Morgunblaðið - 19.11.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021
Flóttamannabúðir við landamæri
Hvíta-Rússlands og Póllands standa
nú auðar en einungis tóm tjöld og föt
liggja eftir til marks um þær þús-
undir flóttamanna sem voru þar áð-
ur. Hefur fólkið verið flutt í upphitað
vöruhús, nokkur hundruð metra frá
flóttamannabúðunum, þar sem því
hefur verið færður matur. Ekki er
víst hvað bíður fólksins eftir þessa
aðgerð.
Nokkrar þúsundir flóttamanna
hafa verið á vergangi við landamæri
Hvíta-Rússlands og Póllands, sem
jafnframt eru ytri landamæri Evr-
ópusambandsins (ESB). Eru stjórn-
völd í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rúss-
lands, sögð hafa greitt götu
flóttamanna til að hefna fyrir efna-
hagslegar refsiaðgerðir ESB. Búið
var að leggja mikinn þrýsting á
stjórnvöld í Minsk vegna flótta-
mannavandans og áttu þau yfir höfði
sér frekari refsiaðgerðir.
Angela Merkel, fráfarandi kansl-
ari Þýskalands, og Alexander
Lukasjenkó, forseti Hvíta-Rúss-
lands, hafa átt nokkur samtöl þar
sem Merkel hefur lagt áherslu á að
leysa flóttamannavandann. Tals-
maður Lukashenko hefur greint frá
því að komið hafi til tals að Þýska-
land myndi veita 2.000 flóttamönn-
um mannúðaraðstoð. Þá hafa Hvít-
rússar einnig heitið því að flytja þá
5.000 flóttamenn er myndu eftir sitja
aftur til heimaslóða sinna.
Þýskaland hefur hins vegar ekki
staðfest að komist hafi verið að nið-
urstöðu. Þá hefur Merkel legið undir
mikilli gagnrýni fyrir að hafa átt í
beinum samskiptum við Lukas-
henko.
AFP
Flóttafólk Gaddavírsgirðingar eru
víða við landamærin.
Flóttamanna-
búðirnar rýmdar
- Óljóst hvert fólkið mun fara
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Viðræður um hertar sóttvarnarað-
gerðir í Þýskalandi gagnvart þeim
sem ekki eru bólusettir gegn kórónu-
veirunni kunna að vera í uppnámi
vegna deilna á sambandsþinginu um
hvernig eigi að hrinda þeim aðgerðum
í framkvæmd.
Heilbrigðisstofnun Þýskalands,
sem kennd er við Robert Koch,
greindi frá því í gær að 65.371 tilfelli
af Covid-19 hefðu greinst á undan-
gengnum sólarhring, og er það mesti
fjöldi tilfella í Þýskalandi frá upphafi
faraldursins. Var það jafnframt tíundi
sólarhringurinn í röð þar sem met-
fjöldi smita í landinu er sleginn.
Angela Merkel Þýskalandskanslari
lýsti þróuninni í fyrradag sem
„dramatískri“, en hún átti í viðræðum
í gær við leiðtoga sambandslandanna
16 um það hvernig best væri að hemja
veiruna. Meðal þess sem rætt hefur
verið um er að krefja þá sem ekki hafa
fengið bólusetningu gegn veirunni að
sýna fram á neikvætt veirupróf áður
en þeir geti nýtt sér almenningssam-
göngur eða farið til vinnu sinnar.
Deilur brutust hins vegar út í neðri
deild sambandsþingsins í gærmorg-
un, þar sem fjallað var um frumvarp
sem myndi gefa ríkisstjórninni og
sambandslöndunum lagalegar heim-
ildir til þess að setja á þessar tak-
markanir.
Flokkarnir þrír, sem nú ræða
myndun ríkisstjórnar, Sósíaldemó-
kratar, Græningar og Frjálslyndir
demókratar, stóðu að frumvarpinu,
en því er einnig ætlað að endurnýja
núgildandi heimildir fyrir sóttvörn-
um, sem eiga að renna út í næstu viku.
Kristilegu flokkarnir tveir, CDU/
CSU gagnrýndu frumvarpið harðlega
og sögðu það vera veikara en þau lög
sem nú eru í gildi.
Hinir tilvonandi stjórnarflokkar
hafa traustan meirihluta í neðri deild-
inni, en kristilegu flokkarnir tveir
ráða hins vegar enn yfir efri deildinni,
sambandsráðinu, en fulltrúar þar eru
ekki kjörnir, heldur skipaðir af sam-
bandslöndunum.
Hafa kristilegir demókratar því
hótað því að fella frumvarpið í sam-
bandsráðinu þegar það kemur til um-
ræðu í dag.
„Fyrsta ákvörðun og fyrstu mis-
tök“ nýju stjórnarflokkanna
Stephan Stracke, þingmaður CSU,
sagði að frumvarpið markaði fyrstu
ákvörðun nýrrar ríkisstjórnar, en
einnig hennar fyrstu mistök. „Þeir
hafa enga áætlun gegn þessum
heimsfaraldri og hvernig á að berjast
gegn honum,“ sagði hann.
Hinir tilvonandi stjórnarflokkar
sökuðu hins vegar ríkisstjórn Merkel
á móti um að hafa ekki gert nóg, með-
an hún fór með völdin.
Þýskir stjórnmálaskýrendur segja
að deilan nú geti verið vísbending um
hvað bíði í þýskum stjórnmálum
næstu árin, ef efri deild og neðri deild
þýska þingsins munu eiga í stöðugum
deilum.
Lothar Wieler, forseti Robert
Koch-stofnunarinnar, lýsti í gær yfir
vonbriðgum sínum með hinar póli-
tísku þrætur. Það væri óþolandi að
eftir 21 mánuð af heimsfaraldri væri
enn ekki tekið mark á varnaðarorðum
sínum og annarra lækna.
„Við erum nú í alvarlegu neyðar-
ástandi. Ef við breytum ekki strax um
kúrs munum við eiga mjög slæm jól,“
sagði Wieler.
Deilt um hertar aðgerðir
gegn kórónuveirunni
- Varað við „mjög slæmum jólum“ í Þýskalandi ef ekki verður breytt um stefnu
AFP
Deilur Olaf Scholz tilvonandi kanslari og Angela Merkel á þinginu í gær.
Notice of Meeting of the Holders of the following Notes
Name ISIN Issuer Issue date Maturity Date
HFF150224 XS0195066146 ÍL-sjóður 7.7.2004 15.02.2024
HFF150434 XS0195066575 ÍL-sjóður 7.7.2004 15.04.2034
HFF150644 XS0195066658 ÍL-sjóður 7.7.2004 15.06.2044
Noteholders holding more than one tenth of the aggregate principal amount of the of the outstand-
ing Notes have requested the Issuer, ÍL-sjóður (the Housing Financing Fund, HFF), to convene a
Noteholders’ Meeting in order to propose a resolution set out below for approval at a Noteholders’
meeting.
The holders of Notes (or their representatives by proxies) forming part of any of the above-
mentioned issues are entitled to attend a Meeting of the Noteholders of each of the above issues
on Tuesday, December 14, 2021, at the Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2,
108 Reykjavík, Iceland, at the local times indicated below.
- 9:00 a.m. for the Notes HFF150224 (ISIN XS0195066146)
- 9:30 a.m. for the Notes HFF150434 (ISIN XS0195066575)
- 10:00 a.m. for the Notes HFF150644 (ISIN XS0195066658)
The Issuer nominates Viðar Lúðvíksson, Supreme Court Attorney, to chair the Meetings.
Agenda
1. Voting on the proposed resolution.
The Noteholders’ Meeting, pursuant to the quorum and majority requirement for Noteholders’
Meeting, is to vote on the following resolution:
“The Noteholders hereby request the Issuer of the Notes to terminate or waive the appointment of the
relevant common depositary according to the Exchange Offer Memorandum and relevant agreements
related to the Terms and Conditions of the Notes. According to the Exchange Offer Memorandum
the common depositary for the Notes is Euroclear Bank, S.A./N.V. as operator of the Euroclear System
(“Euroclear”), and Clearstream Banking, société anoonyme, Luxembourg (“Clearstream”).”
“The undersigned Noteholder request that the Issuer appoints Verðbréfamiðstöð Íslands hf. as the successor
depositary for Euroclear and Clearstream Luxembourg and to amend the Conditions of the Notes. According
to, article 15 of the Terms and Conditions of the Notes.”
2. Any other matters lawfully requested to be placed on the agenda by a Noteholder or
the Issuer.
Prior formalities to be carried out to participate in the Meeting.
All Noteholders, regardless of the number of Notes held, have the right to participate in Notehold-
ers’ Meeting concerning the Notes they hold. To evidence their right, Noteholders will be required
to provide a Voting Certificate or appoint Proxies not later than 48 hours before the time fixed for
each relevant Meeting. The Notes may be deposited with, or to the order of, any Paying Agent for
the purpose of obtaining Voting Certificates for the Meeting or appointing Proxies. Paying Agents
should send a copy of issued Voting Certificates to ilsjodur@fjr.is no later than 24 hours before the
relevant Meeting.
The Noteholders’ Meetings will be held in accordance with Fiscal Agreement EXHIBIT G “Provisions
for Meetings of the Noteholders”. Noteholders are advised to familiarise themselves with the content
of these provisions.
For further information please contact the Issuer by email ilsjodur@fjr.is.
Alþjóðasamband kvenna í tennis
óttast um afdrif kínversku tenn-
isstjörnunnar Peng Shuai sem
ekki hefur sést síðan hún ásakaði
Zhang Gaoli, háttsettan embætt-
ismann og áhrifamann í Komm-
únistaflokknum, um að hafa brot-
ið á henni kynferðislega.
Peng setti ásökunina fram
snemma í þessum mánuði. Í gær
birtist yfirlýsing frá henni í rík-
isfjölmiðli þar sem hún sagðist
vera að hvíla sig heima hjá sér
og sagði ásakarnirnar ekki frá
sér komnar og væru þær upp-
spuni.
Forsvarsmenn tennissambands-
ins eru hins vegar ekki sann-
færðir um að yfirlýsingin sé
raunverulega frá Shuai og óttast
um hana. Mörg dæmi eru um það
í Kína að gagnrýnendur hátt-
settra manna hverfi sporlaust.
KÍNA
Hafa áhyggjur
af tennisstjörnu
Kína Óttast er um afdrif tennisstjörn-
unnar Peng Shuai eftir yfirlýsinguna.
AFP
Dmytro Kuleba,
utanríkisráð-
herra Úkraínu,
sagði í gær að
landið þarfnaðist
meiri hernaðar-
aðstoðar frá vest-
rænum löndum
vegna stöðugrar
aukningar á upp-
byggingu rúss-
nesks herafla við landamæri
ríkjanna. Herflutningar Rússa að
landamærunum hafa verið umtals-
verðir. Telja stjórnvöld í Úkraínu að
hermennirnir séu nú um hundrað
þúsund.
Óljóst er hvað vakir fyrir Rússum
með þessum liðsflutningum. Í Úkra-
ínu óttast margir að þeir hyggi á inn-
rás í landið en 2014 innlimuðu þeir
hluta landsins, Krímskaga. Ýmsir
sérfræðingar útiloka ekki að til
slíkra tíðinda geti dregið. Vesturlönd
hafa hvatt Rússa til að kalla herliðið
heim.
Segir þörf á meiri hern-
aðaraðstoð til Úkraínu
Dmytro Kuleba