Morgunblaðið - 27.11.2021, Page 48

Morgunblaðið - 27.11.2021, Page 48
Forsýning á verkunum stendur yfir hjá Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is Vefuppboð nr. 574 Rauðarárstígur 12–14, sími 551 0400, www.uppbod.is til 29. nóvember JÓLAPERLUR ÚRVAL GÓÐRA VERKA Karl Kvaran Stórval Jón Engilberts Sæmundur Valdimarsson Kristín Jóndóttir Eggert Pétursson Í tilefni af aldarafmæli tangótónskáldsins Astor Piazzolla halda gítarleikararnir Óskar Magnússon og Svanur Vilbergsson tónleika honum til heiðurs á vegum 15:15 tónleikasyrpunnar í Breiðholtskirkju í dag, laugardag, kl. 15.15. Efnisskráin hefst á Invierno Porteno eftir Piazzolla, þá verður flutt verk eftir Sergio Assad Aquarelle. Frumflutt verður nýtt verk eftir Ara Hálfdán Aðalgeirsson sem samið var sérstaklega í til- efni þessara tímamóta og að síðustu verður flutt Tangósvíta eftir Astor Piazzolla. 15:15 tónleikar til heiðurs Piazzolla LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 331. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings í fótbolta, er ánægður með hversu vel félagið hefur styrkt leikmannahópinn í vetur. Hann segir að markmiðin séu skýr, liðið ætli að verja báða titlana og ná langt í Evrópukeppni á næsta ári. »41 Markmiðin eru skýr hjá Víkingum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Tónlistarviðburðurinn „Jólagestir Björgvins“ (jolagestir.is) verður í Laugardalshöllinni (frjálsíþrótta- höllinni) laugardaginn 18. desember. „Öllum reglum um sóttvarnir verður fylgt og tónleikarnir fara fram,“ legg- ur Björgvin áherslu á. Tvennir tón- leikar eru í boði auk þess sem hægt er að kaupa miða í streymi. „Jólagestir Björgvins“ fara nú fram í 15. sinn. Gunnar Helgason leikstýrir veislunni og Björn G. Björnsson er handritshöfundur. „Það er svo gaman að vinna með stórum hópi frábærs listafólks og þetta verð- ur skemmtilegra með hverju árinu,“ segir Björgvin Halldórsson. „Ferlið er reyndar mun lengra en 15 ár,“ bendir hann á og rifjar upp að hann hafi haldið jólatónleika og boðið upp á mat við dekkuð borð að bandarískri fyrirmynd á Hótel Hilton í um hálfan áratug. Fyrir um 15 árum hafi hann síðan haldið ferna tónleika með Sin- fóníuhljómsveit Íslands ásamt Ísleifi Þórhallsyni og hans teymi í Senu Live og troðfyllt Laugardalshöllina í öll skiptin. „Það var svo gaman og þá fengum við þá hugmynd byggða á jólagestaplötum mínum að búa til jólatónleika, „Jólagesti Björgvins“, og þeir hafa gengið framar öllum björt- ustu vonum.“ Valinn maður í hverju rúmi Gestir hans í ár eru Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Gissur Páll Giss- urarson, Högni Egilsson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Margrét Rán, Stefanía Svavars, Svala Björgvins og Sverrir Bergmann. Stórsveit Jóla- gesta undir stjórn Þóris Baldurs- sonar spilar undir, en auk þess koma fram strengjasveit, sem Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir stjórnar, Reykja- vík Gospel Company og Óskar Ein- arsson stjórnandi, Karlakórinn Fóst- bræður ásamt stjórnandanum Árna Harðarsyni, Barnakór Kársnesskóla undir stjórn Álfheiðar Björgvins- dóttur og dansarar úr Dansskóla Sig- urðar Hákonarsonar. „Svo er þetta í tíunda skipti sem við erum með Jóla- stjörnuna,“ minnir Björgvin á, en krakkar 14 ára og yngri hafa árlega tekið þátt í söngkeppninni „Leitinni að Jólastjörnunni“, Sjónvarp Símans hefur sýnt frá keppninni og sigurveg- ararnir komið fram á tónleikunum. Frægðarsól Björgvins hefur risið hátt á löngum ferli og hann segir erf- itt að gera upp á milli einstakra verka. „Ég hef hljóðritað yfir 900 lög, er að leggja drög að nýrri sólóplötu og „Jólagestir Björgvins“ eru hátt á lofti.“ Hann segir að undirbúning- urinn taki um hálft ár og að tónleik- unum loknum sé farið yfir hvað hafi gengið vel og hvað mætti betur fara. „Við hugsum alltaf um að bæta okk- ur, vera ekki með sömu piparkök- urnar ár eftir ár heldur bjóða upp á nýjar og ferskar í hvert sinn.“ Í því sambandi nefnir hann að árlega bæt- ist nýir söngvarar í hópinn og efnis- skráin sé með ólíkum hætti frá ári til árs. Í fyrra voru engir gestir í sal og tónleikunum streymt. Björgvin segir að miðar hafi verið keyptir í 25 lönd- um, allt frá Norðurlöndum til Nýja- Sjálands, og áfram verði boðið upp á þá þjónustu en gaman verði að vera aftur með gesti í sal. „Við höfum brugðist við ástandinu, skiptum saln- um í 500 manna svæði, erum með númeruð sæti í 500 manna stólaeyj- um og vorum klár í það frá upphafi, allir fara í skyndipróf vegna veir- unnar og engin vandamál. Umgjörðin er örugg og fólk þarf ekkert að óttast, við tökum þetta alla leið og tónleik- arnir fara fram.“ Jólagestir Björgvins Frá vinstri: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Svala Björgvins, Gissur Páll Gissurarson, Stefanía Svavars, Björgvin gestgjafi, Högni Egilsson, Margrét Rán, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Sverrir Bergmann. Betra með hverju árinu - Tónlistarviðburðurinn „Jólagestir Björgvins“ fer fram

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.