Morgunblaðið - 30.11.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 30.11.2021, Síða 22
Smáauglýsingar Bækur Bækur Bækur úr bílskúrnum. Opin sölusíða á Facebook Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar Nýr 2021 Mitsubishi Outlander Hybrid Spirit+ Tíglamynstruð leður á sætum. 18” álfelgur. 5 ára evrópsk verksmiðju- ábyrgð. Þessir bílar hækka í verði um áramót ! 4 litir á staðnum. Verð 5.950.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir !)% #$' )&(")*") =-405/7+ K?, #%@ >9DJL<.)HC =(5& GGK AI!% * 8<E GAK AI!I B FFF'<6;3<:$2'"1 Aukaaðalfundur 2021 Byggingasamvinnufélags samtaka aldraðra bsvf Verður haldinn þann 7. desember 2021, kl. 14:00 í safnaðarheimili Grensássóknar, Háaleitisbraut 66, Reykjavík. Dagskrá: 1. Breytingar á samþykktum félagsins. 2. Önnur mál, sem heyra undir aukaaðalfund skv. lögum og félagssamþykktum. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn. Í ljósi aðstæðna þurfa félagsmenn að sýna fram á neikvætt Covidhraðpróf við inngöngu ekki eldra en 48 klst. Stjórnin. Auglýsing um álagningu vanrækslugjalds á árinu 2022 Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Álagning vanrækslugjalds á eigendur (umráðamenn) þeirra ökutækja sem skráð eru í ökutækja-skrá hérlendis og ekki hafa verið færð til aðalskoðunar frá og með 1. október 2021 hefst 4. janúar 2022. Álagning gjaldsins byggir á 45. og 46. gr. reglugerðar nr. 414/2021 um skoðun ökutækja með síðari breytingum, sbr. 74. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum. Miðast álagning gjaldsins, með þeim undantekningum sem greinir hér að neðan, við endastaf skráningarmerkis ökutækis og leggst það á sem hér segir: • 4. janúar vegna ökutækja með 0 sem endastaf og færa átti til skoðunar í október 2021. • 1. apríl vegna ökutækja með 1 sem endastaf. • 3. maí vegna ökutækja með 2 sem endastaf. • 1. júní vegna ökutækja með 3 í endastaf. • 1. júlí vegna ökutækja með 4 í endastaf. • 3. ágúst vegna ökutækja með 5 í endastaf. • 1. september vegna ökutækja með 6 í endastaf. • 1. október vegna ökutækja með 7 í endastaf. • 1. nóvember vegna ökutækja með 8 í endastaf. • 1. desember vegna ökutækja með 9 í endastaf. • 3. ágúst vegna fornökutækja, húsbifreiða, léttra bifhjóla (L1e, L2e og L6e) í flokki II og bifhjóla, hjólhýsa, fellihýsa og tjaldvagna, sbr. 7. gr. reglugerðar um skoðun ökutækja. • 3. ágúst vegna ökutækja með einkamerki sem ekki enda á tölustaf. Vanrækslugjald leggst á vegna þeirra ökutækja sem ekki hafa verið færð til endurskoðunar skv. ákvæðum reglugerðar um skoðun ökutækja þegar liðinn er mánuður frá lokum þess mánaðar er ökutækið skyldi fært til endurskoðunar samkvæmt ákvörðun skoðunarmanns. Vanrækslugjald leggst á vegna þeirra ökutækja sem ekki hafa verið færð til skoðunar þegar liðinn er mánuður frá því að skráningarmerki var afhent tímabundið til þess að færa mætti ökutækið til skoðunar. Þremur mánuðum eftir álagningu vanrækslugjalds hefst innheimta þess hafi ökutækið ekki verið fært til skoðunar eða það skráð úr umferð og gjaldið greitt innan þess tíma. Ísafirði, 29. nóvember 2021. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum. Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Ath. Grímuskylda er á uppboðum. Eftirtalið ökutæki verður boðið upp á bifreiðastæði við Héðinsbraut 4, Húsavík, þriðjudaginn 7. desember 2021, kl. 10:30 eða á öðrum stað eftir ákvörðun uppboðshaldara, sem verður kynnt á staðnum: MV674 Krafist verður greiðslu við hamarshögg. Ekki er tekið við greiðslukortum. Uppboðsskilmálar eru til sýnis á skrifstofu embættisins og þar verða einnig veittar frekari upplýsingar ef óskað er. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 29. nóvember 2021 Halla Einarsdóttir, ftr. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss -Tálgað í tré kl.13:00 - Postulínsmálun kl.13:00, með leiðbeinanda - Ættfræðigrúsk á tölvuöld, fyrirlestur með Stefáni Halldórssyni kl.13:30, kostar ekkert - Kaffi kl.14:30-15:20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimi m. Milan kl. 10.30. Leshringur kl.11.15. Handavinna kl. 12-16. Bridgehópur kl.12:30. Karlakórsæfing kl. 12:45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Boðinn Pílukast kl 10:00. Ganga/stafganga með leiðsögn kl. 10:00 frá anddyri Boðans. Fuglatálgun kl. 13:00. Bridge og Kanasta kl. 13:00. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00. Bústaðakirkja Opið hús frá kl 13-16 á miðvikudag, huggulegt samfélag með kaffi og kruðéríi frá Sigurbjörgu í eldhúsinu. Prestur verður með hugleiðingu og bæn, gestur dagsins er Kristín Björg Si- gurvinsdóttir rithöfundur. Hún mun lesa upp úr bók sinni Dóttir haf- sins. Hlökkum til að sjá ykkur. Við gætum að sóttvörnum og eigum góða stund saman. Dalbraut 18-20 Dansleikfimi með Auði kl.12.50, félagsvist kl.13.30. Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 súpa og brauð eftir stun- dina. Félagsstarf eldri borgara kl. 13 Verið velkomin í gott og gefandi samfélag. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Prjónað til góðs kl. 8:30-12:00. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9:45-10:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12:30-15:30. Heimaleikfimi á RUV kl. 13:00-13:10. Bónusrútan kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Bókabíllinn kl. 14:45. Garðabær Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Qi-Gong í Sjál kl. 9:00. Stólajóga kl. 11:00 í Jónshúsi. Leikfimi í Ásgarði kl. 12:15. Boccia í Ásgarði kl. 13:10. Smíði kl. 9:00 og 13:00 í Smiðju Kirkjuhv. Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30 = Handavinna. Kl. 9 til 10.15 = Heilsu-Qi- gong í hreyfi- og aðalsal. Kl.Kl. 13 til 16 = opin handavinnustofa. kl. 14 til 15 = Skapandi skrif, (annan hvern þr.dag frá 6/10). Kl. 16 til 18 = Námskeið hjá Nafnlausa leikhópnum. Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 30. nóvember verður opið hús í Grafarvogskirkju fyrir eldri borgara. Opna húsið er kl. 13:00-15:00. Margt er til gamans gert. Boðið er uppá kaffi og meðlæti að opna húsinu loknu. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst kl. 12:00. Að henni lokinni er hádegisverður gegn vægu gjaldi. Allir hjartanlega velkomnir! Gullsmári 13 Myndlist kl.09:00. Boccia kl.10:00.Tréútskurður kl.13:00. Canasta kl.13:00. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli 9:00-11:00. Handavinna með leiðbeinanda kl 9:00-12:00. Félagsvist kl 13:00 þátttökugjald er 200kr, léttar veitingar seldar í hléi. ATH Grímuskylda!! Hraunsel Billjard: Kl. 8 -16. Dansleikfimi kl. 9. Qi Gong kl. 10.00. Bridge kl. 13.00. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Jóga með Rakel Írisi kl. 9:00. Ættfræðigrúsk kl. 10:30. Bridge í handavinnustofu 13:00. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Listmálun með Pétri kl. 9 í Borgum, Boccia í Borgum kl. 10 og útvarpsleikfimi í Borgum kl. 9:45, Helgistund á vegum Grafarvogs- kirkju kl. 10:30. Leikfimishópur Korpúlfa í umsjón Margrétar kl. 11 í Egilshöll. Spjallhópur í listasmiðju í Borgum kl. 13 og sundleikfimi með Brynjólfi í Grafarvogssundlaug kl. 14. Förum varlega virðum sóttvarnir þið eruð öll svo dýrmæt. Kaffi á könnunni í Borgum. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Áslaug, píanóleikari, kynnir og leikur tónverk. Kaffiveitingar áTorginu. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist bútasaumshópur í handa- vinnustofu milli kl. 09-12. Hópþjálfun verður í setustofu 2. hæðar milli kl. 10:30-11:00. Þá verður tölvu og snjalltækjaaðstoð í setustofu milli kl. 11:00-11:30. Bókband er í smiðju 1. hæðar milli 13:00-16:30. Milli kl. 13:30-14:30 hlustum við saman á hlaðvarp í handavinnustofu. Þá leg- gjum við af stað í göngu með viðkomu í verslun kl. 15:00 úr móttöku. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10. Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9.00. Pút í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hryefilandi kl. 11.30. Stund fyrir eldri bæjarbúa í í kirkjunni í dag kl. 14.00. Valdi- mar Sverrisson fer með gamanmál. Veitingar. Kr. 500.- Örnámskeið/roð og leður á neðri hæð félagsheimilisins í dag kl. 15.30. Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is mbl.is alltaf - allstaðar 22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2021 ✝ Eiríkur Ein- arsson fæddist í Reykjavík 30. nóvember 1964. Hann lést á Torre- vieja á Spáni 18. ágúst 2021. For- eldrar hans voru Lilja Ragnhildur Eiríksdóttir, f. 1941, d. 2012, og Einar Ingi Theó- dór Ólafsson, f. 1936, d. 2007. Systkini Eiríks eru: Guðrún Ágústa Einarsdóttir, f. 20. júlí 1961, maki Salvar Ó. Sveins- son; Kristján R. Sveinsson, f. 7. september 1972, maki Birna Guðmundsdóttir; Einar Ingi Einarsson, f. 14. mars 1976, maki Kolbrún Valbergs- dóttir. Eiríkur giftist Emilíu Fann- bergsdóttur 2013, þau skildu 2017. Eiríkur útskrif- aðist úr Háskóla Íslands með MA- próf í félags- og fjölmiðlafræði og átti lítið eftir til að klára kennarann. Eiríkur vann ýmis störf um ævina, fór t.d. söluferðir að selja bækur út um allt land. Hann fór til Sví- þjóðar í biblíuskóla og var þar um tíma. Eiríkur stofnaði Fjöl- miðla- og hugmyndahúsið og gaf út HM- og EM-blöðin og Miðbæjarpóstinn auk þess að semja tónlist og gefa út diska. Eiríkur naut þess að ferðast, utanlands sem innan. Jarðarförin hefur farið fram. Mig langar til að minnast Eiríks bróður míns sem hefði orðið 57 ára í dag, 30. nóv- ember. Það er sárt til þess að hugsa að þú sért ekki lengur á meðal okkar, maður á besta aldri í blóma lífsins er farinn. Varst alltaf svo jákvæður og glaður og hjálpsamur og lifðir lífinu lifandi. Hafðir alltaf eitthvað fyrir stafni; gafst út HM- og EM-blöðin, samdir tónlist og gafst út diska og varst að vinna í ljóðabók tengt tónlist- inni þinni. Samdir Framaralag- ið og fyrsta HM-lagið fyrir ein- hverjum árum sem rataði inn á allar útvarpsstöðvar. Varst mjög hugmyndaríkur og lést ekkert stoppa þig. Já, þú hefur áorkað æði mörgu um ævina og hafðir áhuga fyrir svo mörgu. En það sem átti hug þinn allan var trúin og tónlistin, þú varst ein- mitt að vinna í tveimur diskum nú í sumar og átti að minnsta kosti annar þeirra að koma út fyrir jólin. Þú hélst tónleika hér og þar og þeir eftirminni- legustu voru haldnir í Fíladel- fíukirkju daginn sem þú varðst fimmtugur og svo bauðstu upp á kaffiveitingar eftir tón- leikana. Þú varst mikill bítlaaðdáandi og keyptir þína fyrstu plötu mjög ungur og ég held að þú hafir átt þær allar. Þú stofn- aðir bítlaklúbb og opnaðir bít- labar á sínum tíma. Svo náðir þú að hitta bítilinn hann Paul McCartney þegar hann var hér á Íslandi og á þig er minnst í bókinni sem hann gaf út. Þú hafðir brennandi áhuga fyrir fótbolta enda gafstu út HM- og EM-blöðin og tókst viðtöl við ýmsa aðila tengt fótboltanum. Þú máttir helst ekki missa af neinum leik, sama hverjir voru að spila, en varst harður stuðn- ingsmaður Fram og Everton. Já margs er að minnast. Þegar ég heyrði í þér í ágúst óraði mig ekki fyrir því að það væri síðasta spjallið okkar, að- eins fjórum dögum áður en þú lést. Þá fékkstu slæmt floga- kast sem varð til þess að þú komst ekki aftur til meðvit- undar. En nú ertu kominn í faðm mömmu og pabba, þau hafa tekið vel á móti þér. Söknuðurinn er mikill en minn- ing um góðan dreng mun lifa áfram í hjarta okkar. Þín systir, Guðrún Ágústa, Ragnar Ingi og Salvar Ólafur. Eiríkur Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.