Morgunblaðið - 19.11.2021, Side 22
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi, s. 458 2000
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Ath. Allir, fæddir 2015 og fyrr, þurfa að framvísa neikvæðri niðurstöðu
úr hraðprófi (antigen) sem má ekki vera eldra en 48 klst.
Uppboð verður haldið í aðstöðu Vöku hf. Héðinsgötu 1-3, Reykjavík,
föstudaginn 26. nóvember nk. kl. 11:00 á eftirfarandi ökutækjum og lausafé sem hér segir.
Hvorki ávísanir né kreditkort eru tekin gild sem greiðsla einungis debetkort eða peningar.
Greiðsla við hamarshögg.
Grímuskylda er á uppboðinu.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 18. nóvember 2021
UPPBOÐ
AE130
AJ814
AN982
ANE04
ARD09
ATD82
AUK86
BEJ17
BF346
BIN35
BM054
BPR29
BSK12
BSS76
BU709
DA979
DD678
DF476
DIF68
DM075
DS371
EDD58
EF173
EF329
EG286
EK533
EVS07
EYK60
FAY32
FDD41
FJE91
FSN37
FVX88
GAR13
GJY29
GLB51
GMX82
GUY98
HBX74
HFK96
HI185
HJK28
HRF96
HTX32
IBM17
IEY56
IGY23
IIZ02
IM637
INS19
ISL14
IT468
IVL18
IX959
JDZ69
JK489
JKJ01
JL313
JOY54
JR394
JUK50
JXT11
KAZ93
KIZ83
KL764
KLY78
KX351
LBT14
LI567
LIF28
LS326
LS538
LSP01
LV440
MF561
MG786
MJ223
MK003
MOA75
MPE98
MU025
MXM84
MZ510
NA411
NA606
NA899
NBL42
NF912
NK842
NKZ10
NN111
NYU87
OD625
OG483
OGL56
OL735
ORV33
PFL78
PGB86
PH418
PM111
PTG07
PZS90
RDF12
RDY99
RE500
REK53
RIB36
RJ598
RM741
RS940
RV304
RV969
RX720
SI842
SL418
ST496
STK50
SU635
SV690
SX315
SX949
TE138
TEZ40
TFR55
TH460
THX62
TI760
TLF51
TN242
TO520
TS457
TS866
TU536
TV770
TXY10
UHU40
UP374
US625
VAX27
VAY33
VM709
VME70
VN660
VP266
VTR19
VY043
XK299
YA025
YMN28
YU160
YU671
YX416
YX480
ZDZ78
ZED89
ZJ876
ZKK86
ZNK52
ZY950
ZZE27
Einnig verður boðið upp eftirfarandi:
EA0106, Liebherr skráningarnr.EB-2003, Ehl.TS-866 krani PH0437 er áfastur ökutækinu.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Zumba Gold
kl. 10.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu 7 kl. 10.10,
Grandavegi 47 kl. 10.15 og Aflagranda 40 kl. 10.20. Bingó kl.13.30.
Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411 2702.
Allir velkomnir
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa
kl. 9-12. Leikfimi og jóga með Milan. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.
Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Velkomin. Sími 411-2600.
Boðinn Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Línudans fyrir byrjendur
kl. 14.15. Línudans fyrir lengra komna kl. 15.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl.10.15.
Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl.
10. Dansleikfimi í Sjál. kl. 9.30. Söngstund kl. 11.10 í Jónshúsi fellur
niður. Félagsvist kl. 13 í Jónshúsi fellur niður. Smiðja í Kirkjuhvoli
opin kl. 13-16.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn-
unni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10. Prjónakaffi frá kl. 10-
12. Lokað kl. 15.30 (eigið góða helgi). Öll velkomin en muna grímu-
skyldu.
Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-11.15 botsía í
hreyfisal. Kl. 9-11.30 postulínsmálun á verkstæði. Kl. 13-15.30 tré-
skurður á verkstæði. Kl. 14-15 sögur og fræði, upplestur í handa-
vinnustofu. Kl. 20-22 félagsvist á vegum FEBK í aðalsal. Við minnum
á laufabrauðsdaginn á morgun laugardaginn 27. kl.13-17. Velkomin.
Gullsmári 13 Handavinna kl. 9. Qi-gong heilsueflandi æfingar kl. 10.
Bingó kl. 13. Ljósmyndaklúbbur kl. 13.
Bingó kl. 13. Ljósmyndaklúbbur kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi
kl. 9-11. Handavinna með leiðbeinanda k.l 9-12. Útskurður kl. 9-12.
Bíó kl. 13.
Hraunsel Billjard kl. 8-16. Línudans kl.10. Brids kl. 13. Botsía kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30. Útvarpsleik-
fimi kl. 9.45. Handavinna, opin vinnustofa frá kl. 10.30. Brids í handa-
vinnustofu kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30, panta þarf fyrir hádegi
deginum áður.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 8.30 með Ingibjörgu í Borgum.
Pílukast í Borgum kl. 9.30 í umsjón Eggerts. Morgunleikfimi útvarps-
ins kl. 9.45 í Borgum. Gönguhópur Korpúlfa kl. 10 gengið frá Borgum
og inni í Egilshöll. Brids-hópur Korpúlfa byrjar að spila kl. 12.30 í
Borgum, grímuskylda og sóttvarnir í heiðrum hafðar. Hannyrðahópur
kl. 12.30 í Borgum og tréútskurður á Korpúlfsstöðum með Davíð kl.13.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist föstudagshópur í handa-
vinnustofu 2. hæðar kl. 10.30-11.30. Eftir hádegi, kl. 12.50, kemur
Auður Harpa og dansar með okkur inn í helgina í setustofu 2. hæðar.
Þá er opin handavinnustofa milli kl. 13-16. Öll velkomin í hvers konar
handavinnu eða spjall. Bingó kl. 13.30-14.30 í matsal 2. hæðar, spjald-
ið er á 250 kr. Eftir það er vöfflukaffi, kl. 14.30. Verið velkomin.
Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna á Skólabraut kl. 9. Syngjum
okkur inn í helgina. Allir velkomnir í söngstundina í salnum á Skóla-
braut kl. 13. í dag. Þátttaka öllum opin. Kr. 500. Kaffveitingar á eftir.
Enn er opið fyrir skráningu á jólahlaðborð í Kríunesi fimmtudaginn
25. nóvember. Skráningarblöð eru á Skólabraut og í Eiðismýri.
Einnig er skráning og aðrar upplýsingar í síma 893 9800 og á
kristin.hannesdottir.is
Nauðungarsala
Raðauglýsingar
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021
✝
Skúli Ein-
arsson fæddist
29. maí 1955 á
Hvammstanga.
Hann lést á
Hvammstanga 14.
nóvember 2021.
Skúli lætur eftir sig
eiginkonu, fjögur
börn og 9 barna-
börn.
Foreldrar Skúla
voru Þóra Guðrún
Jósepsdóttir, f. 2. mars 1924, d.
4. janúar 2011 og Einar Jónsson,
f. 3. apríl 1918, d. 3. febrúar
2002, bændur á Tann-
staðabakka. Skúli var þriðji í röð
sjö systkina. Systkini hans eru
Einar Gunnar Jónsson (fóstur-
bróðir), f. 1950, d. 1993, Jón Ein-
arsson, f. 1953, Þórir Jósep Ein-
arsson, f. 1957, Svanborg
Guðrún Einarsdóttir, f. 1959, Jó-
hann Almar Einarsson, f. 1964
og Þorsteinn Einarsson, f. 1966.
Skúli giftist Ólöfu Ólafs-
dóttur, eftirlifandi eiginkonu
sinni, þann 8. desember 1979.
Foreldrar hennar
voru Ólafur Niku-
lásson mjólkurbíl-
stjóri og Magnea
Kristín Sigurð-
ardóttir. Þau eign-
uðust saman fjögur
börn og þau eru:
1) Laufey Kristín
Skúladóttir, f. 8.
október 1979. Lauf-
ey er gift Indriða
Þór Einarssyni og
eiga þau saman þrjú börn,
Magneu Ósk Indriðadóttur, f.
2007, Ólöfu Erlu Indriðadóttur,
f. 2012, og Anítu Rún Indr-
iðadóttur, 2014.
2) Eyrún Ösp Skúladóttir, f. 6.
júní 1982. Eyrún er gift Bjarka
Fannari Karlssyni og eiga þau
saman tvö börn, Laufeyju Þóru
Bjarkadóttur, f. 2012, og Skúla
Karl Bjarkason, f. 2014.
3) Guðrún Eik Skúladóttir, f.
18. febrúar 1988. Guðrún er gift
Óskari Má Jónssyni og eiga þau
saman tvær dætur, Þóreyju
Sunnu Óskarsdóttur, f. 2015, og
Bjarnveigu Önnu Óskarsdóttur,
f. 2015.
4) Ólafur Einar Skúlason, f.
25. mars 1989. Ólafur er giftur
Stefaníu Valdimarsdóttur og
eiga þau saman tvö börn,
Bjarndísi Ólöfu Ólafsdóttur, f.
2016, og Valdimar Nóa Ólafsson,
f. 2019.
Skúli var söðlasmíðameistari
og rak sitt eigið fyrirtæki á Sel-
fossi frá 1980-1984. Hann starf-
aði sem landpóstur um tíma en
var tónlistarmaður og bóndi á
Tannstaðabakka frá 1984. Á 30
ára búskapartíð sinni byggðu
hjónin upp myndarlegt og fjöl-
breytt bú. Skúli var mikill frum-
kvöðull og var virkur í félags-
störfum og í tónlistarlífi í
Húnaþingi alla sína tíð. Skúli
stundaði nám í tónlistarskól-
anum í söng og gítarleik og stóð
fyrir mörgum tónlistarviðburð-
um.
Útför Skúla verður gerð frá
Hvammstangakirkju 19. nóv-
ember 2021 kl. 14. Vegna að-
stæðna í samfélaginu verður út-
förinni streymt á:
https://tinyurl.com/uu6nvcsh
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Elsku pabbi okkar, með
hlýju hendurnar og hlýja hjart-
að, er farinn frá okkur allt of
fljótt. Pabbi var einstakur mað-
ur. Hann kenndi okkur margt
og við erum svo heppin að hafa
fengið að njóta leiðsagnar hans.
Pabbi var jákvæðasti maður
heims, sá aldrei nein vandamál,
bara lausnir. Hann kunni sann-
arlega að lifa lífinu lifandi.
Pabbi var lífsglaður, kraftmikill
og atorkusamur. Hann lifði
hratt, var alltaf að drífa sig og
afrekaði þess vegna margt á
sinni allt of stuttu ævi. Væri
hann barn í dag yrði hann ef-
laust greindur með ADHD,
enda alltaf með minnst sjö
verkefni í gangi í einu. Eitt sinn
var pabbi að fara eitthvað, auð-
vitað orðinn allt of seinn og
orðinn stressaður. Mamma
minnti hann á allnokkrum sinn-
um að slökkva ljósin í fuglahús-
unum þegar hann færi af stað.
Alltaf jánkaði pabbi því og loks-
ins komst hann af stað. Hann
brunaði upp afleggjarann og
fram hjá fuglahúsunum án þess
að stoppa. Mamma greip sím-
ann og hringdi í hann og við
fylgdumst með því þegar bíllinn
snarbremsar og snýr við, án
þess að pabbi svaraði símanum.
Pabbi kunni líka að gera allt,
sannkallaður hagleiksmaður.
Pabbi var mikill framfarasinni,
uppfinningamaður og frum-
kvöðull. Bóngóður og hjálpsam-
ur. Ráðagóður og útsjónarsam-
ur og alltaf til í að hlusta þegar
okkur lá eitthvað á hjarta. Á
okkur systkinunum hafði hann
óbilandi trú og hvatti okkur
áfram í öllu sem við tókum okk-
ur fyrir hendur. Hann var mik-
ill húmoristi og fimmaura-
brandararnir hans sérgrein.
Það var alltaf líf og fjör í kring-
um pabba. Pabbi var alla tíð
mikið í félagsmálum. Honum
fannst gaman að tala við fólk og
gat fengið flesta á sitt band.
Hann var mikill kennari, elsk-
aði að miðla þekkingu og vissi
að æfingin skapaði meistarann.
Pabbi var mikill tónlistar-
maður og skipaði tónlistin stór-
an sess í hans lífi. Spilaði í
hljómsveitum megnið af ævinni
og fannst fátt eins skemmtilegt
og að koma fram. Enda vorum
við krakkarnir dregin upp á
svið við minnsta tilefni. Hann
var alltaf með gítarinn með sér
og var aldrei feiminn að grípa í
hann. Eftirminnilegasta ballið
var án efa þegar Óli og Stefanía
giftu sig í sumar. Þá spilaði
hann af lífi og sál til 1 um nótt-
ina og hélt uppi feiknastuði, al-
veg í essinu sínu.
Pabbi var ákveðinn, útsjón-
arsamur og áræðinn fram á síð-
ustu stundu. Viku áður en hann
dó lá hann inni á krabbameins-
deildinni. Þá höfðu nýtekið gildi
harðari heimsóknarreglur.
Óbólusett börn máttu ekki
koma í heimsókn og pabbi var
ekki sáttur við það, enda vildi
hann hitta fólkið sitt. Hann ætl-
aði nú heldur betur að grípa til
sinna ráða og útskrifa sig af
spítalanum, svo hann fengi að
hitta börnin. Við náðum að
sannfæra hann um að best væri
að bíða fram yfir helgi og fara
þá á Hvammstanga. Pabbi vildi
samt ekki sjá það að fara norð-
ur í sjúkrabílnum, og fékk það í
gegn að hans hinsta bílferð yrði
farin í Outlandernum.
Elsku pabbi. Ástin og sorgin
eru systur og það erum við að
rekast á þessa dagana. Við
söknum þín svo, en minningin
lifir. Við systkinin, makar okk-
ar og börn eigum eftir að halda
minningu þinni á lífi.
Laufey Kristín, Eyrún Ösp,
Guðrún Eik, Ólafur Einar
og fjölskyldur.
Elsku bróðir minn.
Það er svo margt fallegt sem
kemur upp í hugann þegar ég
hugsa til þín.
Það er mér hins vegar erfitt
að mynda heilsteyptar setning-
ar um allar góðu minningarnar,
þær einhvern veginn rata ekki
almennilega niður á blað.
Eftirfarandi ljóð lýsir þér
betur en ég fæ sjálfur gert.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Vertu sæll minn kæri.
Elsku Ólöf og fjölskylda, Guð
gefi ykkur styrk um ókomna
tíð.
Þorsteinn.
Ég vil gjarnan lítið ljóð
láta af hendi rakna.
Eftir kynni afargóð
ég alltaf mun þín sakna.
(Guðrún V. Gísladóttir)
Mágur minn Skúli bóndi er
látinn og að leiðarlokum vil ég
þakka fyrir yndisleg kynni og
samskipti sem náðu yfir þrjá
áratugi. Ég vil minnast mágs
míns með stóra hjartað og
breiða brosið sem alltaf var
mættur með gítarinn og söng-
texta í veislur og hélt uppi fjör-
inu, sem fékk hugmyndir og
framkvæmdi þær og vílaði fátt
fyrir sér. Tannstaðabakki verð-
ur ekki samur án þín, boðin
verða ekki söm án þín og ætt-
armótin verða skrítin án þín, þú
varst svo stór hluti af þessu
öllu og munt skilja eftir stórt
skarð í frændgarðinn. Kveðju-
stundin er svo óraunveruleg og
yfirmáta sorgleg og kom allt of
snemma. Hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Þú áttir söngva og sól í hjarta
er signdi og fágaði viljans stál.
Þeir þurftu ekki um kulda að
kvarta,
er kynni höfðu af þinni sál.
(Grétar Fells)
Ingibjörg Hreiðarsdóttir.
Skúli Einarsson
- Fleiri minningargreinar
um Skúla Einarsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
HINSTA KVEÐJA
Hver minning dýrmæt perla
að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni
af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki
var gjöf, sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum,
er fengu að kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Elsku Ólöf og fjölskylda
ég votta ykkur innilega
samúð, guð gefi ykkur
styrk í gegnum þessa erf-
iðu tíma.
Emilía A.
Þorsteinsdóttir.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Verð kr. 6.500
Stærð 6-24
Verð kr. 2.500
Stærð S-XXL
netverslun www.gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Smáauglýsingar
mbl.is
alltaf - allstaðar