Morgunblaðið - 27.11.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.11.2021, Qupperneq 16
ÚR BÆJARLÍFINU Albert Eymundsson Höfn í Hornafirði Hvatningarverðlaun íslensku menntaverðlaunanna 2021 voru af- hent við hátíðlega athöfn á Bessa- stöðum um daginn. Það gladdi Horn- firðinga þegar verðlaunin komu í hlut Vöruhússins á Höfn að þessu sinni. Vöruhúsið, sem er gamla verslunarhús KASK, hefur fengið það hlutverk að vera nýsköpunar-, list- og verkgreinahús og hefur starfað frá árinu 2012. Óhætt er að segja að starfsemin í húsinu sé blóm- leg og fjölbreytt, m.a. Fab Lab. Vöruhúsið hefur skapað sér nokkra sérstöðu sem byggist á stuðningi við formlegt og óformlegt nám í skap- andi greinum og er ætlað að vera vettvangur þverfaglegrar samvinnu þar sem einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki geta nýtt sér góða aðstöðu til fjölbreyttra verkefna, sótt þekk- ingu og treyst tengslanet sín. - - - Af sjávarsíðunni er það að frétta að uppsjávarskipin tvö hófu veiðar á Íslandssíldinni í byrjun nóv- ember. Veiðar hafa gengið vel þótt langt sé að sækja, en síldin hefur öll veiðst í Faxadýpi eins og undanfarin sex ár. Gæði síldarinnar eru fín og megnið af henni farið í vinnslu til manneldis. Bolfiskveiðar ganga ágætlega hvert sem sótt er, á heima- mið eða lengra eins og austur fyrir land og jafnvel út af Vestfjörðum. Undirbúningur fyrir loðnuvertíðina er hafinn af fullum krafti og segja má að bjartsýni og eftirvænting ríki vegna stóraukins kvóta eins og kunnugt er. Almennt er gott hljóð í þeim sem vinna við sjávarútveg þótt humarinn sé enn þá lítill og langt að sækja makrílinn. Þetta sýnir styrk sjávarútvegsins hér að geta aðlagað sig breyttum aðstæðum og afla- bresti í einstaka tegundum. - - - Ferðamenn hafa verið áber- andi hér um slóðir eftir að slakað var á kröfum vegna Covid og umferðin verið langt umfram væntingar. Láta heimamenn í flestum greinum, s.s. af- þreyingu, gistingu og veitingum, vel af aðsókninni. Bæði byrjaði vertíðin fyrr í sumar en áætlað var og náði lengra inn í haustið. Veturinn lítur sömuleiðis vel út m.a. vegna þess að unnt var að fara fyrr en venjulega í vinsælar skoðunarferðir í íshella. - - - Miklar byggingafram- kvæmdir hafa verið í sveitarfé- laginu undanfarin ár. Síðastliðin fimm ár hefur íbúðum af ýmsum gerðum fjölgað um 65 en fimm árin þar á undan aðeins um tíu. Í dag eru 30 íbúðir í byggingu og búið að út- hluta lóðum undir 13 íbúðir. Lóða- skortur er orðin tilfinnanlegur þar sem aðeins eru lausar fjórar einbýlis- húsalóðir. - - - Ljósameistarinn Þorsteinn Sig- urbergsson hélt upp á áttræðisafmælið sitt sl. sunnudag með tónleikum í Hvítasunnukirkjunni á Höfn þar sem vinir og vandamenn sáu um tónlistina. Það væri ekki í frásögur færandi nema að Þorsteinn stundar enn þá vinnu kominn á níræðisaldurinn og aðstoðar fólk, félagasamtök og fyrirtæki við ým- is tækifæri með alvöru ljósabúnað. Þau eru mörg leikverkin sem hann hefur komið að í meira en hálfa öld. Jafn- framt hefur hann í mörg ár í skamm- deginu sett upp veglegt „ljósasjó“ á vatnstankinn í Hrossabithaganum öll- um til gleði og ánægju. Ljósmynd/Vöruhúsið Verðlaun Vilhjálmur Magnússon, forstöðumaður Vöruhússins, og Sigursteinn Traustason, nemandi hans, tóku við hvatningarverðlaunum Íslensku menntaverðlaunanna úr hendi Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands. Hvatning til Hornfirðinga 16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021 Sveitarstjórnir víða um land vilja gera vel í úrgangs- og loftslagsmál- um og hafa gert það en í ljós hefur komið að víða skortir á yfirsýn í úr- gangs- og loftslagsmálum. Flest sveitarfélög hafa gripið til ráðstaf- ana til að lágmarka matarsóun en færri hafa innleitt vistvæna inn- kaupastefnu eða notað vistvæn inn- kaupaviðmið í innkaupum á þeirra vegum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum könnunar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga sem gerð var meðal meðal sveitarfélaga á ýmsum þáttum sem tengjast heims- markmiðum Sameinuðu þjóðanna um neyslu og úrgang annars vegar og loftslagsmál hins vegar. Alls vöruðu 48 sveitarfélög könn- uninni sem stóð yfir í september og október sl. Í umfjöllun sambandsins segir að það veki sérstaka athygli hversu víða virðist vanta yfirsýn yfir stöðu áætlanagerðar, þ.e. gerð svæð- isáætlana fyrir meðhöndlun úrgangs og brunavarnaáætlana. „Báðar þess- ar áætlanir er skylt að vinna skv. lög- um og eiga þær að liggja til grund- vallar í allri vinnu í málaflokkunum. Miklar brotalamir eru samt á að þessar áætlanir séu gerðar og upp- færðar og leiðir könnunin í ljós ákveðið ofmat meðal svarenda varð- andi það að þessar áætlanir séu til og í gildi,“ segir þar. Sorphirðugjald dugar ekki til Fram kemur að í heildina telja 26 sveitarfélög sig hafa í gildi svæð- isáætlun um meðhöndlun úrgangs en skv. upplýsingum Umhverfisstofn- unar sé einungis ein svæðisáætlun í gildi sem nær yfir 18 sveitarfélög. „77% þeirra sveitarfélaga sem svara telja að tekjur af gjöldum vegna meðhöndlunar úrgangs (sorphirðu- gjald) standi ekki að fullu undir kostnaði vegna meðhöndlunar úr- gangs í sveitarfélaginu eins og lagt er upp með í lögum,“ segir í niður- stöðunum. Einungis átta sveitarfélög telja sig hafa innleitt aðferðina Borgaðu-þeg- ar-þú-hendir við innheimtu en nýleg lagabreyting gerir ráð fyrir að öll sveitarfélög verði búin að gera fyrir 1. janúar 2023. „Einungis fjögur af þeim sveitar- félögum sem svara telja sig hafa uppfyllt lagakröfur um gerð stefnu og aðgerðaáætlunar í loftslagsmál- um fyrir sinn rekstur og tvö sveit- arfélög hafa unnið slíkt fyrir sam- félagslega losun á sínu svæði,“ segir þar enn fremur. omfr@mbl.is Vilja gera vel en skortir yfirsýn - 48 sveitarfélög svöruðu í könnun um neyslu, úrgang og loftslagsmál Morgunblaðið/Frikki Sorp Sveitarfélög þurfa að uppfylla lagakröfur um sérsöfnun úrgangs. Svör sveitarfélaga » Ellefu þeirra sveitarfélaga sem svöruðu hafa lagt mat á losun gróðurhúsalofttegunda í sveitarfélaginu, þ.e. unnið los- unarbókhald, og fjögur hafa unnið annars konar mat á los- un. » 26 sveitarfélög segjast hafa hafið sérsöfnun úrgangs skv. núgildandi lögum. » Átta sveitarfélög höfðu ekki sett sér samþykkt um með- höndlun úrgangs. Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Fimmtán ár eru frá stofnun Akur- eyrarAkademíunnar, sem hóf starf- semi sína árið 2006. Starfsemin hef- ur verið fjölbreytt þau ár sem hún hefur starfað, en akademían hefur staðið fyrir um 150 viðburðum í bænum á þessu tímabili og um 100 einstaklingar hafa verið með að- stöðu innan hennar veggja þar sem þeir hafa sinnt fjölbreyttu fræði- starfi. Margrét Guðmundsdóttir, sagn- fræðingur og einn félaga Akureyr- arAkademíunnar, tók saman skýrslu um allt það fræða- og menningar- starf sem fram hefur farið á vett- vangi akademíunnar um 15 ára skeið. Skýrslan ber heitið Sköpun akademína. Verkefni og viðburðir 2006 – 2021. Skýrslan er gefin út til að halda á lofti því sem gert hefur verið og vekja athygli á því merki- lega starfi sem AkAk stendur fyrir. „Hér hefur farið fram afskaplega fjölbreytt og skapandi starf sem auðgað hefur menningu og mannlíf í okkar samfélagi,“ segir Margrét. Háskólanemar áberandi Þeir einstaklingar sem unnið hafa við sín fræðistörf innan AkAk hafa að sögn Margrétar unnið að marg- víslegum verkefnum á nær 50 fræðasviðum. „Þetta er fjölbreytt safn verkefna sem unnið hefur ver- ið að, lokaverkefni í háskólum, rannsóknir af ýmsu tagi, skýrslur, tímaritsgreinar, og margt fleira,“ segir hún. Háskólanemar hafa alltaf verið stór hluti þeirra sem nýta sér að- stöðu hjá AkAk. Þeir stunda nám og störf bæði við innlenda og er- lenda háskóla, en í samantektinni kemur fram að þeir hafi verið við alls 5 innlenda og 11 erlenda há- skóla um tíðina. „Þessi aðstaða sem akademían býður upp á gerir fólki kleift að stunda nám út um allan heim en búa áfram á Akureyri.“ Margrét segir einnig að þess séu dæmi að fólk hafi flutt til Akureyr- ar, tekið störfin með sér þangað og komið sér upp starfsaðstöðu í Ak- ureyrarAkademíunni. Sem dæmi þar um er fólk sem stundar kennslu við innlenda sem erlenda háskóla og tekur þátt í rannsókn- arstarfi á fjölbreyttum fagsviðum. Auk fræði- og vísindamanna hafa listamenn sóst eftir aðstöðu til að vinna við sitt fag og einnig frum- kvöðlar. Eitt af markmiðum aka- demíunnar í upphafi var að fræði- menn sem oft voru einir við sín störf myndu slá sér saman um sameiginlegt húsnæði. Keyptu húsnæði í Sunnuhlíð AkureyrarAkademían var á sín- um fyrstu árum til húsa í hluta af húsnæði gamla Húsmæðraskólans við Þórunnarstræti 99 á Akureyri en þegar fram liðu stundir og rýma þurfti það til að koma annarri starfsemi fyrir lenti akademían á hrakhólum, fór á milli húsa og setti endurtekin húsnæðisleit mark sitt á starfsemina. Fyrir tveimur árum keypti AkureyrarAkademían keypti eigið húsnæði, um 180 fermetra á neðri hæð í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð. Þar er rými fyrir 12 manns og er aðsókn ágæt en enn eru laus örfá pláss. AkureyrarAkademían hefur stað- ið fyrir um 150 viðburðum á starfs- tíma sínum og af ýmsu tagi, fyr- irlestrar, námskeið og ráðstefnur eru áberandi en miðlun út til til al- mennings er einnig í formi sýninga, leiklestra og sögugangna, bóka- kynninga og upplestra sem og tón- listarflutnings. „Fjölbreytnin ræður ríkjum, það má segja að hún sé undraverð, það eru margar leiðir til að miðlunar og þær höfum við notað óspart,“ segir hún. „Þetta er það sem ég er hvað stoltust af í starfi Akureyrar- Akademíunnar, starfsemin er svo margvísleg og leiðirnar til að miðla henni eru fjölbreyttar,“ segir Mar- grét. „Við höfum svo sannarlega auðgað menningarlífið fyrir norðan. Það sem einnig er svo mikilvægt er að með því að fólk úr ólíkum grein- um er undir sama þaki verður til heilmikil deigla. Þekking og reynsla spila saman, hugmyndir verða til og þróast áfram. Það hef- ur verið ómetanlegt að upplifa þetta frjóa samtal sem ríkir innan akademíunnar. Andrúmsloftið og stemmningin hefur alltaf verið einkar góð,“ segir Margrét að end- ingu. Með fjölbreyttar leiðir til að miðla Morgunblaðið/Margrét Þóra Akademían Aðalheiður Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri Akureyrar- Akademíunnar, og Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur. - AkureyrarAkademían fagnar 15 ára afmæli - Um 100 manns verið með aðstöðu hjá akademíunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.