Morgunblaðið - 03.11.2021, Page 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021
manna á höfuðborgarsvæðinu, og sat
um tíma í stjórn hans. Hún situr einn-
ig í varastjórn UMSK.
„Helsta áhugamálið er hesta-
mennska sem ég hef stundað frá
barnæsku. Ég hef tekið þátt í smærri
keppnum í gegnum tíðina og náð
ágætisárangri inn á milli. Ég hef
einnig áhuga á hundum og hunda-
rækt, en ég á tvo hreinræktaða
hunda, border collie og parson russell
terrier, en það var draumategund
sem ég flutti inn frá Ameríku. Svo á
ég auðvitað ketti. Seinustu ár hef ég
aðeins stundað fjallgöngur, mikið
með skólafélögum úr MR.“
Fjölskylda
Eiginmaður Margrétar er Jakob
Ragnarsson, f. 25.6. 1958, bifreiða-
smiður, starfar hjá Marel. Þau eru
búsett í Mosfellsbæ. Foreldrar Jak-
obs: Hjónin Ragnar Jakobsson, f.
27.7. 1922, d. 3.10. 2001, rafvirki,
starfaði hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur lengst af, og Guðbjörg Kristín
Hannesdóttir, f. 22.10. 1929, hús-
freyja og verkakona, búsett í Reykja-
vík.
Börn Margrétar og Jakobs eru
Halldór Jakobsson, f. 13.11. 2000,
nemi við Háskóla Íslands, og Dag-
björt Hekla Jakobsdóttir, f. 12.11.
2005, nemi við Framhaldsskólann í
Mosfellsbæ. Dætur Jakobs og stjúp-
dætur Margrétar eru Sigurrós Ásta
Jakobsdóttir, f. 20.5. 1979, og Kristín
Jakobsdóttir, f. 2.9. 1981.
Samfeðra systkin Margrétar eru
Guðmundur Þórir, f. 3.8. 1944, Guð-
rún, f. 28.9. 1945, Gróa, f. 11.9. 1949,
Ragnheiður, f. 8.10. 1952, og Ómar, f.
22.2. 1954.
Foreldrar Margrétar: Hjónin
Halldór Eyjólfsson, f. 9.3. 1924, d.
21.11. 2000, bifvélavirki, starfaði
lengst af hjá Landsvirkjun við há-
lendisvirkjanir, og Dagbjört Þórð-
ardóttir, f. 25.7. 1934, lyfjatæknir,
starfaði í Hafnarfjarðarapóteki og
apóteki Borgarspítalans. Þau bjuggu
lengst af saman í Reykjavík.
Margrét Dögg
Halldórsdóttir
Jónína Kristín Vigfúsdóttir
húsfreyja á Ketilsstöðum og í Kvíarholti
Kristján Sigvaldason
bóndi á Ketilsstöðum
í Holtum og Kvíarholti
Margrét Kristjánsdóttir
húsfreyja í Kvíarholti og Hafnarfirði
Þórður Runólfsson
bóndi í Kvíarholti í Holtum,
síðar bús. í Hafnarfirði
Dagbjört Þórðardóttir
lyfjatæknir í Reykjavík
Sigríður Magnúsdóttir
húsfreyja í Mykjunesi og Köldukinn
Runólfur Einarsson
bóndi í Mykjunesi og Köldukinn í Holtum
Halldóra Rögnvaldsdóttir
húsfreyja á Uppsölum
Þórður Kristjánsson
sjómaður á Uppsölum í Seyðisfirði
í Ísafjarðardjúpi
Guðrún Þórðardóttir
húsfreyja í Reykjavík og Hafnarfirði
Eyjólfur Júlíus Finnbogason
bifreiðarstjóri í Reykjavík
Kristín Eyjólfsdóttir
húsfreyja á Útskálahamri
Finnbogi Jónsson
símstöðvarstjóri og bóndi á Útskálahamri í Kjós
Ætt Margrétar Daggar Halldórsdóttur
Halldór Eyjólfsson
bifvélavirki, starfaði hjá
Landsvirkjun, bjó í Reykjavík
„OG ÞESSI ERU VERÐLAUN FYRIR AÐ
VERA DUGLEG AÐ TAKA ÖLL HIN.“
„ÓKEI, FIMM MÍNÚTUR Í VIÐBÓT EN SVO
FÖRUM VIÐ EITTHVAÐ ANNAÐ.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fara í útsýnisflug
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞETTA VERÐUR
LANGUR DAGUR
OG HÁVAÐA-
SAMUR
EKKI GET ÉG
NEITAÐ ÞVÍ
ÉG REYNI ALLTAF AÐ
VERSLA Í HEIMABYGGÐ!
ÉG
LÍKA!
KOMDU MEÐ GULLIÐ, GRANNI!
Sigurlín Hermannsdóttir kastar
fram sannkallaðri heimsfarald-
urslimru:
Sigfinnur hrósaði happi
er hann týndi frúnni á vappi;
upp rifjaði í skyndi
að Ráðhildi fyndi
með rakningar- frábæru appi.
Þórarinn Eldjárn á einnig limru í
fórum sínum:
Ekki var hollt fyrir Hassan
að hugsa svona út fyrir kassann.
Inn í kassann á ný
hann komst ekki‘ af því
hann vantaði vísa í passann.
Gunnar J. Straumland á sér
hringhendan sléttubandadraum –
ungan:
Straumur þungur lífi ljær
ljóðum, sungnum hlýjum.
Draumur ungur klifrar kær
kvæðið, tungum nýjum.
Eins og alkunna er má einnig
lesa sléttuböndin afturábak …
Nýjum tungum kvæðið kær
klifrar ungur draumur.
Hlýjum sungnum ljóðum ljær
lífi, þungur straumur.
Í haust var Friðrik Stein-
grímsson mættur í Hlíðarrétt í Mý-
vatnssveit, nema hvað. Og þar varð
honum að orði:
Féð í dag var fært í rétt,
fráleitt var nú safnið þétt.
Út af því hvað féð var fátt
fengu sumir lítinn drátt.
Pétur Stefánsson yrkir falleg
eftirmæli um góða vinkonu eig-
inkonu sinnar sem lést langt fyrir
aldur fram:
Gleði alla glens og spé
gleypir dauðaskíman.
Falla lauf af lífsins tré
löngu fyrir tímann.
Bjarni Jónsson í Sýruparti á
Akranesi (f. 1859 og d. 1937) orti
síðasta veturinn í Reykjavík.
Ellismár um ævihaust
orkusmár má liggja
sagnafár með svikna raust
sjötíu ára og þriggja.
Honum var í nöp við róginn eins
og þessi hringhenda ber vitni um:
Veldur mestu misskilning
mál er brestur sanninn
sýnir verstu sjónhverfing
sem við festist manninn.
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Vísnahorn
Af limrum, elli og
raunum Hassans