Morgunblaðið - 27.11.2021, Side 24

Morgunblaðið - 27.11.2021, Side 24
24 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 25 ára reynsla INNFLUTNINGUR AF NÝJUM OG NOTUÐUM BÍLUM VERKSTÆÐI VARAHLUTIR Heilbrigðisyfirvöld um allan heim eru uggandi vegna nýs stökkbreytts af- brigðis kórónuveirunnar sem fyrst uppgötvaðist í Suður-Afríku fyrir skömmu. Er talið að þetta geti verið skæðasta afbrigði veirunnar fram að þessu og að það geti fundið sér leið framhjá áður áunnu ónæmi við veir- unni. Þá er talið að þau bóluefni sem í notkun eru kunni að veita ófullnægj- andi vörn gegn þessu afbrigði. Þetta hefur þó ekki verið sannað. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO lýsti því yfir í gærkvöldi að afbrigðið, sem nefnist B.1.1.529 á tæknimáli, væri afbrigði sem ylli „áhyggjum“, en það er efsta stig viðbúnaðar hjá stofnuninni gagnvart nýjum afbrigð- um. Þá fékk afbrigðið nafnið Ómík- ron. Í gær höfðu aðeins um eitt hundr- að tilvik Ómíkron-afbrigðisins verið staðfest, en það er að uppgötvast í ríkjum víðsfjarri Suður-Afríku, þar á meðal í Hong Kong, Ísrael og Belgíu, og gæti því útbreiðslan orðið allhröð næstu sólarhringana. Þá er talið að fjöldi tilfella í Suður-Afríku sé enn stórlega vanmetinn. Ferðabann á suðurhluta Afríku Bresk stjórnvöld gripu fyrst til þess ráðs í gær að setja alla ferða- menn frá sex löndum í sunnanverðri Afríku í sóttkví við komuna til lands- ins. Sama gerðu Þjóðverjar, Ítalir og Japanir í kjölfarið, og einnig ríki á borð við Ísrael og Singapúr. Þá lýsti Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins, því yfir að rétt væri að stöðva allar komur flugvéla frá sunnanverðri Afríku til landa ESB, og samþykktu aðildarríkin um kvöld- ið að setja ferðatakmarkanir á sjö ríki í suðurhluta Afríku. Stjórnvöld í Kanada og Bandaríkjunum ákváðu í kjölfarið að banna komur frá sömu ríkjum til landa sinna. Ástralir sögðu hins vegar að þeir ætluðu að bíða með takmarkanir á flugferðum frá löndunum í sunnan- verðri Afríku þar til frekari upplýs- ingar um veiruafbrigðið bærust. Áhrif á markaði víða Fréttirnar um nýja afbrigðið voru farnar að hafa áhrif á mörkuðum víða um heim, einum í Asíu, í gær. Lækkuðu hlutabréfavísitölur og einnig verð á olíu. Þá lækkuðu hluta- bréf í flugfélögum og ferðaþjónustu- fyrirtækjum í Evrópu skarpt við fréttirnar um frekari ferðatakmark- anir. Olíuverð hefur verið í miklum hæðum að undanförnu og er ráð- gerður fundur olíuframleiðsluríkja í næstu viku til að ræða hvort auka eigi framleiðsluna. Lækkun olíuverðs gæti þó haft áhrif þar á. Mikil aukning hefur orðið á út- breiðslu kórónuveirunnar víða um heim að undanförnu og hafa mörg Evrópuríki gripið til hertra takmark- ana innanlands og við landamæri. Í gær var ákveðið að taka upp að nýju grímuskyldu í Danmörku og Portú- gal. Víða í Evrópulöndum er þess nú krafist að fólk sýni skírteini um bólu- setningu á opinberum stöðum. Þá ákváðu stjórnvöld í Hollandi að herða enn á sóttvarnaaðgerðum sín- um, þrátt fyrir óeirðir sem brutust út gegn þeim um síðustu helgi. Afbrigði vekur ugg á heimsvísu - Ómíkron-afbrigðið hefur borist víða um heim á stuttum tíma - Gripið til ferðatakmarkana í mörgum löndum - Óttast að útbreiðslan verði allhröð á næstu vikum - Sóttvarnaaðgerðir hertar í Evrópu AFP Faraldurinn Farþegi frá Suður-Afríku, sem gisti á Regal-flugvallarhótelinu í Hong Kong, greindist með nýja afbrigðið og smitaði mann í sóttkví þar. Nýtt veiruafbrigði B.1.1.529 Fyrst skráð: Nóvember 2021 Heimild: Nature Tilkynnt í: Suður-Afríku Helstu stökkbreytingar á broddprótíni veirunnar Uppgötvunin kemur fram á sama tíma og smittilfellum fjölgar í Suður-Afríku Mikill fjöldi stökkbreytinga á brodd- svæðinu semmótefni þekkja og það getur dregið úr ónæmi Helstu áhyggjuefni Breytingar á broddi geta auðveldað veirunni að komast inn í frumur Emmanuel Macron, forseti Frakklands, og Mario Draghi, forsætisráðherra Ítalíu, undirrituðu í Róm í gær sáttmála á milli ríkjanna sem kveður á um stór- aukið pólitískt og efnahagslegt samstarf þeirra á milli. Löngum hefur verið togstreita á milli ríkjanna. Talið er að sáttmálinn geti styrkt þau bæði við það tómarúm sem skapast í evrópskum stjórnmálum þegar Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, nýtur ekki lengur við. Frakkar og Ítalir gera með sér samstarfssáttmála Nýtt pólitískt bandalag í Evrópu AFP Stjórnvöld í Bretlandi og Frakk- landi deildu hart í gær vegna bréfs sem Boris Johnson forsætisráðherra sendi Emmanuel Macron forseta Frakka um viðbrögð við flótta- mannavandanum í Ermarsundi. Johnson bað Frakka um að taka þegar í stað við öllu flóttafólkinu sem komið hefur ólöglega til Bret- lands frá Frakklandi. Þetta gramd- ist Frökkum, ekki síst að bréfið skyldi birt opinberlega, og afboðuðu í skyndingu fund um flóttamanna- málið sem innanríkisráðherra Frakka ætlaði að halda með innan- ríkisráðherra Breta. 27 flóttamenn drukknuðu fyrr í vikunni á leið sinni til Bretlands skammt undan strönd Calais í Frakklandi. Er þetta eitt mann- skæðasta sjóslys sem þar hefur orð- ið. Hétu stjórnvöld í löndunum tveimur því í kjölfarið að skera upp herör gegn glæpagengjum sem að- stoða flóttafólk við þessar áhættu- sömu siglingar. Bretar eru reiðir Frökkum vegna málsins og telja að þeir standi sig ekki nógu vel í að hindra ferðir flóttafólksins. Frakkar og Bretar í hár saman vegna flóttamanna - Samráðsfundi innanríkisráðherra landanna aflýst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.