Morgunblaðið - 27.11.2021, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 27.11.2021, Qupperneq 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ CHAN MADDEN NANJIANI McHUGH HENRY RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T 94% Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney sýnd með Íslensku og Ensku tali TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Teitur sló óforvarandis í gegn með fyrstu plötu sinni, 27 (2014). Það var næstum því eitthvað bernskt við hana, knöpp lög og til þess að gera ægieinföld, með rætur í íslenskri dægur- og alþýðu- tónlist áttunda áratugarins (með dassi af reggíi). Lög eins og „Vin- ur vina minna“ og „Nenni“ glumdu á öldum ljósvak- ans og platan var aukinheldur til- nefnd til Nor- rænu tónlistarverðlaunanna. Þægi- legt verk, afslappað og tímalaust, en aldrei ódýrt. Glæst byrjun á ferli. Orna kom svo út fjórum árum síðar. Meiri vinnsla og fleiri rásir en grunnurinn sá sami. Á yfirborðinu áhlýðileg þjóðlagakennd poppplata en allt smávegis á skakk og skjön líka. Nýja platan er tólf laga og hafa nokkur lög ratað í útvarpið hingað til, t.d. „Líft í mars“, „Sloppurinn“ og „Kyssti mig“. Titillinn 33 vísar í aldur Teits er hann vann plötuna, lengd hennar og snúningshraða vínylútgáfunnar. Það er líka freist- andi að horfa til dýpri merkingar. Jesús Kristur var 33 ára er hann dó en útlit Teits og andlegar vangavelt- ur er hæglega hægt að heimfæra á þennan vin okkar og leiðtoga Ljúfur bæði og laundjúpur Skeggbragi Síðskeggjaður Teitur leikur sér með hina mjög svo hlöðnu tölu 33 á nýjustu plötu sinni. (sumra). En þessar pælingar mínar eru nú mest bundnar í saklausa kerskni! Hins vegar er það staðfest að Daníel Böðvarsson stýrði upptökum og Styrmir Hauksson hljóðblandaði. Glenn Schick hljómjafnaði og um- slagið skóp svo Jón Sæmundur. Lög og textar koma víða að. Samstarfs- maður Teits til margra ára, Skarp- héðinn Bergþóruson, kemur þannig að fjórum textum en svo eiga stór- skáld á borð við Halldór Laxness, Stefán frá Hvítadal og Bertel E.Ó. Þorleifsson yrkingar. Lög á Teitur, utan að tvö þjóðlög gera vart við sig og svo eru tvö lög unnin í samvinnu við Mads Mouritz og Bjarna Daníel Þorvaldsson. Ekki er allt upptalið í þessum efnum og hljóðfæraleikara mun ég heldur ekki telja upp hér enda pistlinum ekki ætlað að vera kreditlistaleiðindi. Snúum okkur frekar að hljóm- rænum greiningum. Hvernig er þetta? Hvað er að gerast? Fyrstu viðbrögð eru að Teitur sé að ganga enn lengra í áttina frá 27 sem er nú ekki nema eðlilegt. Teitur vandaði sig við það að endurtaka sig ekki á Orna og það tókst. En þráð- urinn var þó óslitinn frá 27. Á 33 er þráðurinn enn óslitinn, þetta er „Teits“-legt allt saman, en fjölskrúð- ugheitin eru að sama að skapi ærin og hafa aldrei verið meiri. Hefð- bundinn Teitur í bland við óhefð- bundinn, sem er lifandi listamaður sem myndast við að olnboga sig um ný svæði. En rótin fær á sama tíma bæði vökva og næringu. Upphafslagið, „Líft í mars“, er líklega meðvitaður inngangur að þessari plötu. Áhlýðilegt popp að hætti Teits, íslenskur texti, og þessi skírskotun til samtímalistamanna eins og Prins Póló og Mugison og gamalla hetja eins og Mannakorns. Hljómur er hlýr og traustur og spilamennska upp á tíu. Tökum fleiri dæmi. „Háfjöllin“ eru reggíkrydduð og Mr. Silla syngur bakrödd. „Dýra- vísur“ er þjóðlagið kunna og Teitur fer afskaplega vel með. Hressileg, kröftug útsetning, gömlum arfi gefið nýtt líf (á síðustu plötu var það „Hættu að gráta“ og „Skriftargang- ur“). „Sloppurinn“ er værðarleg indístemma enda Bjarni Daníel úr Supersport! í heimsókn. „Skrýtið“ er … ja, skrýtnasta lag Teits til þessa. Hér er indírokk á ferðinni, með tilvísunum í tíunda áratugs hetjur eins og My Bloody Valentine og Teenage Fanclub. Hví ekki? Platan endar á „Spegill“, snot- urt lag við texta Skarphéðins. „Ég elska bara þig og þú mátt vera með / nema þegar ég verð upptekinn af mér.“ Dásamlegar línur, flottur „spegill“ á þessa sjálfsuppteknu tíma sem við lifum. Sterk plata frá Teiti. Viðfelldin dægurtónlist sem ornar eyrum en býr um leið yfir dýpt. Teitur á sér nokk einstakan sess í íslenskri popp- tónlist, höfðar til hipstera jafnt sem Halla á bolnum, ljúfur bæði og laun- djúpur. Vinur vina sinna … » Hefðbundinn Teit- ur í bland við óhefð- bundinn, sem er lifandi listamaður sem mynd- ast við að olnboga sig um ný svæði. Teitur, eða Teitur Magnússon, gaf út þriðju plötu sína fyrir stuttu. Kallast hún 33 og vísar hún í aldurinn sem hann bar þegar hún var unnin. En lúmskari vísanir er og að finna. Nýsjálenska kvikmyndagerð- arkonan Jane Campion segir í viðtali við Var- iety að henni þyki ofurhetju- myndir bæði há- værar og kjána- legar. Campion er einn virtasti leikstjóri samtímans og hefur m.a. hlotið Óskarsverðlaun, fyrir hand- ritið að kvikmynd sinni The Piano. Hún var beðin um álit á ofur- hetjumyndum fyrir frumsýningu á nýjustu kvikmynd sinni á dögunum, The Power of the Dog, og sagðist einfaldlega ekki þola þær. Campion var líka spurð að því hvort hún myndi íhuga að leikstýra slíkri mynd og sagði hún óhætt að full- yrða að það myndi hún aldrei gera. Stundum væri að vísu hægt að hlæja að ofurhetjumyndum en hún ætti erfitt með að skilja hvað væri málið með allar skikkjurnar og full- orðna menn í sokkabuxum. Þessi klæðnaður hlyti að eiga rætur að rekja til látbragðsleiks. Fleiri virtir leikstjórar hafa lýst yfir andúð sinni á ofurhetjumyndum, þ. á m. Martin Scorsese. Háværar og kjána- legar ofurhetjur Jane Campion Leiðsagnir verða í boði bæði í dag og á morgun um myndlistarsýn- ingar sem standa yfir í Hafnarborg í Hafnarfirði. Í dag kl. 14 munu Katrín Elvars- dóttir myndlist- armaður og Daría Sól Andrews, sýningarstjóri sýningarinnar Söngfuglar, taka á móti gestum og segja frá sýning- unni sem er í Sverrissal. Þar má sjá ný verk eftir Katrínu frá því að hún heimsótti Kúbu. Lengi skal mann- inn reyna nefnist sýning á verkum Þorvalds Þorsteinssonar heitins og á morgun kl. 14 mun Ágústa Krist- ófersdóttir sýningarstjóri segja frá henni og lífi og list Þorvalds. Fjallað um sýning- ar í Hafnarborg Katrín Elvarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.