Morgunblaðið - 27.10.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 27.10.2021, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021SJÓNARHÓLL Greið leið – til fram Við ráðum í 100 stöðu a r KRISTINN MAGNÚSSON S tafræn bylting síðustu áratuga hefur vart framhjá neinum farið og nær hún í dag til svo gott sem allra þátta okkar daglega lífs. Tæknin hefur opnað dyr sem fólk hafði ekki ímyndunarafl til að sjá móta fyrir og möguleikarnir virðast óendanlegir. Snjalltækin eru að verða áfastur fylgihlutur okkar flestallra í úrlausn daglegra viðfangsefna og við erum stöðugt beintengd við yfirgripsmikinn vef af sífellt snjallari stafrænum lausnum sem keppa um athygli okkar. Þessu fylgja vissulega skuggahliðar en jákvæðu breytingarnar sem hafa átt sér stað eru ótalmargar og líkast til eru enn fleiri í far- vatninu. Lífeyrismál eru væntanlega ekki ofarlega í huga fólks yfir málefni sem standa framar- lega í þessari stafrænu bylt- ingu. Þeim aðilum sem lögðu grunn að íslenska lífeyr- iskerfinu fyrir rúmum 100 ár- um kæmi það líkast til spánskt fyrir sjónir að lífeyr- islausn hefði verið valin tæknilausn ársins. Sú er hins vegar raunin, enda á fáum stöðum í heiminum jafn mikilvægt að sjóðfélagar hafi greiðan aðgang að sínum lífeyrisupplýsingum og hér á landi þar sem stór hluti sparnaðar landsmanna er í gegnum lífeyrissjóði. Flókið mál leyst á aðgengilegan hátt Vaxandi hluti landsmanna kýs að sinna öllum sínum daglegu bankaviðskiptum í gegnum app-lausnir fjár- málafyrirtækja. Það lá því beinast við að tengja lífeyr- ismál þar inn enda lífeyrissparnaður mikilvægur grunnþáttur í fjármálum einstaklinga. Þá þarf jafn- framt að hafa í huga að lífeyrismál hafa, oft að ósekju, þótt helst til óspennandi og jafnvel fráhrindandi og því þeim mun mikilvægara að tækniþróun þeirra tækist vel til. Í tilviki lífeyrissjóða sem í dag nýta sér Arion- appið á miðlun upplýsinga til sjóðfélaga var lagt upp með að taka lífeyrismál sem flestir telja frekar flókin viðfangs og birta þau með einföldum, áhugaverðum og aðgengilegum hætti. Með þessu skrefi hafa upplýs- ingar um lífeyrissparnað verið færðar nær hverjum og einum og sjóðfélagar hafa nú einstaka yfirsýn yfir líf- eyrismálin sín. Sjóðfélagar geta skoðað þróun séreign- arsparnaðar síns frá upphafi ásamt því að sjá áætlaða inneign við starfslok og mánaðarlegar útgreiðslur. Þá má jafnframt fylgjast með ávöxtun og ráðstöfun sparn- aðar við húsnæðiskaup ásamt greiðslum inn á lán. Það er skemmst frá því að segja að lausninni hefur verið vel tekið. Á bak við tjöldin Með lausninni er sjóðfélögum, til viðbótar við yfirsýn yfir sín lífeyr- ismál, boðið upp á að framkvæma ýmsar aðgerðir á einfaldan og þægilegan hátt, svo sem að stofna viðbótarlífeyrissparnað, breyta um sparnaðarhlutfall og tilkynna um nýja launagreiðendur verði breyt- ing þar á. Þegar tæknilausn sem þessi er þróuð er mikilvægt að tryggja að allar aðgerðir sem boðið er upp á séu hugsaðar til framtíðar og sjálfvirkni þeirra höfð í fyr- irrúmi. Með því tekst að draga úr kostnaði og á sama tíma að skapa betra rými hjá sérfræðingum sjóðanna til að sinna per- sónulegri þjónustu við sjóðfélaga sem þurfa á henni að halda. Tökum það besta út úr tækninni Framboð snjallra lausna er ekki fyrirsjáanlegt vandamál, þvert á móti, en þær lausnir sem ná að höfða til notenda með því að skilja hismið frá kjarn- anum eru þær sem munu eflaust á endanum standa upp úr. Að koma lífeyrismálum inn í app-lausn sem sjóðfélagar þekkja og nota er dæmi um tækniþróun meðal lífeyrissjóða og samþættingu á þjónustu sem heppnaðist einstaklega vel. Frekari breytingar eru í farvatninu sem verður spennandi að fylgjast með, allar með það markmið að færa þennan mikilvæga sparnað enn nær sjóðfélögum. LÍFEYRISMÁL Snædís Ögn Flosadóttir og Hjörtur Smári Vestfjörð Snædís er framkvæmdastjóri EFÍA og LSBÍ og rekstrarstjóri Lífeyrisauka, Hjörtur starfar hjá Mörkuðum Arion banka. Lífeyrismál á 21. öldinni ” Vaxandi hluti lands- manna kýs að sinna öll- um sínum daglegu bankaviðskiptum í gegnum app-lausnir fjármálafyrirtækja. Það lá því beinast við að tengja lífeyrismál þar inn enda lífeyrissparnaður mikilvægur grunnþáttur í fjármálum einstaklinga. Eins og ég hef áður nefnt fælir sú útbreidda hugmynd marga frá viskí- heiminum að viskí þurfi að vera bæði gamalt og rándýrt til að þykja spennandi drykkur. Er alls ekki á færi hins almenna launþega að punga mánaðarlega út fyrir dýrustu viskíflöskunum, sem sumar geta kostað á við góða helgarferð til Evr- ópu, og því eins gott fyrir fólk að slysast ekki út á þá braut að læra að meta hágæðaviskí og enda á að drekka frá sér ævisparnaðinn – eða hvað? Viskíspekúlantar eru duglegir að benda á að það má finna fjöldann allan af tiltölulega ungu og ódýru viskíi sem gefur elsta og dýrasta viskíinu ekkert eftir. Það er kannski ekki mikið spunnið í allra ódýrasta blandaða viskíið og best að nota þannig drykki einvörðungu í hana- stél, en hillur ÁTVR luma á úrvali margslunginna einmöltunga sem upplifun er að smakka eina og sér. Ardbeg Wee Beastie er gott dæmi um þess háttar viskí og sýnir að það á við um viskí líkt og um mannfólkið, að stundum er aldur bara tala. Í júní voru 10 ára viskíinu frá Ardbeg gerð skil í þessum dálki, og einmitt bent sérstaklega á að sá drykkur er hvorki gamall né dýr en samt ljúffengur og margslunginn. Wee Beastie er enn yngra viskí – þroskað í aðeins fimm ár í tunnum sem áður voru notaðar undir amer- ískt búrbon og Oloroso-sérrí; Islay- einmöltungur í húð og hár með öfl- uga angan og bragð af reyk. Ef eitt- hvað er gefur aldurinn Wee Beastie meiri persónuleika en 10 ára systur- vískíið býr yfir því línurnar eru skýrari og öfgarnar meiri. Grillveisla í glasinu Þegar snotur svargræn flaskan er opnuð dreifist þægileg reykangan um rýmið. Drykkurinn hefur dæmi- gerðan ljósgullinn lit, eins og ung- viskíi sæmir. Anganin ein og sér er veisla fyrir skilningarvitin. Greina má tóna af grilluðu kjöti og BBQ-sósu, kara- mellu og leðri. Ilmurinn er einstak- lega holdmikill, með vott af sætum ávexti. Lyktin af nýprentuðu dag- blaði eða heimsókn á skóvinnustofu kemur upp í hugann – leitun að betri viskíilmi, og kemur eitthvað nýtt í ljós í hvert skipti sem glasið er borið upp að nefinu. Bragðið er sömuleiðis bæði djúpt og breitt: málmtónar, aska, græn og fersk eik, minta, vindlar og jafnvel Er aldur bara tala? HIÐ LJÚFA LÍF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.