Morgunblaðið - 27.11.2021, Side 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021
Undankeppni HM kvenna
C-RIÐILL:
Kýpur – Hvíta-Rússland.......................... 1:1
Tékkland – Holland ......................... Frestað
Staðan:
Holland 4 3 1 0 13:1 10
Ísland 3 2 0 1 9:2 6
Tékkland 3 1 1 1 9:5 4
Hvíta-Rússland 3 1 1 1 5:4 4
Kýpur 5 0 1 4 2:26 1
B-RIÐILL:
Spánn – Færeyjar .................................. 12:0
Skotland – Úkraína .................................. 1:1
_ Spánn 12, Skotland 10, Úkraína 4, Ung-
verjaland 3, Færeyjar 0.
E-RIÐILL:
Malta – Svartfjallaland ............................ 0:2
_ Danmörk 15, Rússland 15, Svartfjalla-
land 9, Malta 4, Bosnía 1, Aserbaídsjan 0.
G-RIÐILL:
Króatía – Litháen ..................................... 0:0
Ítalía – Sviss.............................................. 1:2
Rúmenía – Moldóva ................................. 3:0
_ Sviss 15, Ítalía 12, Rúmenía 9, Litháen 1,
Króatía 1. Moldóva 0.
H-RIÐILL:
Þýskaland – Tyrkland.............................. 8:0
_ Þýskaland 15, Portúgal 13, Serbía 6,
Tyrkland 4, Búlgaría 0, Ísrael 0.
I-RIÐILL:
Slóvenía – Eistland................................... 6:0
Wales – Grikkland.................................... 5:0
Frakkland – Kasakstan ........................... 6:0
_ Frakkland X15, Wales 13, Slóvenía 10,
Grikkland 6, Kasakstan 0, Eistland 0.
Ítalía
B-deild:
Lecce – Ternana ...................................... 3:3
- Brynjar Ingi Bjarnason og Þórir Jóhann
Helgason voru allan tímann á bekknum hjá
Lecce.
Holland
B-deild:
De Graafschap – Jong Ajax.................... 1:3
- Kristian Nökkvi Hlynsson lék allan leik-
inn með Ajax.
Belgía
Royal Union – OH Leuven...................... 1:3
- Rúnar Alex Rúnarsson lék allan leikinn
með Leuven.
Tyrkland
Adana Demirspor – Kasimpasa............. 0:0
- Birkir Bjarnason kom inn á hjá Adana
Demirspor á 71. mínútu.
Katar
Deildabikarinn, B-riðill:
Al-Arabi – Al-Khor.................................. 1:0
- Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi.
Danmörk
AGF – Silkeborg ...................................... 1:1
- Mikael Anderson lék fyrstu 79 mínút-
urnar hjá AGF. Jón Dagur Þorsteinsson
leysti hann af hólmi.
- Stefán Teitur Þórðarson lék fyrri hálf-
leikinn með Silkeborg.
Staða efstu liða:
Midtjylland 16 11 1 4 30:15 34
København 16 8 6 2 31:12 30
AaB 16 8 4 4 26:17 28
Randers 16 8 4 4 23:18 28
Brøndby 16 7 6 3 24:20 27
Silkeborg 17 5 10 2 26:16 25
AGF 17 5 6 6 15:19 21
B-deild:
Lyngby – Jammerbugt ........................... 3:0
- Sævar Atli Magnússon kom inn á hjá
Lyngby á 76. mínútu. Frederik Schram var
ekki í leikmannahópnum. Freyr Alexand-
ersson þjálfar liðið.
England
B-deild:
WBA – Nottingham Forest..................... 0:0
Staða efstu liða:
Fulham 19 13 3 3 48:15 42
Bournemouth 19 12 5 2 34:14 41
WBA 20 9 7 4 27:16 34
QPR 19 9 5 5 31:24 32
Coventry 19 9 5 5 25:21 32
Stoke City 19 9 4 6 24:20 31
Blackburn 19 8 6 5 33:27 30
>;(//24)3;(
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hertz-höllin: Grótta – ÍBV................ S15.30
Sethöllin: Selfoss – KA ........................... S17
TM-höllin: Stjarnan – Fram .................. S18
Varmá: Afturelding – FH.................. S19.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Eyjar: ÍBV U – Valur U.................... L13.30
TM-höllin: Stjarnan U – Selfoss............ S14
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Varmá: Afturelding U – Valur U .......... L16
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin:
Ásvellir: Haukar – Fjölnir...................... S16
1. deild kvenna:
Ísafjörður: Vestri – Tindastóll .............. L14
Dalhús: Fjölnir b – KR........................... L14
Hveragerði: Hamar/Þór – ÍR................ L18
1. deild karla:
MVA-höllin: Höttur – Fjölnir ........... S19.15
UM HELGINA!
miklu máli skiptir að hafa mann eins
og hann til að verja körfuna. Tryggvi
varði til dæmis fjögur skot í leiknum.
Tók hann átta fráköst en er auk þess
mjög klókur í því að blaka boltanum í
átt að samherjum þegar boltinn
skoppar af körfuhringnum.
Einnig má nefna að margir leik-
menn eins og Kristófer Acox, Ólafur
Ólafsson og Jón Axel Guðmundsson
lögðu á sig mikla vinnu við að gæta
leikmanna sem voru miklu hávaxnari
en þeir. Til þess þarf útsjónarsemi,
baráttu og þolinmæði.
Eftir jafnan fyrri hálfleik var síðari
hálfleikurinn sveiflukenndur. Eftir
flottan kafla náði Ísland þrettán stiga
forskoti en Hollendingar náðu að jafna
í fjórða leikhluta. Á 39. mínútu varð
vendipunktur í leiknum þegar Jón Ax-
el Guðmundsson og Martin Her-
mannsson skoruðu glæsilegar þriggja
stiga körfur og Tryggvi tók fráköstin í
vörninni. Náði Ísland þá skyndilega
níu stiga forskoti og þann mun náðu
Hollendingar ekki að vinna upp.
Vanur spennuleikjum
Martin er ásinn uppi í ermi körfu-
boltalandsliðsins um þessar mundir.
Maður sem hefur hæfileika til að
skora upp úr engu og hefur reynslu af
því að ljúka sóknum í mikilvægum
leikjum á milli stórliða í Evrópu. Mart-
in skoraði nokkrar mjög mikilvægar
körfur þegar á þurfti að halda í síðasta
leikhlutanum.
Ég hef verið mjög hrifinn af Ægi
Þór Steinarssyni í síðustu lands-
leikjum. Hraðinn og klókindin sem
Ægir kemur með inn á völlinn hafa
reynst dýrmætt vopn í síðustu leikj-
um. Hann getur fengið villur á and-
stæðingana og í gær gaf hann sex
stoðsendingar.
Martin er
ásinn í ermi
landsliðsins
- Skoraði 27 stig í sætum sigri á Hol-
lendingum - Leikáætlunin gekk upp
Ljósmynd/FIBA
Mikilvægur Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason reynir skot að körfu Hol-
lands í gær. Mikilvægi Tryggva fyrir landsliðið er óumdeilt.
HM 2023
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt-
leik hóf undankeppni HM 2023 ljóm-
andi vel og tókst að sigra Holland
79:77 og það á útivelli. Liðin leika í H-
riðli eins og Rússland og Ítalía. Eru
Rússland og Ísland með 2 stig eftir
fyrstu umferðina en Rússar unnu Ítali
í gær 92:78 í leik sem var jafnari lengi
vel en lokatölurnar gefa til kynna.
Þrjú lið af fjórum munu halda áfram í
síðari hluta undankeppninnar og
munu þá taka stigin með sér í milli-
riðil.
Hrósa verður landsliðsþjálfaranum
Craig Pedersen eftir þennan sigur.
Leikskipulagið gekk upp en hann tók
vissa áhættu þegar hann tefldi fram
fjórum bakvörðum í byrjunarliðinu
með miðherjanum Tryggva Snæ
Hlinason.
Íslenska liðið reyndi að keyra upp
hraðann í leiknum og slíkt hentar
mörgum af okkar mönnum vel. Bar-
áttugleðin og ákefðin sem maður vill
sjá hjá íslenskum landsliðum var til
staðar og þegar upp var staðið tók ís-
lenska liðið fleiri fráköst en það hol-
lenska þótt Hollendingar væru með
töluvert hávaxnari leikmenn.
Tveir þristar á lokakaflanum
Ísland landaði góðum útisigri jafn-
vel þótt ekki hafi verið um leik að ræða
þar sem allt gekk upp hjá liðinu.
Langt frá því þar sem tuttugu og
fimm sóknum íslenska liðsins lauk án
þess að liðið næði skoti. Menn bættu
það gjarnan upp með góðri vörn. Þar
var Tryggvi mikilvægur eins og alltaf
en erfitt er í raun að útskýra hversu
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
bolta vann öruggan 30:22-sigur á
Sviss á æfingamóti í Cheb í Tékk-
landi í gær.
Ísland var skrefinu á undan allan
leikinn en staðan í hálfleik var
19:14. Íslenska liðið, sem tapaði fyr-
ir Noregi daginn áður, mætir Tékk-
landi í dag klukkan 12.
Sandra Erlingsdóttir var marka-
hæst í íslenska liðinu með sjö mörk
og þær Þórey Rósa Stefánsdóttir og
Thea Imani Sturludóttir gerðu
fimm hvor. Elín Jóna Þorsteins-
dóttir varði 18 skot í markinu.
Flottur sigur á
Svisslendingum
Morgunblaðið/Eggert
Markvörður Elín Jóna Þorsteins-
dóttir varði 18 skot gegn Sviss.
Kýpur náði í gær í sitt fyrsta stig í
riðli Íslands í undankeppni HM í
knattspyrnu er liðið gerði 1:1-
jafntefli við Hvíta-Rússland á
heimavelli. Framundan er leikur
Kýpur og Íslands á þriðjudaginn og
verður það síðasti leikur íslenska
landsliðsins á árinu.
Kýpur er í botnsæti riðilsins með
eitt stig og Hvíta-Rússland í sætinu
fyrir ofan með fjögur stig.
Í gær stóð til að Tékkland og Hol-
land myndu mætast í mikilvægum
leik í toppbaráttunni í riðlinum.
Var leiknum frestað vegna veðurs.
Kýpur náði í
fyrsta stigið
Morgunblaðið/Unnur Karen
Undankeppni Kýpur og Ísland eig-
ast við ytra næsta þriðjudag.
Almere, 26. nóvember, undankeppni
HM karla, H-riðill:
Gangur leiksins: 5:10, 12:10, 15:18,
19:23, 32:31, 39:34, 39:38, 41:44,
43:51, 43:55, 48:57, 52:57, 58:62,
64:64, 68:77, 74:77, 74:79, 77:79.
Holland: Yannick Franke 17, Charlon
Kloof 16, Worthy De Jong 12, Johan
Van Zegeren 8, Shane Hammink 7,
Matt Haarms 7, Jito Kok 4, Moha-
HOLLAND – ÍSLAND 77:79
med Kherrazi 4, Leon Williams 2.
Ísland: Martin Hermannsson 27, Elv-
ar Már Friðriksson 16, Ægir Þór
Steinarsson 15, Jón Axel Guðmunds-
son 11, Kristófer Acox 6, Tryggvi
Snær Hlinason 4.
Dómarar: Sergi Zashchuk Úkraínu,
Zafer Yilmaz Tyrklandi, Zdenko Tom-
asovic Slóvakíu.
Áhorfendur: Ekki leyfðir.
B-landslið kvenna í handknattleik mátti þola 27:28-tap
fyrir U21 árs landsliði Sviss í sínum öðrum leik á fjög-
urra þjóða móti í Tékklandi í gær.
Íslenska liðið náði fimm marka forskoti í leiknum en
það svissneska hafði að lokum betur eftir spennandi
lokamínútur. Ísland leikur gegn Tékklandi í dag í loka-
leik sínum á mótinu en Ísland tapaði fyrir B-liði Noregs
á fimmtudaginn.
Díana Dögg Magnúsdóttir og Sara Dögg Hjaltadóttir
voru markahæstar í íslenska liðinu með fimm mörk
hvor. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Elín Rósa
Magnúsdóttir, Elna Ólöf Guðjónsdóttir og Birta Lin Jó-
hannsdóttir gerðu tvö mörk hver. Sara Sif Helgadóttir stóð lengst af í
marki Íslands og varði 11 skot.
B-landsliðinu var komið á fót í haust með það að leiðarljósi að skapa
verkefni fyrir efnilega leikmenn sem ekki eru í A-landsliðinu.
Eins marks tap gegn Sviss
Díana Dögg
Magnúsdóttir.
Ljóst er að tveir síðustu Evrópumeistarar karla, Ítalir og Portúgalar, kom-
ast ekki báðir í lokakeppni heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu sem fer
fram í Katar í lok ársins 2022.
Dregið var fyrir umspilið í Evrópu í gær þar sem tólf þjóðir spila um síð-
ustu þrjú sæti Evrópu í keppninni og Ítalir og Portúgalar lentu þar í sama
hópi. Báðar þjóðirnar voru í efri styrkleikaflokki og leika því á heimavelli í
undanúrslitum og sigurvegarar í leikjum þeirra mætast í úrslitaleik um
sæti á HM. Þjóðirnar tólf voru dregnar í þrjá hópa fyrir umspilið og eitt úr
hverjum þeirra kemst á HM.
_ Í fyrsta hópi leikur Skotland við Úkraínu og Wales við Austurríki í
undanúrslitum 24. mars. Úrslitaleikur sigurliðanna fer fram í Wales eða
Austurríki 29. mars.
_ Í öðrum hópi leikur Rússland við Pólland og Svíþjóð við Tékkland. Úr-
slitaleikur sigurliðanna fer fram í Rússlandi eða Póllandi.
_ Í þriðja hópi leikur Ítalía við Norður-Makedóníu og Portúgal leikur við
Tyrkland. Úrslitaleikur sigurliðanna fer fram í Portúgal eða Tyrklandi.
Ítalía eða Portúgal ekki á HM