Morgunblaðið - 03.11.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.11.2021, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021 Stigar og tröppur í mjög góðu úrvali Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 „Ég man ekki til þess að formaður verkalýðsfélags hafi áður sagt af sér í svona samhengi, það er með stuðning mikils meiri hluta stjórnar á bak við sig,“ sagði Sumarliði R. Ísleifsson, lektor í sagn- fræði við Há- skóla Íslands. Hann var spurð- ur hvort afsögn formanns Efl- ingar ætti sér fordæmi í sögu verkalýðshreyf- ingarinnar. Sum- arliði hefur m.a. skrifað um sögu Alþýðusambands Íslands og þekkir því til sögu hreyfingar launafólks. „Maður veit ekki hvernig þetta þróast í Eflingu. Mér þykir ósenni- legt að þau tvö sem hættu, Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þor- steinsson, hafi sagt sitt síðasta orð. Þau hafa látið mikið til sín taka á undanförnum árum og það er ekki sennilegt að þau hætti skyndilega. Það er líka athyglisvert að sjón- armið þeirra, að svo miklu leyti sem þau hafa komið fram, hafa aðallega birst á samfélagsmiðlum. Þetta er að ég held í biðstöðu og of snemmt að draga skýrar ályktanir af þessu ferli,“ sagði Sumarliði. Hann benti á að hjá Eflingu væri starfandi for- maður, það er varaformaðurinn, sem taki við samkvæmt almennri reglu þegar formaðurinn hættir. Hann sagði að hér hefði mótast sá „uppsagnarkúltúr“ að fólk segði yfirleitt ekki af sér fyrr en fokið væri í öll skjól. Það ætti að minnsta kosti við í pólitíkinni. Sumarliði nefndi að ekki hefðu margir sagt af sér á árunum eftir hrun en athygl- isvert væri að það hefðu aðallega verið konur og kannski mætti skoða þetta mál í því ljósi. Hann nefndi sem dæmi þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér sem varaformaður Sjálfstæð- isflokksins í apríl 2010 og vék jafn- framt tímabundið sem þingmaður. Hún gaf þá ástæðu að hún nyti ekki sama trausts og áður. Einnig þegar Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, sagði af sér sem þingmaður í maí 2010. Ástæðan sem hún gaf var umræða um fjármögnun kosningabaráttu hennar í tveimur prófkjörum til borgar og þings 2006. gudni@mbl.is Einsdæmi í sögu verkalýðsfélaga - Kaus að víkja þrátt fyrir stuðning Sumarliði R. Ísleifsson Guðni Einarsson Freyr Bjarnason Formannafundur Starfsgreinasambands Ís- lands (SGS) var haldinn í Reykjavík í gær. Hann samþykkti ályktun sem snerist að mestu um kjaramál. Ekkert var minnst þar á átökin innan Eflingar og afsögn formannsins Sólveig- ar Önnu Jónsdóttur og Viðars Þorsteinssonar framkvæmdastjóra. Efling er stærsta aðildar- félagið innan SGS. Formannafundurinn hófst á Icelandair Hótel Reykjavík Natura klukkan ell- efu í gærmorgun og lauk síðdegis. Í ályktuninni kemur m.a. fram að kjarasamn- ingarnir frá 2019 hafi verið góðir og ekki ýtt undir þenslu heldur stuðlað að því að lægstu laun hækkuðu til að mæta hækkandi húsnæð- iskostnaði. „Hækkun vaxta undanfarinna vikna vekur miklar áhyggjur og getur orðið til þess að samningar bresta,“ sagði í ályktuninni. Þá sagði þar að um leið og íslenskt launafólk geti verið stolt af árangri sínum í lífskjarasamn- ingnum treysti SGS á „að ríkisstjórnin standi við sinn hlut. Sambandið er tilbúið að beita afli sínu til að verja samninginn og mun eftir sem áður sækja fram með sínar réttlátu kröfur og hugmyndir í komandi samningum.“ Missir að Sólveigu Önnu Jónsdóttur „Þetta er nú ekki algengt. Þetta er svolítið innanhússmál í Eflingu en auðvitað hefur þetta áhrif á hreyfinguna í heild þegar svona gerist. Með Sólveigu [Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi formann Eflingar] þá er hún búin að vera ötull baráttumaður og það er missir að henni,“ sagði Björn Snæbjörnsson formaður SGS spurður um væringarnar í Eflingu. Málefni Eflingar voru ekki formlega á dag- skrá í gær en varaformaður og varafram- kvæmdastjóri stéttarfélagsins mættu á for- mannafundinn. Björn sagði að fundurinn væri útvíkkaður því bæði formenn og varaformenn tóku þátt í honum. Fara átti yfir stöðuna varðandi kaupmátt og fleira, auk þess sem horfurnar fram undan voru skoðaðar. Sömuleiðis átti að fjalla um hagvaxt- arauka sem var samið um í síðustu kjarasamn- ingum og kemur til framkvæmda í vor og einnig um hvernig hefur gengið varðandi styttingu vinnuvikunnar hjá opinberum aðilum. „Ekki síst þá er ár í að almennir kjarasamn- ingar losna. Við ætlum að reyna að fara yfir hvernig félögin geti undirbúið sig undir kom- andi kjarasamninga og reyna að setja tímaáætl- anir um hvenær menn eru tilbúnir með ákveðna hluti. Starfsgreinasambandið kemur inn í þessi mál,“ bætti Björn við. Spurður út í stöðuna núna fyrir þessa næstu lotu sem er fram undan í kjaraviðræðum sagði hann sumt hafa gengið eftir og nefndi einnig áhyggjur sem menn hafa af aukinni verðbólgu. „Þetta er gert fyrir félögin til að vita hvernig staðan er áður en fólk fer að vinna mikið heima í félögunum í undirbúningnum,“ sagði hann um fundinn. Ekki ætlunin að hrekja neinn úr starfi Trúnaðarmenn starfsfólks Eflingar sendu frá sér tilkynningu í gær vegna fréttaflutnings síð- ustu daga. Þeir sögðu að það hafi ekki verið vilji eða meining starfsmannafundarins á föstudag- inn var að formaðurinn segði af sér. Yfirlýsingin á föstudag hafi ekki verið í þeim tilgangi að lýsa yfir vantrausti eða hrekja nokkurn úr starfi heldur hugsuð sem fyrsta skref á leið til lausn- ar. „Starfsfólk félagsins hefur unnið af heilum hug samkvæmt þeirri stefnu sem forysta fé- lagsins hefur sett síðustu ár. Fjöldi starfs- manna félagsins starfar hér vegna þeirrar bar- áttu sem Sólveig hefur háð. Þau vandamál sem starfsfólk ræddi, vildi starfsfólk leysa í sam- vinnu við yfirmenn,“ sagði m.a. í tilkynning- unni. Ofbeldismenning innan Eflingar Viðar Þorsteinsson, fráfarandi fram- kvæmdastjóri Eflingar, var viðmælandi Kast- ljóss í gær en þar sagði hann ofbeldismenningu þrífast innan Eflingar. Hann sagði starfsfólk hafa ranglega sakað hann og Sólveigu um margvísleg brot á kjarasamningum en það væri eins konar arfleifð fyrri stjórnenda og þeirra sem væru óánægð með B-lista Sólveigar sem var kosinn í félagið árið 2018: „Við höfum verið svipt þeim trúverðugleika sem við þurfum að hafa til þess að geta rætt um raunveruleg kjarasamningsbrot og raunveruleg vandamál sem Eflingarfélagar úti á vinnustöðunum verða fyrir.“ Eflingarmál hafa áhrif á alla launþegahreyfinguna - SGS hefur áhyggjur af vaxtahækkunum sem geta valdið samningsbresti Morgunblaðið/Eggert Formannafundur SGS Björn Snæbjörnsson, formaður SGS (t.v.), og Vilhjálmur Birgisson, for- maður Verkalýðsfélags Akraness, voru mættir til fundarins. Þar voru kjaramálin í fyrirrúmi. Átökin í Eflingu „Ég finn til með fólkinu hjá Eflingu. Mér þykir vænt um félagið og erfitt að horfa upp á minn gamla vinnustað sundurtættan. Ég get ímyndað mér hvernig er að vinna þar við þessar að- stæður. Það er sorg í mínum huga að horfa upp á þetta,“ segir Þráinn Hallgrímsson, fyrrverandi skrifstofustjóri Eflingar. Hann vann hjá fé- laginu frá stofnun og þar til hann var rekinn fyr- irvaralaust á starfsmanna- fundi í maí 2018 fyrir framan 40 manns. Þráinn segir ýmislegt sem nú komi upp á yfirborðið vera í samræmi við það sem hann og fleiri fyrrverandi lykilstarfsmenn á skrifstofu Eflingar hafi haldið fram um núver- andi forystu félagsins. Þau voru látin fara þegar hún tók við. Þráinn var skrifstofustjóri Eflingar í 18 ár og þar á undan hjá Dagsbrún og ASÍ. Hann hóf störf í verkalýðshreyfingunni 1983. Í Eflingu eru um 27.000 félagsmenn. Þegar Þrá- inn var rekinn voru um 40 starfsmenn hjá Efl- ingu. Sárafáir þeirra eru enn í vinnu hjá félag- inu. „Ég sé að Sólveig Anna Jónsdóttir kennir starfsmannahópnum um ófarir sínar. Þar á meðal tengir hún við gömlu stjórnendur Efl- ingar sem fóru frá fyrir rúmum þremur árum! Hún er búin að hreinsa það allt út meira og minna – alla reynslumestu starfsmennina. Þeim var sagt upp eða þeir hættu. Starfsfólkið sem hún kennir nú um að flæma sig í burtu er það sem hún réð sjálf til starfa að stærstum hluta,“ segir Þráinn. Kjarasamningar eru lausir á næsta ári. Þrá- inn segir þá sérstaklega vandasama og flókna hjá jafn stóru stéttarfélagi og Eflingu. Það þurfi að semja fyrir hönd starfsmanna hjá ríki og borg, stórfyrirtækjum og á almenna vinnu- markaðinum. „Það er mikilvægt að hafa starfslið með reynslu og þekkingu í samningagerð. Góð skóla- ganga er ekki nóg ein og sér til að vera góður starfsmaður í verkalýðsfélagi. Reynslan og þekkingin á kjarasamningum auk hæfni í mann- legum samskiptum er það sem skiptir mestu máli. Því miður hefur Efling misst margt starfs- fólk sem var kjarninn í okkar starfsemi,“ segir Þráinn. gudni@mbl.is Finnur til með fólkinu hjá Eflingu - Nýir stjórnendur ráku reynda lykilstarfsmenn Þráinn Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.