Morgunblaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021 Ferðaskíði Frábær utanbrautarskíði fyrir alla fjölskylduna #allirútaðleika Selásbraut 98, 110 Reykjavík, sími 419 7300, sportval.is Þú færð Åsnes ferðaskíðin hjá okkur Guðni Einarsson gudni@mbl.is Stefnt er að því að reisa nýja Mið- garðakirkju í Grímsey á næsta ári og helst vígja hana fyrir ársafmæli kirkjubrunans sem varð að kvöldi 21. september. Kirkjan gjör- eyðilagðist og allir kirkjugripir. „Söfnun fyrir nýrri kirkju geng- ur mjög vel,“ sagði Alfreð Garð- arsson, formaður sóknarnefndar í Grímsey. „Grímseyingar skila góðri kveðju til allra og þakka kær- lega fyrir ótrúlega góðan stuðn- ing.“ Búið er að ráða Hjörleif Stef- ánsson arkitekt til að teikna nýju kirkjuna, en hann þekkir vel til gamalla kirkna. „Hjörleifur er bú- inn að koma til fundar við okkur tvisvar sinnum. Nýja kirkjan verð- ur öðru vísi en sú gamla en vísar samt til hennar. Til dæmis verða svalir uppi í turninum eins og í gömlu kirkjunni. Eins ætlum við að nota fjóra krossa sem voru á horn- um gömlu kirkjunnar. Þeir eru úr málmi og það er hægt að galvan- ísera þá og laga,“ sagði Alfreð. „Við ætlum að byrja að byggja í vor. Þá ætlum við að hreinsa það sem eftir er af grunninum og smíða nýjan grunn. Svo fáum við bygg- ingameistara og hefjum smíðina og helst klárum hana næsta sumar.“ Nýja kirkjan verður úr timbri. Alfreð sagði áhuga á að nýta reka- við að einhverju leyti með vísan til sögunnar. Kirkjubyggingin verður stærri en gamla kirkjan því nú verður reist skrúðhús og gert ráð fyrir snyrtingum sem ekki voru í gömlu kirkjunni. Húsið verður 80- 90 fermetrar og er áætlað að kirkj- an geti kostað 80-100 milljónir króna gróft áætlað. Arna Björg Bjarnadóttir frá verkefninu Glæðum Grímsey ætlar að aðstoða Grímseyinga við að afla styrkja og fjármagns í bygginguna. Reikningsupplýsingar sóknarinnar eru banki 565-04-250731 og kt. 460269-2539. En hvernig verður helgihald um hátíðarnar? „Við stefnum að jólamessu í fé- lagsheimilinu á milli jóla og nýárs eins og undanfarin ár. Séra Magn- ús G. Gunnarsson og séra Oddur Bjarni Þorkelsson á Dalvík sjá um þetta fyrir okkur,“ sagði Alfreð. Góður afli, erfiðar gæftir Tveir bátar frá Grímsey hafa undanfarið veitt ufsa í net. Gæftir hafa verið erfiðar en fiskast vel þegar hefur gefið á sjó. Aflinn hef- ur verið slægður í Grímsey og sendur ísaður í land, nema þá daga sem ferjan kemur. Þá er ufsinn sendur óslægður. „Það borgar sig ekki að verka í saltfisk, eins og við höfum alltaf gert. Það er það gott verð á mörkuðunum,“ sagði Alfreð. Netin eru aldrei lögð nema veður sé daginn eftir til að draga svo afl- inn verði aldrei nema einnar nátt- ar. Tölvuteikning/Hjörleifur Stefánsson Grímsey Drög að nýrri kirkju hafa verið kynnt og á að hefjast handa í vor. Hafa fyrstu útlitsteikingar verið birtar. Ný kirkja á næsta ári - Grímseyingar ætla að byggja kirkju - Arkitekt ráðinn Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vatn var ekki farið að hækka í Gígju- kvísl síðdegis í gær. Íshellan í Gríms- vötnum hafði þá sigið um fimm metra samkvæmt upplýsingum frá Veður- stofu Íslands. Bjarki Friis náttúru- vársérfræðingur sagði að íshellan gæti lækkað um allt að 100 metra. „Við vitum að vatn er á leiðinni frá Grímsvötnum og skilar sér einhvers staðar undan Skeiðarárjökli. Þá get- um við mælt hvort það kemur gas,“ sagði Bjarki. Hann sagði að gasmæl- ar væru meðfram jaðri Skeiðarár- jökuls til að mæla gaslosun. Nokkur lón eru við jökuljaðarinn. Hlaupvatnið fer líklega í þau og svo áfram vestur með jöklinum og í Gígjukvísl. Yfir Gígjukvísl er stór brú og þar eru einnig vatnshæðarmælir, leiðnimælir og gasmælir. Reiknað er með að flóðið geti orðið allt að 5.000 rúmmetrar á sekúndu. Til samanburðar má nefna að hlaupið sem fylgdi Gjálpargosinu 1996 var um 45.000 rúmmetrar á sekúndu. Bjarki sagði að meira vatn hefði safnast í Grímsvötn nú en fyrir hlaupið sem kom 2010 og eins fyrir hlaupið 2004. Hlaup nú yrði þó miklu minna en það sem fylgdi Gjálpargos- inu. Grímsvötn gusu vorið 2011 eða hálfu ári eftir Grímsvatnahlaupið 2010. Þau gusu skömmu eftir að hlaupið kom 2004. Spurningin er hvort eldgos fylgir í kjölfar hlaupsins nú eða ekki. Morgunblaðið/RAX Grímsvötn Yfir þeim er íshella sem nú hefur sigið um að minnsta kosti fimm metra. Það þykir vísbending um að hlaup sé að hefjast úr vötnunum. Verður minna en hlaupið úr Gjálp - Fylgir eldgos Grímsvatnahlaupi nú? Alls greindust 95 með kórónuveir- una innanlands á sunnudag, þar af voru 53 í sóttkví við greiningu. Sautján smit greindust á landamær- unum. Nítján liggja nú á sjúkrahúsi og eru þar af tveir á gjörgæslu. 70 prósenta mæting í örvun Í gær hófst þriðja vika örvunar- bólusetninga í Laugardalshöll af fjórum og var svipuð mæting og í tveimur fyrstu. Rúmlega sjö þúsund mættu í gær og mættu um 70 pró- sent boðaðra. Ragnheiður Ósk Er- lendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðisins, segist í samtali við Morgunblaðið hafa fulla trú á að fregnir af nýju afbrigði veirunnar, Ómíkron, verði frekar til þess að fólk mæti í örvunarbólusetningu. „Ég hef trú á því að það verði heldur betri mæting í þessari viku en verið hefur. Fólk er að kveikja á þessu og við erum í þessu átaki. Fjölmargir eru að koma sem fengu til að mynda boð í síðustu viku,“ seg- ir Ragnheiður. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir var meðal þeirra sem mættu í Laugardalshöll í gær- morgun í örvunarskammt. Óvissa hvað varðar Ómíkron Í samtali við Morgunblaðið í gær sagðist Þórólfur telja að það geti orðið erfitt að koma í veg fyrir að Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar berist hingað til lands. Óvissa ríkir um hversu smitandi afbrigðið er en fyrsta smitið greindist í Suður- Afríku og virðist úbreiðslan mest í sunnanverðri álfunni þótt það hafi borist víðar. „Þetta er meira að segja komið inn í Ástralíu sem er með mjög strangar reglur, miklu strangari reglur en við,“ segir Þór- ólfur. Hann segir allar sótt- varnaaðgerðir miða að því að tefja og hemja útbreiðslu kórónuveir- unnar. Aldrei sé þó hægt að vænta þess að aðgerðir komi alveg í veg fyrir að þessi veira dreifi sér. 175 150 125 100 75 50 25 0 Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí 1.592 erumeð virkt smit og í einangrun1.939 einstaklingar eru í sóttkví 19 einstaklingur er á sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu 317 ný innanlandssmit greindust sl. helgi (fös. 26. til sun. 28. nóv.) júlí ágúst september október nóvember Staðfest smit 7 daga meðaltal Fjöldi innlagðra á LSH með Covid-19 smit 154 206 32 19 135 112 H ei m ild :c ov id .is Nýja afbrigðið ýti undir mætingu - Þriðja vika örvunarbólusetninga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.