Morgunblaðið - 03.11.2021, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021
Geislar sólar sem var að hníga til viðar á bak við Reynisdranga í Mýrdal
náðu upp á Fagradalsheiði og að bátslaga steininum sem þar fannst fyrr á
þessu ári. Steinninn er úr blágrýti og hefur skál verið höggvin í hann.
Steinhöggið er talið gamalt. Tilurð og staðsetning steinskipsins hefur ekki
verið skýrð en þeir sem tengt hafa það við veru írskra og skoskra munka á
Íslandi, svokallaðra papa, frá eyjunni Jónu í Suðureyjum Skotlands telja að
sólargeislarnir frá Reynisdröngum kunni að styðja kenninguna. Fornleifa-
fræðingar hafa rannsakað staðinn og einnig hefur verið leitað upplýsinga
frá Skotlandi, án þess að niðurstaða hafi fengist. Fyrirhugað er að ráðast í
frekari rannsóknir á svæðinu.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Geislar sólar með
stefnu á steinskipið
Sólarlag við Reynisdranga
Baldur S. Blöndal
baldurb@mbl.is
Reykjavíkurborg lagði í gær fram
fjárhagsáætlun auk fimm ára áætl-
unar til ársins 2026. Í henni er gert
ráð fyrir áframhaldandi halla á
rekstri A-hluta borgarsjóðs til ársins
2022. Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
segir rekstrarkostnaðinn vera óeðli-
lega háan og spáir því að skuldir
borgarinnar fari upp í hálfa billjón
króna.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, for-
maður borgarráðs og borgarfulltrúi
Viðreisnar, segir þessar staðhæfing-
ar Eyþórs ósannar: „Borgin er sann-
arlega skuldsettari en við vorum í
byrjun árs 2019 en miðað við aðstæð-
ur teljum við okkur bara vera á
nokkuð góðum stað. Við erum með
gríðarlegar eignir í borginni og þær
eru náttúrulega alltaf á móti skuld-
unum. Fyrirsagnir í blöðunum um að
borgin skuldi 400 milljarða er í
versta falli röng en sérstaklega er
hún nú misvísandi þar sem borgin
skuldar enga 400 milljarða, þar er
verið að draga saman bæði skuldir
og skuldbindingar sem er ekki sami
hluturinn. Þannig að það þarf að
rýna í það betur til að vita hver stað-
an sé.“
Hún segir áhrif hruns ferða-
mannaiðnaðarins á efnahaginn hafa
skilið borgina eftir með tvo kosti.
Niðurskurð eða aukna innspýtingu
fjármagns. Þau hafi valið þann
seinni: „Við fórum þá leið eins og rík-
isstjórnin og fjölmargar aðrar borgir
á Norðurlöndunum gerðu. Í fyrra
gerðum við 10 ára fjármálasýn og
höfum verið að fylgja henni mjög
skýrt núna,“ segir Þórdís. Fjárhagur
borgarinnar sé varnarsigur:
„Við erum að minnka lántöku
borgarinnar miðað við áætlun um 9
milljarða ef ég man rétt á þessu ári
og um 3 milljarða á því næsta miðað
við þá áætlun sem við settum í
fyrra.“
Ekki sjálfbær skuldsetning
Efnahagslegar afleiðingar heims-
faraldurs skýra ekki skuldavanda
borgarinnar að mati Eyþórs Arn-
alds: „Borgin er með hærri tekjur á
þessu ári heldur en í fyrra þannig að
tekjurnar hafa ekki minnkað, vandi
borgarinnar er ekki tekjusamdrátt-
ur, það er alveg á hreinu, það er ein-
faldlega eytt meiru heldur en aflað
er. Þessi skuldsetning er náttúru-
lega ekki sjálfbær. Það getur enginn
haldið því fram að stöðug skuldsetn-
ing í gegnum góðæri og efnahags-
sveiflur í báðar áttir sé góð. Það sem
vekur líka athygli er að það er ekki
gert ráð fyrir ýmsu sem er líklegt að
verði. Því geta þessar skuldir farið í
500 milljarða, þær voru 299 milljarð-
ar þegar meirihlutinn er myndaður
og þá átti að borga niður skuldir í 250
milljónir.“
Að mati Eyþórs er tímabært að
borgin selji ýmsar eignir sínar og
bendir hann á ýmsar leiðir til þess:
„Í fyrsta lagi aðhald í rekstri sem er
ekki til og í öðru lagi að selja eignir
sem eru ekki hluti af venjulegum
rekstri borgarinnar. Malbikunarstöð
og fjarskiptafyrirtæki eru það ekki.“
Opin fyrir sölu eigna
Viðreisn er að sögn Þórdísar opin
fyrir ýmsum af þeim hugmyndum
sem Eyþór nefnir: „Það stendur nú í
meirihlutasáttmálanum okkar að við
viljum skoða kosti þess og galla að
selja malbikunarstöðina um leið og
við höfum fundið henni nýja lóð. Svo
við höfum alltaf verið fylgjandi því.
Þegar við fórum af stað fyrir fjórum
árum síðan, þessi meirihluti,
ákváðum við að halda planinu sem
sett var upp með Orkuveitunni eftir
hrun. Nú eru OR og hennar undir-
fyrirtæki komin á góðan rekspöl
þannig að mér finnst ekki óeðlilegt á
næsta ári og yfir næstu kosningar að
þá verði það skoðað hvernig planið
gerði sig, hún segir eðlilegt að skoða
það á nokkurra ára fresti.“
Borgin gerir ráð fyrir
hallarekstri til 2023
- Talað um varnarsigur - Segir skuldsetninguna ósjálfbæra
Rekstrarniðurstaða Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir, EBITDA
Heimild: Reykjavíkurborg
Rekstrarniðurstaða A-hluta borgarsjóðs
2016-2020 og áætlun til 2026, milljarðar kr.
15
10
5
0
-5
-10
2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 2026
2,6
5,0 4,7
7,4
9,2
10,1
6,3
3,3
8,4
11,3
13,9
14,7
1,4
-5,8
-3,4
-9,7
-2,6
-0,1
2,0
5,5
7,5 7,5
Heimild: Reykjavíkurborg
Skuldaviðmið samstæðu Reykjavíkurborgar
2016-2020 og áætlun til 2026 (án OR til ogmeð 2021,með OR 2022-26)
175%
150%
125%
100%
75%
50%
25%
2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 2026
71
67
73
79
89
102
155 156 155
150
143
Markmið: 150%
Eyþór
Arnalds
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Áætlað er að tólf frásögnum um mis-
rétti gagnvart hinsegin fólki innan
kirkjunnar verði miðlað á næsta ári.
Þetta sagði Agnes M. Sigurðardóttir
biskup á kirkjuþingi í svari við fyrir-
spurn um stöðu verkefnisins „Ein
saga – eitt skref“ sem unnið hefur
verið í samstarfi þjóðkirkjunnar og
Samtakanna ’78.
Verkefnið var kynnt á blaðamanna-
fundi biskups og forystumanna Sam-
takanna ’78 í ágúst í fyrra. Kom fram
að tilgangur þess væri að biðjast fyr-
irgefningar, gera upp og læra af sögu
misréttis gagnvart hinsegin fólki inn-
an kirkjunnar. Fyrsta skrefið væri að
safna persónulegum reynslusögum af
fordómum og andstöðu þjóðkirkjunn-
ar við réttindi hinsegin fólks í áranna
rás. Var í framhaldinu sett upp sér-
stök vefsíða í þessu skyni.
Til vitnisburðar og lærdóms
Biskup sagði í grein sem hún birti í
Morgunblaðinu í ágúst í fyrra að sög-
urnar yrðu gerðar opinberar vorið
2021. Þær yrðu „hengdar upp í
kirkjum landsins, til vitnisburðar og
lærdóms“.
Í svari við fyrirspurninni á kirkju-
þingi sagði biskup: „Vinnan stendur
enn yfir og miðar verkefninu vel
áfram. Áætlað er að miðla sögunum á
nýju ári. Söfnun er á lokametrum en
gert er ráð fyrir að sögurnar verði um
12 talsins.“
Kirkjan hyggst miðla sög-
um um misrétti á nýju ári
- Liður í uppgjöri við fordóma gagnvart hinsegin fólki
Þjóðkirkjan Biðja á fyrirgefningar,
gera upp og læra af sögunni.
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA