Morgunblaðið - 03.11.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.11.2021, Blaðsíða 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021 „Það var fyrir átta árum, að ég kvaddi þig með tárum,“ er upp- hafið á fallegu ljóði sem flestir landsmenn kunna, eftir Tómas Guðmundsson. Ég get ekki sagt að ég hafi kvatt gömlu jarðefnaeldsneytisbíl- ana mína með tárum, enda var skilnaðurinn við þá ekki algjör. Hins vegar eignaðist ég minn fyrsta hreina raf- magnsbíl fyrir rúmlega átta árum. Ég var vita- skuld ekki sá eini, en við áttum nokkur sameiginlegt það áhugamál að sanna fyrir sjálfum okkur og öðr- um að við hefðum ekki hent pening- unum okkar í tóma vitleysu. Við trúðum því að hreinir rafmagnsbílar væru komnir til að vera, að minnsta kosti næstu áratugina, þangað til næsta tækni fyndi upp einhver önn- ur og enn betri úrræði. Það voru engar hleðslustöðvar á landinu þá, en 25 metra löng fram- lengingarsnúra gerði sitt gagn. Reynslan af þessum fyrsta raf- magnsbíl mínum í átta ár og 165.000 kílómetra hefur verið í einu orði sagt frábær. Fleiri hreinum rafmagns- bílum hef ég kynnst í þessi átta ár og af þeim má sömu sögu segja. Eðlilega þarf fólk að sanna fyrir sér, að ný tækni sé æskileg og var- anleg til að vilja taka hana í sína þágu. Í mörg ár frá 2013 voru aðeins fáir bílaframleiðendur með hreina rafmagnsbíla. Það getur líka verið erfitt að sannfæra sig um að skipta um bílategund; við eigum það til að telja bílinn okkar bestan. Nú er hins vegar staðan sú, að nánast allir bílaframleiðendur sem selja bíla hér á landi eru komnir með úrval af hreinum rafmagnsbílum. Og því er ekki eftir neinu að bíða. Þá er eðlilegt að lesendur spyrji, hvað ég sé að vilja með að skipta mér af bílakaupum annarra. Ég vona að mér fyrirgefist að ég segi það, að ég tel það skyldu hvers manns sem ætlar að kaupa nýjan bíl núna í lok ársins 2021 að kynna sér og prófa hreinan rafmagnsbíl áður en hann kaupir eitthvað annað. Í fyrsta lagi eru þeir bráð- skemmtilegir í akstri. Í öðru lagi miklum mun ódýrari í rekstri og munar þar miklu. Í þriðja lagi eru þeir umhverf- isvænir, nokkuð sem margir setja í fyrsta sæti. Svo einfalt er það. Við skuldum öll umhverfinu að flýta fyrir rafvæðingu bílaflotans – og svo eru rafmagnsbílar frábærir. Mér finnst einstakt að sigla milli lands og Eyja með Herjólfi á raf- magni, hef fengið að prófa raf- magnsflugvél enda er ég áhugamað- ur um orkuskipti og umhverfismál. Rafmagn, bílar og umhverfið Eftir Friðrik Pálsson »… það er ekki eftir neinu að bíða. Höfundur er hótelhaldari. Þessi rafmagnsbíll náði 100 km hraða árið 1899. Friðrik Pálsson Ég veit að í lok október var gefið frí í skólum á höfuðborgarsvæðinu svo foreldrar gætu farið með börnin til einhverra þeirra landa þar sem Covid er algengara en hér. Hitt vissi ég ekki að sveitarfélögin hefðu með sam- stilltum hætti gefið barnaverndar- nefndum sínum frí nú í lok mánaðar- ins. Hvernig á annars að skýra að enginn virðist ætla að segja orð til varnar þeim börnum sem um síðustu daga máttu horfa upp á vandlega út- búnar hryllingsmyndir sem látnar voru bera sem óhugnanlegastan svip; beinagrindur, afhoggnir útlimir og einhvers konar uppvakningar var það sem fólk skyldi fá myndir af í hugann og hver þóttist bestur sem gat verið skelfilegastur. Ríkissjónvarpið flutti svo geðslegheitin heim í stofu í miðjum fréttatíma. Halda menn virki- lega að þetta hafi engin áhrif á ungar sálir? Hvar voru allir þeir sem aðra daga ársins þykjast vera að vernda börn fyrir skaðlegum áhrifum? Voru þeir kannski að safna kröftum fyrir næstu baráttu gegn litlu jólunum? Hrekktur borgari. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Hrekkjavaka á ekki erindi við börn Ljósmynd/Annie Spratt, Unsplash. Á nýafstöðnu kirkjuþingi var lögð fram tillaga um að af- nema allar greiðslur til presta þjóðkirkjunnar fyrir svokölluð auka- verk. Kirkjuþing er ekki viðsemjandi presta um kjör þeirra. Réttur presta til þess að inn- heimta vegna auka- verka er kjarasamningsbundinn. Mér er til efs að nokkur önnur stétt búi við þær aðstæður að aðili sem ekki er viðsemjandi hennar láti sér detta í hug að ætla sér einhliða að virða að engu gerða kjarasamninga og rýra laun stéttarinnar. Þar til 1. janúar 2020 voru prestar opinberir embættismenn. Nú eru prestar starfsmenn Þjóðkirkjunnar – Biskupsstofu og sem slíkir starfs- menn á almennum vinnumarkaði með tilheyrandi réttindum og skyld- um. Fyrsti kjarasamningur milli PÍ og kjaranefndar fyrir hönd Þjóð- kirkjunnar – Biskupsstofu var und- irritaður 1. júní sl. Í þeim kjara- samningi er kveðið á um að prestar eigi að jafnaði að vinna 36 stundir á viku. Ljóst er að prestar vinna miklu fleiri tíma að jafnaði á viku. Það gera þeir á öllum tímum sólarhrings, alla daga vikunnar árið um kring. Á stórhátíðum er vinnuálag á prestum mikið. Þannig er markmið um 36 stunda vinnuviku presta eins og er háleitt markmið og fjarlægur draumur. Aukaverkin eru þó alls engin af- gangsstærð í þjónustu presta heldur er hér um að ræða skírnir í sér- athöfnum, fermingarfræðslu, hjóna- vígslur og kistulagningar og útfarir. Stærstu stundirnar í lífi fólks í gleði og sorg þar sem við prestar mætum fólki og leggjum okkur fram um að veita því þá þjónustu sem það óskar eftir, utan venjulegs vinnutíma, um helgar, ekki endilega í sókn- arkirkjunni heldur þar sem fólk vill fá okkur til sín. Heimaskírnir eru sem dæmi séríslenskt fyrirbæri. Með því að meina prestum að þiggja laun fyrir auka- vinnu á frídögum með þeim hætti sem tillagan sem lá fyrir kirkjuþingi gerði ráð fyrir er ein- boðið að sú fallega, íslenska hefð sem heimaskírnir eru myndi leggjast af. Það væri ekki bætt þjónusta kirkj- unnar við þau sem vilja þiggja hana. Vissulega hefur það sjónarmið einnig verið látið í ljós innan presta- stéttarinnar, að það sé óheppilegt að prestar séu settir í þá stöðu að eiga sjálfir að innheimta vegna þessara prestsverka. Prestafélag Íslands er að sjálfsögðu fúst til samtals við til þess bæra aðila um breytingar á því fyrirkomulagi og hvernig bæta mætti upp tekjutap sem af því hlyt- ist. Umræðan á kirkjuþingi var hins vegar þess eðlis að þau sem þar lögðu fram þessa tillögu og tóku til máls um hana ættu að biðja presta- stéttina afsökunar. Það verður að teljast einsdæmi að vegið sé að einni stétt, heilindum hennar og siðferði með slíkum hætti sem þar var gert. Í kjölfar kirkjuþings Eftir Ninnu Sif Svavarsdóttur Ninna Sif Svavarsdóttir » Prestar vinna miklu fleiri tíma að jafnaði á viku. Það gera þeir á öllum tímum sólar- hrings, alla daga vik- unnar árið um kring. Höfundur er formaður Prestafélags Íslands. ninna.sif.svavarsdottir@kirkjan.is Nú er kirkjuþingi ný- lokið, sem var haust- þing 2021. Spennandi tímar eru fram undan í kirkjunni, sem nú heitir formlega „Þjóð- kirkjan“. Mörg mál voru lögð fram á þinginu í þetta sinn og er sumum þeirra lokið. Eitt mál vakti meiri athygli en önnur, en það var um svokölluð aukaverk presta. Í tillögunni er gert ráð fyrir að prestar hætti að taka gjald fyrir þessi aukaverk. Það sem átt er við þegar talað er um aukaverk presta eru t.d.: skírnir, fermingar, hjóna- vígslur og útfarir. Fram á þennan dag hafa prestar haft heimild til að taka gjald fyrir þessar athafnir. Gjaldskráin er með nýorðnum breyt- ingum, einhliða ákveðin af kirkju- þingi, en áður af ráðherra, enda eru það sóknarbörn sem greiða fyrir þessa þjónustu, ekki launagreiðandi. Í kjarasamningum presta við Þjóð- kirkjuna fyrr á þessu ári neituðu þeir, eðlilega, að þessar greiðslur væru hluti af þeirra launakjörum, en nú hentar þeim sá málflutningur ekki lengur. Þessar aukaverkagreiðslur hafa verið lengi við lýði og voru eðli- legar á meðan prestar voru mjög illa launaðir og brauðin (prestaköllin) af- ar misjöfn. Umræður um allskonar sporslur og aukagreiðslur fóru fram á Alþingi um áratuga skeið. Hér er slóð á gam- alt mál sem hristi vel upp í um- ræðunni á sinni tíð, flutt af Stefáni Jónssyni og Jónasi Árnasyni, https:// www.althingi.is/altext/99/r_txt/2171.txt . Ríkisvaldið hætti aukagreiðslum til embættismanna sinna, t.d. sýslumanna, fyrir 20 til 30 árum. Rökin voru m.a. þau að þessar aukagreiðslur væru sið- ferðislega rangar vegna þess að embættismenn- irnir væru komnir með góð föst laun. Á þessum tíma var engu breytt hjá prestum þó þeir væru opinberir starfs- menn. Nú hefur orðið breyting á, því um síð- ustu áramót hættu prestar að vera opinberir embættismenn og fóru á launaskrá hjá Þjóðkirkjunni. Kirkjuþing ber ábyrgð á að laga þá tímaskekkju, sem svona aukaverka- greiðslur eru. Með þessari tillögu vonuðust flutningsmenn eftir að um- ræða gæti hafist við presta, með hvaða hætti mætti komast frá þessu fyrirkomulagi. Sumir prestar, ekki allir, brugðust hins vegar mjög illa við þessu. Eftirtektarvert var einnig að prestar lögðu fram frávís- unartillögu um málið en gengu síðan úr þingsal þegar hún var til umræðu. Þessar aukaverkagreiðslur eru barn síns tíma og hljóta að hverfa eins og hjá ríkinu. „Að þekkja sinn vitj- unartíma“ er góður eiginleiki. Eru aukaverk presta tímaskekkja? Eftir Steindór Haraldsson »Með þessari tillögu vonuðust flutnings- menn eftir að umræða gæti hafist við presta, með hvaða hætti mætti komast frá þessu fyrir- komulagi. Steindór Haraldsson Höfundur er kirkjuþingsmaður. Ilmur er ný litalína Slippfélagsins hönnuð í samstarfi við Sæju innanhúshönnuð. Línan er innblásin af jarðlitum, dempaðir tónar með gulum og rauðum undirtónum. Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga slippfelagid.is slippfelagid.is/ilmur Hör Leir Truffla Börkur Myrra Krydd Lyng Kandís Lakkrís Innblástur og nýir litir á slippfelagid.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.