Morgunblaðið - 27.10.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 27.10.2021, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021FRÉTTIR Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR Minnsta lækkun ICESEA -4,40% 15,20 Mesta hækkun MAREL +1,44% 848,00 S&P 500 NASDAQ +0,72% 15.325,004 +0,95% 4.592,82 +1,21% 7.277,62 FTSE 100 NIKKEI 225 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. +1,38% 29.106,01 80 40 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)GULLVERÐ ($/únsu) 27.4.'21 1.500 2.000 1.778,0 27.4.'21 86,36 26.10.'21 66,42 26.10.'21 1.788,6 Gunnar Thoroddsen, eigandi og stjórnarformaður hjá Íslenskum fasteignum, segir búið að selja 41 íbúð á Austur- höfn fyrir um átta milljarða króna eða tæp 60% af íbúðunum. Með- alverð seldra íbúða er því um 200 milljónir króna. Alls eru 67 íbúðir á Austurhöfn auk fjögurra þakíbúða en íbúðirnar eru í sex stigagöngum. Hefur salan dreifst nokkuð jafnt milli þeirra. Gunnar segir aðspurður að er- lendir kaupendur hafi keypt sjö íbúðir af 41 seldri íbúð, eða um 17% seldra íbúða. Íslendingar séu því í meirihluta kaupenda en flestir þeirra séu búsettir á Íslandi og hyggist halda heimili á Austurhöfn. Þá séu dæmi um að kaupendur líti á íbúðirnar sem fjárfestingu og ætli sér jafnvel að leigja þær út. „Með sama áframhaldi verður búið að selja allar íbúðirnar næsta vor. Eftir að slakað var á takmörk- unum vegna kórónuveirufaraldurs- ins hefur salan gengið talsvert betur en við gerðum ráð fyrir. Íbúðirnar hafa selst hraðar en við áætluðum.“ Réttum megin við núllið Spurður um afkomu verkefnisins í heild segir Gunnar líkur til að það rati réttum megin við núllið. „Verkefnið allt hefur tekið tals- vert lengri tíma en við ráðgerðum og hafa verður í huga að byggingar- kostnaður íbúða af þessari gerð er verulega hár. Gert er ráð fyrir að verkefnið skili hagnaði þegar upp er staðið þótt ekki verði um háar fjár- hæðir að ræða,“ segir Gunnar. Þá segir Gunnar aðspurður að al- mennt hafi hækkandi fasteignaverð, þar með talið á sérbýli, unnið með verkefninu. Sömuleiðis skortur á nýjum íbúðum á markaðnum og lægri vextir en þekkst hafi á Íslandi. Eins og komið hefur fram í Við- skiptaMogganum hafa Íslenskar fasteignir jafnframt selt atvinnu- húsnæði á jarðhæð Austurhafnar fyrir um tvo milljarða og er því búið að selja íbúðir og atvinnuhúsnæði fyrir um 10 milljarða króna. Áformað er að taka verslanir og matarmarkað á jarðhæðinni í notkun fyrir komandi ferðasumar. Gunnar segir það hafa stutt við íbúðasöluna að lúxushótelið The Reykjavík Edition hafi verið tekið í notkun og að framkvæmdum utan- húss á svæðinu sé lokið, ef frá sé talið Landsbankahúsið en verið er að setja klæðningu á húsið. Kosta alls 14-15 milljarða Áætlað var í ViðskiptaMogganum í desember að söluverðmæti íbúða á Austurhöfn væri rúmlega 13,1 millj- arður króna. Verðlistinn hafði þá verið kynntur en verð íbúða á efstu hæð var ekki gefið upp. Síðan kom fram í ViðskiptaMogg- anum að dýrasta þakíbúðin kosti um 500 milljónir. Má því ætla að alls kosti íbúðirnar 14-15 milljarða, að þakíbúðum meðtöldum, en sam- kvæmt því á eftir að selja íbúðir fyrir 6-7 milljarða króna. Salan nálgast 8 milljarða Baldur Arnarson baldura@mbl.is Íslenskar fasteignir hafa selt íbúðir á Austurhöfn fyrir um átta milljarða króna. Seld hefur verið 41 íbúð í sex stigagöngum. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Nýjar íbúðir á Austurhöfn við Hörpu. Erlendir aðilar hafa keypt sjö íbúðir en það eru 17% seldra íbúða á Austurhöfn. Gunnar Thoroddsen FJARSKIPTAMARKAÐUR Vörusala Símans á þriðja fjórðungi ársins nemur 6.267 milljónum króna og dróst saman um 0,6% frá sama fjórðungi fyrra árs. Rekstrarhagn- aður jókst hins vegar og nam 1.526 milljónum, samanborið við 1.338 milljónir í fyrra. EBITDA var 2.974 milljónir króna og hefur aldrei verið jafn mikil á einum fjórðungi í rekstr- arsögu félagsins. Hagnaður félagsins nam 1.057 milljónum og jókst um 43 milljónir frá fyrra ári. Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta jókst verulega og nam 2.968 milljónum, samanborið við 2.213 milljónir á sama tímabili 2020. Vaxtaberandi skuldir að leigu- skuldbindingum meðtöldum námu 32,6 milljörðum og jukust verulega frá áramótum þegar þær stóðu í 21,5 milljörðum. Hreinar vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 25,6 milljarðar og jukust um 4,8 milljarða frá áramót- um. Hrein fjármagnsgjöld námu 218 milljónum á fjórðungnum en voru 143 milljónir á sama tímabili fyrra árs. Eigið fé Símans stóð í 31,3 millj- örðum króna í lok fjórðungsins og eiginfjárhlutfallið var 45%. Hefur það lækkað um 6 milljarða króna frá áramótum. Orri Hauksson segir rekstrarárangur félagsins skýrast af stýringu kostnaðar. Tekjumyndun sé hins vegar ærið verkefni enda mikil samkeppni á fjarskiptamark- aði. Tekjur vegna gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu hafi staðið í stað vegna hægagangs við framleiðslu sjónvarpsefnis á heimsvísu. Þá hafi vörusala minnkað „enda hafa Íslend- ingar aftur fengið færi á að kaupa vörur í heimsóknum sínum erlend- is.“ Segir hann þó að farsímatekjur séu í vexti á ný og að það sé gleði- efni. ses@mbl.is Jafnvægi hjá Síman- um á þriðja fjórðungi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon EBITDA Símans var hærri en nokkru sinni fyrr og nam 2.974 milljónum. SALA STOÐTÆKJA Hagnaður Össurar nam 2,2 millj- örðum króna á þriðja ársfjórðungi borið saman við 1.940 milljóna króna hagnað á sama fjórðungi í fyrra. Þetta kemur fram í uppgjöri fé- lagsins fyrir þriðja ársfjórðung. Hagnaðarhlutfallið á þriðja fjórð- ungi í ár var 10% af sölutekjum en 9% á sama fjórðungi í fyrra. Þá hagnaðist fyrirtækið um 6,2 milljarða fyrstu níu mánuði ársins borið saman við 517 milljóna króna hagnað sömu mánuði í fyrra. Hagnaðurinn hefur því tólffaldast milli ára en fram kom í miðopnu- viðtali ViðskiptaMoggans við Jón Sig- urðsson, forstjóra Össurar, í júní sl. að stoðtækjafyrirtækið hefði barist fyrir lífi sínu í nokkrar vikur í mars í fyrra, eftir að faraldurinn hófst. „Við horfðum fram á að Össur gæti að óbreyttu ekki lifað lengur en í fjóra mánuði,“ sagði Jón þá m.a. Morgunblaðið/Eggert Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar. Stórbætt afkoma Össurar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.