Morgunblaðið - 03.11.2021, Side 10

Morgunblaðið - 03.11.2021, Side 10
DAGMÁL Andrés Magnússon andres@mbl.is Popúlísk þjóðernishyggja er und- irliggjandi þráður í stjórnmálasögu Vesturlanda, sem iðulega hefur mik- il áhrif á hefðbundna stjórn- málaflokka. Það hafi komið greini- lega í ljós þegar danskir jafnaðarmenn tóku upp stefnu Danska þjóðarflokksins í innflytj- endamálum og svipaða sögu megi segja af Emmanuel Macron Frakk- landsforseta, sem nú eldi grátt silfur við Breta í von um fylgi þjóðrækinna kjósenda. Þetta er meðal þess sem stjórn- málafræðingurinn Eiríkur Berg- mann hefur að segja í viðtali í Dag- málum Morgunblaðsins í dag, sem opið er öllum áskrifendum. Í þætt- inum er rætt um nýútkomna bók hans, Þjóðarávarpið, sem fjallar um þróun popúlískrar þjóðernishyggju undanfarin 50 ár og vel það. Eiríkur telur að hið frjálslynda lýðræðiskerfi Vesturlanda hafi hop- að mikið undanfarna áratugi. Lýð- ræðið sé enn til staðar, en frjáls- lyndið gefið eftir, eins og sjáist t.d. á því hvernig ýmis borgararéttindi hafi verið látin víkja fyrir völdum ríkisvaldsins í nafni þess að tryggja öryggi þegnanna, hvort heldur er vegna hryðjuverkaógnar eða sótt- varna. Slíkur jarðvegur henti þjóð- ernispopúlistum ágætlega, sem þá skora á valdhafa og elítuna. Aldrei náð fótfestu hér Eiríkur segir að öfgakennd þjóð- ernishyggja hafi aldrei náð neinni fótfestu á Íslandi. Þjóðrækni hafi gengið þvert á íslenska stjórn- málaflokka og verið snar þáttur í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Þeg- ar uppgjör við þjóðernishyggjuna hafi átt sér stað á meginlandi Evr- ópu í lok seinni heimsstyrjaldar hafi Íslendingar verið uppteknir við að stofna lýðveldi á grundvelli þjóðernis og sjálfstæðrar þjóðmenningar. Þrátt fyrir þann þjóðlega grunn eða e.t.v. vegna hans hafi þjóðern- isöfgar ekki átt upp á pallborðið hér, þótt tortryggni gegn útlendingum gæti oft. Í seinni tíð hafi skotið upp koll- inum þjóðernissinnuð framboð, en engar undirtektir fengið. Hins vegar hafi orðið mikil pólitísk og félagsleg ólga eftir bankahrun og þar hefði vel getað brugðið til beggja vona og það eigi enn við í einhverjum kimum a.m.k. Eiríkur telur að miðlun og skoðanaskipti geti ýtt undir slíkt. Hann segir að íslenskir kjósendur virðist ekki mjög móttækilegir fyrir popúlisma, mögulega vegna þess að fáir efnilegir forystumenn hafi komið fram á þeim væng stjórnmálanna, þótt vissulega hafi allir stjórn- málaflokkar gripið til popúlískra að- ferða endrum og sinnum. Eiríkur minnir á að velflestir ís- lenskir stjórnmálaflokkar hafi verið þjóðlegir á sinn hátt. „Þeir þrír flokkar, sem hafa setið hér við völd, hafa verið hallir undir þjóðernishyggju. Það var gamla Al- þýðubandalagið svo sannarlega og bæði Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur hafa talið sig vera heimkynni þjóðernishugmynda Ís- lendinga. Þessi hugmyndafræði lifir hér, en hún er svo almenn og þess vegna svo mild, að þessi árásargjarna tegund þjóðernishyggjunnar hefur ekki komið upp hér.“ Hann bendir á að erlendis hafi þjóðernisflokkar náð mestum áhrif- um, þar sem þeir hafi getað stillt sér upp andspænis áberandi og fram- andi innflytjendahópum. Þeim hafi aldrei verið til að dreifa hér á landi. Þjóðernishyggja rík í íslensku flokkunum - Eiríkur Bergmann í viðtali um popúlíska þjóðernishyggju Morgunblaðið/Hallur Dagmál Eiríkur Bergmann telur að þjóðernishyggja sjálfstæðisbaráttunnar hafi verið svo almenn að þjóðernisöfgar hafi aldrei rutt sér til rúms hér. 10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is UMFERÐAREYJAR Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki Henta vel til að stýra umferð, þrengja götur og aðskilja akbrautir. Til eru margar tegundir af skiltum, skiltabogum og tengistykkjum sem passa á umferðareyjarnar. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég get ekki neitað því að fyrir mig sem stjórnarformann í bæði Máli og menningu og Forlaginu er mikið gleðiefni að byrja aftur bóksölu á þessum stað,“ segir Halldór Guð- mundsson bókaútgefandi. Margir munu eflaust gleðjast yfir þeim tíð- indum að Mál og menning mun í vikulokin opna að nýju bókabúð á Laugavegi 18. Sextíu ár eru síðan forlagið opnaði þar fyrst bókabúð og var hún um áratugaskeið ein af vörð- um menningarlífsins í borginni. Á síðari árum höfðu aðrir tekið við rekstrinum og Bókabúð Máls og menningar var á endanum lokað þeg- ar kórónuveirufaraldurinn skall á. Fyrr á árinu var opnaður tónleika- staður í húsinu og samhliða því opn- aði fornbókaverslunin Bókin útibú á tveimur neðstu hæðum þess. Bókinni var lokað þar fyrir um mánuði og tek- ur Mál og menning við neðstu tveim- ur hæðunum. Halldór segir í samtali við Morgunblaðið að hann hafi verið hrif- inn af þeirri starfsemi sem nú er í húsinu, það sé menningarhús með lif- andi tónlist og bókabúðin muni passa vel inn. „Forlagið er stærsta bókaút- gáfa landsins og því er ekki að neita að við viljum gjarnan sjá fleiri út- sölustaði fyrir bækur. Þarna var í áratugi rekin ein helsta bókabúð landsins og ég er viss um að margir verði fljótir að rifja upp spor sín þangað. Ekki síst fyrir jólin en stemningin í húsinu á þeim tíma er algerlega einstök.“ Mál og menning bókabúð verður formlega opnuð á föstudagsmorgun og þar verða á sjötta þúsund titla í boði frá öllum útgefendum. Mál og menning aftur á Laugaveg - Bókabúð opnuð á fornfrægum stað á 60 ára afmælinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Opnun Mál og menning opnaði fyrst bókabúð á Laugavegi árið 1961. Á fyrstu níu mánuðum ársins var út- flutningsverðmæti loðnuafurða tæp- lega 21 milljarður króna. Þar af nemur útflutningsverðmæti hrogna 12,3 millj- örðum og hefur aldrei verið meira. Út- flutningur á heilfrystri loðnu í landi skilaði um 6,6 milljörðum, sem einnig er met. Þetta er athyglisvert í því ljósi að loðnukvótinn síðasta vetur var ríf- lega 70 þúsund tonn, sem telst ekki mikið í sögulegu samhengi loðnuveiða. Mikið til Kína og Japans Um útflutningsverðmæti sjávar- afurða er fjallað í fréttabréfi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Þar kemur fram að á fyrstu níu mánuðum ársins hafa loðnuafurðir verið fluttar út til Asíu fyrir um 13,8 milljarða króna, sem er met. Þar af fóru loðnuafurðir til Kína fyrir 4,3 milljarða og til Japans fyrir 4,2 milljarða. Ómögulegt er að nota síðustu loðnu- vertíð til þess að spá um þá næstu, seg- ir í fréttabréfi SFS. Loðnubrestur undangengin tvö ár og lítill loðnukvóti í vetur sem leið hafa haft veruleg áhrif á verð sem fékkst fyrir afurðir frá síð- ustu vertíð. „Sú loðnuvertíð sem er framundan er mikil óvissuferð. Óvissu- þættirnir eru margir, eins og veiðigeta flotans, veiðanleiki loðnunnar, gæftir og að lokum vinnslugeta verksmiðja,“ segir í fréttabréfinu. Á fyrstu níu mánuðum ársins er út- flutningsverðmæti sjávarafurða í heild komið í rúma 213 milljarða króna. Það er rúmlega 8% aukning í krónum talið miðað við sama tímabil í fyrra. Ef verð- mæti loðnuafurða er undanskilið stendur útflutningsverðmætið nánast í stað á milli ára. Útflutningsverðmæti afurða síldar, makríls og kolmunna nemur samanlagt tæpum 21 milljarði, en það er á pari við útflutningsverð- mæti loðnuafurða. aij@mbl.is Mikið verðmæti loðnuafurða í ár - Vertíðin fram undan mikil óvissuferð Útflutningsverðmæti loðnuafurða 2011-2021 Milljarðar kr. á föstu verðlagi 2021 og þús. tonn Sjófryst heil loðna Landfryst heil loðna Fryst hrogn Mjöl Lýsi Annað 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 Heimild: SFS Útflutningur, þús. tonn Fyrstu 9 mán. ársins 2021 Landaður loðnuafli og útflutningsverðmæti Þús. tonn og kr. á hvert kg úr sjó á föstu verðlagi 2021 Afli íslenskra skipa, þús. tonn Útflutningsverðmæti, kr./kg Heimild: SFS Tölur um verðmæti taka ekki tillit til birgðasöfnunar á árunum 2019 og 2020 sem rekja má til loðnu- vertíðar 2018 og jafnvel 2017 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2021 Fyrstu 9 mán. ársins 2021

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.