Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Síða 14
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.11. 2021
V
ið mætumst í þröngu og skraut-
legu anddyri hipsterakaffihúss-
ins Babalú á Skólavörðustíg og
heilsumst. Birnir Sigurðarson er
mættur í rauðri hettupeysu,
snöggklipptur með hárið litað í hinum ýmsu
litum, aðallega skærljósgrænum. Það fer hon-
um vel. Við finnum okkur borð þar sem
skvaldrið er minnst og ræðum um lífið og til-
veruna, neyslu og edrúmennsku, en fyrst og
fremst tónlistina sem Birnir brennur fyrir.
Lét segulóma heilann
Bushido er nýjasta plata rapparans vinsæla,
en hún kom út fyrir nokkrum vikum.
„Ég hef fengið góðar viðtökur og það er búið
að hlusta á hana um milljón sinnum, sem er
flott,“ segir hinn 25 ára gamli Birnir.
Flott hárið á þér!
„Takk, ég er mikill aðdáendi Dennis Rod-
man en svo var þetta líka gert í takt við plötu-
umslagið sem er mynd úr segulómun af heil-
anum mínum. Þetta var hugmynd sem
Þórsteinn Sigurðsson vinur minn kom með en
hann sá um myndefnið við nýju plötuna. Þann-
ig að ég fór í alls konar skanna og röntgen og
lét mynda mig. Nú veit ég að allt er í þokka-
legu lagi,“ segir hann og brosir út í annað.
Við ræðum fyrst æskuárin og bernskuna.
„Ég bjó lengi vel niðri í bæ sem barn en
flutti svo í Kópavoginn. Ég fór í heimavist-
arskóla til Svíþjóðar með vini mínum en fékk
ekki að halda áfram. Ég var rekinn fyrir að
halda partí, en ég var bara sextán ára. Ég fór
svo heim í menntaskóla en svo flutti ég með
fjölskyldunni til Valencia á Spáni og kláraði
menntaskólann þar. Það var alveg frábært að
vera þarna og ég lærði spænsku. Pabbi fór í
nám þar og mamma var að vinna,“ segir hann
en foreldrar hans eru Hildur Hafstein skart-
gripahönnuður og Sigurður Ólafsson. Birnir er
elstur af fjórum bræðrum, en yngri eru Dagur,
Ólafur og Tindur.
„Það er fínt að vera elstur, ég þekki auðvitað
ekki annað. Við erum allir góðir vinir.“
Snýst um að segja satt
Birnir byrjaði að fikta við að semja texta þegar
hann var fjórtán ára.
„Svo kom ég mér í samband við stráka sem
voru að gera takta og pródúsera músík og fór
að hafa mikinn áhuga á þessu. Ég sagði engum
frá þessu en þetta var mitt helsta áhugamál.
Ég á heilu bækurnar af textum sem ég hef
ekki enn notað. Eini sem fékk að sjá eitthvað á
þessum árum var Dagur bróðir minn. En svo
hellti ég mér í þetta þegar ég var á Spáni,“
segir Birnir.
Finnst þér gaman að semja texta og lög?
Færðu útrás við það?
„Já, ég get ekki alveg útskýrt það. Það að
búa til lag og plötu og yfirhöfuð að búa eitt-
hvað til gefur lífinu tilgang. Mér finnst svo
gaman að sjá eitthvað ganga upp, að byrja með
hugmynd og sjá hana verða svo að veruleika.
Það er bæði krefjandi og skemmtilegt.“
Nú ertu opinn og hreinskilinn í textum þín-
um, ertu að semja um líf þitt og reynslu?
„Það er ekki meðvituð ákvörðun að vera ein-
lægur og hreinskilinn. Þetta snýst meira um
að segja satt. En á sama tíma hef ég algjört
frelsi að búa eitthvert andrúmsloft til. En lögin
eru flest undir áhrifum frá mínu lífi og því sem
er í gangi í kringum mig. En samt má segja að
það sé ótrúlega flókið að semja um lífið, dauð-
ann og tilfinningar. Það er dýpt í því,“ segir
Birnir og segist í raun ekki hafa samið texta
sem eru algjörlega skáldaðir, en segist þó hafa
áhuga á því og jafnvel blundar í honum að
semja skáldsögu einn daginn.
„Ég verð að skrifa út frá minni upplifun því
ég get ekki skrifað út frá annarra manna
reynslu.“
Innblásturinn segir Birnir að komi úr mörg-
um áttum og lítur hann upp til ýmissa lista-
manna.
„Það eru ekki endilega tónlistarmenn og
stundum bara venjulegt fólk. En margir lista-
menn hafa veitt mér innblástur; myndlistar-
menn, hönnuðir og leikstjórar, en líka fólk úr
mínu daglega lífi.“
Það er yfirleitt brjálað stuð
Hvernig byrjaði þinn ferill í tónlist?
„Þegar ég kom heim frá Spáni fór ég á fullt
að gera músík. Ég leitaði uppi alls konar fólk í
senunni og kynnti mig og kynntist fólki. Ég fór
að vinna, en ég bjó í heilt ár hjá afa mínum eft-
ir menntó því mamma og pabbi voru þá enn á
Spáni,“ segir hann og segir hann og vin sinn
gjarnan hafa unnið á nóttunni.
„Ég er aldrei einn í stúdíóinu; mér finnst
best að vera einn með einum pródúsent. Þegar
ég loks komst í stúdíóið var ég með haug af
hugmyndum og við unnum fram á morgun.
Stundum var ég í einhverri vinnu og fór þá
ósofinn í vinnuna. En svo fór tónlistin að ganga
upp og ég fór að fá borgað fyrir að spila.
Fyrsta alvöru giggið mitt var á Prikinu en þá
var ég búinn að gefa út eitt eða tvö lög. Það var
geggjað. En fyrsta stóra „sjóið“ mitt var á Sec-
ret Solstice árið 2017,“ segir Birnir en hann
var þá rétt um tvítugt.
„Síðan þá hef ég mestmegnis bara verið að
gera tónlist, þó ég hafi eitthvað unnið í Covid
þegar lítið var að gera í tónlistinni,“ segir
Birnir en hann býr nú með kærustu sinni,
Vöku Njálsdóttur hagfræðinema.
Þannig að hún verður með stabíl laun á með-
an þú, listamaðurinn, færð stundum borgað og
stundum ekki?
„Já, en þessa dagana fær hún meira borgað
í upphafi mánaðar en ég síðar meira í mán-
uðinum. Ég er bókaður mjög mikið; á
menntaskólaböllum, árshátíðum og alls kyns
partíum. Það er yfirleitt brjálað stuð. Svo er
mér boðið að halda tónleika hér og þar og sér-
staklega núna þegar ég er nýbúinn að gefa út
plötu.“
Siðareglur samúraja
Birnir semur alla texta á íslensku en segist
hafa samið eitthvað á ensku.
„Íslenskan liggur betur fyrir mér, það er
mér náttúrulegra,“ segir hann og telur að
hann þyrfti að vera betri í ensku til að ná tök-
um á því að semja góða texta á því tungumáli.
„En ég hef aldrei pælt neitt í því að fara út,
þó það gæti gerst síðar. Það er aldrei að vita,“
segir Birnir og segist hafa heillast af rappi frá
unga aldri.
„Ég hugsaði samt aldrei meðvitað: „Nú ætla
ég að verða rappari.“ Ég fór bara að gera það
sem mér fannst gaman og fékk þá mikla löng-
un til að gera það vel. Svo varð ég hrifinn af því
að semja heil verk, en Bushido er önnur platan
mín.“
Hvað þýðir Bushido og af hverju það nafn?
„Þetta eru siðareglur samúraja. Hún heitir
það vegna þess að bushido, eða reglurnar, eru
svolítið svarið við efni plötunnar. Það er mikið
af alls konar andlegum og tilfinningalegum
pælingum á plötunni og ákveðið ströggl í gangi
hjá aðalpersónu plötunnar, sem er ég ef þú vilt
skilja það þannig. Svarið er að maður þarf að
lifa eftir einhverjum reglum og það er gott að
hafa kóða. Mér finnst þetta líka góðar reglur.
Svo hefur mér alltaf fundist samúrajar mjög
kúl,“ segir hann og brosir út í annað.
Alls ekki fullkominn
Fíkniefni komu við sögu í lífi Birnis um skeið
en hann hefur algjörlega snúið við blaðinu.
„Ég fór að nota áfengi og fíkniefni og gerði
mér svo grein fyrir því að ég þyrfti að hætta
því það hafði skaðleg áhrif á mig og fólkið í
kringum mig. Á einhverjum tímapunkti fór
þetta úr böndunum. Ég snerti á því á nýju
plötunni.“
Hvar var botninn?
„Ég hef lent á nokkrum botnum en svo kom
gluggi. Ég gerði mér grein fyrir því að ef þetta
myndi vera svona áfram yrði ég á sama stað að
eilífu. Ég myndi staðna og ekkert myndi ger-
ast,“ segir Birnir og segir það afar vonda til-
finningu að standa ekki við það sem maður lof-
aði sjálfum sér.
„Þú segir sjálfum þér eitthvað en svíkur svo
sjálfan þig. Það hefur ótrúlega niðurrífandi
áhrif á sjálfsmyndina,“ segir hann og segist
hafa fjarlægst sjálfan sig.
„Ég fékk nóg og tók sénsinn á að fá hjálp.
Ég hef farið í nokkrar meðferðir, bæði hér
heima og erlendis og er edrú í dag og hef verið
í tæp tvö ár.“
Líður þér vel?
„Mér líður alls konar, en aðallega er ég
ánægður með líf mitt,“ segir hann og segir
mikilvægt að rapparar séu ekki að upphefja
neyslu í tónlist sinni.
„Þaðan kemur líka þessi hreinskilni því það
er nauðsynlegt að tala um þetta. Ég þarf að
lifa eftir mínum kóða og þarf að gera suma
hluti og aðra alls ekki. Ef ég geri mistök þarf
ég að viðurkenna þau strax og bæta fyrir þau,“
segir Birnir og segir alveg ljóst að þessi plata
hefði ekki orðið til ef hann hefði enn verið í
neyslu.
„Þetta er örugglega besta ákvörðun sem
ég hef tekið og að fylgja henni eftir. Svo er
það bara dagurinn í dag, í dag líður mér vel
og ég er í góðum tengslum við sjálfan mig.
Ég geri það sem ég þarf að gera til að vera í
andlegu jafnvægi. En ég er sko alveg langt
frá því að vera fullkominn,“ segir hann og
brosir.
„Platan snýst líka um að komast á nýjan
stað. Opna á nýjar hugmyndir.“
Algjör snilld og forréttindi
Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér?
„Það er stutt síðan ég gaf út plötuna og er
enn að koma mér í rútínu eftir það því dag-
Ég er ótrúlega
þakklátur
Rapparinn Birnir hefur nýlega sent frá sér plötuna Bushido og hefur hún hlotið góðar
viðtökur. Birnir semur frá hjartanu og vill vera sannur í öllu sem hann gerir.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
„Það er ekki meðvituð ákvörðun að vera
einlægur og hreinskilinn. Þetta snýst
meira um að segja satt. En á sama tíma hef
ég algjört frelsi að búa eitthvert andrúms-
loft til. En lögin eru flest undir áhrifum frá
mínu lífi og því sem er í gangi í kringum
mig,“ segir Birnir Sigurðarson rappari.
’
Ég elska að hitta fólk úti á
götu og ræða tónlistina. Og
svo er geðveikt að standa á
sviði. En ég reyni að láta það
ekki stíga mér til höfuðs, ég vil
ekki láta egóið stjórna. Í grunn-
inn er ég að búa til list og það
sem mér finnst vera kúl.
Á plötuumslaginu er heilinn hans Birnis.