Morgunblaðið - 03.11.2021, Side 28
Afrekshugur er félag
um fjársöfnun til gerðar
afsteypu af höggmynd
Nínu Sæmundsson Spirit of
Achievement, Afrekshuga, sem
hefur staðið fyrir ofan anddyri
Waldorf Astoria hótelsins í
New York síðan 1931.
Félagið vill reisa afsteypuna
á Hvolsvelli í samstarfi við
sveitarstjórn Rangárþings
eystra til ævarandi minningar
um frægustu listakonu
héraðsins, fyrstu íslensku
konuna sem gerði höggmyndalist að ævistarfi og naut
alþjóðlegrar viðurkenningar fyrir verk sín.
Ríkisstjórn Íslands styrkti afsteypuna fyrr á þessu ári
um 4 milljónir og með styrkjum frá einstaklingum og
fyrirtækjum stendur söfnunarfé nú í 5.6 milljónum. En
heildarkostnaður við afsteypugerð og uppsetningu er um
8 milljónir, svo enn er nokkuð í land.
Við viljum því hvetja einstaklinga og fyrirtæki um land
allt að styrkja þetta verðuga verkefni og senda nafn
og kennitölu á netfangið afrekshugur@gmail.com.
Greiðslubeiðni að upphæð kr. 5.000 verður þá send í
heimabanka viðkomandi. Einnig er hægt að tilgreina
hærri upphæð í sama pósti.
Stjórn Afrekshuga skipa: Friðrik Erlingsson, rithöfundur.
Guðjón Halldór Óskarsson, organisti og stjórnandi
Karlakórs Rangæinga. Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari og
þýðandi. Anton Kári Halldórsson, oddviti sveitarstjórnar
Rangárþings eystra. Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir,
listmálari.
AFREKSHUGA
HEIM!
AFREKSHUGUR
Styrktarfélag fyrir afsteypu og uppsetningu á Hvolsvelli af verki
Nínu Sæmundsson Spirit of Achievement / Afrekshugur
Tvær píanósónötur Beethovens verða fluttar í Salnum í
Kópavogi í kvöld á tónleikum sem hefjast kl. 19.30. Við-
burðurinn er í tónleikaröðinni „Beethoven í 250 ár“ en
þar flytur hópur píanóleikara ólíkar sónötur tónskálds-
ins. Í kvöld flytur Eva Þyri Hilmarsdóttir píanósónötu
nr. 23 í f-moll, opus 57 (Appassionata) og Helgi Heiðar
Stefánsson píanósónötu nr. 22 í F-dúr, opus 54. Þá mun
Arnar Jónsson leikari lesa valda kafla úr bókinni
„Beethoven – í bréfum og brotum“ sem Árni Krist-
jánsson tók á sínum tíma saman.
Eva Þyri og Helgi Heiðar flytja
sónötur eftir Beethoven í Salnum
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 307. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Cristiano Ronaldo var hetja Manchester United þegar
hann jafnaði metin í tvígang í 2:2 jafntefli gegn Atal-
anta í Bergamo á Ítalíu í Meistaradeild Evrópu í knatt-
spyrnu karla í gærkvöldi. Fyrra mark sitt skoraði hann í
uppbótartíma fyrri hálfleiks og seinna markið í uppbót-
artíma venjulegs leiktíma.
Stórveldin Bayern München og Juventus tryggðu sér
þá sæti í 16-liða úrslitum keppninnar með öruggum
sigrum í gærkvöldi. Bæði lið eru með fullt hús stiga að
loknum fjórum leikjum í sínum riðlum. »23
Ronaldo hetja Man United í jafntefli
– Bayern og Juventus í 16-liða úrslit
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Lífið gengur sinn vanagang hjá
Senjórítunum, kór eldri kvenna í
Reykjavík. Á nýliðnum vikum hafa
þær æft stíft undir stjórn Ágotu
Jóo frá Ungverjalandi fyrir haust-
tónleikana, sem verða í Langholts-
kirkju næstkomandi laugardag, 6.
nóvember. „Bubbi Mortens ætlar
að syngja með okkur og lögin hans
þarf að æfa vel, því þau eru erfið,“
segir Silja Aðalsteinsdóttir, formað-
ur kórsins.
Á undanförnum árum hafa Sen-
jóríturnar leitað í smiðju þekktra
söngvara og meðal annars hafa
Raggi Bjarna heitinn og Bragi
Valdimar Skúlason í Baggalúti
sungið með þeim. „Við löðum að
okkur fræga menn,“ segir Silja ör-
yggið uppmálað og liggur ekki á
skýringunni: „Ég held að þessum
mönnum hafi fundist hugmyndin
um að hafa bakraddir 60 kvenna á
virðulegum aldri svolítið spenn-
andi.“
Kórinn varð til sem afsprengi út
úr Kvennakór Reykjavíkur fyrir
nokkrum árum og Senjóríturnar
voru síðan formlega stofnaðar 2015.
Þær hafa reglulega haldið tónleika,
tekið þátt í kóramótum og farið í
söngferðalög, en mest sungið í ein-
rúmi síðan kórónuveirufaraldurinn
setti strik í reikninginn snemma
árs 2020. En nú hafa þær tekið af
sér grímurnar og horfa bjartar
fram á veg. „Það er ómögulegt að
syngja með grímu en við höldum
að veiran sé á undanhaldi og lífið
fari aftur að falla í réttar skorður,“
segir Silja.
Fyrst á sviði 1960
Enn hafa ekki allar söngkon-
urnar skilað sér. „Nokkrar eru
kannski hræddar við smit,“ segir
Silja, sem hefur verið í kórnum í
sjö ár. Hún söng fyrst opinberlega
með KK-sextettinum í Austurbæj-
arbíói haustið 1960, þegar hún tók
meðal annars lagið „Everybody’s
Somebody’s Fool“, sem Connie
Francis gerði frægt skömmu áður.
„Ég var lokkuð í kórinn á fölskum
forsendum; að þetta væri hópur
kvenna sem kæmi saman einu sinni
í viku til þess að syngja, slaka á og
skemmta sér,“ segir Silja um kór-
starfið. „Það þótti mér mjög aðlað-
andi en eftir mánuð eða tvo kom í
ljós að þetta var afar metnaðarmik-
ill kór með gríðarlega metnaðar-
fullan kórstjóra sem keyrði hópinn
áfram af hörku. Það var ekkert
sem hét að slaka á og syngja bara
rútubílasöngva í laglínunni heldur
var skipt í þrjár og fjórar raddir.
Ég þurfti ekki aðeins að læra texta
heldur líka rödd sem ég hafði ekki
æft; ég hafði alltaf sungið laglínuna
eins og ég væri sópran en í kórnum
syng ég alt-rödd. Ég þurfti því að
læra öll lög upp á nýtt en það er
mjög hollt fyrir heilabúið.“
Silja hefur verið formaður kórs-
ins undanfarin fjögur ár. „Það má
ekki vera lengur en í tvö ár og
kjósa verður nýjan formann á
næsta aðalfundi en við höfum ekki
getað haldið aðalfund í nær tvö ár.“
Dagskráin á laugardag verður
fjölbreytt. Flest lögin verða eftir
Bubba. „Við syngjum bæði einar og
með honum,“ segir Silja. „Við
syngjum líka þrjú lög eftir Braga
Valdimar, lög sem við æfðum fyrir
síðasta konsert, auk laga eftir aðra
lagasmiði. Þetta verður allt saman
mjög létt og skemmtilegt en þó
snúið, því eins og ég sagði eru lög-
in hans Bubba ekki einföld.“
Laða að sér fræga menn
- Hausttónleikar Senjórítanna verða í Langholtskirkju
- Bubbi Morthens syngur með þeim og Ágota Jóo stjórnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Æfing Ágota Jóo, Bubbi Morthens og Silja Aðalsteinsdóttir. Kórinn fyrir aftan.
Senjórítur Kórfélagar synga lög eftir Bubba Morthens með listamanninum.