Morgunblaðið - 19.10.2021, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021
England
Arsenal – Crystal Palace ......................... 2:2
Staðan:
Chelsea 8 6 1 1 16:3 19
Liverpool 8 5 3 0 22:6 18
Manch. City 8 5 2 1 16:3 17
Brighton 8 4 3 1 8:5 15
Tottenham 8 5 0 3 9:12 15
Manch. Utd 8 4 2 2 16:10 14
West Ham 8 4 2 2 15:10 14
Everton 8 4 2 2 13:9 14
Brentford 8 3 3 2 10:7 12
Wolves 8 4 0 4 8:8 12
Leicester 8 3 2 3 13:14 11
Arsenal 8 3 2 3 7:12 11
Aston Villa 8 3 1 4 12:12 10
Crystal Palace 8 1 5 2 10:13 8
Southampton 8 1 4 3 6:10 7
Watford 8 2 1 5 7:15 7
Leeds 8 1 3 4 7:15 6
Burnley 8 0 3 5 5:13 3
Newcastle 8 0 3 5 10:19 3
Norwich City 8 0 2 6 2:16 2
Ítalía
Venezia – Fiorentina............................... 1:0
- Arnór Sigurðsson var ónotaður vara-
maður hjá Venezia. Bjarki Steinn Bjarka-
son var ekki í leikmannahópi liðsins.
Staðan:
Napoli 8 8 0 0 19:3 24
AC Milan 8 7 1 0 18:7 22
Inter Mílanó 8 5 2 1 23:11 17
Roma 8 5 0 3 16:9 15
Lazio 8 4 2 2 18:13 14
Atalanta 8 4 2 2 14:10 14
Juventus 8 4 2 2 12:10 14
Bologna 8 3 3 2 13:15 12
Fiorentina 8 4 0 4 10:12 12
Udinese 8 2 3 3 10:12 9
Empoli 8 3 0 5 10:16 9
Torino 8 2 2 4 9:8 8
Verona 8 2 2 4 17:17 8
Sassuolo 8 2 2 4 9:11 8
Venezia 8 2 2 4 6:12 8
Spezia 8 2 1 5 10:20 7
Sampdoria 8 1 3 4 11:16 6
Genoa 8 1 3 4 12:18 6
Cagliari 8 1 3 4 11:17 6
Salernitana 8 1 1 6 6:17 4
Frakkland
B-deild:
Nimes – Ajaccio ....................................... 0:2
- Elías Már Ómarsson kom inn á sem
varamaður hjá Nimes á 64. mínútu.
Holland
B-deild:
Jong AZ – Jong Ajax ............................... 1:1
- Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki í
leikmannahópi Jong Ajax.
Danmörk
AGF – AaB................................................ 1:0
- Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 81.
mínútuna með AGF. Mikael Anderson var
ekki í leikmannahópi liðsins.
Staða efstu liða:
Midtjylland 12 9 1 2 23:7 28
København 12 7 4 1 26:9 25
AaB 12 6 3 3 18:10 21
Randers 12 6 3 3 16:13 21
Silkeborg 12 4 6 2 17:13 18
Brøndby 12 3 6 3 17:17 15
Bandaríkin
Houston Dash – Portland Thorns.......... 0:1
- Andrea Rán Hauksdóttir var ónotaður
varamaður hjá Houston Dash.
Svíþjóð
Häcken – Norrköping ............................. 5:0
- Oskar Tor Sverrisson kom inn á sem
varamaður hjá Häcken á 90. mínútu. Val-
geir Lunddal Friðriksson var ónotaður
varamaður.
- Ari Freyr Skúlason lék fyrstu 63. mín-
úturnar með Norrköping, Jóhannes Krist-
inn Bjarnason var ekki í leikmannahópn-
um.
Djurgården – Elfsborg ........................... 0:3
- Hákon Rafn Valdimarsson varði mark
Elfsborg. Sveinn Aron Guðjohnsen kom
inn á sem varamaður á 88. mínútu.
Staða efstu liða:
Malmö 23 13 5 5 48:25 44
Djurgården 23 13 5 5 37:21 44
AIK 23 13 5 5 32:19 44
Elfsborg 23 13 3 7 38:25 42
Norrköping 23 12 3 8 37:28 39
B-deild:
Öster - Vasalund ...................................... 3:2
- Alex Þór Hauksson lék allan leikinn með
Öster og skoraði.
>;(//24)3;(
Bikarkeppni karla
1. umferð:
Hamar – Vestri ................................... 86:103
Selfoss – ÍA ........................................... 82:67
Sindri – ÍR........................................... 68:103
Snæfell – KR....................................... 46:121
Fjölnir – Þór Ak.................................... 87:98
>73G,&:=/D
ÍSHOKKÍ
Hertz-deild kvenna:
Reykjavík: SR – Fjölnir....................... 19.45
Í KVÖLD!
Arsenal og Crystal Palace skildu
jöfn, 2:2, í æsispennandi leik í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla
í gærkvöldi.
Pierre-Emerick Aubameyang
kom heimamönnum í Arsenal í for-
ystu á 8. mínútu áður en Christian
Benteke jafnaði metin snemma í
síðari hálfleik. Odsonne Édouard
kom gestunum í Palace svo yfir á
73. mínútu áður en varamaðurinn
Alexandre Lacazette jafnaði metin
fyrir Arsenal með síðustu spyrnu
leiksins, á fimmtu mínútu uppbót-
artíma venjulegs leiktíma.
Jafnaði metin í
uppbótartíma
AFP
Jafnt Alexandre Lacazette fagnar
jöfnunarmarki sínu af innlifun.
Elín Metta Jensen, framherji Ís-
landsmeistara Vals, verður ekki
með íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu sem mætir Tékklandi og
Kýpur í undankeppni HM.
Elín Metta dró sig út úr landsliðs-
hópnum vegna meiðsla. Þorsteinn
Halldórsson landsliðsþjálfari hefur
valið Selmu Sól Magnúsdóttur úr
Breiðabliki í stað Elínar.
Ísland mætir Tékklandi föstu-
daginn 22. október og Kýpur
þriðjudaginn 26. október en báðir
leikirnir fara fram á Laugardals-
velli.
Elín Metta ekki
með landsliðinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meidd Elín hefur leikið 58 landsleiki
þar sem hún hefur skorað 16 mörk.
NBA
Gunnar Valgeirsson
Los Angeles
Að venju var nóg um leik-
mannaskipti í NBA-deildinni í sum-
ar, en í ár var sumarið styttra fyrir
leikmenn eftir sigur Milwaukee
Bucks í júlímánuði, seinna en
venjulega. Meistaraliðið er af sér-
fræðingum oftast talið líklegt til að
verða með í baráttunni um titilinn
á nýju leikári, sérstaklega með lítt
breyttan leikmannahóp. Það á þó
ekki við Milwaukee í þetta sinn.
Eftir að hafa litið á spár frétta-
fólks og framkvæmdastjóra lið-
anna, er næstum enginn sem held-
ur að Milwaukee muni verja
titilinn. Bucks vann víst titilinn af
heppni í sumar ef marka má mat
þessa fólks. Meistararnir eru eins
og Gollum í Hringadróttinssögu –
með hringinn, en örlögin ætla hon-
um annan eiganda. Milwaukee er
víst eins og tuskudúkka á sorp-
haug.
Sérfræðingarnir eru að því er
virðist blindaðir af skærum bjarma
stjörnuleikmanna Brooklyn Nets
og Los Angeles Lakers.
Nets víst alla leið
Allt gengur út á Brooklyn Nets
austan megin að sögn sérfræðinga
(yfir 70% af framkvæmdastjórum
liðanna spá Nets meistaratitlinum
samkvæmt árlegri skoðanakönnun
NBA-deildarinnar), enda liðið með
tvær stórstjörnur sem erfitt er að
stöðva. Kevin Durant og James
Harden munu bera þetta lið á sín-
um herðum í gegnum deildakeppn-
ina. Sá síðarnefndi virðist hafa tek-
ið við leiðtogastöðunni eftir að
Kyrie Irving ákvað enn einu sinni
að hann væri mikilvægari en liðið
sem hann leikur með. Hann er enn
óbólusettur og virðist ekki tilbúinn
að skipta skoðun á því. Af þeim or-
sökum mun hann ekki geta leikið í
heimaleikjum liðsins og for-
ystumenn Nets ætla ekki að leyfa
honum að æfa með liðinu og óvíst
er hvort hann leikur nokkurn leik
án þess að vera bólusettur.
Þetta er samt sterkur og reynd-
ur leikmannahópur. Forráðamenn
Nets náðu í reynda leikmenn eins
og Blake Griffin, Paul Milsap, La-
Marcus Aldridge og Patty Mills –
allt leikmenn sem vita hvað til þarf
til að ná árangri í úrslitakeppninni.
Það ætti að koma liðinu til góða í
lokaúrslitunum ef allt gengur upp.
„Það eru vissulega miklar vænt-
ingar hjá okkur, en við erum langt
frá því að vera heilsteypt lið eftir
aðeins fimmtán æfingar saman. Það
eru enn spurningar um hversu vel
við getum byrjað, en mér líkar
andrúmsloftið hjá leikmannahópn-
um,“ sagði Steve Nash þjálfari eftir
síðasta æfingaleik liðsins rétt fyrir
helgi.
Meistarar Milwaukee Bucks virð-
ast eina liðið sem ætti að veita
þeim harða keppni um toppsætið,
en það er ekki laust við að þrátt
fyrir að NBA-sérfræðingar geri svo
lítið úr möguleikum Bucks, hafi
þeir á endanum rétt fyrir sér.
Bucks vann titilinn með nokkurri
heppni og óvíst er að mótherjar
þeirra í úrslitakeppninni þetta leik-
tímabilið falli eins auðveldlega og
gerðist í sumar.
Það er ekki eins og að Bucks eigi
ekkert tækifæri hér – með Giannis
Antetokounmpo í fararbroddi – en
tilfinningin um að eitthvað vanti
enn hjá liðinu virðist ekki hverfa.
Það er ekki að sjá að nokkur
önnur lið muni blanda sér alvarlega
í toppbaráttunua. Philadelphia
76ers halda áfram að vera sápu-
ópera sem ekki gengur upp í end-
ann, og önnur lið eru einfaldlega
ekki eins góð og Nets og Bucks.
Lakers aftur í sviðsljósinu
Að venju eru Vesturdeildarliðin
að öllu jöfnu betri og jafnari en þau
austanmegin, og meiri möguleikar
að eitthvert lið gæti sett strik í
reikninginn eins og Utah Jazz gerði
á síðasta keppnistímabili.
Það er ekki laust við að koma
Russells Westbrooks til Los Angel-
es Lakers hafi gert liðið líklegt til
afreka í augum margra, en maður á
enn erfitt með að trúa því að þetta
elliheimili sem liðið er nú orðið
muni ná að fagna meistaratitlinum.
Forráðamenn liðsins ákváðu að
umturna leikmannahópnum í sumar
eftir tap gegn Phoenix Suns í
fyrstu umferð úrslitakeppninnar,
þar sem augljóst var að margir af
yngri leikmönnum liðsins brugðust
undir pressunni í úrslitakeppninni.
Aldur margra leikmanna hér vekur
þó efasemdir um að James (36),
Carmelo Anthony (37) og aðrir
leikmenn sem fylla nú leik-
mannahópinn muni komast óáreitt-
ir í gegnum leiktímabilið.
Jafnvel þótt liðið komist í gegn-
um úrslitakeppnina vestan megin,
eins og flestir sérfræðingar hér
vestra spá, munu annaðhvort Bro-
oklyn eða Milwaukee sjálfsagt hafa
meiri orku þegar svo seint er kom-
ið á keppnistímabilinu.
LeBron James er hins vegar
sallarólegur. „Það á eftir að taka
okkur nokkurn tíma að vera það lið
sem við vitum að við getum orðið
og ekki laust við að það muni verða
einhver vonbrigði á leiðinni, en það
er bara partur af þessu ferli á
hverju keppnistímabili.“
Mörg lið tilkölluð
Utah og Phoenix munu eflaust
blanda sér í toppbaráttuna að nýju.
Phoenix hefur sama leikmanna-
hópinn og komst í lokaúrslitin í
sumar og þar á bæ eru lykilleik-
menn liðsins ómeiddir. Það kæmi
ekki á óvart að Suns ynni deilda-
keppnina vestan megin. Utah er nú
með sama leikmannahópinn þriðja
árið í röð. Bakvörðurinn Donavan
Mitchell er ein af skærustu stjörn-
um deildarinnar og miðherjinn
Rudy Gobert er algert skrímsli í ví-
tateignum í vörninni.
Alvarleg hnémeiðsl tveggja lykil-
leikmanna munu setja stór spurn-
ingarmerki við möguleika tveggja
liða.
Kawhi Leonard hjá Los Angeles
Clippers og Jamal Murray hjá
Denver Nuggets slitu báðir liðbönd
í hné seint á síðasta keppnistímabili
og óvíst er að þeir nái að koma til
leiks á komandi leiktímabili.
Murray mun sennilega reyna að
komast til leiks fyrir endalok
deildakeppninnar, en Leonard er
leikmaður sem er bæði óútreikn-
anlegur og mjög varkár með
meiðsli, þannig að óvíst er hvort
hann muni leika einn einasta leik á
keppnistímabilinu. Án þessara leik-
manna verður erfitt fyrir þessi lið
að blanda sér alvarlega í toppbar-
áttuna. Denver hefur hinsvegar
möguleika ef Michael Porter Jr
heldur áfram að bæta sig. Hann er
frábær sóknarleikmaður og gæti
fyllt skarð Murray í skoruninni.
Við hér á Morgunblaðinu ætlum
okkur ekki að efa kunnugleika
NBA-sérfræðinga hér vestra og því
spá Nets fyrsta meistaratitli sínum
– að slepptum alvarlegum
meiðslum lykilleikmanna að venju.
Ekkert virðist standa í
vegi Brooklyn Nets
- Laða að fyrri stjörnur í leit að titli - Meistararnir fá enga virðingu í spádómum
AFP
Dúett Kevin Durant og James Harden eru mikilvægustu leikmenn Brooklyn Nets ásamt Kyrie Irving en óvíst er
með þátttöku hins síðastnefnda á tímabilinu þar sem hann neitar að láta bólusetja sig fyrir kórónuveirunni.