Morgunblaðið - 30.11.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi,
rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það
ofnahreinsir, klór og stíflueyðir og þolir mikinn hita.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
HÁTT
HITAÞOL
„ÁTTU EINHVERJA SEM GENGUR FYRIR
STÖÐURAFMAGNI?“
„ÉG ÆTLA AÐ SKILA ÞESSUM KYLFUM. ÞÆR
ERU VITAGAGNSLAUSAR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að velja þig.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HÉR
ER ÉG …
Á SUNDNÁMSKEIÐI
ÞEGAR ÉG VAR LÍTILL
ÉG VAR HRÆDDUR
VIÐ DJÚPU LAUGINA
ER ÞETTA
BAÐKAR?
MAMMA SEGIR AÐ
PENINGAR GETI EKKI
KEYPT HAMINGJU!
ÞAÐ ER
RÉTT HJÁ
HENNI!
EN MEÐ HELLING AF PENINGUM MÁ
KAUPA FULLT AF DÓTI TIL AÐ
HUGGA SIG VIÐ!
um við hjónin mikið og erum nokkuð
duglegir bókasafnarar. Mér finnst
ekkert hús vera heimili án bóka.“
Samskiptin við fjölskylduna eru
samt alltaf í fyrsta sæti. „Ég er svo
heppin að vera orðin amma og er
núna með tvo litla ömmusnáða sem
búa hérna á Ísafirði, sem er þvílík
gæfa. Elsti sonur minn fór í nám út
til Hollands, þannig að við erum ein-
staklega heppin að hafa fengið hann
og fjölskyldu aftur heim. Tveir yngri
synirnir eru komnir til Reykjavíkur
og tíminn þarf að leiða það í ljós
hvort þeir snúi líka aftur heim. Mað-
ur getur alla vega vonað.“
Fjölskylda
Eiginmaður Höllu er Þröstur Jó-
hannesson, tónlistarmaður og rithöf-
undur, núverandi starfsmaður á
Vakstöð Vegagerðarinnar, f. 2.1.
1969. Foreldrar hans eru hjónin Jó-
hannes Gunnar Jóhannesson út-
gerðarmaður, f. 7.8. 1926, d. 17.10.
2001 og Ásdís Óskarsdóttir hús-
móðir, f. 16.2. 1931, d. 19.2. 2008.
Synir Höllu og Þrastar eru: 1) Andri
Pétur, tónlistarmaður og tónlistar-
kennari, f. 6.7. 1992. Hann er í sam-
búð með Mörtu Sif Ólafsdóttur,
hönnuði, f. 13.11. 1986, og þau eiga
synina Ask Óma, f. 22.2. 2018 og
Hrafn, f. 14.4. 2021. 2) Steinn Daníel
stálsmiður, f. 7.2. 1997; 3) Fróði
Benjamín myndlistarnemi, f. 19.6.
1998 og 4) Magni Jóhannes verka-
maður, f. 11.1. 2001.
Systur Höllu eru Harpa þjóðfræð-
ingur, f. 15.2. 1968 og Marta Hlín
bókaútgefandi, f. 14.3. 1970.
Foreldrar Höllu eru hjónin Magni
Örvar Guðmundsson netagerðar-
meistari, f. 30.6. 1944 og Svanhildur
Þórðardóttir kaupmaður, f. 27.3.
1946. Þau búa á Ísafirði.
Guðbjörg Halla
Magnadóttir
Solveig Magnúsdóttir
húsfreyja í Bolungarvík
Magnús Sigurðsson
sjómaður og verkamaður
í BolungarvíkGuðbjörg
Magnúsdóttir
saumakona og
húsfreyja á Ísafirði
Þórður Helgi
Einarsson
verslunarmaður á
Ísafirði
Svanhildur
Þórðardóttir
kaupmaður á
Ísafirði
Svanhildur Jónsdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Einar Guðmundsson
skósmiður á Ísafirði og
síðar í Reykjavík
Anna Filippía
Bjarnadóttir
húsfreyja á Ísafirði
Ólafur Guðbrandur
Jakobsson
skósmiður á Ísafirði
Bjarney Ingibjörg
Ólafsdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Guðmundur Sveinsson
netagerðarmeistari á Ísafirði
Guðríður Judith
Magnúsdóttir
húsfreyja á Góustöðum,
Ísafjarðarsókn, N-Ís.
Sveinn Guðmundsson
útvegsbóndi og netagerðarmaður á
Góustöðum, Ísafjarðarsókn, N-Ís.
Ætt Guðbjargar Höllu Magnadóttur
Magni Örvar
Guðmundsson
netagerðarmeistari á
Ísafirði
Pétur Stefánsson sendi mér póst
og segir að á köldu, hvössu og
heiðskíru vetrarkvöldi verði svona
vísur til:
Fold er klædd í fannaskrúða,
föl er landsins sýn.
Tunglið varpar geislagliti
glatt á mjallarlín.
Klakabrynju klettar skarta,
kuldinn nístir merg.
Héluslæðan hylur gráa
hamra, gil og berg.
Klakabönd sem fjötra fossa
er fögur sýn og sterk.
Stjörnur glitra á himinhvolfi,
Herrans listaverk.
Norðanáttin napurt vælir
nístingshvöss og köld.
Veröld okkar hrjúfri heilsar
heiðskírt vetrarkvöld.
Í fréttum ríkisútvarpsins kom
fram að varpfuglum í ESB hefði
fækkað um hundruð milljóna. Hall-
mundur Kristinsson yrkir í Boðnar-
miði:
Tilfinningu þá ég þekki;
það er hvorki né.
Varpfuglarnir vilja ekki
vera í ESB.
Hér er limra eftir Guðmund Arn-
finnsson:
Mannjöfnuður
Þeir telja að Bjössi bakari
sé betri maður og spakari
en hárskerinn Geir,
en hitt vita þeir,
að hárskerinn Geir er rakari.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir
um „aðventustjórnina“:
Aðventan er upphaf jóla
ýmsir fara að hlakka til.
Allir fá þá aftur stóla
aðra titla en sömu spil.
Anton Helgi Jónsson yrkir:
Með furðu af köppum menn fréttu
sem fuku í logni af sléttu
en komust að því
að KSÍ
er kallspyrnusamband með réttu.
Veiran er enn á dagskrá. Ólafur
Stefánsson yrkir út af nýjustu (ó)
tíðindum:
Ég býst við að það sé borin von,
að batni neitt þegar Ómíkron,
svo frjáls um heiminn flýgur.
Veira sú er verri en skæð,
í vonsku nær hún meiri hæð,
ef orðrómur ekki lýgur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Aðventustjórnin
og Ómíkron