Morgunblaðið - 27.10.2021, Side 4

Morgunblaðið - 27.10.2021, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021FRÉTTIR LOFTSLAGSMÁL Móðurfélag Alcoa-Fjarðaáls stefnir að því að vera orðið kolefnis- hlutlaust fyrir árið 2050. Það er að segja að um miðja þessa öld verði ekki nettólosun gróðurhúsaloftteg- unda frá starfsemi félagsins um heim allan. Meðal annars verði dregið úr beinni og óbeinni losun gróður- húsalofttegunda vegna málm- bræðslu og málmvinnslu um 30% fyrir árið 2025, miðað við árið 2015, og um 50% fyrir 2030 miðað við sama viðmiðunarár. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá fyrirtækinu en loftslags- málin eru nú í brennidepli vegna loftslagsráðstefnunnar í Glasgow. Innleiða nýjar aðferðir Til að ná þessum markmiðum hyggst Alcoa meðal annars auka vægi endurnýjanlegrar orku í fram- leiðslunni og innleiða nýjar aðferðir í framleiðslunni. Þá meðal annars með því að hætta notkun kola í raf- skautum en með því mun ferlið losa súrefni en ekki koldíoxíð. Önnur aðferð er að endurnýta varma sem myndast við álvinnslu en ef tilraunir ganga sem skyldi verður reist 3 MW frumgerð þessarar tækni (MVR) í Vestur-Ástralíu 2023. Hefur áströlsk stofnun (ARENA), sem vinnur að uppbyggingu endur- nýjanlegrar orku, stutt verkefnið með styrk sem nemur sem svarar rúmlega 1.100 milljónum króna. Um þrír fjórðu hlutar orkunnar sem knýr álbræðslur og álvinnslur Alcoa koma nú frá endurnýjanlegri orku, ekki síst vatnsafli. Morgunblaðið/ÞÖK Hjá Alcoa-Fjarðaáli á Reyðarfirði. Alcoa stefnir að kol- efnishlutleysi 2050 Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, áætlar að búið sé að ráða í 60-70% auglýstra starfa í átaksverkefninu Hefjum störf sem hófst eftir kórónuveirufaraldurinn. Tilefnið er að viðmælendur Við- skiptaMoggans í verslun og heild- sölu hafa kvartað undan því að illa gangi að manna lausar stöður. Samkvæmt mælaborði átaks- ins hafa verið auglýst 15.783 störf síðan átakið hófst 1. mars síð- astliðinn. Þar af voru 709 störf auglýst í vinnu- miðlun hjá Vinnu- málastofnun í september. Til samanburðar hafa verið skráðar 6.855 ráðningar sem er um 43% auglýstra starfa. Sum auglýst oftar en einu sinni Að sögn Unnar er eitthvað um tvítalningu í fjölda auglýstra starfa – sum störf hafi verið auglýst oftar en einu sinni – og því megi lauslega áætla að búið sé að ráða í 60-70% auglýstra starfa. Samkvæmt septemberskýrslu Vinnumálastofnunar voru 10.428 einstaklingar án vinnu, sem var 5% atvinnuleysi. Þar af voru 4.144 er- lendir atvinnuleitendur án vinnu. Unnur segir aðspurð að með hlið- sjón af þessum fjölda, og þeirri stað- reynd að óráðið sé í 30-40% aug- lýstra starfa í verkefninu Hefjum störf, megi ætla að hin auglýstu störf henti atvinnuleitendum misvel. Til dæmis hafi það reynst erfitt fyrir Vinnumálastofnun að þjónusta hótel sem leituðu eftir fólki í sumar sem leið, sérstaklega eftir því sem þau voru fjær höfuðborgarsvæðinu. Skýringin geti meðal annars verið sú að atvinnuleitendur hafi aflað sér háskólamenntunar en að auglýstu störfin krefjist mörg hver ekki menntunar á umræddum sviðum. Varðandi þau ummæli viðmæl- enda blaðsins að erfitt sé að manna stöður bendir Unnur á að af alls um 6.800 ráðningum í átakinu hafi verið yfir 1.800 ráðningar í verslun og vöruflutningum. Erfiðara að finna rétta fólkið „Okkur sýnist að það séu um 50 störf í þessum geira til miðlunar hjá okkur núna. Það verður að hafa í huga að atvinnuleysi hefur minnkað mjög hratt og er nú 5%, en um leið og það gerist verður erfiðara að finna fólk sem hæfir störfunum sem koma til miðlunar,“ segir Unnur. Þunginn í maí og júní Hún bendir á að byrjað hafi verið að ráða fólk í umræddu átaki í mars en að þunginn í ráðningum hafi verið í maí og júní. Ráðningarsamningar séu til sex mánaða og því muni skýr- ast á næstu vikum hversu hátt hlut- fall þessara ráðninga verði varan- legt. Atvinnuleysi aukist jafnan á tímabilinu frá desember til febrúar, að hluta vegna áhrifa veðurs á bygg- ingargeirann og árstíðasveiflu í ferðaþjónustu, en síðan séu horfur almennt góðar næsta ár. Um það vitni mikil eftirspurn atvinnurek- enda eftir starfsfólki undanfarið. Samkvæmt septemberskýrslu Vinnumálastofnunar fækkaði fólki án vinnu í öllum atvinnugreinum frá fyrri mánuði. Fækkunin var mest í ferðatengdri starfsemi (ferðaþjón- ustu ýmiss konar, gistiþjónustu og veitingaþjónustu) eða 12-14%. Þá fækkaði fólki án vinnu í menningar- tengdri starfsemi um 15% milli mán- aða og í þjónustu- og sölustörfum og meðal sérmenntaðra var fækkunin 10-12%. Meðal flestra annarra starfsstétta var fækkunin 7-9%. Hlutfallið haldist stöðugt Unnur segir hlutfall íslenskra og erlendra ríkisborgara af atvinnu- lausum – 60% og 40% – hafa haldist stöðugt í lengri tíma. Hún kveðst að- spurð ekki eiga von á að faraldurinn muni hafa mikil og varanleg áhrif á atvinnuleysi á Íslandi til lengri tíma litið. Vinnumálastofnun leggi nú áherslu á að liðsinna fólki sem hafi verið 12 mánuði eða lengur án vinnu. „Rannsóknir sýna að ef fólk er 12 mánuði eða lengur í atvinnuleit fer róðurinn að þyngjast,“ segir Unnur um þessa áskorun. Atvinnulausir hafna störfum Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ekki hefur tekist að ráða í þúsundir lausra starfa í átaksverkefninu Hefjum störf. Samtímis eru um 10.400 manns án vinnu. Morgunblaðið/Eggert Hægur bati í ferðaþjónustu birtist í endurráðningum í ágústmánuði sem leið. Frá mars til 26. okt. 2021 Eftir ríkisfangi Eftir kyni Ráðningar Fjöldi starfa eftir atvinnugreinum, tíu helstu Átakið Hefjum störf Heimild: Vinnumálastofnun Fjöldi ráðninga: 6.855 Heildarfjöldi starfa: 15.783 Erlent 44% Íslenskt 56% Karlar 53% Konur 47% Gistiþjónusta Ferðaþjónusta ýmis Verslun og vöruflutn. Veitingaþjónusta Byggingariðnaður Listir, söfn, tómst. o.fl. Opinber þjónusta Farþegafl. með flugi Iðnaður Ýmis þjónusta 2.313 1.954 1.819 1.736 1.171 1.086 977 917 802 600 Unnur Sverrisdóttir ra ve ra fyrir rafgeyma ve MÁLMVINNSLA Tekjur af málmvinnslu fyrstu átta mánuði ársins voru 54,4 milljörðum króna meiri en sama tímabil í fyrra. Þannig voru þær 147,4 milljarðar króna á þessu tímabil í fyrra en 201,8 milljarðar þetta tímabil í ár. Sé litið til tímabilsins frá maí til ágúst voru tekjurnar 68,3 milljarðar króna í fyrra en 109,5 milljarðar sömu mánuði í ár sem var aukning um 41,2 milljarða króna. Þetta má lesa úr samantekt Hag- stofu Íslands sem unnin er upp úr virðisaukaskattsskýrslum, en tekið skal fram að hér er stuðst við bráða- birgðatölur án VSK. Hækkun álverðs er veigamesti þátturinn í ofangreindri aukningu, en eins og fjallað hefur verið um í ViðskiptaMogganum hefur álverð hækkað mikið undanfarið. Það fór í um 3.200 dali tonnið í kauphöllinni með málma í London (LME) 20. október síðastliðinn en hefur síðan lækkað í 2.800 dali. Það var til samanburðar 1.838 dalir 26. október í fyrra. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Álverð hefur hækkað mikið á árinu. Jukust um 54,4 milljarða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.