Morgunblaðið - 03.11.2021, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021
Laugardalur Skógarþröstur tyllir sér á grindverk í Laugardalnum og virðir fyrir sér umhverfið vökulum augum. Litadýrðin í dalnum er mikil á þessum árstíma.
Ómar Óskarsson
Við verðum að horf-
ast í augu við þá stað-
reynd að okkur Ís-
lendingum hafa verið
mislagðar hendur í
mörgu þegar kemur
að grunnmenntun
barnanna okkar.
Grunnskólinn er sá
dýrasti á Vestur-
löndum en börnin
standa jafnöldrum sín-
um í nágrannalöndunum að baki í
undirstöðugreinum. Vísbendingar
eru um að kulnun í starfi meðal
grunnskólakennara sé að aukast
sem beinir athyglinni að starfsum-
hverfi, starfskjörum og umbun
kennara.
PISA er alþjóðlegt könnunarpróf
á vegum Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar [OECD] sem mælir
lesskilning 15 ára nemenda og læsi
þeirra á stærðfræði og náttúruvís-
indi. Síðasta könnunin var gerð árið
2018. Niðurstaða bendir til að al-
varlegar brotalamir sé að finna í ís-
lensku menntakerfi.
Í skýrslu OECD og Menntastofn-
unar um niðurstöður PISA 2018 er
bent á að þróunin á Íslandi „ein-
kenndist almennt af nokkurri aftur-
för í frammistöðu nemenda, sér-
staklega eftir PISA 2009“. Í PISA
2009 hafi frammistaða íslenskra
nemenda á öllum matssviðum verið
um eða yfir meðaltali OECD-landa
og áþekk frammistöðu hinna nor-
rænu landanna, að Finnlandi
undanskildu. Í næstu könnun árið
2012 stóðu íslenskir nemendur sig
marktækt verr á öllum matssviðum.
Ekki eini mælikvarðinn
Alþjóðlegur samanburður á gæð-
um menntunar er vandasamur en
PISA gefur okkur hins
vegar vísbendingu um
stöðu íslenska grunn-
skólans og hvert stefn-
ir. Árið 2018 bjuggu
26% nemenda ekki yfir
grunnhæfni í lesskiln-
ingi. „Hlutfall drengja
sem tilheyra þessum
hópi er nú 34%, sem
þýðir að þriðji hver 15
ára karlkyns nemandi
á Íslandi býr ekki yfir
þeirri grunnhæfni sem
OECD telur nauðsyn-
lega til þess að þeir geti lesið sér til
gagns og fróðleiks og tekið fullan
þátt í samfélaginu,“ segir í áður-
nefndri skýrslu. Árið 2000 var þetta
hlutfall í heild 15%.
Um 21% nemenda skorti grunn-
hæfni í stærðfræði en aldamótaárið
var hlutfallið 13%. Fjórir af hverj-
um tíu höfðu ekki öðlast lágmarks-
hæfni í náttúruvísindum. Átján ár-
um áður var hlutfallið 16%.
Í öllum greinunum þremur hefur
hlutfall nemenda sem töldust búa
yfir afburðahæfni farið lækkandi
frá aldamótum. Í lesskilningi og
læsi á náttúruvísindi var Ísland
töluvert undir meðaltali OECD
2018 og langt undir hinum norrænu
löndunum. Í stærðfræði var staðan
lítillega skárri – rétt yfir meðaltali
en töluvert undir frændþjóðunum.
Auðvitað er PISA-könnun (sem
verður næst gerð á komandi vori)
ekki eini mælikvarðinn á gæði
skólastarfsins. Ánægja og vellíðan
nemenda skiptir miklu. Að rækta
hæfileika ungmenna á öðrum svið-
um en PISA mælir, er mikilvægt;
sköpun og félagsfærni ræður miklu
um hvernig nemendur eru undir
það búnir að takast á við áskoðanir
framtíðarinnar. Eitthvað segir mér
að þar stöndum við vel í alþjóð-
legum samanburði.
Virkjum vinda samkeppninnar
Gott, öflugt og fjölbreytt mennta-
kerfi er mikilvægur hornsteinn ís-
lensks samfélags. Menntun er
spurning um samkeppnishæfni
landsins og þar með lífskjara, ekki
síður en mikilvirkasta tæki til jöfn-
uðar. Grunnskólinn er undirstaða
alls í menntamálum þjóðarinnar.
Vísbendingar um brotalamir við
menntun grunnskólabarna ber að
taka alvarlega án þess að mála allt
svörtum litum.
Ég hef lengi verið sannfærður
um að umræðan um menntakerfið
sé á nokkrum villigötum – hún ein-
skorðist of mikið við styttingu náms
(grunnskóla og/eða framhaldsskóla)
og við sameiningu háskóla. Þannig
hefur athyglin farið frá gæðum og
fjölbreytileika þess náms sem ungu
fólki stendur til boða, í að horfa til
þjóðhagslegs sparnaðar við að ung-
menni verji færri árum í grunn- og
framhaldsskóla. Afleiðingin er sú
að við höfum misst sjónar á mark-
miðinu; að auka gæði námsins, und-
irbúa nemendur sem best undir lífið
og rækta hæfileika hvers og eins.
Arðsemin í að ná markmiðinu er
margföld á við reiknaðan þjóðhags-
legan sparnað af styttingu náms.
Fátt tryggir gæði betur en sam-
keppni – samkeppni um nemendur
en ekki síður um kennara. Aukið
sjálfstæði hvers grunnskóla, þar
sem skólastjórnendur geta umbun-
að hæfileikaríkum kennurum, er
ásamt því að fé fylgi nemanda mikil-
vægt skref í að tryggja að skóla-
starf fái að þróast í takt við kröfur
framtíðarinnar. Miðstýrt skólakerfi
býr ekki til jarðveg fyrir nauðsyn-
lega nýsköpun og stendur í vegi fyr-
ir því að kennarar fái að njóta eigin
frumkvæðis og hæfileika.
Okkur Íslendingum gengur yfir-
leitt illa að innleiða með skipulegum
hætti samkeppni um þjónustu sem
við stöndum sameiginlega undir.
Margir neita að gera greinarmun á
því hver veitir þjónustuna og hver
greiðir fyrir hana. Í skrifum mínum
hér á þessum síðum hef ég bent á
hversu skynsamlegt það sé fyrir
þann sem greiðir (hið opinbera) að
efna til samkeppni milli þeirra sem
hafa áhuga á að veita þjónustuna.
Þetta á ekki síst við um heilbrigðis-
þjónustu og rekstur menntastofn-
ana. Að öðru jöfnu leiðir sam-
keppnin til lægra verðs en
ávinningurinn er einnig annar og
meiri. Fyrir þann sem nýtir sér
þjónustuna er fátt betra en að
keppt sé um viðskiptin – að fleiri en
einn og fleiri en tveir berjist um að
fá viðkomandi í viðskipti. Þjón-
ustan verður betri, gæðin meiri og
nær því að uppfylla þær þarfir sem
fyrir hendi eru. Fyrir starfsfólk er
nauðsynlegt að eiga raunverulega
valkosti á vinnumarkaði – geta val-
ið um vinnuveitanda eða starfað
sjálfstætt við það sem menntun og
hugur stendur til. Samkeppni um
vinnuafl leiðir til betri launa og
heilbrigðara starfsumhverfis þar
sem kunnátta og færni er metin að
verðleikum. Umgjörð kjarasamn-
inga má ekki koma í veg fyrir fjöl-
breytilega valkosti kennara.
Hagsmunir sveitarfélaga, kenn-
ara, nemenda og foreldra eru sam-
tvinnaðir þegar kemur að því að
hleypa ferskum vindum aukinnar
samkeppninnar inn í grunnskólann.
Þannig verður grunnur mennta-
kerfisins styrktur. Og öflugasta
tæki samfélagsins – menntun – til
að stuðla að jöfnuði verður beitt-
ara.
Eftir Óla Björn
Kárason » Okkur Íslendingum
gengur yfirleitt
illa að innleiða með
skipulegum hætti
samkeppni um þjónustu
sem við stöndum
sameiginlega undir.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Grunnskólinn er hornsteinn samkeppnishæfni þjóða
26%
15%
21%
13%
25%
16%
Hlutfall nemenda sembúaekki yfir grunnhæfni
PISA-könnun
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
2000 2018
Lesskilningur Læsi á stærðfræði Læsi á náttúruvísindi
Heimild: Menntamálastofnun, PISA 2018