Morgunblaðið - 30.11.2021, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021
✝
Örn Hilm-
arsson fæddist
19. mars 1965 í
Reykjavík. Hann
lést 24. október
2021 á heimili sínu
í Kaupmannahöfn,
Danmörku. For-
eldrar hans eru
Hilmar Þór Sig-
urþórsson, f. 1944,
og Guðrún Kalla
Bárðardóttir, f.
1946. Örn var elst-
ur sinna systkina en þau eru
Ingibjörg Bára, f. 1967, Hrönn,
f. 1972 og Ómar, fæddur 1973.
Með fyrrverandi eiginkonu
sinni, Jóhönnu Jónsdóttir, f.
1963, d. 2009, átti Örn dæt-
urnar Heiðu, f.
1987, Lísu, f. 1988,
d. 2009, og stjúp-
soninn Stefán Haf-
berg, f. 1983, d.
2012.
Örn ólst upp í
Hafnarfirði frá
þriggja ára aldri
og bjó þar þangað
til hann flutti til
Danmerkur um
miðjan tíunda ára-
tug. Hann var
lærður smiður frá Iðnskólanum
í Hafnarfirði og starfaði sem
slíkur megnið af sínum starfs-
ferli.
Jarðarförin fór fram í kyrr-
þey.
Það er skrítið að skrifa minn-
ingargrein um þig stóri bróðir
og við hefðum heldur kosið að
geta rætt við þig og rifjað upp í
stað þess að setja orð á blað. Þú
varst handlaginn, skapandi, list-
rænn og músíkalskur en á sama
tíma þægilegur, rólegur og með
mikinn húmor.
Snemma kom í ljós hversu
sjálfstæður og athafnasamur þú
varst en sem krakki varstu far-
inn að búa til kvikmyndir á 8
mm kvikmyndavélina og halda
sýningar í bílskúrnum fyrir
krakkana í hverfinu. Þetta var
sko alvörubíó þarna í bílskúrn-
um sem bauð ekki bara upp á
myndir heldur var einnig til sölu
heimatilbúið popp og djús með
myndunum.
Tónlist kemur í hugann þegar
við hugsum til þín. Þú gast spil-
að á hvaða hljóðfæri sem var og
hafðir sterkar skoðanir á hvað
væri alvörutónlist.
Úr barnæskunni munum við
eftir bíóferðunum og skíðaferð-
unum í rútu og með kakóbrúsa,
módelunum sem þú settir saman
og fyrir okkur yngstu systkinin
var herbergið þitt algjör æv-
intýraheimur.
Aðeins tuttugu og þriggja ára
varstu orðinn þriggja barna fað-
ir með einn stjúpson og tvær
dætur. Þú varst lærður smiður
og búinn að eignast þína fyrstu
íbúð. Þar kom athafnamaðurinn
berlega í ljós þar sem þú sást
tækifæri í litlu verkstæði söðla-
smiðs sem þú keyptir og breytt-
ir í íbúð. Ekki lést þú þar við
sitja og fórst næst í að byggja
þriggja hæða hús, þar sem ein
hæðin var hugsuð fyrir þína fjöl-
skyldu.
Þú varst ekki laus við stór
áföll í lífinu, missir bæði stjúp-
son og dóttur. Þú flytur til Dan-
merkur þar sem þú býrð í yfir
20 ár, allt þar til andlát þitt bar
óvænt að.
Minning þín lifir með okkur
og við erum þakklát fyrir þann
tíma sem við áttum með þér.
Þín systkini,
Bára, Hrönn og Ómar.
Örn Hilmarsson
Þau ljós sem skærast
lýsa
þau ljós sem skína
glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið logaskæra
sem skamma stund oss gladdi
Erla Björk
Helgadóttir
✝
Erla Björk
Helgadóttir
fæddist 10. nóv-
ember 1981. Hún
lést 2. nóvember
2021.
Útför Erlu
Bjarkar fór fram
13. nóvember 2021.
það kveikti ást og
yndi
með öllum sem það
kvaddi.
Þótt burt úr heimi
hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda
hjarta.
(Friðrik Guðni Þór-
leifsson)
Í dag rís bjartur
og fallegur dagur, dagurinn
sem við kveðjum þig hinstu
kveðju. Dagurinn sem er fal-
legur eins og þú, að innan sem
utan. Þú snertir svo marga með
þinni fallegu sál og gleðinni til
lífsins. Frá því ég var ungling-
ur hef ég vitað hver þú varst,
þessi glaðværa, hláturmilda,
hjálpfúsa, af og til háværa unga
kona sem fór stundum fram úr
sjálfri sér í gleði lífsins. Við
þekktumst ekki mikið en núna
seinni ár hef ég kynnst þér upp
á nýtt í gegnum börnin okkar
og þegar þið fjölskyldan fluttuð
hingað fram eftir. Við vorum
kannski ekki alltaf á sömu
bylgjunni en virðingin hvor fyr-
ir annarri var alltaf til staðar.
Og þú varst yndi! Jákvæð á
lífsins sýn og dugleg.
Þegar ég settist niður með
öllum börnunum, vinum okkar í
Tónadansi, kom svo áþreifan-
lega í ljós hvað þú snertir þau á
margan hátt. Þú varst ekki
bara þessi sem eldaði matinn
þeirra í Varmahlíðarskóla, þú
varst svo miklu miklu meira.
Hjartahlý, vinkona, brosandi,
sýndir virðingu, góð mamma,
góður vinur, fullkominn kokk-
ur, falleg, jákvæð, ráðagóð,
þetta eru meðal margra fag-
urra orða sem börnin höfðu að
segja um þig.
Feykir, börnin þín, fjölskyld-
an og vinirnir allir munu sakna
og ég votta þeim alla mína sam-
úð.
Þetta fallega ljóð hér að ofan
finnst mér eiga vel við í dag.
Þetta ljóð finnst mér svo fallegt
og af einhverjum ástæðum er
það alltaf með mér í dagsins
önn í bókinni minni góðu sem
ég skrifa í allt það mikilvæga.
Ekki veit ég hvaðan ég fékk
blaðið sem ljóðið er skrifað á en
það færist á milli bóka ár eftir
ár. Og daginn fyrir andlát þitt
tók ég það fram og las eins og
ég geri svo oft.
Í dagsins önn gefum við okk-
ur ekki alltaf tíma til að spjalla,
stundum varla til að segja góð-
an dag en þú spjallaðir alltaf og
brosið þitt var ávallt til staðar
og blikið í augunum. Þannig vil
ég muna þig.
Takk fyrir að leyfa mér að
kynnast þér, takk fyrir að
hugsa svona vel til okkar fjöl-
skyldunnar sem vinur og vera
vinur barnanna okkar. Ég mun
muna þig – ávallt.
Með virðingu og þökk.
Kristín Halla, Grænumýri.
Genginn er sá
góði drengur Skúli
Einarsson. Skúli
frændi hafði einstak-
lega góða og þægilega nærveru.
Hann var ávallt uppbyggilegur og
glaður og sérstaklega hlýr í við-
móti. Skúli var heill í öllu því sem
hann tók sér fyrir hendur. Kom
mörgu í verk enda var Skúli bæði
atorkusamur og gekk til allra
verka með jákvæðum huga. Hag-
leiksmaður, bæði á járn og tré.
Þessi hagleikni virðist reyndar
hafa loðað við Tannstaðabakka
langt aftur í ættir, þótt vissulega
hafi það ekki skilað sér til allra
ættingja eins og við bræður erum
dæmi um.
Það var gott að koma á Tann-
staðabakka til þeirra Skúla og
Ólafar. Þau voru einstaklega sam-
rýnd og gestrisin hjón. Það var
sama í hversu góðu skapi við vor-
um þegar við komum að máli við
Skúla, alltaf fórum við enn glaðari
til baka. Börnin okkar hrifust af
Skúla og voru heimsóknir okkar á
Tannstaðabakka ekki síður eftir-
minnilegar fyrir ungviðið enda
leiðsögn Skúla um svæðið ógleym-
anleg. Þá er okkur minnisstæður
sá tími þegar hann kom í heim-
sóknir til Guðlaugar ömmu á
Birkimel, en á þeim tíma spilaði
hann í hljómsveit Gissurar Geirs-
sonar, sem var þekkt sveitaballa-
hljómsveit.
Skúli Einarsson
✝
Skúli Ein-
arsson fæddist
29. maí 1955. Hann
lést 14. nóvember
2021.
Útför Skúla var
gerð 19. nóvember
2021.
Skúli var öflugur í
félagsstarfi og gjaf-
mildi þeirra hjóna til
félagasamtaka og
góðgerðarmála til
mikillar fyrirmynd-
ar og eftirbreytni.
Skúli og fjöl-
skylda báru jafnan
hitann og þungann
af ættarmótunum
sem haldin hafa ver-
ið á Tannstaðabakka
á fimm ára fresti. Við undirbúning
ættarmótsins í sumar höfðu þeir
sem að honum komu áhyggjur af
því að Skúli myndi ganga nærri
sér vegna veikinda sinna og vildu
því létta verulega undir með hon-
um. Hann var hins vegar samur
við sig, því enginn lagði nálægt því
jafn mikið af mörkum við undir-
búninginn og Skúli. Í raun hafði
hann engan tíma til þess að vera
veikur. Ættarmótið var afskap-
lega vel heppnað. Við fengum
góða kynningu á búrekstrinum frá
Skúla, Ólöfu og Guðrúnu Eik dótt-
ur þeirra. Skúli sýndi gestum þá
aðstöðu sem þau höfðu komið sér
upp á bænum fyrir fjölbreyttar
tómstundir þeirra hjóna, m.a. sýn-
ingarsal fyrir hannyrðir, smíða-
verkstæði, líkamsræktarsal ásamt
glæsilegu æfingasvæði fyrir hvers
kyns hljóðfæraleik.
Skúli var veislustjóri á ættar-
mótinu og stóð sig einkar vel í því
hlutverki, náði strax upp góðri
stemningu með skemmtilegum
sögum ásamt fjörugum söng og
gítarleik. Hann lét þar ekki við
sitja því eftir að borðhaldinu lauk
hélt hann áfram að spila og
syngja, langt fram yfir miðnætti,
við miklar og góðar undirtektir.
Við borðhaldið kom Skúli með
þá uppástungu að halda annað
ættarmót í Noregi á næsta ári, þar
sem hluti ættarinnar býr, en þeir
ættingjar komust ekki á ættar-
mótið í sumar. Hann hafði mikinn
áhuga á því að hitta frændfólk sitt
ytra, en því miður var tíminn ekki
nægur til þess að sú ósk hans yrði
að veruleika.
Það verður skrítið að mæta á
ættarmótin hér eftir og hætt við
að þau verði vart svipur hjá sjón
þegar Skúla nýtur ekki lengur við.
Skúli var einkar náinn og góður
vinur okkar bræðra. Hans verður
sárt saknað.
Aðstandendum Skúla sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Sigurður Bragi Guðmundsson,
Gunnar Karl Guðmundsson,
Heimir Guðmundsson.
Kynni okkar hjónanna af Skúla
Einarssyni og Ólöfu urðu vegna
þess að við vorum að fást við sömu
búgreinina. En ekki síður þegar
Skúli tók við formennsku í Félagi
kjúklingabænda og um það getur
sá sem þetta ritar borið að hann
skilaði þar af sér góðu búi og hafði
unnið félaginu vel eins og við var
að búast.
Ég átti eitt sinn samtal við
Skúla Einarsson sem ég mun
seint gleyma. Hann var þá á bíl
sínum í vondri færð að vetri til,
ófærð sem varð vegna norðaná-
hlaups með mikilli snjókomu,
straumrofum og þar af leiðandi
rekstrartruflunum hjá bændum
og fjölmörgum öðrum um nær allt
Norðurland.
Spurði ég hann frétta og um
hvort allt hefði farið vel hjá þeim
hjónum og næstu nágrönnum í
veðuráhlaupinu.
Skúli bar sig vel og gerði lítið úr
vandræðunum. Sagðist hafa búið
sig vel undir veturinn varðandi
varaafl, sem er svo nauðsynlegt í
nútímabúrekstri, og allt hefði
gengið vel hjá þeim. Tók hins veg-
ar fram að það sama gilti ekki um
alla og hrossin hefðu t.d. farið illa
út úr veðuráhlaupinu.
Örstuttu seinna var bíllinn orð-
inn fastur í ófærðinni, rétt eftir að
Skúli var nýbúinn að gera lítið úr
veikindum sínum, eftir að ég hafði
spurt út í þau.
Hana, nú er ég fastur, en það
gerir ekkert til, það bjargast!
Eitthvað á þá leið, var það sem
barst mér á öldum ljósvakans og
við slitum spjallinu eftir góðar
óskir hvor til annars og ég efaðist
ekki eitt augnablik um, að Skúli
myndi bjarga sér úr þessum að-
stæðum.
Svona var hann, maðurinn sem
ég kynntist m.a. af störfum hans
fyrir Félag kjúklingabænda. Mað-
urinn sem lýsti því sem skottúr að
aka norðan úr Húnavatnssýslu til
Reykjavíkur til að sinna fé-
lagsstörfum og öðrum erindum.
Sem gat fengið mig og fleiri til
að syngja á Hótel Örk þegar beðið
var eftir að veisla hæfist og gerði
það þannig að okkur öllum fannst
sem annað eins og þetta hefðum
við bara alltaf gert og gætum því
alltaf gert það aftur, það væri svo
sjálfsagt. Og kátt var á hjalla í
herberginu á Örkinni!
Og gaman var að fá þau hjónin í
heimsókn til spjalls fyrir nokkrum
árum þegar þau hugðu á véla-
kaup.
Störf Skúla fyrir Félag kjúk-
lingabænda eru sannarlega þakk-
arverð og þau ánægjulegu kynni
sem ég hafði af honum voru upp-
byggileg og góð.
Innilegar samúðarkveðjur vil
ég færa Ólöfu, börnum og öðrum
aðstandendum.
Ingimundur Bergmann,
fyrrverandi formaður
Félags kjúklingabænda.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÓSK BRYNJA HANNESDÓTTIR,
Grænahrauni, Hornafirði,
lést í faðmi fjölskyldunnar á gjörgæsludeild
Landspítalans mánudaginn 22. nóvember.
Útförin fer fram frá Hafnarkirkju miðvikudaginn 1. desember
klukkan 11. Jarðsett verður í Djúpavogskirkjugarði sama dag.
Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur
viðstaddir athöfnina en streymt verður frá athöfninni á slóðinni
https://hafnarkirkja.is.
Valþór Ingólfsson
Hansína Valþórsdóttir Bjartmar Ágústsson
Guðni Þór Valþórsson Lilja Björg Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
RAGNHEIÐUR H. INGÓLFSDÓTTIR
Dídí,
áður til heimilis í Suðurtúni 21,
Álftanesi,
lést miðvikudaginn 17. nóvember
á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Ástvinir þakka starfsfólki Hrafnistu fyrir góða umönnun.
Berghildur Gísladóttir
Gísli Ingólfur Gíslason Sæunn Eiríksdóttir
Axel Gíslason Kolbrún Jóhannesdóttir
og aðrir ástvinir
Okkar ástkæri
JÓN HILMAR BJÖRNSSON,
Kirkjubraut 12, Seltjarnarnesi,
lést 23. nóvember.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju
þriðjudaginn 7. desember klukkan 13.
Vegna sóttvarna eru kirkjugestir beðnir að sýna neikvætt
Covid-hraðpróf við inngöngu, ekki eldra en 48 klst. Heimapróf
eru ekki tekin gild.
Kristín Unnur Ásgeirsdóttir
Soffía Ásgeirs Óskarsdóttir Sigurjón Jónsson
Óskar Ásgeir Óskarsson Lilja Sigurgeirsdóttir
Guðmundur Óskarsson Kristín Þorleifsdóttir
afa- og langafabörn
SIGRÚN JÓNSDÓTTIR
frá Herríðarhóli
er látin. Jarðarförin hefur farið fram.
Fjölskyldan
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EYÞÓR EINARSSON
grasafræðingur,
lést þriðjudaginn 23. nóvember á Hrafnistu
í Laugarási. Jarðarförin fer fram frá
Háteigskirkju miðvikudaginn
1. desember klukkan 13.00. Kirkjugestir þurfa að sýna fram á
neikvætt hraðpróf við kirkjudyrnar. Streymt verður frá útförinni.
Margrét Eyþórsdóttir
Ingibjörg Eyþórsdóttir Guðmundur Andri Thorsson
Sigríður Eyþórsdóttir Styrmir Guðlaugsson
Þórey Eyþórsdóttir
Jakob Einar, Svandís Roshni, Eyþór,
Sólrún Liza, Kristín og Svanlaug
Okkar elskulega móðir, tengdamamma
og amma,
INGRID MARIA PAULSEN
er látin.
Birgir Martin Barðason
Heimir Barðason
og fjölskyldur