Morgunblaðið - 27.11.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 27.11.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 544 5151 tímapantanir Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það eru engar forsendur fyrir því að þrengja Suðurlandsbrautina eða aðrar mikilvægar akbrautir í Reykjavík. Þvert á móti þarf að víkka æðarnar. Það þarf að byggja Sundabraut og lagfæra hættuleg ljósastýrð gatnamót,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks- ins í borgarstjórn Reykjavíkur. Meirihluti borgarráðs Reykjavík- ur samþykkti nýlega áform um að fækka akreinum bíla á Suðurlands- braut og ofanverðum Laugavegi úr fjórum í tvær vegna tilkomu borg- arlínu. Hvað finnst Eyþóri um það? Glórulaus aðferðafræði „Það er glórulaus aðferðafræði að þrengja að Suðurlandsbrautinni eins og nú er áætlað hjá borgarstjórn- armeirihlutanum. Það mun hafa víð- tæk áhrif. Umferð mun flytjast af Suðurlandsbraut inn í nálæg hverfi og þyngja umferð á Miklubraut. Sæ- braut og fleiri götum. Þetta mun því þyngja umferð, auka álag og lengja ferðatíma. Ef við horfum á gatna- kerfið í Reykjavík sem æðakerfi þá er verið að fara alveg öfuga leið. Það er alveg ljóst að það eru stíflur í gatnakerfinu og það síðasta sem á að gera er að þrengja að æðakerfinu við slíkar aðstæður.“ -Ertu sammála því mati Árna Mathiesen, stjórnarformanns Betri samgangna ohf., að það sé óþarfi að fækka akreinum á Suðurlandsbraut til að koma hraðvagnakerfi fyrir? „Já og það að nota samgöngu- sáttmálann [milli ríkisins og sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu] sem afsökun fyrir því að þrengja að um- ferðinni í Reykjavík stenst ekki neina skoðun,“ sagði Eyþór. „Reykjavíkurborg er alveg úti að aka í þessu máli og er á vegferð sem endar bara úti í skurði. Það að þrengja að umferð er akkúrat öfugt við það sem þarf að gera. Eina skýr- ingin er sú að menn vilji þvinga fólk út úr bílunum. Það er alveg öfugt við það sem við stöndum fyrir. Við stöndum fyrir frelsi.“ Samgönguþróunin vanmetin Eyþór segir borgaryfirvöld van- meta hvernig bílaeign er að breyt- ast. „Það er tvennt að gerast á sama tíma í samgöngubyltingunni. Ann- ars vegar rafbílavæðingin sem nýtir hreina íslenska orku og almenn- ingur styður mjög eindregið. Hins vegar eru að koma nýjar lausnir. Við sjáum hvað hefur gerst með raf- hjólin. Það eru að verða tækni- framfarir í öllum tegundum bíla, fólksbílum, flutningabílum og al- menningssamgöngum. Það er leiðin fram á við,“ segir Eyþór. -Vilhjálmur Árnason alþing- ismaður sagði í viðtali við Morg- unblaðið í gær að samkvæmt sam- göngusáttmála ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skuli sveitarfélögin haga skipulags- málum sínum þannig að áform rík- isins um uppbyggingu samgöngu- innviða geti gengið eftir. Hann nefndi t.d. Sundabraut í þessu sam- bandi. Hefur orðið misbrestur á því að Reykjavíkurborg hagi skipulags- málum sínum í samræmi við sam- göngusáttmálann? „Já, algjör misbrestur og ekki bara í einu máli heldur öllum. Sundabraut er til dæmis ekki inni í nýsamþykktu aðalskipulagi Reykja- víkur. Það er stórundarlegt í ljósi þess að skrifað var undir samgöngu- sáttmálann fyrir tveimur árum. það átti að klára tvenn mislæg gatnamót á þessu ári, annars vegar við Reykjanesbraut og Bústaðaveg og hins vegar við Arnarnesveg og Breiðholtsbraut. Hvorugt verkefnið er komið í útboð. Þetta hefur því líka verið svikið.“ Eyþór bendir einnig á að umferð- arljósum í borginni sé enn stýrt að mestu af klukku. Í samgöngu- sáttmálanum hafi verið talað um að laga þetta strax og taka upp snjall- stýringu sem nýtti hreyfiskynjara og myndavélar við að stýra umferð- arljósunum. Með því væri komið í veg fyrir að bílar sætu kyrrir á rauðu ljósi að óþörfu. Eyþór nefnir t.d. að Kópavogur hafi kallað mjög eftir gatnamótum Breiðholtsbrautar og Arnar- nesvegar. Staðið hafi á Reykjavík í skipulagsmálum varðandi sam- göngur en ekki öðrum sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Vilja breyta ferðavenjum fólks Gerður var samanburður á þrem- ur mismunandi götusniðum Suður- landsbrautar eins og kemur fram í Frumdagaskýrslu borgarlínu (bls. 132). Í sniði 1 er áhersla lögð á að hafa sem minnsta breytingu á yf- irborði. Í sniði 2 er áhersla á að halda kjörsniði borgarlínunnar, þar sem það er hægt og í sniði 3 er lögð áhersla á að taka það besta úr snið- um eitt og tvö og aðlaga rými fyrir borgarlínuna og virka ferðamáta eftir aðstæðum. Á skýringarmynd eru í sniðum 1 og 2 tvær akreinar fyrir bíla, ein í hvora átt og tvær fyrir borgarlínu. Í sniði 3 eru tvær akreinar fyrir borg- arlínu og tvær akreinar í hvora átt fyrir bíla, eða jafn margar akreinar fyrir bíla og nú. Auk þess er gert ráð fyrir bílastæðum öðrum megin við götuna og göngustíg og hjólastíg hinum megin. „Tillagan um að fækka akreinum fyrir bíla skorar hærra varðandi umferðaröryggi, því önnur umferð fer þá hægar um. Hún skorar einnig hærra varðandi umhverfisgæði vegna þess að gatan verður rólegri fyrir vikið,“ segir Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og formað- ur skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. „Það er mitt mat að við fáum miklu fallegri götu og fallegra borgarumhverfi með því að gera þetta að breiðstræti frekar en að bæta við malbiki.“ -En verða samgöngur greiðari með því að fækka akreinum? „Jú, heildarmatið er að umferðin verði greiðari vegna þess að við er- um að breyta ferðavenjum.“ - En hvað um umferðarspá sem segir að bílaumferð muni aukast til 2030, jafnvel með breyttum sam- göngmáta? „Ég tel eðlilegt að við gerum frek- ari greiningar á þessum kostum og reynum að sýna fram á það að til þess að ná þessari breytingu í ferða- venjum sé nauðsynlegt að grípa til ákveðinna aðgerða,“ sagði Pawel. „Það er alveg klárt að umferðin mun aukast meira ef við bjóðum upp á hraðbraut í hvora átt heldur en ef við grípum til aðgerða til að hægja á umferð og hvetja fólk til að nota al- menningssamgöngur.“ Rafbílar taka jafn mikið pláss -Hefur verið tekið tillit til þeirra miklu breytinga sem eru að verða varðandi notkun nýorkubíla? Rafbíl- ar eru að taka yfir á Íslandi. „Við eigum að sjálfsögðu að hvetja til orkuskipta en þau breyta ekki því að rafbíll tekur jafn mikið pláss í umferðinni og bíll sem er knúinn af jarðefnaeldsneyti. Ef við gerðum ekkert annað en að breyta um orkugjafa í öllum bílum þá mundi borgin líta nákvæmlega eins út og hún hefur gert. Við viljum hvetja fólk til að nota almennings- samgöngur og ganga og hjóla. Það verður ekki gert ef við gefum þess- um ferðamátum ekki meira vægi í borgarlífinu.“ Góð samvinna við ríki og bæi Pawel segir Reykjavíkurborg hafa staðið sig mjög vel í samvinnu við ríkið og önnur sveitarfélög um samgöngusáttmálann. Hann var spurður hvers vegna Sundabraut væri þá ekki í nýju aðalskipulagi? „Lega hennar er ekki endanlega ákveðin. Þetta aðalskipulag gekk út á breytingar varðandi íbúðabyggð en ekki samgöngur. Um leið og ákvörðun um endanlega legu Sunda- brautar liggur fyrir verður ráðist í nauðsynlegar breytingar á aðal- skipulagi,“ sagði Pawel. Hann sagði að samskipti við ríkið og Vegagerð- ina hefðu verið góð. Unnið hafi verið að samfélagslegri greiningu á ólík- um kostum legu Sundabrautar. Skýrsla ráðherra um það líti vænt- anlega dagsins ljós á næstunni. Skipulagsvinna á fullu -En hvað um gatnamót Bústaða- vegar/Reykjanesbrautar og Breið- holtsbrautar/Arnarnesvegar? „Þessi verkefni eru í góðu skipu- lagsferli. Ég reikna með að Arnar- nesvegurinn fari í deiliskipulagsaug- lýsingu á næstu vikum og við vinnum þétt saman með Kópavogi. Reykjavíkurborg gerði ákveðnar at- hugasemdir varðandi legu göngu- og hjólastíga yfir þessa miklu akbraut svo hún skæri ekki í sundur teng- ingar á milli Kópavogs og Reykja- víkur meira en nauðsyn krefur. Við erum að vinna Bústaðaveginn í samráði við Vegagerðina. Þar þarf að huga að ýmsu eins og legu borg- arlínu í gegnum svæðið og nálægð við byggð. Ég reikna með að það sé örlítið lengra í að það verkefni fari í deiliskipulagsvinnu,“ sagði Pawel Bartoszek. Ólík sýn á Suðurlandsbrautina - Borgaryfirvöld stefna að því að fækka akreinum á götunni - Eyþór Arnalds segir engar forsend- ur fyrir þrengingu - Pawel Bartoszek segir að greiða eigi fyrir umferð með breyttum ferðavenjum Tölvuteikning/Borgarlinan.is Suðurlandsbraut Þessi framtíðarsýn af götumynd Suðurlandsbrautar birtist í skýrslunni Borgarlínan 1. lota for- sendur og frumdrög. Vagnar borgarlínunnar fara þar um miðja götuna og svo verði tvær akreinar fyrir bíla. Eyþór Arnalds Pawel Bartoszek Íþróttafélag Reykjavíkur hefur birt yfirlýsingu á heimasíðu sinni þar sem staðhæfing sem kemur fram í jafnréttisúttekt Reykjavík- urborgar á félaginu er leiðrétt. Fjallað var um úttektina í Morg- unblaðinu í gær og kom þar fram að ÍR greiði hærri laun fyrir þjálf- un í meistaraflokkum karla en kvenna. „ÍR hefur fyrir nokkru síð- an sent inn leiðréttingu á þessu til jafnréttisráðs Reykjavíkurborgar og hljóðar leiðréttingin svo: Þjálf- arar af báðum kynjum fá jöfn laun fyrir að sinna sömu stöðu innan deildar að því gefnu að þeir séu jafn hæfir, þ.e. sambærileg mennt- un og reynsla og jafnt vinnufram- lag. Hvað varðar þjálfun karlaliðs á móti kvennaliði þá er algilt að þjálfarar karlaliða séu með meiri menntun og reynslu samanborið við þjálfara kvennaliðanna. Í ljósi þess fá þjálfarar karlaliða hærra greitt fyrir þjálfarastöður í meist- araflokkum. Einnig er í sumum til- vikum munur á leikjafjölda milli liða og skýrir það einnig launamun á milli þjálfara,“ segir í yfirlýsingu ÍR. Þar fagnar félagið einnig jafn- réttisúttekt Reykjavíkurborgar og þakkar fyrir samstarfið við mann- réttinda- og lýðræðisskrifstofu borgarinnar. Leiðrétta staðhæfingu í jafnréttisúttekt borgarinnar - Yfirlýsing frá ÍR vegna launamála þjálfara meistaraflokka Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Karfa Fjölbreytt íþróttastarf fer fram hjá ÍR-ingum í Breiðholtinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.