Morgunblaðið - 27.11.2021, Side 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021
✝
Jón Laxdal
Halldórsson
myndlistarmaður
fæddist á Akureyri
19. júlí 1950. Hann
lést 12. nóvember
2021 í Freyjulundi,
heimili sínu í
Hörgársveit.
Foreldrar Jóns
voru Halldór Ólafs-
son úrsmiður og
Oddný Laxdal.
Bræður hans eru Ólafur og
Halldór. Kona Ólafs er Gígja
Gunnarsdóttir og dóttir þeirra
Þóra Sif. Kona Halldórs er
Halldóra Bjarney Skúladóttir
og synir þeirra eru Skúli og
Sölvi.
Fyrri eiginkona Jóns var
Odda Margrét Júlíusdóttir. Hún
lést árið 1993. Dóttir þeirra er
Valgerður Dögg, eiginmaður
hennar er Snorri Arnaldsson.
Dætur þeirra eru Odda Júlía
og Ugla. Unnusti Oddu Júlíu er
og Bjössunum. Hann starfaði
sem barnakennari í nokkur ár,
við Lundarskóla á Akureyri,
kenndi við Myndlistaskólann á
Akureyri og starfaði lengi í
þjónustukjörnum á vegum Ak-
ureyrarbæjar.
Jón fékkst við myndlist frá
árinu 1980 í framhaldi af ljóð-
list. Verk hans bera sterk um-
merki ritaðs máls og heimspeki
í bland við úrsmiðjuna sem
hann ólst upp í. Með árunum
þróuðust verkin í þrívíða fleti
og samsetta fundna hluti.
Klippimyndirnar eru þó hans
aðalsmerki og höfundarein-
kenni.
Myndlist Jóns Laxdal hefur
verið sýnd mjög víða, bæði hér-
lendis og erlendis, og lista-
verkasafnarar í Evrópu og
Bandaríkjunum hafa fest kaup
á verkum hans. Jón var titlaður
bæjarlistamaður Akureyrar ár-
ið 1993 og myndlist hans er í
eigu Listasafns Reykjavíkur og
Listasafnsins á Akureyri.
Útför Jóns Laxdal verður í
dag, 27. nóvember 2021, klukk-
an 13 frá Möðruvallakirkju í
Hörgárdal. Þau sem ætla sér
að vera við útförina eru beðin
að fara í hraðpróf fyrir komu.
Róbert Sveinn Lár-
usson.
Síðari sambýlis-
og eiginkona Jóns
er Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir.
Dóttir þeirra er
Brák, unnusti
hennar er Þórir
Hermann Ósk-
arsson. Börn Að-
alheiðar eru Arnar
Ómarsson og Þór-
ey Ómarsdóttir. Börn Þóreyjar
eru Ylfa Marín Kristinsdóttir,
Alvar Breki Kristinsson og
Amelía Kristinsdóttir.
Jón varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1971
og lagði stund á heimspeki við
Háskóla Íslands á árunum 1971
til 1975. Hann var einn af að-
standendum Rauða hússins á
Akureyri og stundaði eigin
myndlist daglega alla tíð. Jón
var ljóðskáld og starfaði með
hljómsveitunum Norðanpiltum
Fyrst þegar man ég eftir
Jónsa bjó hann í Brekkugötu en í
kringum 1960 flutti hann á Suð-
urbrekkuna, í Eyrarlandsveg 24,
og varð nágranni minn og leik-
félagi. Á þessum árum benti ekk-
ert til þess að Jón yrði eitthvað
annað en sómakær, akureyrskur
smáborgari þá er hann yxi úr
grasi. Hann var hress og glað-
lyndur strákur, flinkur í fótbolta
og handbolta, góður á skíðum og
að sjálfsögðu í KA.
Við fylgdumst að úr landsprófi
og upp í gegnum Menntaskólann,
Vatíkanið, eins og Jón kallaði
hann, og sluppum þaðan mis-
kalnir á hjarta og miskaþólskir.
En ýmislegt vaknaði í vitund
okkar. Fótbolti vék fyrir „sex
and drugs and rock and roll“. Og
pólitík, maður minn. Sjálf heims-
byltingin heimsótti Akureyri. En
fyrst og síðast hið eina varan-
lega: Póesían. Allir sprönguðum
við um í síðum frökkum og ortum
tilvistarkreppuna og böl heims-
ins öfugt út úr okkur. Við vorum
meira að segja teknir úr umferð
einu sinni fyrir að lesa ljóð okkar
upp á almannafæri. Eitthvað hef-
ur ljóðasmekk lögreglunnar ver-
ið ábótavant. En aðeins einn okk-
ar varð skáld, skáldið, með
ákveðnum greini, eins og við köll-
uðum hann. Og það var Jón.
Módernistarnir voru okkar
menn, sérstaklega Stefán Hörð-
ur og Sigfús Daðason.
Við yfirgáfum „rottuholuna“
1971 og fórum í „Melaklepp“ að
nema þjóðfélagsfræði, ef fræði
skyldi kalla. Kennararnir virtust
lifa í pólitísku tómarúmi og
hvorki skilja haus né sporð á því
sem var að gerast í heiminum.
Það vildi okkur til happs að á
vormisseri 1972 kom Páll Skúla-
son til landsins, sprenglærður frá
Belgíu, og hóf tilraunakennslu í
heimspeki. Ekki var það nú vit-
leysan og Páll kunni ekki að
ljúga. Þá varð ekki aftur snúið.
Árið eftir fór ég til Danmerk-
ur en Jón átti Oddu og Vala var á
leiðinni. Reyndar dvöldu þau
nokkrum árum síðar einn stuttan
vetur í Danaveldi og bjuggum við
þá í sambýli ofurþroskaðra, svo-
nefndu kollektívi, í því ágæta
hverfi Gellerup í Árósum, sem nú
er eitt alræmdasta gettó í Skand-
inavíu. Jón fór sjaldan í háskól-
ann en sat löngum stundum við
eldhúsborðið og teiknaði krúsi-
dúllur og staka stafi á pappír. Ég
áleit þetta ritstíflu en þess í stað
mun það hafa verið upphaf giftu-
ríks myndlistarferils.
Á næsta einum og hálfa áratug
voru samvistir okkar stopular.
Ég kom til Íslands á tveggja ára
fresti og við Jón drukkum í okk-
ur eins og eina bjarta sumarnótt.
Rauða húsið, Gamli barnaskólinn
og Jónsi, af öllum mönnum, orð-
inn menningarviti. Og það á Ak-
ureyri af öllum stöðum. En hann
var líka kennari og það af guðs-
náð, ef ég þekkti hann rétt og
sagnir voru sannar. Hann virti
börnin og talaði við þau sem viti-
bornar verur.
Odda varð höll úr heimi. Nýtt
líf, nýtt víf, nýtt vín. Listagil og
Lína, Grenið og Alla og Brák.
Díonýsos í Freyjulundi. Jón var
ekki bara æðrulaus stóuspeking-
ur, skáldskapur hans og myndlist
ekki eingöngu apollonsk heið-
ríkja. Í honum bjó skapandi,
sterkur, lífsþyrstur og illvígur
Díonýsus. Rætur skáldskapar
liggja í lifuðu lífi. En vinur Jóns,
Þorsteinn heitinn Gylfason,
hrakti margsinnis ranghug-
myndir um æðri sannindi skáld-
skapar og tvöfeldni sannleikans.
Og þótt skáldskapur tjái hvorki
annan né æðri sannleika en t.d.
vísindi eða hversdagslegar stað-
hæfingar um veðrið, þá getur
hann, þegar best lætur, opnað
flóðgáttir skilnings, aukið vit og
göfgað tilfinningar. Aristóteles
sagði að listin veitti mönnum ka-
þarsis, sem er annars vegar
hreinsun eða útrás kenndanna,
og hins vegar göfgun eða þroski.
Listræn reynsla er eins og frjó-
samur jarðvegur fyrir sálina.
Enda vissi sá gamli að tilfinn-
ingar geta verið stútfullar af rök-
vísi. Góður skilningur er tilfinn-
ing sem verður skýr og greinileg
sjálfri sér. Jón hafði slíkan skiln-
ing til að bera í ríkum mæli.
Hans er sárt saknað.
Sigurður Ólafsson.
Við hittumst fyrst á teríunni á
jarðhæð Hótels KEA. Hann
hafði gefið út ljóðabókina Myrk-
ur á hvítri örk og vildi selja mér.
Flottur titill á ljóðabók hugsaði
ég. Hann var sjálfur í hvítum loð-
feldi með stingandi og einbeitt
dimm augu hugsuðar. Ég hafði
áður séð Jónsa á úrsmíðastofu
föður síns innar í Hafnarstræti
með stækkunareinglyrni rýnandi
inn í smátt úrverkið en þekkti
hann ekkert þá enda fimm árum
eldri en ég. En þarna hófst sam-
tal, samvinna og vinskapur sem
stóð ansi lengi yfir. Ég var stífur
gestur á heimilum hans, elskaði
samtalið, fyrst í Tjarnarlundi,
síðan í Kotárgerði, Glerá, Helga-
magrastræti og síðast Freyjul-
undi. Seint á árinu 1980 fann
Guðbrandur Siglaugsson vinur
okkar hús niðri í Skipagötu sem
stóð autt og hafði síðast verið
kaffistofa hafnarverkamanna við
Torfunesbryggju. Seint á árinu
1980 var ákveðið að taka það á
leigu með hópi vina okkar og
stofna menningarmiðstöð sem
fékk nafnið Rauða húsið. Þar var
gallerí, bókaútgáfa og bóksala.
Þar voru haldnir heimspekifyr-
irlestrar, mest með kennurum og
samnemendum Jónsa og Guð-
mundar Heiðars úr heimspek-
inni. Flestar sýningarnar voru
með kennurum mínum og sam-
nemendum úr nýlistadeild
Myndlista- og handíðaskólans.
Þar voru haldin ljóðakvöld og
tónleikar. Æfingaaðstaða akur-
eyrsku nýbylgjuhljómsveitarinn-
ar Baraflokksins var á efri hæð-
inni. Þarna var gaman í tæp þrjú
dýrmæt ár í þroska okkar. Á
þessum tíma fór Jónsi að stunda
myndlist og hélt sýna fyrstu sýn-
ingu í Rauða húsinu. Þar kynnt-
ist hann mörgum af bestu mynd-
listarmönnum þjóðarinnar og
öðlaðist sjálfstraust, því að þeir
sáu að hann var einn af þeim. Það
er erfitt að leyna miklum hæfi-
leikum – alla vega til lengdar. Tíu
árum síðar kom einn frægasti og
fíngerðasti myndlistarmaður
heimsins á síðari hluta 20. aldar
við á Akureyri. Hann hét Donald
Judd og var sjúklega smámuna-
samur minimalisti. Hann stopp-
aði stutt en ég leiddi Donald eig-
inlega fyrir tilviljun inn á
vinnustofu Jónsa sem þá var í
kjallaraholu Listasafnsins í Gróf-
argili – þessi heimsókn var ekki
plönuð. Ég kynnti þá ekkert,
sagði bara að þetta væru túristar
en Donald var með kærustu sinni
og dvöldu þau dágóða stund,
skoðuðu og handléku verk hans.
Ég spjallaði við Jón á meðan.
Þau kvöddu hann með virktum
og sögðu eitthvað sem ég heyrði
ekki en þegar við gengum niður
gilið sögðu þau einum rómi:
„Þessi verk eru afar vel gerð!“
Ég hef oft hugsað að grunnur
myndlistarhæfileika Jónsa hafi
legið í margra ára skoðun á úr-
verki með einglyrnisstækkunar-
gleri í uppeldinu. Nákvæmni
hans og náttúruleg tilfinning fyr-
ir myndbyggingu á þar rætur
sínar. En Jónsi var auðvitað ekki
bara í myndlist, hann var heim-
spekingur, ljóðskáld og tónlistar-
flytjandi í norðanpiltum og
Bjössunum. Fyrir mig stendur
myndlistin þó upp úr. Mér var
verulega brugðið þegar ég frétti
af andláti hans. Hann var stór
þáttur í mínu lífi. Ég vil votta
fjölskyldu hans mína dýpstu og
innilegustu samúð. Við erum
mörg sem söknum hans.
Guðmundur Oddur
Magnússon.
Tréskór eru til að ganga á
en ekki til að troða öðrum um tær
þó má sparka í þeim
ef þörf krefur
og mæla fátt
Þannig orti Jón vinur minn
Laxdal til Völu dóttur sinnar
barnungrar.
Og þannig orti Jón ávallt al-
varlegur og kíminn í senn.
Og þannig var hann.
Við Jón kynntumst 10 ára
gamlir og lékum okkur saman
síðan þá með mislöngum hléum.
Eftir að Jón flutti langt útí sveit
urðu leikstundir okkar stopulli.
En í mörg ár deildum við vinnu-
stofum og hittumst nánast dag-
lega. Eftir margra ára samveru
örlaði reyndar á því að við yrðum
leiðir hvor á öðrum, því það var
ekki alltaf fjör enda vorum við
báðir þráir, þrjóskir og þverir og
kannski bara furðulegt hvað við
áttum vel saman.
Heimskur
hef ég sporum stráð
á skyrhvítt gólf
og kysst þig
kl. 12
Þetta er annað kvæði úr ann-
arri ljóðabók Jóns, þeirri stór-
góðu „Stofuljóð“, en eftir Stofu-
ljóðin tók Jón krappa beygju í
listinni, hætti mikið til að glíma
við orðin og samhengi þeirra en
sneri sér að myndlist sem hann
kallaði reyndar líka ljóð.
Jón lagði stund á heimspeki og
sér þess mikil merki í ljóðum
hans og myndljóðum.
Allt sem Jón skapaði var ákaf-
lega áferðarfallegt, enda fæddist
hann með úrsmíðaputta og á
stundum var hann svo iðinn, að
þótt hann væri að vinna á ör-
þunnan pappír horfði maður á
listaverkastaflana hækka og
þeim fjölga. Það var líf og yndi
Jóns að skapa og pæla og svo
hafði hann líka afskaplega gam-
an af því að skemmta sér og öðr-
um. Og þar vorum við svo sann-
arlega á sömu blaðsíðunni og
hljómsveitin Norðanpiltar var
fjör. Við félagarnir vorum fjarri
því besta hljómsveit á norður-
hveli, en við vorum kokhraustir
og létum eins og við værum æð-
islegir og komumst upp með það.
Það kom í ljós að Jón var ótrú-
lega flottur dansari og margir
muna dansafrek hans eins og
þegar hann dansaði ofan í opna
gítartösku og sumir segja hann
hafa lokað á eftir sér, eða þegar
hann sveiflaði sér í gluggatjöld-
Jón Laxdal
Halldórsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis að Fjólugötu 20,
Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð,
Vestursíðu 9, fimmtudaginn 18. nóvember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 29. nóvember
klukkan 13 með nánustu aðstandendum og vinum. Streymt
verður frá athöfninni á Facebook-síðunni Jarðarfarir í
Akureyrarkirkju - Beinar útsendingar. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir en bent á minningarsjóð Öldrunarheimila
Akureyrar.
Sigurður Jón Björnsson
Eyjólfur Sigurðsson
Kristinn Björnsson Edda Sigrún Friðgeirsdóttir
Björn Kristinsson Elisa Paloni
Einar Kristinsson Matthildur B. Benediktsdóttir
Andri Kristinsson
og langömmubörn
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
ÞORSTEINN AÐALBJÖRNSSON,
Norðurgötu 30, Sandgerði,
lést á dvalarheimilinu Lundi
mánudaginn 22. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Jón Aðalbjörnsson Sigríður Sigmundsdóttir
Ragna Aðalbjörnsdóttir Ásgeir Árnason
og fjölskyldur
Við aðstoðum þig við gerð viljayfirlýsingar
um útför þína af nærgætni og virðingu
– hefjum samtalið.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
Hinsta óskin
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
ERLENDUR DANÍELSSON,
Birkivöllum 30, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
20. nóvember. Hann verður jarðsunginn
frá Selfosskirkju þriðjudaginn 30. nóvember klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða einungis hans nánustu viðstaddir
athöfnina. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Streymt verður frá athöfninni á slóðinni:
https://promynd.is/erlendur.
Gréta Jónsdóttir
Anna Ingileif Erlendsdóttir Grímur Þórisson
Stefán Hauksson
Viktoría Björk Erlendsdóttir Þorgils Magnússon
Erlendur Ágúst, Erlendur Karl, Katrín,
Hrafnhildur Jakobína, Daníela, Eyjólfur Örn,
Sveinn Óli og Gréta Björg
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
BJÖRG RAGNHEIÐUR ÁRNADÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni Kefas
miðvikudaginn 1. desember klukkan 13.
Vegna aðstæðna biðjum við kirkjugesti um
að fara í hraðpróf.
Útförinni verður streymt á www.streyma.is.
Auk þess verður hægt að nálgast minningarorð og fleira á
vefsíðunni www.ornbardur.com.
Sverrir Gaukur Ármannsson
Helga Ragna Ármannsdóttir
Björg Ragnheiður Pálsdóttir
Ármann Jakob Pálsson Áslaug Guðmundsdóttir
Lúkas Páll og Elías Logi
Jakob Dagur, Arney Helga og Rakel Birta
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HULDA HATLEMARK,
lést á heimili sínu laugardaginn
14. nóvember. Útförin fer fram í kirkju
Óháða safnaðarins föstudaginn
10. desember klukkan 15.
Hörður Grétar Olavson Kristín Björnsdóttir
Gunnhild Hatlemark Øyahals
Þór Rúnar Øyahals Jakobína Sigurgeirsdóttir
Guðrún Øyahals
Konráð Hatlemark Olavsson
Haukur Hatlemark Olavsson Lára Ómarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn