að prjóna, tónlist og kóra-
starf. Ég hef einnig mikinn áhuga á
borgarmálum.“
FJÖLSKYLDA Maki Jóhönnu er
Kristján Harðarson, f. 1993, BA í
tónsmíðum og læknanemi. Dóttir
þeirra er María Jóhönnu Kristjáns-
dóttir, f. 2021. Foreldrar Jóhönnu
eru Íris Björg Kristjánsdóttir, f.
1973, sérfræðingur í friðar- og
mannúðarmálum hjá UN Women,
búsett í Tyrklandi og Reykjavík, og
Sigurður Örn Jónsson, f. 1970, bygg-
ingarverkfræðingur hjá EFLU,
búsettur í Kópavogi.
Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Veltu þér ekki upp úr vandamál-
unum heldur skaltu bara leysa þau. Settu í
þig kraft og láttu svo verkin tala.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú þarft tíma í einrúmi í dag til að
greiða úr nokkrum hlutum sem hafa verið á
kreiki í undirmeðvitund þinni. Forðastu
deilur við maka og nákomna í dag.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Bíddu með að bera upp við yfir-
menn þína mál sem þú berð mjög fyrir
brjósti. Viljirðu búa við áframhaldandi vel-
gengni máttu í engu slaka á.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Vinur gagnrýnir hugsanlega með-
ferð þína á fjármunum. Láttu hrokann ekki
ná yfirhöndinni í samskiptum þínum við
aðra.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ert vinsæll meðal vina þinna og
þeir leita skjóls hjá þér þegar þeir þurfa á
að halda. Hafðu hugfast að ein lítil mistök
geta dregið dilk á eftir sér.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Reyndu að vera þolinmóður í pen-
ingamálum í dag. Mundu samt að það er
ákaflega mikilvægt að geta verið sveigjan-
legur.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Misnotaðu ekki traust þeirra sem leita
til þín með vandamál sín. Undirbúðu þig
fyrir einlægar samræður við félaga þinn.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Gættu þess að ganga ekki svo
hart fram, að þú gefir sjálfum þér aldrei
grið. Það kann ekki góðri lukku að stýra.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú þarft að melta þá hluti sem
nú valda þér hugarangri. Gefðu gömlum
vinum skerf af tíma þínum. Sýndu þeim
nærgætni.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Láttu það ekki slá þig út af lag-
inu þótt einhverjir eigi erfitt með að skilja
hvert þú ert að fara. Nú er létt að afla sér
liðsinnis annarra.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Aðrir gætu nú reynst þér rausn-
arlegir og þú átt að grípa tækifærið. Mundu
því að koma fram við aðra eins og þú vilt að
þeir komi fram við þig.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þér hefur verið treyst til þess að
kalla fólk saman til fundar og þarft að
skipuleggja allt í stóru sem smáu. Treystu á
innsæi þitt og þá munu hjólin fara að snú-
ast eins og til er ætlast.
einkatúrum, en hoppa stundum upp
í rútur.“
Helstu áhugamál eru veiði, útivist
og tónlist. „Ég fæ útrás fyrir þetta
allt með veiðihópnum Smaart. Þar
eru samankomnir 10 vinir sem fara í
hinar ýmsu ferðir saman og er spil-
að og sungið allan tímann. Við fór-
um t.d. í Laugardalsá í vor, vorum
tími sem hefur haft skemmtilegar
afleiðingar en ég hef samið tónlist
við þrjár leiksýningar og stuttmynd
ásamt því að vera tónlistarstjóri við
myndina Skjálfta.“
Sveinn fór í Leiðsöguskólann
2013 og hefur síðan starfað annað
slagið sem leiðsögumaður. „Það er
nóg að gera í því núna. Ég er mest í
S
veinn Þórir Geirsson
fæddist 19. október 1971
í Reykjavík og ólst upp á
Hallveigarstíg ásamt
móður sinni og stjúp-
föður. Þar bjó hann þar til hann var
á útskriftarári sínu í Leiklistarskóla
Íslands 1994 að undanskildum
tveimur árum í Stokkhólmi, 1978-
1980, og rúmu ári í Portúgal, 1989-
1990. „Móðurafi minn og -amma
gerðust bændur frá 1975 til 1983 á
Fellsströnd í Dalasýslu og var ég
hjá þeim öll sumur á meðan þau
bjuggu þar. Þetta er ógleymanlegur
tími.“
Sveinn hóf framhaldsskólagöngu
sína í Verzlunarskóla Íslands.
„Þetta er á þeim tíma sem fjöl-
skyldan flytur til Portúgals og held
henni áfram eftir að ég kem heim í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
En ég laumaði mér inn í Leiklistar-
skólann áður en ég kláraði þar.“
Hann hóf nám við Leiklistarskólann
1991 og útskrifaðist 1995.
Leiklistin hefur síðan verið
meginstarfsferill Sveins. Fyrstu
leikverkin eftir útskrift voru í Jesus
Christ Superstar og Kardimommu-
bænum í Þjóðleikhúsinu, en hann
var fyrstu árin þar starfandi. Hann
var hjá Borgarleikhúsinu 2002-2006
og hefur einnig unnið með ýmsum
sjálfstæðum leikhópum. Meðal
verka sem Sveinn hefur leikið í eru
Hamlet í Þjóðleikhúsinu, og Chi-
cago, Híbýli vindanna og Sól og
Máni í Borgarleikhúsinu. Hann hef-
ur einnig leikið í fjölda sjónvarps-
þátta og kvikmynda, m.a. í Djöfla-
eyjunni og Ég man þig. Hann lék
m.a. í sjónvarpsþáttunum Systra-
bönd og Stellu Blómkvist sem voru
frumsýndir á árinu. „Svo er ég í
þáttunum Vitjunum, sem er það
sem mun dúkka upp næst, en þeir
verða sýndir á Rúv í kringum ára-
mótin, og kvikmyndinni Skjálftum
sem verður frumsýnd á næsta ári.“
Sú mynd er í leikstjórn Tinnu
Hrafnsdóttur, konu Sveins.
Tónlist hefur alltaf verið stór
hluti af lífinu hjá Sveini, hann var í
tónlistarskóla á yngri árum og 2004-
2009 stundaði hann nám við Tónlist-
arskóla FÍH. „Það var mjög gefandi
opnunarhollið þar.“ Sveinn er ekki
bara í stangveiði, heldur veiðir hann
gæs, rjúpu og sjófugla. Einnig hefur
hann farið að veiða utanlands. „Ég
hef ekki enn farið að veiða hreindýr,
en það er á stefnuskránni.“
Fjölskylda
Eiginkona Sveins er Tinna
Sveinn Geirsson, leikari og tónlistarmaður – 50 ára
Fjölskyldan Brúðkaupsdagur Sveins og Tinnu árið 2014. Með þeim á mynd-
inni eru, f.v.: Ragnar Steinn, Jökull Þór, Lísbet, Starkaður Máni og Diljá.
Leiklist, tónlist og veiðar
Leikarinn Sveinn í söngleiknum Chicago í Borgarleikhúsinu 2004.Afmælisbarnið Sveinn Geirsson.
Feðgar Sveinn ásamt Starkaði
Mána og Jökli Þór.
Til hamingju með daginn
Reykjavík María Jóhönnu Kristjáns-
dóttir er fædd 1. júlí 2021 kl. 18.15 í
Reykjavík. Hún var 2.938 g og 48 cm
löng. Foreldrar hennar eru Jóhanna
Guðrún Sigurðardóttir og Kristján
Harðarson.
Nýr borgari