Morgunblaðið - 03.11.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 03.11.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021 Bí 110 Tr Þegar Greta litla var um ferm- ingu töldu leiðtogar heims sig slá sér upp með löngum fundum með henni um ógnir ofhitunar. En nú segir svo í nýjustu fréttum: - - - Aðgerðarsinninn Greta Thun- berg segir að stjórn- málamenn á lofts- lagsráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna, séu aðeins að þykjast taka fram- tíð jarðarinnar al- varlega. - - - Þetta sagði Thunberg á einum gríðarmargra útifunda í Glas- gow í Skotlandi, þar sem ráð- stefnan fer fram. - - - Thunberg sagði við félaga sína úr samtökunum Fridays for future að róttækar breytingar í loftslagsmálum myndu ekki koma frá stjórnmálamönnum á ráðstefn- unni heldur einstaklingum sem taka af skarið. - - - Þessi ráðstefna er, enn sem kom- ið er, eins og aðrar fyrri ráð- stefnur, sem hafa ekki fært okkur neinar breytingar,“ sagði Thun- berg og bætti við: - - - Á ráðstefnunni eru bara stjórn- málamenn og leiðtogar, sem þykjast taka framtíð okkar alvar- lega, þykjast taka veruleika fólks, sem glímir nú þegar við áhrif lofts- lagsbreytinga, alvarlega.“ - - - Við erum orðin langþreytt á þessu og við ætlum að gera breytingar hvort sem þeim líkar það betur eða verr,“ sagði Thun- berg svo og sendi skýr skilaboð til þjóðaleiðtoga á ráðstefnu SÞ. Greta Thunberg Bragð er þegar barnið finnur STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Stigamat getur almennt ekki eitt og sér falið í sér endanlega niðurstöðu eða tæmandi forsendur fyrir því hver teljist hæfastur til að gegna tilteknu starfi,“ segir í nýju áliti umboðs- manns Alþingis í kjölfar frumkvæð- isathugunar hans á stigagjöf í ráðn- ingarmálum opinberra starfsmanna. Umboðsmaður hefur verið með stigamatið til skoðunar um nokkurra ára skeið og hafði ítrekað bent á að umrædd aðferð fæli í sér ákveðnar takmarkanir við ráðningar og skipan- ir í störf og embætti. Umboðsmaður leggur fram sex ábendingar í áliti sínu. Í fyrsta lagi að ábyrgð stjórnvalds standi óhögguð þó notast sé við tölulegt stigamat við mat á hæfni umsækjenda. Sýna þarf fram á að „heildstæður efnislegur saman- burður hafi farið fram á raunveru- legri starfshæfni umsækjenda með vísan til málefnalegra sjónarmiða“. Aðkoma ráðningarfyrirtækis haggar sömuleiðis ekki umræddri ábyrgð. Í öðru lagi þarf að gæta málefnalegra sjónarmiða og jafnræðis við tölulegan samanburð á hæfni umsækjenda. Í þriðja lagi þarf að gæta þess að stiga- mat sé að jafnaði aðeins til leiðbein- ingar, það feli í eðli sínu í sér einfaldað og ónákvæmt líkan af þeim eiginleik- um sem mynda hæfni fólks. Í fjórða lagi verði að gera ráð fyrir einhverj- um skekkjumörkum þegar heildar- stig séu borin saman. Ef mjótt er á munum milli fólks verði stjórnvald að vera reiðubúið að skýra hvað ráði nið- urstöðu um ráðningu. Í fimmta lagi geti stigamat ekki sjálfkrafa falið í sér endanlega niðurstöðu eða tæmandi skýringu á forsendum ráðningar eða skipunar. Að síðustu þurfi að gæta að rann- sóknarskyldu og andmælarétti um- sækjenda, samræmi í málsmeðferð og huga að skráningu í ráðningarferli. hdm@mbl.is Sex ábendingar varðandi stigamat - Umboðsmaður Alþingis sendir frá sér álit vegna ráðningarmála hins opinbera Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Næsta lítið hefur orðið úr áformum þjóðkirkjunnar um að planta trjám fyrir öll börn skírð hér á landi vegna dræmra undirtekta prófasta. Þetta kemur fram í svari Agnesar M. Sigurðardóttur biskups við fyr- irspurn frá sr. Hreini S. Há- konarsyni um málið á kirkjuþingi. Enn sem komið er hefur þetta aðeins verið gert í Skálholti. Hafa þar verið gróðursettar um eitt hundrað plöntur. Kostnaður fram að þessu er því lítill, aðeins um eitt hundrað þúsund krónur. Kynnt í nýárspredikun Biskup kynnti verkefnið „Skírnarskógur“ upphaflega í nýár- spredikun í Dómkirkjunni í fyrra. Fram kom að hvert skírt barn í þjóðkirkjunni yrði hluti af grænni kirkju Krists sem sett hefði um- hverfismál í algjöran forgang. Í Skírnarskógi íslensku þjóðkirkj- unnar yrði gróðursett tré fyrir hvern skírðan einstakling. „Tréð mun síðan vaxa, rétt eins og barnið, og verða hluti af umhverfinu og gagnast samfélaginu,“ sagði biskup. Gróðursetningin í Skálholti fór síð- an fram með nokkurri viðhöfn í byrjun september í fyrra. Hvergi annars staðar hefur trjám verið plantað í þágu þessa verkefnis. Í svari biskups á kirkjuþingi seg- ir að reiknað hafi verið með að pró- fastsdæmin, sem eru níu að tölu, önnuðust framkvæmd „Skírnar- skógar“, hvert á sínum stað, en við- brögð hafi verið dræm til þessa þótt einstaka prófastar hafi lýst áhuga. Lítill áhugi prófasta á „Skírnarskógi“ - Planta átti trjám fyrir öll börn sem skírð yrðu á Íslandi Ljósmynd/mbl.is Skírnarskógur Frá gróðursetning- unni í Skálholti í september 2020.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.