Morgunblaðið - 19.10.2021, Page 27

Morgunblaðið - 19.10.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2021 Þegar FIFA veltir fyrir sér hvort sniðugt sé að hafa HM karla í knattspyrnu á tveggja ára fresti þá virkar það á mann sem vís- bending um að ekki sé farið nægilega vel með vöruna sem á að selja. Ástæða fyrir miklu sjónvarps- áhorfi í heiminum á íþrótta- viðburði er íþróttafólkið sjálft. Fólki finnst heillandi að sjá hvað þeir færustu í heimi eru færir um að framkvæma á sínu sviði. Rétt eins og fólk hefur áhuga á að sjá frægustu óperusöngvarana, snjöllustu píanóleikarana eða línudansarana í sirkusnum. Þeir sem ráða ferðinni í knatt- spyrnuheiminum virðast lítinn skilning hafa á því að með auknu leikjaálagi mun frammistaða leikmanna verða verri. Keppnum fer sífellt fjölgandi eins og sést varðandi Þjóðadeild og Sam- bandsdeild. Með fjölgun leikja hjá lands- liðum og félagsliðum í Evrópu- keppnum væri kannski ráð að draga úr einhverju á móti eins og deildabikarkeppnum hjá aðildar- löndunum. Einhvers konar síðri útgáfa af bikarkeppnum. Líkurnar á því að leikmenn séu ferskir þegar lokakeppnir í HM og EM fara fram verða sífellt minni. Æ algengara er að þeir séu komnir að þolmörkum lík- amlega og andlega þegar stóru keppnirnar fara fram. Norðurlandaþjóðirnar hafa sett sig upp á móti því að HM sé haldið á tveggja ára fresti. Allt þjóðir sem þekkja hand- boltaíþróttina. Þar er stórmót á hverju ári. Margir af hand- boltamönnunum hafa verið óánægðir með fyrirkomulagið. Dæmi eru um að menn taki sér frí frá EM eða HM til að spara sig fyrir Ólympíuleika. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Miðjumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson var valinn í lið 10. umferð- ar í þýsku B-deildinni í knattspyrnu af þýska íþróttatímaritinu Kicker eftir að hafa lagt upp sigurmark Schalke gegn Hannover í uppbót- artíma í 1:0 sigri á föstudagskvöld. Félagi hans í íslenska landsliðinu, sóknarmaðurinn Albert Guðmunds- son, var þá valinn í lið 9. umferðar í hollensku 1. deildinni af hollenska fótboltatímaritinu Voetbal eftir að hafa skorað eitt mark og lagt upp annað í 5:1 sigri gegn Utrecht á sunnudag. Landsliðsmenn í úrvalsliðum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Úrvalslið Albert (t.v.) og Guðlaugur Victor í landsleik gegn Belgíu. Miðjumaðurinn Alex Þór Hauksson var á skotskónum hjá sænska knatt- spyrnuliðinu Öster þegar hann skoraði í öðrum leik sínum í röð í B- deildinni þar í landi í gærkvöldi. Mark Alex Þórs kom á 56. mínútu og reyndist sigurmarkið í 3:2 sigri gegn Vasalund. Hann skaut þá af löngu færi, skotið fór af varn- armanni og þaðan yfir markvörð Vasalund og í netið. Alex Þór skoraði sitt fyrsta mark fyrir Öster í umferðinni á undan, í 2:2 jafntefli gegn Brage í byrjun mánaðarins. AFP Mark Alex Þór Hauksson skoraði í öðrum leik sínum fyrir Öster í röð. Alex skoraði sigurmarkið SVÍÞJÓÐ Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Þetta er ótrúlega gaman og maður er fyrst og fremst stoltur og glaður yfir þessum frábæra árangri,“ sagði knattspyrnukonan Guðrún Arn- ardóttir í samtali við Morgunblaðið. Guðrún og liðsfélagar hennar í sænska stórliðinu Rosengård fögn- uðu sigri í sænsku úrvalsdeildinni um helgina eftir 3:2-sigur gegn Piteå í Piteå í 20. umferð deildarinnar en á sama tíma gerði Häcken markalaust jafntefli gegn AIK í Solna. Rosengård er með 51 stig þegar tvær umferðir eru eftir af tímabilinu en Häcken kemur þar á eftir með 44 stig og getur því ekki náð Roseng- ård að stigum. „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er ég enn þá bara að átta mig á því að séum sænskir meistarar. Ég hélt satt best að segja að við mynd- um ekki klára þetta um helgina og markmiðið gegn Piteå var fyrst og fremst að ná í sigur. Við ætluðum okkur svo að tryggja titilinn í næsta leik gegn Eskilstuna í 21. umferðinni en svo allt í einu hlupu allir inn á völlinn þegar dóm- arinn flautaði til leiksloka um helgina. Ég var ótrúlega hissa enda átti ég alls ekki von á því að titillinn væri í höfn á þessu augnabliki,“ sagði Guðrún. Rosengård vann síðast bikarinn tímabilið 2019 en tapaði honum nokkuð óvænt til Göteborgar á síð- ustu leiktíð eftir slæm úrslit í loka- umferðum deildarinnar en þetta er í tólfta sinn sem liðið verður Svíþjóð- armeistari. Þakklát fyrir traustið „Það er búin að vera ákveðin bið eftir þessum bikar hjá félaginu. Við vorum með gott forskot á síðustu leiktíð en svo undir restina gerðist eitthvað og við töpuðum þessu niður. Síðasta tímabil var ofarlega í hug- um margra leikmanna, farandi inn í þetta tímabil, og þær voru stað- ráðnar í að láta ekki leikinn end- urtaka sig. Að vinna deildina var markmiðið hjá öllum leikmanna- hópnum og það skipti engu máli hvort sumir væru að vinna deildina í fyrsta sinn núna eða sjötta sinn.“ Guðrún gekk til liðs við Roseng- ård frá Djurgården í júlí á þessu ári og stimplaði sig strax inn sem lyk- ilkona í varnarleik liðsins. „Satt best að segja átti ég ekki von á því að koma beint inn í liðið. Ég var hins vegar staðráðin í að sanna mig þegar ég gekk til liðs við félagið. Ég fékk strax traust frá þjálfaranum og ég skilaði mínu finnst mér. Ég er stolt af mínum árangri á tímabilinu og að hafa tekist að brjóta mér leið inn í byrjunarliðið á miðju tímabili enda mikið af frábærum leikmönnum hjá félaginu. Hjá Ro- sengård snýst allt um að vinna bik- ara og væntingarnar þar voru og eru mun hærri en hjá Djurgården og það var akkúrat umhverfið sem ég vildi komast í.“ Guðrún er í íslenska landsliðs- hópnum sem mætir Tékklandi og Kýpur í undankeppni HM á Laug- ardalsvelli, 22. og 26. október, en hún hefur verið í aukahlutverki með landsliðinu undanfarin ár. „Auðvitað vill maður alltaf spila, hvort sem það er með félagsliðinu sínu eða landsliðinu. Ég reyni að leggja mig alla fram á æfingum en samkeppnin er gríðarleg og ég reyni að taka því hlutverki sem ég fæ hverju sinni. Vonandi verður mitt hlutverk í landsliðinu einn daginn að vera í byrjunarliðinu,“ bætti Guðrún við í samtali við Morgunblaðið. Ótrúlega hissa þegar dóm- arinn flautaði til leiksloka Ljósmynd/@FCRosengard Meistarar Varnarkonan Guðrún Arnardóttir gekk til liðs við stórlið Rosengård frá Djurgården á miðju tímabili. - Guðrún Arnardóttir og liðsfélagar hennar í Rosengård eru Svíþjóðarmeistarar Engin óvænt úrslit litu dagsins ljós þegar síðustu fimm leikir 32-liða úr- slita bikarkeppni karla í körfuknatt- leik, VÍS-bikarsins, fóru fram í gær- kvöldi. Úrvalsdeildarfélögin KR, ÍR, Þór Akureyri og Vestri tryggðu sér þá öll sæti í 16-liða úrslitunum ásamt 1. deildarliði Selfoss. KR mætti 2. deildarliði Snæfells í Stykkishólmi og reyndist leikurinn algert formsatriði fyrir Vest- urbæinga sem unnu með 75 stiga mun, 121:46. ÍR-ingar unnu þá afar þægilegan 35 stiga sigur gegn 1. deildarliði Sindra, 103:68, á Höfn í Hornafirði. Þór frá Akureyri lenti hins vegar í talsverðum vandræðum með 1. deildarlið Fjölnis í Grafarvogi en vann að lokum 11 stiga sigur, 98:87. Vestri átti sömuleiðis í miklum erf- iðleikum með 1. deildarlið Hamars í Hveragerði lengst af en með góðum endaspretti vannst þægilegur 17 stiga sigur, 103:86. Þá mættust 1. deildarlið Selfoss og ÍA á Selfossi. Þar höfðu heimamenn betur, 82:67. Þar með er ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum. Viðureignirnar átta verða: Vestri - Haukar, Tinda- stóll - Stjarnan, Selfoss - Þór Þ., Þór Ak. - ÍR, Álftanes - Njarðvík, Breiðablik - Valur, Grindavík - Hött- ur og Keflavík - KR. Öll úrvalsdeildarliðin áfram í bikarkeppninni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Einbeittur Viktor Máni Steffensen hjá Fjölni sækir að Þórsurunum Dúa Þór Jónssyni og Eric Etienne Fongue í leik liðanna í Dalhúsum í gærkvöldi. Enska úrvalsdeildarfélagið Ever- ton hyggst ekki tjá sig um málefni Gylfa Þórs Sigurðssonar, leik- manns liðsins og íslenska karla- landsliðsins í knattspyrnu, að svo stöddu. Þetta kom fram í svari Everton við fyrirspurn Morgunblaðsins um stöðu leikmannsins hjá félaginu. Gylfi, sem er 32 ára gamall, var handtekinn á Bretlandseyjum hinn 16. júlí vegna meints brots gegn ólögráða einstaklingi líkt og mbl.is greindi frá fyrstur miðla. Hann var látinn laus gegn trygg- ingu skömmu síðar en breski miðill- inn Sky Sports greindi frá því í ágúst að Gylfi yrði laus gegn trygg- ingu til 16. október. Morgunblaðið hefur reynt án af- láts að ná í lögregluna í Manchester undanfarna daga en í skriflegu svari hennar við fyrirspurn mbl.is segir að engin ákvörðun hafi verið tekin í máli Gylfa. Hann verður því áfram laus gegn tryggingu á meðan lögreglan í Manchester rannskar málið og að henni lokinni mun lögreglan taka ákvörðun um hvort ákært verði í málinu eða það látið niður falla. Gylfi var ekki valinn í leik- mannahóp Everton fyrir fyrri hluta tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni en hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Tjá sig ekki um málefni Gylfa Þórs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.