Morgunblaðið - 19.10.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 19.10.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021 VÍKINGUR SPILAR MOZART 19., 20. & 21. NÓVEMBER · ELDBORG Miðasala á tix.is og harpa.is „HANN SEGIST VERA JAFNSTERKUR OG NAUTAKRAFTUR.“ „MÉR LÍÐUR MIKLU BETUR EFTIR AÐ ÉG KLÁRAÐI TÖFLURNAR FRÁ ÞÉR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann kemur heim heilu og höldnu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KÖKU- TRÉ HE HE HE ÍKORNA- FYNDNI ÉG ER NÚ LJÓTI HÁLFVITINN! HEYRÐU! VERTU GÓÐUR VIÐ SJÁLFAN ÞIG! ÉG ER INDÆLL HÁLFVITI! Hrafnsdóttir, f. 25.8. 1975, leikkona og leikstjóri. Þau eru búsett í Laug- arneshverfinu í Reykjavík. For- eldrar Tinnu eru Hrafn Gunnlaugs- son, f. 17.6. 1948, kvikmyndagerðar- maður, búsettur í Reykjavík, og Edda Kristjánsdóttir, f. 8.1. 1950, fv. starfsmaður á RÚV, búsett í Reykjavík. Börn Sveins úr fyrri samböndum eru Ragnar Steinn, f. 1.4. 1996, mastersnemi í viðskiptafræði, móðir Margrét Ragnarsdóttir markaðs- stjóri; Diljá, f. 3.4. 1999, dansnem- andi í Hollandi, móðir Sveinbjörg Þórhallsdóttir dansari; Lísbet, f. 21.2. 2002, stúdent og nemi í FÍH, móðir Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Synir Sveins og Tinnu eru tvíbur- arnir Starkaður Máni og Jökull Þór, f. 23.2. 2012. Hálfsystkini Sveins sammæðra eru Hjördís Árnadóttir, f. 1.11. 1973, myndlistarmaður, búsett í Hveragerði, og Þórdís Hulda Árna- dóttir, f. 9.6. 1995, rekstrarstjóri, búsett í Reykjavík. Hálfsystkini Sveins samfeðra eru Erna Geirs- dóttir, f. 12.8. 1975, húsmóðir, bú- sett í Bandaríkjunum, Orri Geirs- son, f. 15.10. 1977, viðskipta- fræðingur, búsettur í Reykjavik; Geir Jón Geirsson, f. 22.1. 1984, smiður, búsettur í Reykjavík; Kristín Eva Geirsdóttir, f. 17.10. 1988, lögfræðingur, búsett í Reykja- nesbæ. Foreldrar Sveins eru Lísbet Sveinsdóttir, f. 10.10. 1952, mynd- listarmaður og hönnuður, búsett í Reykjavík, og Geirjón Grettisson, f. 8.2. 1951, lífeyris- og trygginga- ráðgjafi, búsettur í Kópavogi. Stjúp- faðir Sveins er Árni Þór Árnasson, f. 12.11. 1947, byggingatækni- fræðingur. Sveinn Þórir Geirsson Guðbjörg Lísbet Kristjánsdóttir húsfreyja á Hvanneyri, Akranesi og í Reykjavík Einar Jónsson kennari og yfirverkstjóri, bjó á Hvanneyri, Akranesi og í Reykjavík Hjördís Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavík og á Hnjúki Sveinn Þórir Þorsteinsson deildarstjóri hjá Flugleiðum og bóndi á Hnjúki á Fellsströnd Lísbet Sveinsdóttir listamaður og hönnuður í Reykjavík Sveiney Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Þorsteinn Loftsson leigubílstjóri í Reykjavík Regína Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Geir Jón Helgason lögregluþjónn í Reykjavík Erna Sæbjörg Geirsdóttir húsfreyja í Reykjavík Grettir Björnsson harmonikuleikari í Reykjavík Margrét Jónína Karlsdóttir húsfreyja í Reykjavík Björn Jónsson bóndi á Torfastöðum í Miðfirði Ætt Sveins Geirssonar Geir Jón Grettisson lífeyris- og tryggingaráðgjafi, bús. í Kópavogi Sigmundur Benediktsson sendi mér póst á laugardag, þar sem stóð m.a.: „Hef verið latur við vísnagerð undanfarið, en í dag sótti að mér gömlum haust- kuldi og hann fæddi meðfylgjandi hringhendur“: Hausthrollur. Blómin valla kremur kal, kuldans falla rúnir hafa mjallar herðasjal hengt á fjallabrúnir. Hema lindir, hélar grund, haustsins myndir vekur. Ýlfra vindar, ýfast sund, óska lyndið hrekur. Lýtur kvöðum loka þeyr lægðaröð í spánum. Foldin stöðugt fölnar meir, fjúka blöð af trjánum. Sama dag skrifaði Ingólfur Ómar: „Nú er farið að frysta all- verulega og orðið kalt á nóttunni. Mér datt þessi vísa í hug“: Dvínar þróttur daprast lund drunga skjótt mun valda. Læðist hljótt um hæð og grund hélunóttin kalda. Bogi Sigurðsson skrifaði mér fyrir helgi og sagðist vera að skrifa frænku sinni í Kanada og lýsa stöðunni. Hann átti þessa vísu fyrir og datt í hug að snúa henni: Veiru fjandinn vondur er, veirur þyrfti að banna, en allt sem kemur aftur fer eins og dæmin sanna. The virusdevil is worse than bad virus should be banned and sacked. But everything what comes for free fly-s away as we often see. Magnús Halldórsson skrifar: „Í fréttaskýringarþætti sem kall- aður er hádegið, þ.e. ef ég man rétt, kom í viðtal kona. Sú mun vera sérfræðingur í japönskum keisarafjölskylduvandamálum. Þessi ágæta og greinargóða kona sagði til skýringar á vanda: „Þarna sem sagt liggur hnífurinn grafinn.“ Nú, auðvitað hef ég heyrt um grafinn hund og hníf sem stendur í kú. Ekki man ég eftir þessu ágæta orðatiltæki, er nokkuð víð- lesinn þó“: Um örlög verður enginn krafinn, eitthvað hefur þarna skeð. Eftir stendur aðeins vafinn, er þá beljan hundinn með. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hausthrollur og farið að frysta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.