Morgunblaðið - 27.11.2021, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021
Bogi Molby
Pétursson
Löggiltur
fasteignasali
S. 699 3444
þar af fimm sem uppaldir voru á
Eyrarbakka. Tólf voru úr Reykja-
vík, einn þeirra Þorbergur Frið-
riksson 1. stýrimaður, faðir Guð-
rúnar Katrínar (1934-1998)
forsetafrúar. Þorbergur var Mýr-
dælingur að uppruna og þaðan
var einn annar sem fórst með
skipinu. 25. maðurinn í áhöfn var
Akurnesingur.
„Sviðaslysið var hræðilegt. Af frá-
sögnum mér eldra fólks þekki ég
vel hve ofboðslega þungt högg
þetta sjóslys var fyrir bæjar-
félagið,“ segir Lúðvík Geirsson,
hafnarstjóri í Hafnarfirði og áður
bæjarstjóri. Föðurafi hans, Gunnar
I. Hjörleifsson, sem bjó á Selvogs-
götu 5, var einn þeirra sem fórst
með togaranum og lét eftir sig 6
börn. Í sama húsi bjó Guðmundur
Júlíusson matsveinn sem lét eftir
sig fimm börn.
Í húsunum neðst við Selvogs-
götuna í Hafnarfirði, þar sem
flestir skipverjanna þaðan úr bæ,
sem voru á Sviða, bjuggu, urðu
alls átján börn föðurlaus. Þeirra
á meðal var faðir Lúðvíks, Geir,
sem var alþingismaður í áratugi.
„Milli fjölskyldna Gunnars og
Guðmundar var sterk vinátta,
sem hefur haldist meðal okkar af-
komenda alveg fram á þennan
dag. Þannig meðal annars lifir
sagan,“ segir Lúðvík, sem minnist
frásagna af minningarathöfn um
þá sem fórust með Sviða. „Hér
var stund í kirkjunni fáeinum dög-
um fyrir jól, og í þeirri nálægð
varð athöfnin nístandi var mér
sagt.“
Af skipverjunum sem fórust
með Sviða voru 11 úr Hafnarfirði,
MIKIÐ HÖGG FYRIR SAMFÉLAGIÐ Í HAFNARFIRÐI
Lúðvík
Geirsson
Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Selvogsgata Margir skipverjanna á Sviða bjuggu á þessum slóðum.
Alls 18 börn við Selvogsgötuna urðu föðurlaus
Sjóslys Ít-
arlega var
sagt frá
Sviðaslys-
inu í Morg-
unblaðinu í
desember
1941. Birt-
ar voru
myndir af
áhöfninni
og skipinu,
sem var upp-
haflega
smíðað sem
tundur-
duflaslæðari
fyrir Breta.
ember á Vestfjarðamiðum. Sneri
fulllestaður til baka 1. desember og
var ætlunin að sigla með aflann til
sölu í Bretlandi. Norðan úr hafi að
Bjargtöngum sóttist siglingin vel, en
svo þyngdi sjó og vind á Breiðafirði.
Togararnir Sviði og Venus fylgdust
lengst af, en þegar sá síðarnefndi
kom inn til Hafnarfjarðar var farið
að óttast um Sviða. Slysavarnafélagi
Íslands og fleirum var gert viðvart.
Eftirgrennslan hófst og nokkrum
dögum síðar fannst brak úr Sviða á
hafi úti og sjórekið lík á Rauðasandi.
Ekki þurfti því frekari vitna við.
Talið er að Sviði hafi farist á svo-
nefndu Flákahorni í norðurkanti
Kolluáls, sem er um 10 sjómílur NV
af Öndverðarnesi.
Slysi þessu fylgdu málaferli sem
snerust um hvort útgerðin eða
Stríðstryggingafélag Íslands skyldi
greiða skaðabætur. Trygginga-
félagið krafðist sýknu, og bar við að
ekki yrði sannað að togarinn hefði
farist vegna stríðsrekstrar. Héraðs-
dómur þess tíma var þó á öndverð-
um meiði og Hæstiréttur sömuleiðis
í dómi sínum sumarið 1943.
Sjóslysin voru hár
tollur fyrr á tíð
En hvað olli slysinu? Tæplega
tundurtufl, segir Egill Þórðarson.
Tilgreinir að Sviði GK hafi, eins og
fleiri íslenskir togarar á þessum ár-
um, upphaflega verið smíðaður í
fyrri heimsstyrjöld sem tundur-
duflaslæðari fyrir breska sjóherinn.
Þegar skip þessi voru tekin til fisk-
veiða hafi ýmsum nýjum búnaði ver-
ið bætt á þau án þess að gætt væri
að þyngd og stöðugleika. Mögulegt
sé því að skipið hafi fengið á sig fyllu
eða öldu og brotnað í svelgnum.
Slíkt verði þó aldrei sannað.
„Þótt langt sé um liðið er enn til
staðar sorg meðal afkomenda sjó-
mannanna sem fóru í hafið með
Sviða,“ segir sr. Jón Helgi Þór-
arinsson, prestur í Hafnarfjarðar-
kirkju, sem annast minningar-
stundina. Þar verða nöfn þeirra sem
fórust lesin upp og kveikt á kertum.
Vegna sóttvarna verður aðgengi
takmarkað.
„Ég fann vel þegar við minntumst
þeirra sjómanna héðan úr Hafn-
arfirði sem fórust á Halanum árið
1925 hvað saga þessara atburða
snertir fólk enn í dag. Ekki var
langt niður á kviku og sama á við um
atburði sem eru nær okkur í tíma.
Raunar er vafamál hvort fólk í dag
geri sér grein fyrir hve hár tollur
sjóslysin voru fyrir Íslendingum
fyrr á tíð. Sum árin fórust tugir
manna og árið 1941 – árið sem Sviði
fórst – tók hafið alls 139 sjómenn,“
segir Jón Helgi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjóslysasaga Frá vinstri Egill Þórðarson loftskeytamaður og prestarnir Þorvaldur Karl Helgason og Jón Helgi
Þórarinsson undirbúa minningarstund. Stutt niður á kviku sorgar, segir sá síðastnefndi um sjóslys fyrri tíðar.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Minnst verður við í Hafnarfjarðar-
kirkju 2. desember næstkomandi að
80 ár verð þá liðin frá því togarinn
Sviði GK fórst út af Öndverðarnesi á
Snæfellsnesi með allri athöfn, alls 25
manns. Jafnhliða verður opnuð sýn-
ing í safnaðarheimilinu um sjóslysið
og þá sjómenn sem fórust. Hægt
verður að skoða sýninguna á opn-
unartíma safnaðarheimilisins en á
þriðjudögum og fimmtudögum á
næstunni, milli kl. 13-15, mun Egill
Þórðarson lofstskeytamaður veita
leiðsögn um sýninguna.
Þegar Sviði GK fórst misstu alls
fjórtán konur misstu eiginmenn sína
í þessu sjóslysi og 46 börn urðu föð-
urlaus. „Á bak við þennan skips-
skaða er mikil saga sem má ekki
gleymast, rétt eins halda verður á
lofti minningu þeirra manna sem
þarna fórust,“ segir Egill Þórð-
arson. Hann hefur safnað marg-
víslegum upplýsingum um þetta sjó-
slys og vinnur að undirbúningi
fyrrgreindrar minningarstundar.
Í febrúar á síðasta ári voru 95 ár
liðin frá Halaveðrinu mikla. Í fádæ-
malausu óveðri á Vestfjarðamiðum
lenti fjöldi skipa í hrakningum og
tveir togarar fórust; Leifur heppni
og Fieldmarshal Robertson, sem
var gerður út í Hafnarfirði. Á hinum
síðarnefnda voru 35 menn, margir af
þeim úr Hafnarfirði. Óveður þetta
gekk yfir 7. og 8. febrúar 1925 og af
því tilefni var í fyrra sett upp sýn-
ing, sambærileg þeirri sem nú er í
undirbúningi.
„Fyrir tveimur árum þjónaði ég
tímabundið hér við Hafnarfjarðar-
kirkju, þar sem uppi er minningar-
tafla með nöfnum þeirra sjómanna
sem fórust með Fieldmarshal Ro-
bertson. Þetta snart mig og ég vildi
vita meira um sambærilega hluti,“
segir sr. Þorvaldur Karl Helgason
prestur. Hann hefur fundið upplýs-
ingar um sjómennina sem fórust
með Sviða, æviágrip og myndir. Eg-
ill Þórðarson, ásamt Kristni Hall-
dórssyni skipahönnuði, hefur svo
kannað margt um togarann sjálfan
og hugsanlegar ástæður þess að
hann fór niður. Hefur því viðvíkj-
andi kynnt sér veðurátt, sjóhæfni
skipsins og fleiri þætti. Einnig eru
mál skoðuð í samhengi við aðstæður
og aldarfar, það er að Sviði fórst í
miðri heimsstyrjöld þegar títt var að
skip til dæmis yrðu fyrir tund-
urduflum.
Sigldi í þungum sjó
Sviði GK, sem gerður var út af
samnefndu útgerðarfyrirtæki í
Hafnarfirði, fórst þann 23. nóv-
Fórst á Flákahorni með allri áhöfn
- Hafnarfjarðartogarinn Sviði GK fór í hafið fyrir 80 árum - Sjórinn tók 25 menn - Orsakir skips-
skaðans aldrei ljósar - Eftirlifendur fengu stríðsskaðabætur - Minningarguðsþjónusta á sunnudag
Fréttir Sviðaslysið
snerti við öllum.