Morgunblaðið - 27.11.2021, Page 11

Morgunblaðið - 27.11.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021 Skipholti 29b • S. 551 4422 Glæsileg föt í jóla- pakkann LAXDAL er í leiðinni Skoðið laxdal.is Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is BLACK FRIDAY 20%afsláttur af MosMosh, Lofina Depeche, LaSalle Gildir út mánud. 29.11 Opið 11-15 í dag Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 Við erum á facebook 20% afsláttur af öllum fatnaði í dag Dansk-íslenska félagið heldur sam- komu nk. þriðjudag, 30. nóvember, kl. 17 í Veröld – húsi Vigdísar, og er hún opin almenningi. Þar mun dr. Ólafur Ísleifsson, fv. þingmaður, flytja ávarp um full- veldi Íslands, afmæli sambandslaga Danmerkur og Íslands 1918. Hann- es Guðrúnarson gítarleikari flytur einleiksverk eftir samtímamann myndhöggvarans og tónlistarunn- andans Alberts Thorvaldsen, Ferd- inando Carulli (1770-1841). Þá mun dr. Auður Hauksdóttir prófessor em. flytja erindi um þýðingu ís- lenskrar tungu og bókmennta fyrir þjóðernismyndun Dana. Eðlilegar sóttvarnir verða við- hafðar, hólfaskipting, grímuskylda og fjarlægðarmörk, segir í tilkynn- ingu. Nýlega var haldinn aðal- fundur í Dansk-íslenska félaginu. Áfram sitja í stjórn Einar G. Pét- ursson ritari, Þórhildur Oddsdóttir gjaldkeri, Gísli Magnússon og Ólaf- ur Egilsson, sem tók við sem for- maður. Nýr í stjórn er Arnbjörn Ólafsson. Dansk-íslenska fé- lagið með samkomu í tilefni 1. desember Morgunblaðið/Eggert Fyrirlestur Ólafur Ísleifsson mun tala á samkomu Dansk-íslenska félagsins. VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það verður gaman að taka þátt í þessu málþingi þó það verði heldur minna en venjulega út af þessu Co- vid-ástandi,“ segir Ármann Jak- obsson, prófessor og rithöfundur. Hann verður lykilfyrirlesari á al- þjóðlegu málþingi um blótsyrði sem fer fram í Reykjavík í byrjun næsta mánaðar. Málþingið er skipulagt af hópi fræðimanna sem kallast Swearing in Scandinavia, eða SwiSca. Ármann mun í erindi sínu „The trolls take thy boasting and bragging: The Meaning of medieval cursing“ velta því upp hvernig blótsyrði voru á miðöldum. Leitar hann meðal annars efniviðar í Njálu. „Það er tvennt sem mig langar meðal annars að ræða. Annars veg- ar þegar Hallgerður langbrók sagði „tröll hafi þína vini“ í Njálu. Hvað meinar hún þá? Þetta er einhvers konar blótsyrði og spurningin er hvort þetta merki eitthvað. Hvað meinar hún og hvað vill hún að ger- ist?,“ segir Ármann. Bölvaði grobbnum eiginmanni Hann nefnir annað dæmi úr Njálu sem verður til umfjöllunar í erindinu. Það er þegar Valgerður, kona Bjarnar í Mörk sem var fylgd- armaður Kára, gerir lítið úr bónda sínum og segir „tröll hafi þitt hól og skrum“. „Hún er betur ættuð en hann og hélt að hún væri að giftast hetju en hann reynist vera grobb- ari,“ segir Ármann. Hann segir að forvitnilegt sé að velta fyrir sér blótsyrðum fyrr á tímum og hlutverki trölla og djöfla í tengslum við þau. Hann hefur sem kunnugt er rannsakað talsvert fyrirbærið tröll. „Okkar hugmyndir um tröll koma úr þjóðsögum Jóns Árnasonar og áhrifamiklum myndum Halldórs Péturssonar við þær. Þá muna margir einnig eftir tröllum með stór nef í bíómyndinni Síðasti bær- inn í dalnum. Þetta eru þær myndir sem margir hafa af tröllum,“ segir Ármann og bætir við að þær gefi ekki endilega rétta mynd af því sem vísað er til. Þannig hafi tröll haft allt aðra merkingu fyrir fólki á sögutíma Njálu á 10. og 11. öld og á 13. öld þegar sagan var rituð. Göldrótt fólk og draugar Hann kveðst hafa sest niður fyrir nokkrum árum og rannsakað merk- inguna að baki orðinu tröll. Niður- staðan hafi verið sláandi enda hafi fólk ekki átt við tiltekna veru af ákveðnum kynþætti eða tegund eins og nú á við. „Algengustu dæmin yfir að orðið tröll sé notað er um venjulegt mannfólk sem kann að galdra. En þá er það reyndar kannski ekki lengur venjulegt. Þá var einnig al- gengt að draugar væru kallaðir tröll í miðaldaheimildum, að þeir væru tröllslegir. Þetta á sumsé ann- ars vegar um lifandi manneskjur og hins vegar um látnar mannverur.“ Ármann segir að „tröll hafi þína vini“ geti vísað til hins og þessa. „Langlíklegast er þó að það þýði einfaldlega eitthvað svipað og „fjandinn hirði þig“. Þá er þessi fjandi tiltekin persóna, satan, en hann getur líka verið óskilgreindur óvinur.“ Tröllin hafa krúttvæðst Blótsyrði og bölvanir hafa fylgt manninum lengi og Ármann segir að áhugavert sé að velta þeim fyrir sér. „Bölvanirnar tengjast heims- mynd fólks. Við könnumst við það sem eldri erum að merking blóts- yrða breytist. Þorgerður Katrín skellti í bjöllu á Alþingi í gær [fimmtudag] þegar orðið „andskot- inn“ var notað. Það er alls ekki sak- laust orð, ekki ef fólk er trúað, en merkingin hefur kannski breyst hjá öðrum. Samfélagið hefur aftrú- væðst á síðustu 60 árum og á sama tíma hafa tröllin krúttvæðst. Það hefur til dæmis gerst vegna túlk- unar Brians Pilkington á þeim. Við eigum að hafa samúð með tröll- unum en þannig var það alls ekki á miðöldum.“ Ármann telur að úr því að bölv- anir og blótsyrði tengist heims- mynd fólks muni kórónuveiran skæða mögulega rata inn í blóts- yrðabanka landsmanna þegar fram líða stundir. „Við erum kannski ekki enn farin að segja að Covid taki þig en það mun kannski gerast. Maður lítur í það minnsta orðið á þennan far- aldur sem einhvers konar bölvun.“ „Tröll hafi þitt hól og skrum“ - Ármann Jakobsson fjallar um blótsyrði á miðöldum á málþingi í næstu viku - Tröll og djöflar áberandi - Bölvanir tengjast heimsmynd fólks - Líklegt að kórónuveiran rati í blótsyrðabankann Málþingið verður haldið á fimmtudag og föstudag í næstu viku. Fjölmörg for- vitnileg erindi eru á dag- skránni. Þar mun Ellert Þór Jó- hannsson til að mynda fjalla um móðganir og blótsyrði á Ís- landi á 17. öld og Marianne Rathje ræðir um blótsyrði og móðganir á danskri umræðu- síðu. Annað erindi fjallar um þróun blótsyrða í vinsælum frösum í sjónvarpsþáttum og enn eitt um rannsókn á blóts- yrðum í rapptónlist svartra í Bandaríkjunum. Málþingið er skipulagt af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og fer það fram í safnaðarheimili Nes- kirkju. Hægt er að kynna sér dagskrána nánar á heimasíðu SwiSca, www.swisca7.info. Móðganir og rapptónlist FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Morgunblaðið/Hari Blót Ármann Jakobsson fjallar um blótsyrði á miðöldum í fyrirlestri á málþingi í byrjun næsta mánaðar. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.