Morgunblaðið - 27.11.2021, Síða 30

Morgunblaðið - 27.11.2021, Síða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021 B etra er seint en aldrei. Það von- aði ég í það minnsta þegar ég paufaði við að pota nið- ur haustlaukum í hálf- freðna moldina í blóma- beðinu við húsið mitt í vikunni. Það er víst ekki seinna vænna að ljúka haustverkunum áður en aðventan gengur í garð! Þarna kúra laukarnir í vetur og bíða síns tíma. Þeir kúra í mjúku myrkrinu ofan í jörðinni, með skammdegisdimmuna allt um kring, og vænta þess að rísa úr jörðu að vori og gleðja okkur með litríkum blóm- blöðum. Fáar þjóðir þekkja vetrarmyrkur jafnvel og við Íslendingar. Það er skiljanlegt að mörg okkar hafi hálf- gert óþol fyrir þessum dimmu dög- um, þegar sólin nær vart að rísa, til þess eins að hverfa okkur aftur sjón- um. Trúlega tala myndlíkingar um ljós og myrkur því alveg sérstaklega sterkt til okkar þjóðar. Þess háttar myndmál finnum við víða í menning- unni. Í fallega barnaleikritinu um Benedikt búálf, sem er á fjölunum hjá Leikfélagi Akureyrar, þurfa til dæmis hinir góðu og björtu álfar að gæta ljóssins fyrir vélabrögðum svartálfanna, því að án ljóssins tekur illskan völdin. Kristið fólk hér á landi, líkt og víða um heim, notar ljósið gjarnan sem tákn um von trúarinnar og náð Guðs andspænis sorg, dauða og synd. Orð Jesú sjálfs veita okkur mörgum huggun á erfiðum tímum, þegar hann segir: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins.“ Enginn árstími minnir jafnsterkt á þennan boðskap og ein- mitt aðventa og jól. Kertaljósin sem við tendrum á að- ventukransinum tala til okkar með þessum hætti. Ljósið mikla er að koma í heiminn með fæðingu Jesú Krists. Við erum hvött til að láta ljós trúarinnar á Jesú kvikna innra með okkur og leyfa því að leiða okkur. En allar myndlíkingar eiga sín takmörk. Þegar kemur að því að lýsa eðli Guðs, eða sambandi manneskj- unnar við skapara sinn, verða tak- mörkin enn skýrari. Og sá sem hefur skapað bæði ljós og myrkur – býr sá Guð ekki líka í myrkrinu? Ég var að ræða við nokkra íbúa á hjúkrunarheimilinu hér á Egils- stöðum fyrr í mánuðinum, og varð að orði að nú værum við farin að finna vel fyrir skammdegismyrkrinu. „Já, það er gott!“ svaraði þá ein í hópnum ákveðin; djúpvitur og lífsreynd kona. Skyldi hún ekki hafa á réttu að standa? Ætli skammdegismyrkrið geti ekki verið gott, eftir allt saman? Ég verð að viðurkenna að ólíkt við- mælendum mínum á hjúkrunarheim- ilinu þekki ég ekki veröldina án raf- magns, þegar myrkfælni var algeng og sumir óttuðust það sem búið gæti úti í þéttu og svörtu náttmyrkri. Við eigum það hins vegar sameiginlegt að þekkja hvíldina sem dimman get- ur veitt þeim þreytta, eins og mjúkt, svart og kærkomið teppi. Við eigum það líka sameiginlegt að hafa upp- lifað djúpa fegurð undir vetrarhimni: stjörnurnar, tunglið og norðurljósin, sem öll þarfnast alvörumyrkurs til að njóta sín – og jafnvel fegurðina í skýjaþrungnu, birtulausu kvöldi. Við aðstæður eins og þær sem hér hafa verið taldar upp öðlast hugtakið „ljósmengun“ merkingu. Það er svo merkilegt að þrátt fyrir hið sterka, kristna myndmál um ljós- ið finnum við líka í Biblíunni ótal dæmi um hvernig myrkrið, nóttin og hið dökka hafa jákvæða skírskotun. Í Fyrstu Mósebók birtist Guð Abra- ham að nóttu, segir honum að líta til himins og telja stjörnurnar ef hann geti, því að svo margir muni niðjar hans verða (1. Mós. 15.5). Á öðrum stað í Gamla testamentinu mælir Sal- ómon konungur að Drottinn hafi „sagt að hann vilji búa í myrkri“ (1. Kon. 8.12). Í guðspjöllunum eiga margir af mikilvægustu atburðunum í lífi Jesú sér einmitt stað þegar dimmt er úti. Fæðing Jesú er þannig tengd í frá- sögnum guðspjallamannanna bæði við stjörnuna á næturhimninum (Matt. 2.10-11) og við hirðana sem „gættu um nóttina hjarðar sinnar“ (Lúk. 2.8). Upprisa Jesú á sér líka stað þegar enn er myrkur (Jóh. 20.1). Myrkrið getur semsé verið sá vett- vangur, þar sem undrin gerast. Myrkrið er vettvangur, þar sem Guð mætir manneskjunni. Og undrin eru víða í myrkrinu. Í hlýju rökkri móðurkviðarins mótast nýtt líf. Barnið, sem þroskast þar og dafnar í öryggi sínu, er umvafið dimmunni mildu, líkt og væri það umfaðmandi móðurást Guðs við okk- ur öll. Haustlaukarnir mínir bíða í vetur í myrkri moldarinnar, líkt og annar jarðargróður sem hvílist og býr sig undir vorið með þeim hætti sem ég kann ekki að skýra. En Guð er þar að verki, sá Guð sem stöðugt skapar og starfar, elskar og umvefur, í myrkri jafnt sem ljósi. Orðið „skuggi“ hefur oft neikvæða merkingu á íslenskri tungu, til að mynda þegar talað er um að standa í skugga einhvers. Í hitanum hér á Austurlandi síðasta sumar var skugginn þó gjarnan kærkominn, þar sem hann veitti skjól og hlé frá sólinni, sem yljaði okkur svo oft. Þetta þekkja íbúar heitari landa vita- skuld betur en Íslendingar. Þetta er bakgrunnur myndmálsins í Davíðs- sálmi 91, þar sem trúartrausti er líkt við að dvelja í skugga Guðs. Ég er viss um að Drottinn vilji mæta bæði þér og mér, með ein- hverjum hætti, á þessari aðventu. Skyldi það kannski einmitt verða skammdegismyrkrið, sem mun birt- ast okkur líkt og skugginn af vernd- andi vængjum okkar elskandi Guðs? Eftir Þorgeir Arason Skyldi það kannski einmitt verða skammdegismyrkr- ið, sem mun mæta þér og mér nú á aðventunni, líkt og skugginn af verndandi vængjum elskandi Guðs? Þorgeir Arason Höfundur er sóknarprestur Egilsstaðaprestakalls. thorgeir.arason@kirkjan.is Ljósmynd/ÞA Kirkjubæjarkirkja Hugvekja Kirkjan til fólksins Í mjúku myrkri Ljósmynd/ÞA Egilsstaðakirkja AKUREYRARKIRKJA | Sunnudagaskólinn fellur niður. Helgistund verður streymt frá Akureyrarkirkju kl. 20 á Facebook-síðunni Viðburðir í Akureyrar- kirkju – Beinar útsendingar. Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Vegna samkomutak- markana fellur hin hefðbundna guðsþjónusta niður en sunnudagaskólinn er á sínum stað kl. 11 í umsjá Andreu Önnu Arnarsdóttur og Sig- urðar Óla. Söngur, Biblíusaga, brúðuleikhús. ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 13. Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákni annast samverustund sunnudagaskólans. Séra Sig- urður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Hljómfélagið syngur undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Organisti er Bjartur Logi Guðna- son. Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 14.15. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjón- ar fyrir altari. Organisti er Bjartur Logi Guðna- son. Almennur söngur. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni hafa Sigrún Ósk, Pétur og Þórarinn. Helgistund í Bessastaðakirkju kl. 17 í umsjá djáknanna Margrétar Gunnarsdóttur og Vilborg- ar Helgu Sigurðardóttur. Ástvaldur Traustason er organisti. BLÖNDUÓSKIRKJA | Aðventuhátíð kl. 17. Kristmundur Valberg flytur hugleiðingu. Ferm- ingarbörn flytja helgileik og söngatriði. Kórfólk úr Þingeyraprestakalli syngur undir stjórn Ey- þórs Franzsonar Wechner. Óliver Pálmi Ingvars- son leikur á trompet og Benedikt Blöndal á hljómborð. Við syngjum inn aðventuna. Kirkj- unni er skipt í þrjú sóttvarnahólf og það er grímuskylda. Bryndís Valbjarnardóttir sóknar- prestur. BORGARNESKIRKJA | Aðventuguðsþjónusta kl. 11. Séra Anna Eiríksdóttir og séra Þorbjörn Hlynur Árnason þjóna í athöfninni og kirkjukór Borgarneskirkju leiðir sálmasöng undir stjórn Steinunnar Árnadóttur organista. Vegna sóttvarnareglna miðast fjöldi kirkjugesta við 50. Vinsamlegast skráið þátttöku hjá sókn- arpresti á netfangið borgarkirkja@simnet.is. BREIÐHOLTSKIRKJA | Aðventuguðsþjónuata kl. 11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar. Örn Magnússon organisti og kór kirkjunnar leiða sönginn. Sunnudagaskóli á sama tíma. Alþjóð- legi söfnuðurinn kl. 14. Prestar eru Toshiki Thoma og Ása Laufey Sæmundsdóttir. BÚSTAÐAKIRKJA | Fyrsti sunnudagur í að- ventu og fjölskyldumessa kl. 11. Hugvekja, sjáum leikrit með Rebba og Mýslu og syngjum aðventu- og jólalög. Jónas Þórir spilar á flygilinn og Sóley Adda, Kata og sr. Eva Björk þjóna. At- hugið að fyrirhugaðri afmælishátíð er frestað. DIGRANESKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Hjallakirkja kl. 17. Guðsþjónusta. Sr. Sunna Dóra Möller og Lofgjörðarhópur Hjallakirkju. DÓMKIRKJAN | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sveinn Valgeirsson prédikar, sr. Elínborg Sturlu- dóttir þjónar fyrir altari. Dómkórinn og Kári Þor- mar dómorganisti. Klukkan 13 er djáknavígsla, biskup Íslands vígir Vilborgu Ólöfu Sigurðardótt- ur. Sænsk guðsþjónusta kl. 14.30. Prestur er Guðrún Karls Helgudóttir. Gætum vel að sótt- vörnum. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 10.30. Mýsla og Rebbi láta sig ekki vanta. Aðventa með Schubert: Aðventutónleikar Kammerkórs Egilsstaðakirkju ásamt hljómsveit kl. 17. Stjórnandi er Torvald Gjerde. Aðgangs- eyrir er 2.500 kr, 1.500 kr. fyrir eldri borgara, ör- yrkja og námsmenn, frítt fyrir börn. Enginn posi á staðnum. Ath. Tónleikagestir þurfa að sýna neikvætt Covid-hraðpróf og bera grímur. FELLA OG HÓLAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Aðventukvöld kl. 20. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- málaráðherra flytur ávarp. Kór kirkjunnar ásamt Arnhildi Valgarðsdóttur, organista og Grétu Sal- óme, fiðluleikara. Þátttakendur á aðventukvöldi verða að sýna fram á neikvæða niðurstöðu hraðprófs frá Heilsugæslu. GARÐAKIRKJA | Ljósastund kl. 15.30. Sr. Henning Emil Magnússon. Sigrún Waage flytur ávarp. Ragnheiður Gröndal syngur við undirleik Guðmundar Péturssonar. Streymt á facebook.com/vidalinskirkja GRAFARVOGSKIRKJA | Aðventuhátíð í heimasíðu Grafarvogskirkju kl. 13. Eins verður hún á Facebook- og Instagram- síðum kirkjunnar. Barna- og unglingakórinn syngur. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn flytur hugleiðingu. Sunnudagaskólinn kl. 11. Guðs- þjónustu í Grafarvogskirkju kl. 11 er aflýst. Sel- messu í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13 er aflýst. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Fiðluhópur úr Suzuki-tónlistarskólanum í Reykjavík. Séra Þorvaldur Víðisson þjónar ásamt messuhópi, Ástu Haraldsdóttur organ- ista og Kirkjukór Grensáskirkju. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12. Fimmtudagur: Núvitundar- stund kl. 18:15-18:45, einnig á netinu. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Sunnu- dagaskólinn kl. 11. Prestur er Pétur Ragnhild- arsonar. Tónlistarflutningur í umsjá Hrannar Helgadóttur organista. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kveikt á fyrsta aðventukertinu. Skátar bera inn friðarljósið frá Betlehem. Prestur er Jón Helgi Þórarinsson. Organisti er Guðmundur Sig- urðsson. Félagar í Barbörukórnum syngja. Sunnudagaskóli á sama tíma. Vegna sóttvarn- arreglna mega aðeins 50 manns koma í stund- ina. Grímuskylda fyrir fullorðna. Nánar: www.hafnarfjardarkirkja.is. HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Guðsþjónustunni verður út- varpað. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurð- ardóttir prédikar. Sr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Eiríkur Jóhannsson þjóna fyrir altari. Messu- þjónar aðstoða. Organisti er Björn Steinar Sól- bergsson. Kór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Steinars Loga Helgasonar. Upphaf jóla- söfnunar Hjálparstarfs kirkjunnar. Barnastarf er í kórkjallara, gengið er inn að aftanverðu, aust- anmegin. HAUKADALSKIRKJA | Messa kl. 13. Fjár- sjóðskista fyrir börnin. Aðalsafnaðarfundur og kirkjukaffi á eftir á Hótel Geysi hjá Mábil Gróu Másdóttur. Organisti er Jón Bjarnason. Sr. Krist- ján Björnsson biskup þjónar fyrir altari og pré- dikar. HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Guðmundur Einar Jónsson leikur einleik á gítar. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Mikill almenn- ur söngur undir stjórn organistans, Guðnýjar Einarsdóttur. Prestur er Helga Soffía Konráðs- dóttir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnudagaskóli í Digraneskirkju sunnudag kl. 11. Öll börn og for- eldrar velkomin. Hjallakirkja kl. 17. Guðsþjón- usta. Sr. Sunna Dóra Möller og Lofgjörðarhópur Hjallakirkju. HJÚKRUNARHEIMILIÐ Skjól | Guðsþjón- usta kl. 14.15. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Almennur söngur. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma kl. 13. Barnastarf, lofgjörð og fyrirbænir, ásamt fáeinum nýjungum. Ólafur H. Knútsson flytur stutta hugvekju. Kaffi að samverustund lokinni. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Séra Fritz Már Þjónar fyrir altari, Arnór Vilbergs og félagar úr kór Keflavíkurkirkju flytja tónlist og leiða sálmasöng. Sunnudagaskólinn á sama tíma í Kirkjulundi undir leiðsögn Helgu, Marínar og Grýbosar. KIRKJA heyrnarlausra | Messa í Grensás- kirkju kl. 14. Táknmálskórinn syngur undir stjórn Eyrúnar Ólafsdóttur. Sr. Kristín Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi eftir messu. KÓPAVOGSKIRKJA | Tónlistarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðar- heimlilinu Borgum. LANGHOLTSKIRKJA | Aðventustund barnanna kl. 11. Barnakórarnir Graduale Liberi og Graduale Futuri syngja undir stjórn Bjargar Þórsdóttur, Móeiðar Kristjánsdóttur og Dagnýj- ar Arnalds. Aðventusamvera kl. 17. Kór Langholtskirkju og Gradualekór Langholtskirkju syngja undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organista og Lilju Daggar Gunnarsdóttur. Guðbjörg Jóhannesdótt- ir sóknarprestur þjónar ásamt messuþjónum og kirkjuverði. Kirkjunni verður skipt í rými og örygg- is gætt. NESKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta og barna- starf kl. 11. Drengjakór Reykjavíkur syngur und- ir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða almennan söng undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur org- anista. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björns- dóttir. Barnastarfið er í safnaðarheimilinu og er gengið beint þangað inn. Umsjón hafa Kristrún Guð- mundsdóttir og Ari Agnarsson. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Reggimessa og barnastarf í kirkju Óháða safnaðarins sunnudag kl. 14. Séra Pétur þjónar og Óháði kórinn leiðir messusöng undir stjórn Kristjáns Hrannars, slagverk er í höndum Óskars Kjartanssonar og Karls Kristjáns Daviðssonar. Við verðum með tvö sóttvarnarhólf. Guðrún Halla aðstoðar og Ólafur taka á móti kirkjugestum. Munum að huga að sóttvörnum. SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Guðs- þjónusta kl. 13, sr. Bryndís Malla Elídóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari, Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Ástin og hugrekkið. Sr. Petrína Mjöll Jó- hannesdóttir talar. Léttmessa og sunnudaga- skóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkórnum syngja. Kaffiveitingar eftir at- höfn. Stund fyrir eldri bæjarbúa þriðjudag kl. 14. Valdimar Sverrisson verður með gamanmál. Þjóðlegar veitingar á kr. 500. Fólk beðið að til- kynna komu sína áður í síma 899-6979. Kyrrð- arstund miðvikudag kl. 12. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Spádómakertið tendrað. Fjársjóðskista fyrir börnin. Organisti er Jón Bjarnason. Sr. Kristján Björnsson, biskup, þjónar fyrir altari og prédik- ar. ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 14. Kirkjudagur kvenfélagsins. Kvenfélagskonur annast lestra. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Keiths Reed. VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli í Urriða- holti kl. 10 og í safnaðarheimilinu kl. 11. Helgi- stund kl. 11. Sr. Henning Emil. Særún Rúnu- dóttir syngur, Jóhann Baldvinsson leikur á orgel. Hátíðarguðsþjónusta með þátttöku Kvenfélags Garðabæjar kl. 11. Sr. Henning Emil þjónar. Jóna Rún Gunnarsdóttir flytur hugvekju. Bjarnd- ís Lárusdóttir og Auður Guðmundsdóttir lesa lestra. Peter Thompkins leikur á óbó, Erla Björg Káradóttir syngur ásamt Kór Vídalínskirkju, stjórnandi Jóhann Baldvinsson. Einungis í streymi á Facebook. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Reykjahlíðarkirkja Messur á morgun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.