Morgunblaðið - 27.10.2021, Side 12

Morgunblaðið - 27.10.2021, Side 12
AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is HÄSTENS VERSLUN Faxafeni 5, Reykjavík 588 8477 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 1–18 | Lau. 1–16 ww.betrabak.is Þegar þú vaknar í rúmi frá Hästens munt þú skilja virði þess að ná fullkomnum nætursvefni. WESLEEP. DOYOU? VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Heimavöllurinn byrjaði sem vinsælt hlaðvarp þeirra Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur en er í dag einnig atkvæðamikil vefverslun með plaköt og búninga sem tengjast ís- lenskum knattspyrnukonum. „Við byrjuðum fyrir þremur ár- um af því að okkur fannst vanta umræðu um íslenska kvennaknatt- aspyrnu,“ segir Hulda í samtali við ViðskiptaMoggann. Hulda stundar nám í markaðs- fræði við Háskóla Íslands og hefur unnið dag og nótt fyrir Heimavöll- inn samhliða náminu. Fljótlega var Instagram-síða sett á laggirnar. „ Við ákváðum strax að gera meira en segja bara úrslit í leikjum eða tala bara um frægustu leikmennina, og draga í staðinn sem flesta leikmenn fram í sviðsljósið,“ segir Hulda sem segir að lykillinn að því að auka umræðuna sé að framleiða meira af efni og birta daglega. „Ég held að fótboltastelpur á öll- um aldri og í öllum deildum hafi verið orðnar þreyttar á skorti á um- fjöllun um kvennaboltann. Okkar markmið var að „breyta leiknum“ og sýna hve fjölmenn kvennaknatt- spyrnan á Íslandi er. Ég hef fengið ótal skilaboð frá foreldrum og fót- boltstelpum sem voru t.d. orðin þreytt á að fara inn í íþróttavöru- verslanir þar sem lítið var um fyrir- myndir fyrir fótboltastelpur.“ Hulda nýtur góðs af góðu sam- bandi sínu við íslenskar landsliðs- konur sem eru boðnar og búnar að taka þátt í verkefninu og árita plak- öt og boli sem seldir eru á Heima- vellinum. Eitt þúsund mættu í Kringluna Hún segir að margir hafi hlegið að henni þegar hún sagðist á síðasta ári ætla að selja tvö hundruð Lyon- treyjur með nafni Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, leikmanns Lyon, á bakinu á einni viku. Vegna Covid gat forsalan aðeins staðið yfir í tvo daga og seldust 160 treyjur á þeim tíma, að sögn Huldu. Á laugardaginn mættu síðan hátt í eitt þúsund manns í Kringluna á viðburð Heimavallarins þegar Sara Björk mætti til að árita peysur og plaköt. „Sara áritaði síma, peysur, bolta og nánast öll fötin sem krakk- arnir voru í. Það seldust allar Lyon- treyjur upp auk þess sem við seld- um yfir 300 plaköt með hvatningar- orðum frá leikmönnum.“ Hulda segir margt spennandi framundan og meðal annars hafi hún hugsað um að opna íþrótta- vöruverslun Heimavallarins. Sara Björk Gunnarsdóttir áritaði ýmsar vörur í Kringlunni á laugardaginn. Vildu auka umræðuna Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Fyrir marga fótboltaunn- endur sem fylgjast grannt með íslensku kvennaknatt- spyrnunni er heimsókn á Instagram-reikning Heima- vallarins orðin daglegur viðburður. Baldur Arnarson baldura@mbl.is A lmannatenglar Facebook hafa í nógu að snúast þessa dagana. Vitnisburður Frances Haugen, fyrr- verandi yfirmanns hjá Facebook, þykir hafa skaðað orðspor þess og gekk tímaritið The Economist svo langt í kjölfarið að segja fyrirtækið á mörkum þess að verða fyrir slíkum orðsporshnekki að ekki yrði aftur snúið. Vandinn byrjaði á toppnum. V iðmælandi ViðskiptaMoggans varð fyrir því að vera notaður án leyfis í auglýsingum sem birtar voru hjá Facebook. Það féll honum ekki í geð og hafði hann því samband við yfirmenn Facebook. Það gerðist hins vegar ekkert í kjölfarið. Aug- lýsingarnar héldu áfram að birtast. S tofnandi Facebook og andlit fyrirtækisins út á við, Mark Zuckerberg, var nýverið til umræðu í hlaðvarpi Köru Swisher hjá New York Times en viðmælandinn var Walt Mossberg, fyrrverandi blaða- maður hjá The Wall Street Journal, sem sagði frá kynnum sínum af Bill Gates, Steve Jobs, Elon Musk og Zuckerberg. G ates og Jobs voru með vott af mikilmennskubrjálæði, að sögn Mossberg, og Musk verður minnst fyrir að hafa rutt rafbílnum braut. Ólíkt þeim Gates og Jobs væri ekki að sjá að Zuckerberg hefði grunngildi. Facebook væri í grunn- inn siðlaust fyrirtæki. Það eru stór orð og á hinn stórsnjalli en gallaði Zuckerberg mikið verk að vinna. B ill Gates, stofnandi Microsoft, var harðlega gagnrýndur fyrir einokunartilburði á tíunda áratug síðustu aldar. Fyrirtæki hans sakað um að drepa niður alla mögulega samkeppni. Síðan stofnuðu Gates- hjónin, Bill og Melinda, velgjörðar- sjóð og batnaði ásýndin þá með tím- anum. Munu Zuckerberg-hjónin, Mark og Priscilla Chan, tilkynna um aukin framlög úr velgjörðarsjóði sín- um til að rétta við ímynd sína? Facebook í nýju ljósi Þ að voru gáfaðir menn sem tóku skortstöðu gegn bílaframleið- andanum Tesla á sínum tíma. Þeir sáu á öllum gögnum sem greina mátti að fyrirtækið stóð ekki undir því verðmati sem markaðurinn lagði á það. Þá var fyrirtækið metið á ríf- lega 500 milljarða dollara. Nú stend- ur markaðsvirði þess í 1.000 millj- örðum dollara og er fyrirtækið það sjötta í sögu Bandaríkjanna til þess að ná þessu undraverða marki. G áfumennin sitja eftir með sárt ennið en viðurkenna þó ekki mistök. Magnaði taugalæknirinn og fjárfestingarmógúllinn Michael Burry, sem var helsta viðfangsefni myndarinnar The Big Short, er hvergi banginn og heldur áfram að veðja gegn Tesla. Hann telur víst að loftið verði úr blöðrunni innan tíðar. Gengi Tesla á markaði er reyndar lyginni líkast og skynsemin segir að Burry hljóti að hafa margt til síns máls. Markaðsvirði fyrirtækisins er hærra en Toyota, Volkswagen, BYD, Daimler, Great Wall Motors, NIO, BMW og Ford til samans! H inum megin borðsins situr svo annað gáfumenni. Hann er ólíkur flestum og hugsar ekki aðeins út fyrir boxið, heldur langt út fyrir gufuhvolfið sem við lifum og hrær- umst í. Elon Musk er einn magn- aðasti uppfinningamaður sögunnar og verður sennilega í sögubókum nefndur með Arkímedesi og Edison. Hlutabréfaeign hans í Tesla er nú metin á ríflega 170 milljarða dollara, jafnvirði 22 þúsund milljarða króna. F egurðin í allri þessari sögu er að Musk hefur byggt upp fyrir- tæki á tiltölulega skömmum tíma sem breytt hefur viðmiðum á bíla- markaði. Fært okkur hraðar inn í nútímann og gert heiminn skemmti- legri (það er nefnilega ótrúlega gam- an að keyra Teslu). Ólíkt því sem vinstrimennirnir halda fram hefur auðlegð Musks gert okkur öll ríkari. Milljarðarnir, sem taldir eru í þús- undum, voru hvorki teknir frá fá- tæku fólki né ríkisvaldinu. Þeir urðu til með verðmætasköpun. Það er fyr- irbæri sem fólk mætti bera meiri virðingu fyrir. Töfrar markaðarins eru sannarlega magnaðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.