Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Side 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.11. 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Gjafakort Einstök
jólagjöf
S
amfélagið okkar er stútfullt af óróa, heift, reiði, ásökunum og skömmum
þessa dagana. Samfélagsmiðlar loga og tekist er á um erfið mál; kyn-
ferðisbrot, áreitni, einelti, gerendameðvirkni, þolendaskömm og ég veit
ekki hvað þetta allt heitir. Dómstólar götunnar hafa valdið og nettröllin eru
víða. Fólk sem þekkir ekki annað fólk tekur sér vald og drullar yfir annað fólk á
netinu af því að það getur það og þar er á það hlustað. Sumt er verðskuldað,
annað ekki.
Að fara út á þennan hála ís er bara fyrir fólk með mjög harðan skráp því
hvað sem ein manneskja vogar sér að
segja, eru þúsund aðrir sem eru á
öndverðum meiði. Ég ætla því ekki að
reima á mig þá skauta.
Hins vegar ætla ég að fara út á
annan og kannski líka nokkuð sleipan
ís. Ég ætla að taka afstöðu og halda
með kisum. Þetta er sjóðheitt mál því
fólk annaðhvort elskar ketti eða hat-
ar. Bæjarstjórn Akureyrar elskar
ekki ketti og nú á að banna lausa-
göngu katta á Akureyri frá og með
árinu 2025! Sem ég skil ekki. Ég hef
átt nokkra ketti og vil endilega að
þeir séu útikisur. Þeir eru hluti af
samfélaginu og eru ekki að fara neitt.
Þeir ráðast ekki á fólk og bíta úti á götu. Yfirleitt hlaupa þeir í burtu eða biðja
um klapp. Vissulega eru nokkrir veiðimenn í hópi katta; það er í eðli þeirra. Og
mögulega skíta þeir í einhver blómabeð, en er það svo slæmt? Góður áburður
bara!
Hvað með allar kisurnar sem hafa alltaf verið útikettir og verða settar í
stofufangelsi árið 2025? Það er búið að dæma alla akureyrska ketti til fanga-
vistar. Afplánun hefst eftir þrjú ár.
Kommentakerfin loga núna ekki bara vegna mála manna sem áreita eða
nauðga eða senda typpamyndir heldur líka vegna útivistarbanns katta. Þar
sýnist sitt hverjum. Fólk nefnir að það sé dýraníð að halda köttum inni allan
sólarhringinn. Aðrir nefna að gæludýraeign í þéttbýli eigi ekki rétt á sér. Ég
tek undir með konu sem segir ekkert yndislegra en að ganga um fallegu Ak-
ureyri og hitta nágrannaketti sem heilsa eins og góðra íbúa er siður.
Önnur kona skrifar skemmtilega færslu: „Nenniði svo líka að banna fugla,
þeir skíta á bílana okkar, og svo má höggva þessi fjárans tré, þau valda svo
miklum sóðaskap. Einnig mætti ormahreinsa garðana, þvílík ógeð þessir orm-
ar. Taka svo til við köngulærnar næst, þær eru ógeð og öllum til ama. Á hvaða
leið erum við? Þolum ekkert kvikt í kringum okkur?“ Já, hvað er málið?
Afplánun hefst
eftir þrjú ár
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’
Kommentakerfin
loga núna ekki bara
vegna mála manna sem
áreita eða nauðga eða
senda typpamyndir
heldur líka vegna úti-
vistarbanns katta.
Lárus Jakobsson
Ég er hlynntur lausagöngu katta, á
ábyrgð eiganda.
SPURNING
DAGSINS
Á að banna
lausagöngu
katta?
Katrín Whalley
Ég vil leyfa það. Ég á eina kisu sem
fer út í garð og ekkert lengra.
Ársæll Sigurlaugar Níelsson
Ég vil hafa það leyfilegt. Ég á
innikött en vil að aðrar kisur hafi
frelsi til að velja.
Sunneva Elfarsdóttir
Ég vil leyfa lausagöngu katta. Ég
á ketti sem eru mest inni en fá að
fara út.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
ÆGIR ÞÓR JÄHNKE
SITUR FYRIR SVÖRUM
Ljóðræn
dýrategund
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Nýja bókin þín er flokkuð sem ljóðabók en
er hún það?
Ég lít á efnið sem ljóðræn „essay“ sem er form sem er
ekki mikið stúderað á Íslandi. Ég er að vinna með nokk-
ur ákveðin þemu í þessari bók og mismunandi texta í
kringum þau. Þarna eru lengri hugleiðingar og vanga-
veltur, sumir textar eru hrein ljóð en aðrir eru brot.
Hvaða þemu eru þau?
Ég er að fjalla um eigið líf, um ástina og ljóðið sjálft.
Það er kannski stærsta þemað, af hverju við erum að
yrkja yfirhöfuð. Hugmyndin kviknaði þegar ég tók rit-
listarkúrs hjá Rúnari Helga Vignissyni sem fjallaði um
„hybrid“-bókmenntir þar sem fólk blandar saman mörgum
formum og mismunandi textum. Það kveikti í mér. Ljóð ein
og sér eru ekki líkleg til vinsælda.
Ertu að reyna að auka vinsældir ljóðsins?
Já, og mér finnst það ganga vel. Fólk er oft hrætt við ljóðabækur
og þá getur það virkað að vera með bók sem er með öðruvísi texta
en bara stutt ljóð.
Ertu sjálfur að ganga í hús?
Já, bókin er líka til sölu í öllum betri bókabúðum en ég geng í hús og
sel miklu meira þar, það gengur hraðar. Ef ég á laust kvöld og veður
leyfir rölti ég á milli húsa. Ég mæli með þessari leið til að selja
bækur.
Hvernig tekur fólk þér?
Almennt rosalega vel. Það er alltaf gaman að hitta fólk.
Viltu segja eitthvað að lokum?
Ég hvet alla til að lesa ljóð og eiga ketti, sem eru mjög ljóðræn
dýrategund.
Bókin Ekkert, elskan, ég er bara að tala við köttinn, eftir Ægi Þór Jähnke,
er komin út og fæst í bókabúðum. Hún var í sjötta sæti á lista Eymunds-
son yfir mest seldu ljóðabækur vikuna 20-26. okt.