Morgunblaðið - 10.11.2021, Page 9

Morgunblaðið - 10.11.2021, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021 9SJÓNARHÓLL vinnuföt fást einnig í HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum F réttaflutningur undanfarinna daga bendir til þess að stjórnarmyndunarviðræður séu á síðustu metr- unum og að sú ríkisstjórn sem við þekkjum núorð- ið ágætlega, verði að veruleika. Miðað við þá ólíku hug- myndafræði sem flokkarnir aðhyllast hefur vafalaust þurft að yfirstíga ýmsar hindranir í viðræðunum og miðla málum í hinum ýmsu málaflokkum. Þegar þrætu- eplunum sleppir eru þó innan seilingar framfaramál sem passa vel við stefnumál flestra stjórnmálaflokka og hlýt- ur að vera kappsmál þeirra að framkvæma. Eitt slíkt mál varðar í raun og veru vinnubrögðin sem eru viðhöfð við lagasetningu. Viðskiptaráð hefur í gegnum tíð- ina ítrekað beitt sér fyrir einfaldari löggjöf og regluverki, öllum til hagsbóta. Líkt og fram kom í nýrri útgáfu Viðskiptaráðs: Laglegt regluverk óskast, og finna má á vefsíðu ráðsins, vi.is, er ástæða til að setja þessi mál sérstaklega á oddinn á kjörtímabilinu enda hefur Ísland dregist aftur úr helstu sam- anburðarlöndum þegar kemur að lagaumhverfi atvinnulífs, til dæmis þegar kemur að mælingum IMD á samkeppnishæfni. OECD hefur einnig bent á tækifæri til úrbóta hvað þetta varðar, n.t.t. í ferða- þjónustu og byggingariðnaði. Til að gera langa sögu stutta er skil- virkt regluverk lykilatriði til að Ísland geti staðist öðrum ríkjum snúninginn í alþjóðasamkeppni og tryggja lífs- gæði. Leiða má líkur að því, í það minnsta í einhverjum til- vikum, að ástæðan fyrir þyngslum í regluverki sé að hlut- irnir hafi í upphafi ekki verið hugsaðir til enda. Með því að lágmarka í hvert sinn líkur á því að lög íþyngi umfram tilefni má þannig stuðla að einfaldari löggjöf heilt á litið; margt smátt gerir eitt stórt. Skref í rétta átt hafa verið tekin í þessa veru, en í 66. gr. laga um opinber fjármál nr. 123/2015 er mælt fyrir um að ætluð áhrif lagafrumvarpa skuli metin áður en þau eru lögð fram í ríkisstjórn og á Alþingi. Greinin hefur yfirleitt orðið til þess að ítarlegri upplýsingar um fjárhagsleg áhrif lagafrumvarpa á rík- issjóð hafa komið upp á yfirborðið, en borið hefur á því að matinu hafi að öðru leyti ekki verið sinnt sem skyldi. Ein leið, sem nágrannaríki okkar hafa farið, er að stofnsetja sjálfstætt regluráð sem leggur heildstætt hag- fræðilegt mat á lagafrumvörp áður en slík mál koma til umfjöllunar á þjóðþingi. Slík ráð þjóna því í senn að- halds- og upplýsingarhlutverki og eru sjálfstæð í störfum sínum. Í slíkum ráðum sitja yfirleit hvort tveggja fræði- menn og fólk með reynslu úr við- skiptalífi. Svo dæmi sé tekið er meginhlutverk norska regluráðs- ins fjórþætt: Að gera ráðgefandi skrifleg álit á lagafrumvörpum og breytingum á reglugerðum sem hafa áhrif á umhverfi við- skiptalífsins og önnur viðeigandi mál, að fylgja nýjustu stefnum og straumum á sviði einföldunar regluverks og leiðbeina með al- mennum hætti um leiðir til að gera löggjöf skilvirka og aðstoða ráðuneyti við rannsókn á mati á áhrifum sem fylgja gerðum Evr- ópusambandsins. Með þessi verkefni í farteskinu er laga- frumvörpum gefnar einkunnir og nýju ljósi varpað á þau, sem til dæmis getur nýst í hefðbundnum umræðum um málin á vettvangi löggjafans. Með framangreint í huga er þörf á því að formfesta betur hvernig skilvirk löggjöf er mótuð með hliðsjón af bestu mögulegu þekkingu. Þar þyrfti til dæmis reynslan af 66. gr. laga um opinber fjármál að koma til skoðunar auk þess sem að æskilegt væri að móta nýjar leiðir til að hámarka gæði löggjafarinnar. Mat á áhrifum laga og reglna, bæði fyrir fram og eftir á, er sjálfsagt gæðamál sem þarf að leggja áherslu á. Í ljósi þess hve vel rík- isstjórnarsamstarf tókst á síðasta kjörtímabili, þrátt fyr- ir ólíkar hugsjónir, ætti það að vera sömu flokkum hægð- arleikur að bæta umhverfi lagasetningar í sátt. Regluráð – sameiginlegur flötur? LÖGFRÆÐI Jón Birgir Eiríksson sérfræðingur á lögfræðisviði Viðskiptaráðs Íslands ” Ein leið, sem nágranna- ríki okkar hafa farið, er að stofnsetja sjálfstætt regluráð sem leggur heildstætt hagfræðilegt mat á lagafrumvörp áð- ur en slík mál koma til umfjöllunar á þjóðþingi. Slík ráð þjóna því í senn aðhalds- og upplýsing- arhlutverki og eru sjálf- stæð í störfum sínum. eftirvænting, tilhlökkun og spenna, eins og gjarnan er með hluti sem eru ekki hversdags. Myndi nokkur yrða á jólasveininn ef hann kæmi 365 daga á ári?“ Í ár er flaskan helguð minningum tengdum gömlu verksmiðjunni í Ála- borg. Á bakhlið hennar mótar í gyll- ingu fyrir hliðinu sem leiddi inn á verksmiðjusvæðið. Þar fóru lest- arnar um sem síðan fluttu snapsana út um konungsríkið og í einhverjum tilvikum út fyrir það einnig. Jakob segir að viðskiptavinir Jómfrúarinnar ræði gjarnan um bragðeiginleika jólasnapsins og seg- ir að margir séu afar minnugir á bragðskyn sitt. Er það hluti af stemningunni að hans sögn. Menningin er hins vegar ekki staðnað fyrirbæri og þótt jólaákavít- ið frá Álaborgsé ávallt vinsælasti snapsinn á jólum hefur Jómfrúin bryddað upp á ýmsum nýjungum á síðustu árum. Þannig hefur fyrir- tækið m.a. flutt inn sænskt jólaáka- víti frá OP Anderson og norskt frá Linie. Og Jakob upplýsir um leynd- armál. „Persónulega er ég aðeins hrifnari af sænsku og norsku ákavítum um- fram það danska. Þau eru gjarnan látin liggja í 3-4 ár á eikartunnum eða sherrýtunnum sem gefur fyllt- ara og jólalegra bragð að mínu mati. Hins vegar finnst mér Aalborginn algerlega ómissandi með t.d. puru- steikinni.“ Hann bendir á að snapsinn frá Álaborg sé nokkuð kryddaðri í ár en verið hefur og segir hann að fleira skíni í gegn en kúmenið. „Þökk sé framúrskarandi danskri hönnun flöskunnar sjálfrar og frændhygli íslensku þjóðarinnar á Dönum að þá ber danska ákavítið alltaf höfuð og herðar yfir nágranna- löndin þegar kemur að vinsældum,“ segir Jakob. Aldrei meiri aðsókn Hann segist aldrei hafa kynnst jafn mikilli aðsókn á Jómfrúnna og fyrir þessi jólin. Um 11 þúsund manns eigi pantað borð á aðvent- unni. Frá 1. desember og út Þorláks- messu er að fullu upp bókað að hans sögn. Spurður út í snapsana og vinsæld- ir þeirra segist hann panta 400 flösk- ur af jólaákavítinu frá Álaborg en það jafngildi um 8.500 snöpsum. „En við erum samt með 40 aðrar tegundir á seðlinum sem seljast jafnhliða þótt jólaákavítin séu auð- vitað í aðalahlutverki á aðventunni.“ Enginn er flinkari en Jakob í að bæta snaps í glösin. Þar fær eðlisfræðin og yfirfallið að njóta sín. 400 flöskur af Jubilæum Juleakvavit koma í hús í ár. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.