Morgunblaðið - 27.10.2021, Blaðsíða 1
HAGKVÆMTOG UMHVERFISVÆNT
ArdbegWee Beastie sýnir að aldur er bara tala. 8
Það lýsir ítölsku atvinnulífi að í 74
ára sögu Alitalia var flugfélagið rekið
með hagnaði í aðeins eitt ár. 10
VIÐSKIPTA
11
Guðríður í versluninni Barnaloppunni segir
Íslendinga orðna betur meðvitaða um góð um-
hverfisáhrif þess að kaupa notaða vöru.
EKTA ÍTÖLSK HARMSAGA
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021
Eldsneytið ekki hærra frá 2018
Flugvélaeldsneyti (JET-1) hefur hækkað
gríðarlega í verði á síðustu mánuðum og nemur
hækkunin síðastliðinn mánuð 12,4%. Litið ár
aftur í tímann nemur hækkunin hins vegar
121,1%. Hefur hin skarpa hækkun haft veruleg
áhrif á afkomu margra flugfélaga sem enn eru í
sárum eftir það bylmingshögg sem þau urðu
fyrir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Í uppgjörskynningu Icelandair frá því í liðinni
viku sagði að hærra eldsneytisverð væri farið að
hafa áhrif á afkomu félagsins, enda væri það að
meðaltali 60% hærra en á þriðja fjórðungi síð-
asta árs.
Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir vissulega
að eldsneytisverðið sem fyrirtækið greiði nú sé
hærra en hann óskaði en það valdi honum þó
ekki stórkostlegum áhyggjum. Umsvif fyrir-
tækisins séu ekki mikil og vélar félagsins auk
þess sparneytnar.
Í fjárfestakynningu sem gefin var út þegar
Play réðst í hlutafjárútboð fyrr á árinu kom
fram að samkvæmt sviðsmynd stjórnenda þess
væri miðað við að eldsneytisverð yrði jafn hátt
og hæsta staða þess um mitt ár 2019. Þá stóð
verðið í 660 dollurum á tonnið. Í dag er það hins
vegar 764 dollarar samkvæmt upplýsingum frá
IATA, alþjóðasamtökum flugfélaga, eða tæpum
16% hærra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Flug-
vélaeldsneyti hefur hækkað mjög í verði á um-
liðnum mánuðum og helst það í hendur við aðra
þróun á orkumarkaði. Þá er vart aukinnar eft-
irspurnar eftir eldsneytinu eftir því sem flug-
félög auka umsvif sín.
Birgir segir að Play hafi ekki fjárfest í elds-
neytisvörnum í þessu ástandi.
„Við erum með áhættunefnd sem starfar und-
ir stjórn en í eru einnig utanaðkomandi sérfræð-
ingar. Niðurstaða nefndarinnar hefur verið sú
að kaupa ekki þessar varnir enda eru þær mjög
dýrar á meðan sveiflurnar eru svona miklar og
óvissa um þróun til lengri tíma ríkir á mörkuð-
um. Fólk er að bóka sér flugmiða með mun
skemmri fyrirvara en áður og því er mögulegt
að verðleggja sætin með tilliti til olíuverðs og
það veitir talsverða vörn gegn þessum sveifl-
um.“
Samkvæmt áætlunum Icelandair er gert ráð
fyrir að eldsneytisvarnir félagsins aukist til
muna fram á annan fjórðung næsta árs. Á yf-
irstandandi fjórðungi er félagið með um 11 þús-
und tonn af eldsneyti varin í samningum en þeg-
ar kemur fram á annan ársfjórðung komandi
árs verða þau um 20.600.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Flugvélaeldsneyti hefur hækkað
gríðarlega í verði á síðustu mán-
uðum og er farið að bíta í rekstri
flugfélaganna.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Play notast við sparneytnar A321NEO-vélar. 737MAX-vélar Icelandair eru einnig sparneytnar.
Þorgerður Arna Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Landeyjar, sem á
meirihluta í fasteignaþróunarfélag-
inu Arnarlandi, segir að síminn hjá
sér hafi vart stoppað frá því tilkynnt
var um verkefnið í fjölmiðlum á dög-
unum. Mörg spennandi fyrirtæki í
fremstu röð á Íslandi hafi lýst áhuga
á að koma með starfsemi sína á
svæðið.
„Arnarlandið er byggð þar sem
lýðheilsa og lífsgæði verða höfð að
leiðarljósi. Þetta á að verða miðstöð
heilsutækni á Íslandi. Svæðið mun
skiptast í tvennt þar sem atvinnu-
starfsemin verður nær Hafnarfjarð-
arveginum og myndar um leið skjól
fyrir íbúðabyggðina,“ segir Þorgerð-
ur í samtali við ViðskiptaMoggann.
Hún segir það hafa verið sýn að-
standanda Arnarlands, Landeyjar,
sem fer með 51% eignarhlut á móti
Ósum, að vöntun væri á klasa fyrir
heilsugeirann. „Eins og með aðra at-
vinnugeira er það vænlegt til árang-
urs þegar fólk í svipaðri starfsemi,
sem talar sama tungumál og er á
sömu línu, safnast saman á einn
stað. Við teljum að með þessu mynd-
ist kraftmikið umhverfi þar sem nýj-
ar hugmyndir og tækifæri fæðast.“
Auk þeirra tvö hundruð starfs-
manna Ósa sem koma inn á svæðið
þegar fyrirtækin í samstæðunni
flytja í hverfið er fyrirséð, miðað við
áhuga fyrirtækja á uppbyggingunni,
að sú tala verði fljót að hækka. Lögð
verður áherslu á að opna dyrnar fyr-
ir fyrirtæki sem sérhæfa sig í ný-
sköpun, þróun og þjónustu innan
heilsugeirans, að sögn
Þorgerðar.
Fyrirtæki í fremstu röð hafa lýst áhuga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorgerður segir að lýðheilsa og lífs-
gæði verði í fyrirrúmi í Arnarlandi.
Framkvæmdastjóri Land-
eyjar býst við að deiliskipu-
lagi Arnarlands í Garðabæ
ljúki í desember 2022.
6
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Lentir þú í tjóni?
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Skútuvog 4 | Sími 528 8888 | bilaréttingar.is Fagmenn í yfir 35 ár
TÍMAPANTANIR
528 8888
EUR/ISK
27.4.'21 26.10.'21
160
155
150
145
140
135
149,65
149,85
Úrvalsvísitalan
3.500
3.300
3.100
2.900
2.700
2.500
27.4.'21 26.10.'21
3.070,36
3.340,09