Morgunblaðið - 03.11.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 03.11.2021, Qupperneq 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Frábær ný mynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali. U mframframleiðsla er fyrsta ljóðabók Tóm- asar Ævars Ólafssonar. Í henni kannar skáldið sálarlífið, tilfinningarnar. Nokkuð sem fylgir okkur alla daga en við flest eigum erfitt með að skilja og mörg okkar eiga enn erfiðara með að tala um. þú veist að undir gögnunum titrar lífið þú hefur séð það með berum augum og lýsir því fyrir henni ekkert gljáfægt sjálf ekkert kjarnað ég heldur kámugt óefni varurð eintóm og óhlaðin til finning (26) Tómas leitar innblásturs í vangaveltum um aðskilnað efnis og anda, um það hvort sálin sé hluti af efnisheiminum eða ekki. Þetta er efniviður sem ótal heimspek- ingar og skáld hafa tekið fyrir í gegnum aldirnar en það er óvit- laust að taka það fyrir enn einu sinni. Við búum við nýja heimsmynd, í heimi þar sem raunsæið, vísindin, hafa tekið yfir og trúarbrögðin að mörgu leyti lagst af sem hug- myndafræðilegar stoðir og styttur. Heimsmynd okkar er tví- skipt. Annars vegar erum við samkvæmt vís- indalegum rann- sóknum einungis búin til úr efni, úr atómum sem byggja frumur. Allar hugsanir okkar og tilfinn- ingar eru bara efnaskipti. Hins vegar búum við í samfélagi sem þráir eitthvað meira, leggur mikla áherslu á andlega heilsu og er for- vitið um sálarlífið og ber virðingu fyrir því. Tómas gerir tilraun til þess að henda reiður á þessu óræða fyrir- bæri: sálinni í samtímanum, til- finningalífinu. Hann hlutgerir hana í ótal ólíkum myndum. Skynjun, kennd, „kámugt óefni“. Hann setur sálina fram sem eitt- hvað götótt sem þarf að stoppa í. Hann er áhugasamur um og jafn- vel krítískur á þá miklu áherslu sem lögð er á sálarlífið í samtím- anum, á sálfræðitíma, hugleiðslu, sjálfið. til finning ekki alveg kennd ekki alveg bein skynjun þú nemur hana innan um aðfluttar setningar annarlegar formúlur óljós hugtök í ótyggjanlegum sinum eitraðri bensíngufu hnúðum undir húð (28) Tómas tekur fyrir afar afmarkað efni, þetta er ekki ein af þeim ljóðabókum sem langar að fanga allan heiminn, og þar með verður heildarmyndin góð þótt einföld sé. Þótt efniviðurinn sé kannski frek- ar einfaldur er það alls ekki þann- ig að verkið í heild sé einfalt eða á einhvern hátt ómerkilegt. Nóg af hugmyndum er hægt að slengja fram innan þessa ramma sem vekja eftirtekt lesandans, nóg af myndum sem hægt er að draga upp. Skáldið hefur líka gott vald á tungumálinu og beitir því á skemmtilegan hátt svo úr verða eftirminnilegar ljóðlínur. Umframframleiðsla er ljómandi vel heppnuð frumraun, afmörkuð og öguð en þó frjó og áleitin. Það verður spennandi að sjá hvað fleira Tómas hefur fram að færa þegar fram líða stundir. Tómas Ævar „Umframframleiðsla er ljómandi vel heppnuð frumraun, afmörkuð og öguð en þó frjó og áleitin,“ segir gagnrýnandinn. Ljóð Umframframleiðsla bbbbn Eftir Tómas Ævar Ólafsson. Una útgáfuhús, 2021. Kilja, 75 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR Sál eða „kámugt óefni“ Þ að er eins og sögurnar í Borg bróður míns hafi flætt beint úr hjarta höf- undar og á síðurnar, al- gjörlega milliliðalaust. Bókin er listræn, bæði falleg og ljót. Þá getur hún bæði verið ofur auð- skiljanleg og óskiljanleg, samtímis snert við einhverju sérstöku sem lesandinn vissi ekki að byggi innra með honum og skilið hann eftir algjörlega úti á túni, úr tengslum við sjálfan sig, söguna og raunveruleikann ef því er að skipta. Borg bróður míns geymir á sjötta tug smásagna. Flestar þeirra eru í styttri kantinum og mætti jafnvel kalla nokkrar sagn- anna örsögur. Sumar virðast tengjast beint og óbeint en aðrar alls ekki. Stíllinn í öllum sögunum er svipaður, fremur absúrd og blátt áfram, og er því stundum eins og um skáldsögu sé að ræða þótt það sé auðvitað blekking. Sög- urnar eru flestar sveipaðar nokk- urri dulúð, segja lesandanum sumt en alls ekki allt. Það virkar í meginþorra tilvika en inn á milli leynast sögur sem segja lesand- anum lítið sem ekkert og mér þótti vanta töluvert sterkari botn í. Í sögunum er bæði búinn til ævintýraheimur og snúið upp á raunveruleikann. Bókin er al- gjörlega laus við alla tilgerð á sama tíma og hún er gjarnan býsna há- fleyg. Það felst nautn í því að lesa þessa bók. Hún er eins og forboð- inn ávöxtur, uppfull af því sem fólk hugsar en segir ekki, sem og því sem enginn virðist hugsa, nema kannski Kristín Ómarsdóttir, höf- undur bókarinnar. Hún er afkastamikill höfundur sem hefur lagt mark sitt á íslenskt bókmenntalíf í áratugi. Í Borg bróður míns snertir hún á ýmsu er varðar mannlega tilveru. Ástin er fyrirferðarmikil, gjarnan slitin úr samhengi. Þegar ástin er sýnd svona utan kerfisins sem hún er venjulega geymd í verður hún ein- hvern veginn skýrari, sannari, hlutlægari. Þannig öðlast ástin nýja og framandi mynd á síðum Borgar bróður míns. Sjálfar krefja sögurnar lesand- ann ekki um neitt sérstakt. Þær einfaldlega leggjast á blaðsíðurnar og segja: „Hér erum við. Lítið á okkur ef ykkur hugnast svo.“ Textinn er þó svo þéttur og stund- um flókinn að lesandinn eiginlega neyðist til þess að veita hverri og einni þeirra athygli. Ekki skyldi lesandinn efast um að þær séu at- hyglinnar verðar því það eru þær. Eiga það skilið að lesandinn kljáist við þær í huganum, hjartanu, kviðnum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höfundurinn „Það felst nautn í því að lesa þessa bók. Hún er eins og forboð- inn ávöxtur, uppfull af því sem fólk hugsar en segir ekki, sem og því sem eng- inn virðist hugsa, nema kannski Kristín Ómarsdóttir, höfundur bókarinnar.“ Smásögusafn Borg bróður míns bbbbn Eftir Kristínu Ómarsdóttur. Benedikt, 2021. Innbundin, 198 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Forboðinn ávöxtur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.