Morgunblaðið - 06.11.2021, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2021
EDENBYGGÐ - HVERAGERÐI
NÝJAR ÍBÚÐIR KOMNAR Í SÖLU
Austurmörk 4, 810 Hveragerði | Sími 483 5800 | byr@byrfasteign.is | www.byrfasteign.is
Verð: 33.500.000 - 42.900.000
Stærð: 55 m² - 75,3 m²
Edenmörk 1, 3, 7
483 5800
Elín Káradóttir
Löggiltur fasteignasali
Velkomin á skrifstofu
Byr fasteignasölu,
Austurmörk 4
í Hveragerði, í dag
laugardaginn
6. nóvember
kl. 13-15
OPIÐ HÚS
Ef marka má nýjasta minnisblað
sóttvarnalæknis til heilbrigðis-
ráðherra vegna kórónuveirunnar er
„ólíklegt“ að aðgerðir eins og þær
sem heilbrigðisráðherra boðaði í
gær „muni skila
miklum árangri“.
Smitum muni jafnvel
halda áfram að
fjölga.
- - -
Spurður á fundi í
gær að því
hvort aðgerðirnar
dygðu, sagðist sóttvarnalæknir hins
vegar hafa „ágætar vonir“ um það,
en það færi eftir viðbrögðum al-
mennings.
- - -
Þetta eru ekki fyrstu misvísandi
skilaboðin sem almenningur
fær vegna veirunnar og líklega ekki
þau síðustu. Ef til vill á einfaldlega
að líta á þau sem staðfestingu þess
hve lítið er vitað um veiruna og rétt
viðbrögð við henni.
- - -
Um leið má líta á þau sem innlegg
í þá umræðu hvort núverandi
ástand geti varað til frambúðar.
- - -
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra sagði í
svari til mbl.is í gær að slá þyrfti
annan tón í þessum málum hér á
landi. Nálgast þyrfti hlutina með
öðrum hætti þegar viðfangsefnið er
til langs tíma en skamms.
- - -
Hætta á að Landspítalinn þoli
ekki álagið virðist ein helsta
ástæða þess að aðgerðir eru hertar
nú, en Áslaug bendir réttilega á að
spítalinn megi ekki vera fyrirstaða
þess að hægt sé að opna samfélagið.
- - -
Við höfum haft meira en hálft
annað ár til að leysa vandann á
spítalanum. Óviðunandi er að það
hafi ekki enn verið gert.
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Spítalann þarf
að bæta án tafar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þing Sjómannasambands Íslands
skorar á aðildarfélög sambandsins
að hefja nú þegar undirbúning að-
gerða til að knýja
á um alvörusamn-
ingaviðræður við
útvegsmenn.
Samninganefnd
sambandsins taki
málið til umfjöll-
unar svo fljótt
sem auðið er og
móti stefnu um
sameiginlegar að-
gerðir til fram-
tíðar.
Kemur þetta fram í ályktun þings
Sjómannasambandsins sem fram fór
í gær og fyrradag og lauk um hádeg-
ið í gær.
Kanna hug félagsmanna
„Við þurfum að enda þessa deilu
einhvern veginn. Ef við þurfum að
fara í aðgerðir til þess, verður svo að
vera,“ segir Valmundur Valmunds-
son sem endurkjörinn var formaður
til næstu tveggja ára.
Valmundur lagði jafnframt
áherslu á að aðildarfélögin færu með
samningsumboðið og þau tækju sín-
ar ákvarðanir. Nú færu forystumenn
þeirra að kanna hug félagsmanna.
Fram hefur komið að hugsanlegar
verkfallsaðgerðir sjómanna gætu
tengst loðnuvertíð í vetur. Spurður
hvort verkfallshljóð sé komið í fé-
lagsmenn segist Valmundur ekki
vita það. En hljóðið sé að þyngjast.
Menn telji ótækt að vera kjarasamn-
ingslausir í tvö ár.
Krafa um viðræður
Í ályktun eru Samtök fyrirtækja í
sjávarútvegi, samningsaðili sjó-
mannafélaganna, vítt harðlega fyrir
að gera ekki kjarasamninga við sjó-
menn um sjálfsögð réttindamál sem
önnur samtök launafólks hafi þegar
samið um. Aðallega hefur strandað á
kröfu sjómanna um 3,5% viðbótar-
framlag í lífeyrissjóð. Þess er krafist
að gengið verði þegar til raunveru-
legra viðræðna við samninganefnd
Sjómannasambands Íslands.
Vakin er athygli á því að útgerðin
hafi hagnast um 36 þúsund milljónir
á ári, að meðaltali síðustu fimm árin,
en kostnaðarauki af lífeyrissjóðs-
kröfunni sé innan við eitt þúsund
milljónir á ári.
Knýja á um alvöru-
samningaviðræður
- Sjómannafélög undirbúa aðgerðir
Valmundur
Valmundsson
Á morgun, sunnudag, kl. 14 lesa
Guðni Ágústsson, fyrrverandi
landbúnaðarráðherra, og Guðjón
Ragnar Jónsson menntaskóla-
kennari úr nýrri bók sinni á Selfossi.
Bókin Guðni – á ferð og flugi er af-
rakstur samstarfs þeirra félaga.
Guðni flutti nýlega aftur austur á
Selfoss og því er efnt til menning-
arstundar í Risinu í Mjólkurbúi
Flóamanna í nýja miðbænum á Sel-
fossi.
Í bókinni er margt forvitnilegt að
finna. Guðni og Guðjón fóru um
landið og heimsóttu fjölda fólks.
Víða var borið niður, þar sem skrá-
setjari fylgdi sögumanni eftir vítt og
breitt um landið. Stundum var blásið
til stórfunda með sauðfjárbændum,
svo sem í Grindavík og Vestmanna-
eyjum. Í bókinni segir meðal annars
frá því þegar Grindvíkingar stálu
sínu eigin kjöti úr innsigluðum gám-
um lögreglunnar. Þeir Guðni og
Guðjón segja Grindavíkursöguna
magnaða og hún gefi bestu glæpa-
reyfurum nútímans ekkert eftir.
Markmiðið með ritun bókarinnar
var, segir Guðni Ágústsson, að veita
lesendum tilfinningu fyrir æðaslætti
dreifbýlisins á hverjum tíma. Segja
megi að bókin sé tilraun til að opna
eins konar glugga inn í samfélag
sveitanna; þar sem oftar en ekki
megi finna mikinn kraft og sókn til
framfara og góðra hluta.
Guðni og Guðjón kynna nýja bók
- Sögustund á Selfossi - Æðasláttur dreifbýlis - Kjötstuldur í Grindavík
Guðni
Ágústsson
Guðjón Ragnar
Jónsson