Morgunblaðið - 10.11.2021, Page 4
Teikning/GP arkitektar
Hugmynd Guðna Pálssonar arkitekts að hóteli í Öskjuhlíð. Það hefði verið fyrir framan gömlu
Keiluhöllina og með útsýni yfir Vatnsmýrina. Ekkert verður af þessari byggingu í borgarlandinu.
Árin 2015 til 2018 fjölgaði erlendum ferða-
mönnum ár frá ári og sáu ýmsir þá tækifæri í
að reisa byggingar undir hótelrekstur.
Nokkur dæmi um slík áform eru rifjuð upp
hér í tilefni af því að íbúðir munu að óbreyttu
rísa þar sem áður var áformað risahótel í
Vatnsmýri. Lóðarhafi áformaði að reisa þar
400 til 450 herbergja hótel en haft var eftir
fulltrúa verkefnisins í Morgunblaðinu í desem-
ber 2015 að fjöldi erlendra hótelkeðja hefði
sýnt því áhuga að reka fyrirhugað hótel.
Í ársbyrjun 2017 var sagt frá því á mbl.is að
síðar á því ári væri áformað að hefja fram-
kvæmdir við 300 herbergja hótel á Grens-
ásvegi 1 í Reykjavík. Áformin runnu hins
vegar út í sandinn og ákvað lóðarhafi að
byggja íbúðir í staðinn.
Skammt frá áformaði félag tengt Ólafi
Ólafssyni, sem er gjarnan kenndur við Sam-
skip, að innrétta 160 herbergja hótel í gamla
ESSO-húsinu og viðbyggingu við Vegmúla.
Sagt var frá því í Morgunblaðinu í júní 2018 að
umrætt félag, Festir, væri að íhuga að hætta
við hótelið. Þótti það táknrænt fyrir að ferða-
útrásin væri að lækka flugið. Húsið er nú leigt
Kvikmyndaskóla Íslands.
Þá áformuðu fjárfestar að byggja hæð ofan
á Skipholt 1 og innrétta þar hótel með 84 her-
bergjum. Nú stendur til að innrétta þar íbúðir.
Þá sagði Morgunblaðið frá því í apríl 2017 að
fjárfestar áformuðu tvö hótel á Kársnesi. Ann-
ars vegar 12 þúsund fermetra hótelbyggingu
sem tengd var flugfélaginu WOW air og hins
vegar spa-hótel. Hvorugt varð að veruleika en
samkvæmt fréttinni lá fjöldi herbergja þá ekki
fyrir.
Þá má nefna hugmynd um nýtt hótel í nýj-
um miðbæ við Strandgötu í Hafnarfirði. Fallið
var frá því.
Önnur hugmynd var að byggja hótel í
Öskjuhlíð en fróðlegt verður að vita hvort fjár-
festar muni sjá tækifæri í að reisa íbúðir þess í
stað.
Hótelin sem hætt var við
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þegar ferðaútrásin stóð sem hæst
sagði Morgunblaðið frá áformum um
hótel sem síðar var hætt við að reisa.
Þau hefðu rúmað þúsundir gesta.
Teikning/Batteríið arkitektar
Áformað var að reisa 300 herbergja, fjögurra stjarna hótel á Grensásvegi 1.
Nú er verið að reisa fjölbýlishús sem verða hluti af endurgerð Skeifunnar.
Teikning/ASK arkitektar
Reisa átti allt að 445 herbergja hótel við Haukahlíð í Vatnsmýri.
Það hefði orðið stærsta hótel landsins í herbergjum talið.
Teikning/ASK arkitektar
Áformað var að byggja 100 herbergja hótel við Strandgötu í
Hafnarfirði. Nú er rætt um blandaða byggð og hótelíbúðir.
Teikning/Arkís arkitektar
Gert var ráð fyrir 84 herbergjum í hótelbyggingu í Skipholti 1.
Nú er áformað að innrétta samtals 36 íbúðir í húsinu.
Teikning/ASK arkitektar
Á Suðurlandsbraut 18 og í viðbyggingu átti að vera 160 herbergja hótel.
Hætt var við hótelið og er Kvikmyndaskóli Íslands nú leigutaki í húsinu.
Teikning/Yrki arkitektar
Drög að fyrirhuguðum höfuðstöðvum WOW air á Kársnesi. Reisa átti hótel við hliðina og svo
spa-hótel skammt frá. Fallið var frá þessum áformum og mun ásýnd svæðisins taka mið af því.
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021FRÉTTIR
Bætt
hreinlæti
í nýjum heimi
Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki
www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is