Morgunblaðið - 27.11.2021, Page 33

Morgunblaðið - 27.11.2021, Page 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021 ✝ Gunnar Helgi Hjartarson, fyrrverandi skóla- stjóri Grunnskól- ans í Ólafsvík, fæddist í Brekku- bæ, Silfurgötu 9b í Stykkishólmi, 16. desember 1932. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 20. nóv- ember 2021. Foreldrar hans voru hjónin Kristrún Zakaríasdóttir hús- móðir, f. 11. maí 1894, d. 20. janúar 1961, og Hjörtur Guð- mundsson, kaupmaður í Stykk- ishólmi, f. 13. apríl 1901, d. 2. júní 1987. Gunnar átti tvö systkini, þau Zakarías Hólm, f. 12. maí 1924, d. 15. október 2009, og Hjört- fríði, f. 8. ágúst 1926, d. 16. mars 2008. Hinn 17. desember 1953 kvænist hann Guðrúnu L. Guð- mundsdóttur (Bíbí) úr Stykk- ishólmi, f. 21. maí 1935, d. 15. apríl 2006. Börn þeirra eru: 1) Albína Helga, f. 20. maí 1954, maki Baldur Guðni, börn þeirra eru Gunnar Helgi, maki Laufey Helga, og börn þeirra Gunnar seinni konu sinni, El- ísabetu Jónu Ingólfsdóttur frá Hnífsdal, og á hún sjö börn fyr- ir, þau eru Halldór Ingi, Guð- björn Ingólfur, Þórir Hvanndal, Trausti Hvannberg, Atli Árdal, Auður Helga og Ágúst Heimir Ólafsbörn. Gunnar ólst upp í Stykkis- hólmi og lauk þar barna- og gagnfræðaskóla. Að loknum gagnfræðaskóla lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hann fór í Kennaraskóla Íslands og lauk þar námi 1954. Þá fluttust þau til Ólafsvíkur þar sem hann varð kennari og árið 1970 verður hann skólastjóri. Gunn- ar lét af störfum sem skóla- stjóri árið 1999 eftir 45 ára starf við Grunnskólann í Ólafs- vík. Gunnar var virkur í félags- störfum, var meðal annars í kirkjukórnum, Rótarýklúbbn- um, leikfélaginu, einn af stofn- endum Golfklúbbsins Jökuls og var í stjórn félags eldri borg- ara. Á sínum efri árum stofnuðu þeir félagar Gunnar, Vigfús K. Vigfússon, Bjarni Ólafsson og Stefán Jóhann Sigurðsson kvartettinn Hinir síungu og voru undir stjórn Valentinu Kay. Gáfu þeir út tvo geisla- diska. Útför Gunnars Helga fer fram frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 27. nóvember 2021, klukk- an 14 og verður streymt frá út- förinni. eru Matthías Daði og Bríet Sunna. Sæunn Dögg, maki Michael Gluszuk, og börn þeirra eru Svanfríður Dögg, Victor Rúrik og Sunna Dögg. 2) Hildur, f. 21. febr- úar 1956, maki Ólafur, börn þeirra eru Rögnvaldur, maki Kristín Arn- fjörð, og börn þeirra eru Sús- anna Sól, Vigfús Kristinn, Díana Eik og Embla Eik. Örv- ar, maki Erla Gunnlaugsdóttir, börn þeirra eru Bjarki Freyr, Arna Eir og Brynjar Óli. Jón Steinar, maki Kristfríður Rós, barn þeirra er Ólafur Örvar. 3) Guðmundur Rúnar, f. 22. jan- úar 1961, maki Þorbjörg Hösk- uldsdóttir, börn þeirra eru Hallveig Hörn, maki Vigfús Elvan, börn þeirra eru Guðrún Elvan, Emilý Elvan og Ísafold Eyja Elvan. Höskuldur Goði, maki Eyrún Dröfn, börn þeirra eru Jóel Orri og Harpa Líf. Hjörtur, maki Rebekka Heim- isdóttir. 4) Rakel Ósk, f. 6. des- ember 1976, maki Ólafur, börn þeirra eru Silja og Aníta. Hinn 15. júlí 2014 kvænist Í dag þegar ég kveð ástkæran eiginmann minn og minn besta vin er mér efst í huga þakklæti fyrir allar gleðistundirnar sem við áttum saman. Stundirnar með Hinum síungu og ferðalögin með þeim bæði innanlands og utan. Þakklæti fyrir sönginn, spilin, glettnina og hláturinn. Fyrir árin okkar í Ólafsvík. Þakklæti fyrir allar ferðirnar vestur í Djúp þar sem við áttum sælureit sem við nutum ásamt vinum, ættingjum og ekki síður bara við tvö. Þessi ár hafa verið dýrðleg og munu minningar um árin okkar saman ylja mér um hjartarætur alla mína daga. Nú er ei annað eftir en inna þakkar-mál og hinstri kveðju kveðja þig, kæra, hreina sál. Þín ástarorðin góðu og ástarverkin þín. Í hlýjum hjörtum geymast, þótt hverfir vorri sýn. (Einar H. Kvaran.) Elísabet Jóna. Fallinn er nú frá tengdafaðir minn Gunnar Hjartarson, ég man hann fyrst þegar ég sem ungur strákur fór að venja komur mínar til Gunnars og Bíbíar í Stekkjar- holtinu þegar ég var að eltast við Hildi. Strax frá fyrsta degi var mér tekið opnum örmum af þeim sæmdarhjónum. Með okkur Gunnari tókst frá fyrstu kynnum mikil vinátta. Það vildi svo vel til að við höfðum sömu áhugamál, laxveiði og skotveiði. Margar ferðirnar fórum við á rjúpu hér á árum áður, þá var hægt að fara hvert sem okkur langaði, því að það voru ekki margir sem stund- uðu veiðar þá, yfirleitt fengum við góðan veiði, það var farið mik- ið í stuttar ferðir yfirleitt eftir skóla hjá tengdó, en á helgum var farið snemma og verið bróður- partinn af deginum. Ein ferð stendur upp úr þegar við fórum upp í Gerðuberg snemma morg- uns í blíðskaparveðri, en upp úr þrjú skall á blindhríð, vorum við þá komnir upp í borgirnar, við kölluðumst á og ákváðum að fara niður í bíl sem var niður við stíflu, en bylurinn var svo mikill að við sáum varla tærnar, það er skemmst frá því að segja að við gengum fram á vatnsleiðsluna úr lindunum í Gerðuberginu og fikr- uðum okkur niður í Ólafsvík, þetta tók um þrjá klukkutíma, blautir og hraktir komum við í Stekkjarholtið, og þar tók Bíbí við okkur með þeim kræsingum og kökum sem hún var þekkt fyr- ir. Veiðiferðirnar í Miðá í Dölum voru fastur punktur, Gunnar var einn af leigutökum og fórum við saman á hverju sumri í Dalina. Einnig hafði hann gaman af að koma með okkur feðgum í Laug- ardalsá við Djúp, þar sem hann sá um að matreiða og hafði gam- an af. Besti kostur Gunnars var hversu mikið jafnaðargeð hann hafði, það var sjaldan sem hann skipti skapi. Það var mikið högg fyrir hann þegar hann missti eig- inkonu sína til margra ára hana Bíbí árið 2006. Seinni kona Gunn- ars er Elísabet Jóna, ættuð frá Rauðamýri við Djúp, var hún hans stoð og stytta þangað til yfir lauk. Að lokum vil ég þakka Gunnari fyrir hlýhug og kærleika við strákana okkar Hildar. Guð blessi minningu Gunnars Ólafur Rögnvaldsson. Í dag kveðjum við kæran sam- starfsmann, Gunnar Hjartarson, fyrrverandi kennara og skóla- stjóra við Grunnskólann í Ólafs- vík. Hann starfaði samfellt við skólann í 45 ár, sem kennari í 16 ár og skólastjóri í 29 ár. Gunnar var hvers manns hug- ljúfi og var umhugað um að öllum í skólanum liði vel, bæði nemend- um og starfsfólki. Hann sýndi nemendum væntumþykju og reyndi að finna lausnir fyrir þá sem ekki rákust með fjöldanum og vildi stuðla að því að byggja upp sjálfstraust nemenda og gera þá að nýtum þjóðfélagsþegnum. Gunnar hafði mikinn áhuga á sögu skólans og hélt til haga ýms- um gögnum til að varðveita sög- una fyrir komandi kynslóðir. Í dag njótum við góðs af því. Á þessum tíma tíðkaðist að einkunnir nemenda væru hand- skrifaðar. Gunnar hafði fallega rithönd og handskrifaði einkunn- ir nemenda sem voru að útskrif- ast úr skólanum. Gunnar var skemmtilegur og fróður maður og gott var að leita til hans þegar kennarar þurftu á að halda. Hann var hrókur alls fagnaðar og hafði góða nærveru. Hann var höfðingi heim að sækja og ekki var verra að komast í hin- ar gómsætu tertur sem Bíbí hafði bakað. Við kveðjum Gunnar með söknuði og þökkum honum góða samfylgd. Fjölskyldu hans send- um við okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Samstarfsfólk í Grunnskólan- um í Ólafsvík, Elfa Ármannsdóttir. Gunnar Helgi Hjartarson ✝ Snorri Harð- arson fæddist á Selfossi 25. maí 1986, sonur Sigríð- ar Ásu Einarsdótt- ur og Harðar Sig- urjónssonar. Hann var yngstur í systkinahópnum en eldri eru Einar Jón Kjartansson, f. 1970, Soffía Guð- rún Kjartans- dóttir, f. 1973, og Davíð Ernir Harð- arson, f. 1982. Snorri átti heima á Selfossi til sex ára aldurs en þá flutti fjölskyldan til Reykjavíkur. Útförin fór fram frá Selfosskirkju 22. október 2021. Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra mál ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum) Hvernig getur maður kvatt yngsta barnið sitt? Minningabrotin birtast, hvert af öðru. Selfoss 25.5. 1986 – stór drengur fæddur á Sjúkrahúsi Suð- urlands, 22 merkur og 59,5 cm. Læknirinn segir eftir fyrstu skoð- un „að ljósmóðirin skuli nú hafa lát- ið sig muna um þennan hálfa senti- metra“. Við heima, kúrðum saman og fléttuðum fingur, önnur höndin stór, hin smá. Lítill snáði með ljósar krullur. Lítil hönd í lófa mömmu. Vetur. Ungur drengur úti í garði í snjógalla og með snjógleraugu kemur inn til mömmu og segir: „Mamma, viltu taka snjóinn úr gleraugunum mínum.“ Ég skil ekki hvernig snjórinn komst inn undir gleraugun, svo ég segi: „Hvernig komst snjórinn undir gleraugun?“ „Ég var að horfa upp í himininn, ég var að tala við Guð.“ „Um hvað vor- uð þið að spjalla?“ spyr ég. „Ég var bara að biðja hann að taka mig til sín þegar ég dey.“ Þegar þú kvartaðir undan því hvað ég gengi hratt á leið okkar í leikskólann og hversu fljótt hlut- verkin snerust við og þú varðst langtum stórstígari en ég. Þegar þú spurðir mig um trú- mál fyrir fermingu og umræð- urnar og vangavelturnar sem við áttum. Þú ákvaðst að láta ferma þig og varst mjög ánægður með daginn þinn. Þú, unglingur. Við tvö bjugg- um saman, stóru systkinin flutt að heiman. Við saman að skoða veggja- krot sem þú hafðir mikinn áhuga á. Hringdir, sagðir mér frá kett- lingi sem hefði elt þig ítrekað og spurðir hvort þú mættir taka hann að þér ef eigandinn fyndist ekki. Ég hugsaði mig um, tvisvar. Velti því fyrir mér hver kæmi til með að annast köttinn. Hugsaði svo að það væri eflaust bara gott og þroskandi að annast dýr og bera ábyrgð á því. Eigandinn fannst ekki og aldrei þurfti ég að iðrast þess að hafa leyft þér að taka Dimmu að þér. Þú orðinn fullorðinn. Þegar þú, langtum hærri en ég, kysstir mömmu á kollinn og sagðir: „Ég elska þig gamla.“ Þegar félagar þínir átöldu þig fyrir að kalla mömmu þína „gömlu“ heyrði ég bara fegurstu tónlist, vissi hvað það táknaði okkar á milli. Hvað það var gott að vera í ná- vist þinni. Öll gleðin, kímnin og hlýjan sem þú veittir okkur. Öll faðmlögin. Öll skilaboðin, skemmtilegu brandar- arnir og dýramyndböndin. Öll sím- tölin, stundum nokkur á dag. Símtölin okkar verða ekki fleiri elsku Snorri minn. Ef líf er að loknu þessu vona ég að ég verði ennþá hún „gamla þín“. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Þín mamma. Snorri Harðarson Sálm. 14.2 biblian.is Drottinn horfir á mennina af himnum ofan til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs. HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Elskuleg móðir okkar, amma og langamma, ELÍSABET GUÐMUNDSDÓTTIR, lést í faðmi ástvina sunnudaginn 14. nóvember á hjúkrunarheimilinu Hömrum, Mosfellsbæ. Útförin hefur farið fram. Guðm. Þorlákur Guðmundsson Katrín Karlsdóttir Helga Guðmundsdóttir Roman Cakir Bjarni Guðmundsson Ingibjörg Jóna Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra ANNA BALDRÚN SIGMUNDSDÓTTIR, Dvergholti 1, Hafnarfirði, lést á heimili sínu 30. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðalsteinn Árni Benediktsson Íris Benediktsdóttir Snjólaug Benediktsdóttir Jóhanna Davíðsdóttir Guðlaug Jóhannesdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓSEF MAGNÚSSON flautuleikari, lést sunnudaginn 14. nóvember. Útför hefur farið fram i kyrrþey að ósk hins látna. Magnús Yngvi Jósefsson Sigríður Guðsteinsdóttir. Ásgrímur A.L. Jósefsson Braghildur S.L. Matthíasdóttir Jósef Ari Little Ásgrímsson Matthías V. Little Ásgrímss. Elsku hjartans sonur okkar og bróðir, KJARTAN ÓLÍVER RÓBERTSSON, Funafold 16, Reykjavík, lést fimmtudaginn 11. nóvember. Útför hans hefur farið fram. Þakkir sendum við öllum þeim sem sýnt hafa hlýhug og sent fallegar kveðjur við fráfall hans. Sigrún Rós Elmers Guðbjarni Eggertsson Róbert H. Kjartansson Baltasar Logi Guðbjarnason Markús Guðbjarnason Ástkær systir, mágkona og frænka, HELGA GUNNARSDÓTTIR, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 15. nóvember. Útförin hefur farið fram. Gunnar Gunnarsson Harpa Harðardóttir Herdís Erna Gunnarsdóttir Hörður Gauti Gunnarsson Gunnar Helgi Gylfason Einar Gylfason Hanna Lára Gylfadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.