Morgunblaðið - 27.11.2021, Side 22
22 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
vinni að einstökum málum með
öðrum löndum.
Fexe bendir á að þrátt fyrir að
Ísland sé lítið land þá verði hér til
stórar og metnaðarfullar hug-
myndir sem leita þurfi farvegar úti
í heimi. Þar geti Business Sweden
liðsinnt. Íslenskar hugmyndir séu
miklu stærri en landið sjálft. Það
sama eigi reyndar við um Svíþjóð
og sænskar hugmyndir. Nauðsyn-
legt sé fyrir fyrirtækin að taka
áhættu og halda ótrauð af stað út í
heim. „50% af þjóðarframleiðslu
Svía koma af útflutningi og 50%
útflutningsins koma frá erlendum
fyrirtækjum sem hafa fjárfest í
sænskum fyrirtækjum,“ útskýrir
Fexe. „Það er algjört lífsspursmál
fyrir okkur í Svíþjóð að hvetja
fyrirtækin okkar til að verða eins
alþjóðleg og nokkur kostur er og
fá erlend fyrirtæki til að fjárfesta í
sænskum fyrirtækjum.“
Stóreflir möguleika
fyrirtækja
Pétur Þ. Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsstofu, segir
að samningurinn muni stórefla
möguleika íslenskra fyrirtækja til
að sækja á nýja markaði erlendis.
Hann segir að kostnaðarþátttaka
Íslandsstofu geti að hámarki num-
ið 50% af kostnaði við verkefnið
og mest þremur milljónum króna í
hvert verkefni. Þá segir hann að
félag geti að hámarki fengið eitt
verkefni fjármagnað á hverju ári.
Pétur segir aðspurður að nokk-
ur fyrirtæki hafi nú þegar sent
inn fyrirspurnir um þátttöku í
verkefninu, en þeir geirar sem
horft er til eru meðal annars
grænar lausnir, orka, nýsköpun,
tækni og matvæla- og náttúruaf-
urðir. „Þetta eru allt geirar sem
íslensk fyrirtæki hafa mikla þekk-
ingu á og framleiða góðar vörur.
Fyrirtækin hefur hingað til vantað
möguleika til að geta tekið skrefið
lengra út í heim, sem nú er loks-
ins í boði. Samstarfið við Business
Sweden var ákveðið sl. vor og við
höfum verið að prófa það með
nokkrum fyrirtækjum. Þjónusta
sænsku markaðsstofunnar er frá-
bær og gæðin mikil. Við getum
heilshugar mælt með henni. Ég á
von á að þetta fari vel af stað og
spyrjist hratt út,“ segir Pétur.
Finna vaxtartækifæri
Spurður nánar um hvernig
Business Sweden vinni með fyrir-
tækjum segir Fexe að skrifstofan
setjist niður með fulltrúum fyrir-
tækja, skoði með þeim vaxtar-
tækifæri og beini þeim svo í rétt-
an farveg, á skrifstofur í þeim
löndum sem fyrirtækin vilji hefja
útrás til. „Við hjálpum þeim að
gera fyrstu samningana. Það er
mikilvægt að hafa fólk á staðn-
um.“
Vandasamt getur verið að herja
á erlenda markaði og ófá mistök
hafa verið gerð í gegnum tíðina,
mistök sem nauðsynlegt er að
læra af, að sögn Fexe. Hann segir
þó lífsnauðsynlegt að taka skrefið
út í heim með þeirri áhættu sem í
því getur falist. „Ingvar Camprad,
stofnandi IKEA, sagðist til dæmis
aldrei mæla með fyrirtækjum
nema þeim sem gerðu stór mistök.
Það er svo mikilvægt að hafa hug-
rekki til að gera mistök.“
Fexe vonast til að samstarf
skapist einnig á milli íslenskra og
sænskra fyrirtækja. „Í Svíþjóð er-
um við með fullt af flottum fyrir-
tækjum, einkaleyfum, hugmynd-
um og tækni, en ekkert fyrirtæki
getur gert allt á eigin spýtur og
ráðið yfir allri virðiskeðjunni.
Samstarf með fyrirtækjum í sama
geira eða tengdum geirum gerir
gæfumuninn og sum þessara
fyrirtækja gætu einmitt komið frá
Íslandi.“
Fexe nefnir grænar lausnir sér-
staklega í þessu sambandi, enda
sé Ísland víða framarlega í flokki
á því sviði. „Verðmæti tækifæra í
sjálfbærni, grænum lausnum og
heilsugeira á alþjóðavísu eru um
12 trilljónir Bandaríkjadala fram
til ársins 2030,“ segir Fexe.
Lofar frumkvæðið
Hann lofar að lokum frumkvæði
og framsýni Péturs og Íslands-
stofu í málinu, sem hafi haft for-
göngu um að koma samstarfinu á
koppinn. „Fyrir okkur og íslensk
fyrirtæki markar þetta samkomu-
lag algjör tímamót. Nú höfum við
aðgang að þjónustu sem við höfum
aldrei getað boðið áður,“ bætir
Pétur við og nefnir að endingu
mikilvæga aðkomu Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar utanríkisráðherra að
málinu. Hann hafi leikið lykilhlut-
verk í að koma á samningum.
Stærri en landið sjálft
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samstarf Samningurinn stóreflir möguleika íslenskra fyrirtækja í útrás.
- Íslensk fyrirtæki fá aðgang að víðfeðmu neti Business Sweden - 42 skrifstofur í 37 löndum og 450
ráðgjafar - Horft m.a. til grænna lausna, orku, nýsköpunar, tækni og matvæla- og náttúruafurða
Viðskipti
» Þjónustan er veitt á mark-
aðsforsendum.
» Verðlagning fer eftir eðli og
umfangi þjónustu.
» Helmingur þóknunar er
greiddur við undirritun samn-
ings og helmingur við
lok verkefnis.
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Íslensk fyrirtæki með þjónustu
eða vörur sem eru tilbúnar á er-
lenda markaði eiga nú kost á að
sækja fram í gegnum víðfeðmt net
viðskiptafulltrúa Business Sweden,
systurstofu Íslandsstofu í Svíþjóð.
Opinbert hlutverk bæði
Business Sweden og Íslandsstofu
er að styðja við markaðssókn
fyrirtækja á erlenda markaði og
hvetja til fjárfestingar í löndunum
tveimur.
Fyrirtæki geta fengið kost-
naðarþátttöku í verkefnum hjá Ís-
landsstofu. Skilyrði fyrir því er að
viðkomandi félag hafi að minnsta
kosti þrjú stöðugildi á ársgrunni
og velta þeirra sé ekki meiri en
fimm milljarðar króna. Þá þarf
rekstrarhæfi félags að vera tryggt
til næstu tólf mánaða.
450 ráðgjafar í 37 löndum
Stuðningsnet Business Sweden
samanstendur af 42 skrifstofum í
37 löndum og 450 ráðgjöfum. Til
samanburðar er íslenska utanríkis-
þjónustan með viðskiptafulltrúa í
11 löndum.
Eins og Frederik Fexe, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Business
Sweden, útskýrir í samtali við
Morgunblaðið getur markaðsstof-
an til dæmis hjálpað fyrirtækjum
að koma sér upp skrifstofu á fjar-
lægum mörkuðum, aðstoðað við
ráðningu starfsfólks o.fl.
Fexe fundaði með íslenskum út-
flutningsfyrirtækjum fyrir helgi.
Hann segir að samningurinn sé
einstakur að því leyti að hann sé
sá fyrsti sem Business Sweden
gerir við annað ríki, þó stofnunin
til manneldisvinnslu. „Það hefur
mætt mikið á öllum starfsmönnum
fyrirtækisins,“ bætir Gunnþór við.
Á fyrstu níu mánuðum ársins hagn-
aðist Síldarvinnslan um 69,9 millj-
ónir dollara, jafnvirði 9,2 milljarða
króna. Hagnaður fyrirtækisins á
fyrstu níu mánuðum ársins 2020
var til samanburðar 25,4 milljónir
dollara, jafnvirði 3,3 milljarða
króna. Þó verður að taka til greina
að 23,6 milljóna söluhagnaður
myndaðist í bókum félagsins í ár
vegna afhendingar SVN eigna-
félags til hluthafa. Að teknu tilliti
til þess einskiptisliðar eykst hagn-
aðurinn um 82%.
Markaðsvirðið eykst og eykst
Síldarvinnslan hefur verið á mik-
illi siglingu í Kauphöll Íslands frá
því að fyrirtækið var skráð á þann
vettvang í sumar. Hafa bréf félags-
ins hækkað um ríflega 50% og nem-
ur markaðsvirði þess nú 168,3
milljörðum króna.
„Loðnuráðgjöf Hafró var eins og
sprengja sem menn fengu í fangið.“
Þessum orðum fer Gunnþór Ingva-
son, forstjóri Síldarvinnslunnar,
um þau tíðindi sem bárust nýverið
að loðnukvótinn yrði margfaldaður
á yfirstandandi fiskveiðiári miðað
við síðustu ár. Lýsingin fylgir nýj-
asta uppgjöri fyrirtækisins fyrir
fyrstu 9 mánuði þessa árs.
„Loðnuvertíðin verður risavaxið
verkefni og þegar hafa verið teknar
stórar ákvarðanir til að freista þess
að ná að vinna þann kvóta sem gef-
inn var út. Það ríkir bjartsýni hvað
varðar vertíðina og hún á eftir að
verða mikil lyftistöng fyrir sjávar-
útvegsfyrirtækin, starfsfólk þeirra
og samfélagið allt,“ segir Gunnþór.
Hins vegar bendir fyrirtækið á að
hætt sé við að viðskiptabann Rússa
muni bíta fast á komandi vertíð en
þar hefur verið einn stærsti mark-
aður Íslendinga fyrir frosna loðnu
og mikilvægur hrognamarkaður.
Samfelld vaktavinna
Mikil umsvif hafa verið á vett-
vangi fyrirtækisins síðustu mánuði.
Þannig hefur nær samfleytt frá
miðjum júní verið unnið á 12 tíma
vöktum í fiskiðjuveri fyrirtækisins
Viðskiptabann á Rússa bít-
ur fast segir Síldarvinnslan
Morgunblaðið/Eggert
Seyðisfjörður Mikill og góður gangur hefur verið í vinnslunni undanfarna
mánuði og unnið sleitulaust í fiskiðju SVN. Von er á enn meiri umsvifum
vegna loðnuvertíðar sem margir vænta að verði sú stærsta í tvo áratugi.
- Hagnaður fyrirtækisins 9,2 milljarðar það sem af er ári
27. nóvember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 130.98
Sterlingspund 174.39
Kanadadalur 103.35
Dönsk króna 19.768
Norsk króna 14.604
Sænsk króna 14.446
Svissn. franki 140.27
Japanskt jen 1.1359
SDR 182.52
Evra 147.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.8737
« Landsréttur hefur staðfest niður-
stöðu dóms héraðsdóms í svokölluðu
Glitnismáli þar sem þrotabú Glitnis
banka og Orkuveita Reykjavíkur deildu
um uppgjör afleiðusamninga sem orku-
fyrirtækið gerði skömmu fyrir efna-
hagshrunið.
Kemst dómstóllinn að þeirri niður-
stöðu að OR beri að greiða þrotabúinu
747 milljónir króna auk dráttarvaxta
vegna afleiðusamninganna. Samkvæmt
tilkynningu frá OR metur fyrirtækið það
svo að uppgjörsfjárhæð dómsins, mið-
að við árslok 2020, nemi 3.238 millj-
ónum króna að teknu tilliti til dráttar-
vaxta.
Orkuveitan segir jafnframt að fyrir-
tækið kanni nú hvort ástæða sé til að
óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar
Íslands. Ágreiningsins hefur verið getið
í reikningum OR.
Landsréttur staðfestir
kröfur þrotabús Glitnis
STUTT