Morgunblaðið - 27.11.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.11.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021 Þó að nokkrir þingmenn hafi fall- ið á fyrsta prófinu stóðst þing- ið í heild það með sóma og sam- þykkti einu tæku tillöguna sem borin var fram undir liðnum rann- sókn kjörbréfs í fyrrakvöld. Píratar þurftu eins og oft áður að sýna fram á að þeir geta ekki með nokkru móti starfað af alvöru og báru upp og studdu um það bil vit- lausustu tillögu sem hægt var, að kosið yrði aftur á öllu landinu. Jafn- vel Samfylkingin treysti sér ekki til að elta þá út í þá vitleysu og ekki heldur þá tillögu nokkurra pírata að fyrri talning í Norðvesturkjör- dæmi yrði látin gilda. Sú talning var bersýnilega röng, en samt töldu fjórir píratar réttast að hún stæði og að fólk sem engan rétt hefði til að sitja á Alþingi fengi þar sæti. - - - Tillaga um svokallaða uppkosn- ingu í Norðvesturkjördæmi var einnig felld, en þó studdu hana sextán þingmenn. Það voru í meginatriðum þingmenn Samfylk- ingar, Pírata og Viðreisnar, en einnig þriðjungur þingflokks VG. - - - En drjúgur meirihluti þing- heims, 42, greiddi atkvæði með því að seinni talningin í Norð- vesturkjördæmi, sú sem hafin er yf- ir allan skynsamlegan vafa, væri gild. Sextán þingmenn sátu hjá, en fimm pírötum tókst að kóróna kvöldið með því að greiða atkvæði gegn því að kjörbréfum yrði út- hlutað yfirleitt. - - - Ekki virðist fjarstæðukennt að spá því að atkvæðagreiðsl- urnar í fyrrakvöld verði fyrirboði þess sem koma skal á kjör- tímabilinu. Fyrsta prófið STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Fleiri óttast nú að smitast af kórónu- veirunni en í síðasta mánuði, sam- kvæmt niðurstöðum nýs Þjóðarpúls Gallups sem birtar voru í gær. Þá hafa áhyggjur Íslendinga af heilsu- farslegum og efnahagslegum áhrif- um faraldursins aukist, og er fólk farið í auknum mæli að breyta venj- um sínum til að forðast smit. Í könnuninni, sem gerð var dag- ana 12.-24. nóvember síðastliðinn, var fólk spurt hvort það óttaðist mik- ið eða lítið að smitast af Covid-19- sjúkdómnum og sagðist 21% óttast það frekar mikið og 5% óttuðust það mjög mikið. Til samanburðar óttuð- ust einungis um 11% frekar mikið að smitast af kórónuveirunni í október og 2% mjög mikið. 36% óttuðust hvorki mikið né lítið að smitast af veirunni, og var það hlutfall óbreytt milli mánaða, á með- an 23% fólks óttuðust frekar lítið og 15% óttuðust það mjög lítið að smit- ast, miðað við 30% sem óttuðust frekar lítið að smitast í október og 21% óttaðist það mjög lítið. Í öðrum niðurstöðum könnunar- innar kemur fram að færri treysti ríkisstjórninni til að takast á við efnahagsleg áhrif faraldursins en í síðasta mánuði og að fleiri telji of lít- ið gert úr þeirri heilsufarslegri hættu sem stafi af faraldrinum. Ótti við smit eykst milli mánaða - Nýr Þjóðarpúls Gallup sýnir auknar áhyggjur af áhrifum faraldursins Morgunblaðið/Eggert Bólusetning Fleiri óttast nú smit skv. Þjóðarpúlsi Gallup. Svissnesku dýraverndunarsamtökin Animal Welfare Foundation/Tier- schutzbund Zürich (AWF/TSB) ætla ekki að gefast upp í baráttu sinni gegn blóðmerabúskap fyrr en bann hefur verið lagt við starfseminni. Þetta segir Sabrina Gurtner, verk- efnastjóri samtakanna, í samtali við mbl.is. Innt eftir því segir hún ánægju- legt hve mikla athygli herferð sam- takanna hefur vakið á Íslandi. Mark- mið samtakanna hafi m.a. verið að vekja athygli almennings á málinu og það hafi tekist. „Það eru aðallega Íslendingar sem hafa skrifað athugasemdir við mynd- ina á Youtube og þeim var greinilega brugðið að sjá hvernig komið er fram við íslenska hestinn sem þeim þykir mörgum hverjum mjög vænt um.“ Þá segist hún vera sérstaklega ánægð með Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, sem hyggst mæla fyrir frumvarpi um bann við blóð- merabúskap í annað sinn þegar nýtt þing kemur saman. „Það er einmitt það sem við erum að berjast fyrir og vonum við að frumvarpið hljóti góð- an hljómgrunn á þinginu.“ Matvælastofnun hefur hafið rann- sókn á heimildarmyndinni umræddu og hyggjast starfsmenn stofnunar- innar vanda til verka, að því er Sig- ríður Björnsdóttir, sérgreinadýra- læknir hrossa hjá MAST, greindi frá í samtali við mbl.is. Samtökin hafa nú þegar hleypt af stokkunum annarri herferð í Evrópu og hyggjast skora á framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins að stöðva innflutning og framleiðslu á PMSG, hormóni sem fengið er úr blóði fylfullra hryssna og er notað í framleiðslu á frjósemislyfjum fyrir önnur dýr. unnurfreyja@mbl.is Segja baráttunni hvergi nærri lokið - Vilja banna blóðmerabúskap Morgunblaðið/Árni Sæberg Hross Slæm meðferð á hryssum við blóðtöku hefur verið fordæmd. Landsréttur stað- festi í vikunni úr- skurð héraðsdóms um að einstakling- ur sætti gæslu- varðhaldi til þriðjudagsins 21. desember 2021 vegna síendurtek- inna brota á nálg- unarbönnum. Barnavernd lagði fram kæru á hendur kærða í ágúst í fyrra vegna gruns um að hafa beitt fjórar dætur sínar líkamlegu og andlegu ofbeldi, þá kemur fram að dætur kærða hafi lýst því að faðir þeirra væri mjög oft reiður og beitti þær grófu líkamlegu ofbeldi. Þá hefðu þær vitnað um að móðir þeirra reyndi stundum að hjálpa þeim en þá beitti kærði hana einnig líkam- legu ofbeldi. Allar dætur kærða hafa verið í fóstri frá því í ágúst í fyrra og hafa lögreglu ítrekað borist upplýsingar um áreitni kærða gagnvart stúlkunum frá því í maí á þessu ári. Fósturmæður þeirra hafa tilkynnt að kærði væri að hringja í dætur sínar og hefði nokkr- um sinnum verið mættur fyrir utan heimili þeirra. rebekka@mbl.is Braut nálg- unarbönn ítrekað - Beitti ofbeldi Dómur Brotaþolar eru börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.