Morgunblaðið - 27.11.2021, Síða 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021
40 ÁRA Ágúst Örn fæddist
27.11. 1981 í Árbænum og ólst
þar upp. „Ég æfði fótbolta
með Fylki þegar ég var yngri
og hafði gaman af.“ Ágúst
Örn gekk í Árbæjarskólann
og fór svo í Menntaskólann í
Kópavogi og lærði bakaraiðn
og var á samningi í Mosfells-
bakaríi og vann þar líka eftir
námið. „Árið 2004 fór ég að
vinna hjá Veisluþjónustunni
Kræsingum í Borgarnesi og
vann þar í 17 ár og keyrði allt-
af á milli Mosfellsbæjar og
Borgarness.“ Núna á þessu
ári byrjaði Ágúst að vinna
sem verkstjóri hjá Ísfugli í
Mosfellsbænum.
Aðaláhugamál Ágústs Arn-
ar er taekwondo sem hann
hefur æft frá því hann var 29
ára gamall. „Ég féll alveg fyr-
ir þessu sporti og hef bæði
keppt og hef verið að kenna
það síðustu ár. Elsti strák-
urinn okkar, Níels, byrjaði fyrst að æfa og fannst mjög gaman. Konan hafði
líka sagt mér í upphafi að þetta væri svo ægilega erfitt, svo ég bara varð að
prófa og þá varð ekki aftur snúið. Það er frábær félagsskapur þarna og mér
hefur alltaf fundist svolítið gaman að slást, en gott að hafa reglur samt líka,“
segir hann hlæjandi. „Við erum öll í þessu fjölskyldan, en meira við strák-
arnir síðustu árin. Það er líka bara frábært að geta farið á æfingu með börn-
unum sínum og ég er að þjálfa þá tvo yngstu.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Ágústs Arnar er Heiðveig Magnúsdóttir, f.
14.12. 1982, og þau eiga synina Níels Salómon, f. 21.7. 2001; Magnús Örn, f.
2010 og Arnar Val, f. 2012. Fjölskyldan býr í Mosfellsbænum.
Ágúst Örn Guðmundsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hefur dýran smekk. Það að
hrósa öðrum gefur þér mikið. Ekki vinna
myrkranna á milli, það mun enginn þakka
þér fyrir það.
20. apríl - 20. maí +
Naut Nú er rétti tíminn til að leita til sér-
fræðinga með sín mál. Hlustaðu á það
sem aðrir hafa að segja og taktu á því
mark.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er ekki á þínu valdi að bera
ábyrgð á hamingju annarra. Einhver leik-
ur sér að þér eins og köttur að mús.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú vilt skipuleggja alla hluti, sem
er í góðu lagi ef þú reynir um leið að vera
sveigjanleg/ur þegar það á við. Þú hittir
naglann á höfuðið í kvöld.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Nú verðurðu að taka þig á og koma
betra skipulagi á störf þín á vinnustað.
Einbeittu þér að því að vera alltaf með
eitthvað á prjónunum.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Spyrðu þig hvort þú ætlir að halda
áfram í núverandi starfi eða skipta um
starf. Óveðursský hrannast upp á ástar-
himninum.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú þarft ekki að skipuleggja hvert
einasta augnablik dagsins. Skoðaðu
stöðu peningamála með ráðgjafa og taktu
svo ákvörðun um framhaldið.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú hefur hundrað hug-
myndir um hvað á að gerast næst. Sæktu
styrk í vissuna um að þú ráðir við að-
stæður.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þegar draumar þínir rætast
veistu varla í hvorn fótinn þú átt að stíga.
Spyrðu þig að því hvað þú vilt gera í
framtíðinni.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Mundu að öll sambönd byggj-
ast á því að báðir aðilar leggi sitt af
mörkum. Einhver þér nákominn stenst
prófraun þína.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þegar málin eru skoðuð ofan í
kjölinn muntu sjá að eitthvað reynist ekki
eins eftirsóknarvert og þér fannst í upp-
hafi. Gríptu öll tækifæri sem gefast í dag.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þér leggst eitt og annað til í pen-
ingamálum. Eitthvað nýtt kemur upp í ná-
grannadeilum. Lærðu að segja nei.
efnistöku á hafsbotni, olíuleit á
drekasvæðinu, svo eitthvað sé
nefnt. Síðan er alls kyns umsjón
með orkurannsóknum, leyfisveit-
ingar vegna orkunýtingar virkjana
og fleira. Þetta hefur verið gríð-
arlegt þróunar- og uppbygging-
arstarf þennan tíma. Þegar ég tók
við þessu var Orkustofnun meira
og minna ráðgefandi stofnun, en
fljótlega færist stjórnsýslu-
ábyrgðin yfir á stofnunina og með
samþykkt þriðja orkupakkans varð
ábyrgð á ýmsum hlutum eftir-
litsins enn sjálfstæðari. Þetta
krafðist mikillar þróunarvinnu og
oft erfið mál í sambandi við lög-
gjöf, verkferla og annað. En
ið 1976 í þeim hluta námsins sem
ekki var kenndur á Íslandi. Hann
ákvað að fara í doktorsnám í
byggingareðlisfræði, sem lýtur að
bæði varma- og rakafræði bygg-
inga, og lauk náminu 1981. „Ég
vissi snemma að ég vildi mennta
mig vel því systur mínar höfðu
sagt mér sem ungum dreng að ég
væri svo ljótur að ég myndi aldrei
kvænast og því yrði ég að læra
mikið svo ég fengi einhverja fyll-
ingu í lífið,“ segir hann sposkur.
Ekki höfðu þær stríðnu systur þó
rétt fyrir sér því Guðni kynntist
eiginkonu sinni Bryndísi strax á
menntaskólaárunum og þau fluttu
saman til Svíþjóðar haustið 1973
með sitt fyrsta barn mánaðar-
gamalt og giftu sig ári seinna.
Fimm árum síðar fæddist þeim
sonur og eru bæði börnin jafnvíg á
íslensku og sænsku. „Bryndís fór í
fornleifafræði og þjóðháttafræði og
bætti síðar við sig safnafræði. Við
kunnum vel við okkur í Svíþjóð og
vorum þar í 9 ár. Ég vann á deild-
inni sem dósent eftir að ég lauk
doktorsnáminu og síðan fluttum
við heim.“ Þar hóf Guðni störf hjá
Rannsóknarstofnun byggingariðn-
aðarins en stofnaði síðan sína eigin
verkfræðistofu.
Árið 1990 fékk Guðni prófess-
orsstöðu við Konunglega verk-
fræðiháskólann í Stokkhólmi og
gegndi þeirri stöðu í 17 ár, allt til
loka árs 2007. „Þá sótti ég um
stöðu orkumálastjóra og tók við
þeirri stöðu í ársbyrjun 2008.“
Hann hætti formlega í sumar, en
er enn að sinna rannsóknarverk-
efnum. „Orkustofnun er í raun
stjórnsýslustofnun á sviði orku-
mála og auðlindanýtingar. Það er
ekki bara fengist við orku, heldur
alls kyns námuvinnslu, eins og t.d.
G
uðni Albert Jóhann-
esson fæddist á fæð-
ingarheimilinu við Ei-
ríksgötu í Reykjavík
rétt eftir miðnætti 27.
nóvember 1951. „Við bjuggum allt-
af í Skuggahverfinu, í fjölskyldu-
húsinu á Hverfisgötu 58, sem hef-
ur vikið fyrir nýjum byggingum í
dag. Húsið byggði Ásmundur afi
minn snemma á öldinni, en hann
var sjómaður og þar bjuggu síðan
dætur hans og Sigríðar ömmu með
eiginmönnum sínum sitt á hvorri
hæðinni alla mína æsku.“ Guðni
hóf grunnskólanámið í Miðbæj-
arskólanum en fór fljótlega í Aust-
urbæjarskólann og nam hjá Þórði
Magnússyni kennara. „Ég kunni
mjög vel við mig í skólanum. Það
var gríðarlega mikil áhersla lögð á
íslenskukennslu, jafnvel svo að
biblíusögurnar gleymdust og það
þurfti að taka þær í einum rykk
undir vorið.“
Þótt gaman væri í skólanum var
ekki síður mikið tilhlökkunarefni
að komast í sveitina. „Ég var í
sveit á Kjarlaksvöllum í Saurbæj-
arhreppi í Dalasýslu hjá sómafólk-
inu Sigurði Ólafssyni bónda og
Júlíönu Eiríksdóttur sem rak skóla
fyrir sveitina, og var þar í níu
sumur. Þar fékk ég minn fyrsta
lax, níu ára gamall, á stöng og þar
kviknaði ævilangur áhugi minn á
veiðiskap.“
Eftir landspróf fór Guðni í
Menntaskólann í Reykjavík og
lauk þaðan stúdentsprófi úr
eðlisfræðideild árið 1971. „Ég átti
50 ára stúdentsafmæli í vor, en því
miður varð ekkert úr veisluhöld-
um.“ Háskóli Íslands tók við, en
þar tók Guðni fyrrihlutanám í
eðlisverkfræði í tvö ár og lauk
náminu síðan í Lundi í Svíþjóð ár-
stjórnsýslan er skilvirkari þegar
þekkingin og ábyrgðin er á sömu
hendi.“
Það er víst að á þessum tíma-
mótum mun Guðni ekki setjast í
helgan stein, enda þekktur maður
á sviði orkumála um heim allan og
hann mun halda áfram að sinna
hugðarefnum sínum í faginu. Síðan
hafa þau hjónin stundað golf um
árabil. „Ég fékk golfsett í fimm-
tugsafmælisgjöf og síðan þá hef ég
reynt að verða mér ekki til
skammar á golfvellinum. Það er
stutt á völlinn hérna á Nesinu, við
höfum gaman af þessu hjónin og
þetta er góð útivera. Svo erum við
með sumarbústað í Skorradalnum
Guðni Albert Jóhannesson orkumálastjóri – 70 ára
Fjölskyldan Í skíðaskála í Sälen í Svíþjóð árið 2020. Aftari röð Ívar, Gunn-
hildur, Guðni, Bryndís og Sverrir. Fremri röð Kristín, Blanka, Sísí og Salka.
Stríðnar systur
sendu Guðna í
langskólanám
Konungleg heimsókn Guðni og Vikt-
oría Svíaprinsessa á Orkustofnun.
Orkuskipti Guðni hér að setja raf-
magn á bílinn í febrúar 2016.
Til hamingju með daginn
Við
Hækk
um
í gleð
inni