Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Side 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.11. 2021
S
ólveig Anna Jónsdóttir
greindi frá því á Facebook
undir miðnætti á sunnudag að
hún hygðist segja af sér sem formað-
ur Eflingar og kvaðst hafa verið
hrakin úr starfi af undirmönnum sín-
um á skrifstofu verkalýðsfélagsins.
Fram kom að trúnaðarmenn á skrif-
stofunni hefðu kvartað undan stjórn-
arháttum þar í sumar, en afsögnin
kom eftir að Ríkisútvarpið komst á
snoðir um málið og fór að spyrjast
fyrir í fyrri viku.
Tugir Íslendinga fóru í sótspúandi og
vængjuðum álrörum til Skotlands til
þess að segja í 26. sinn að komið væri
að úrslitastund fyrir mannkyn vegna
hlýnandi loftslags. Einn íslenskra
umhverfissinnna sem þangað fóru á
kostnað skattgreiðenda sagði að Ís-
land kæmi ekki með neitt að borðinu
í Glasgow.
Undirbúningskjörbréfanefnd hélt
áfram að hittast í vikunni, enda
gagnaöflun að mestu afstaðin. Af-
staða manna til þeirra, hvað þá nið-
urstaða um hvað skyldi til bragðs
taka, var þó langt í frá útrædd. M.a.
kom fram að hefð væri fyrir því að út-
strikun á einum lista þætti nægj-
anleg til þess að listinn fengi atkvæð-
ið þó kross vantaði.
Nýtt hagsmunafélag fyrirtækja, At-
vinnufjelagið, var stofnað um liðna
helgi, einkum sniðið að þörfum lítilla
og miðlungsstórra fyrirtækja.
Erill var á veitingastöðum í miðborg-
inni um helgina, svo mikill að lög-
regla átti í endalausum önnum og tíu
svítur í Hverfisteini fullbókaðar.
Grunur kom upp um að þremur kon-
um á Akureyri hefði verið byrluð
ólyfjan í drykki þeirra á skemmtistað
um liðna helgi.
Manni var vikið úr landsliðshópi í
hestaíþróttum þegar athygli Lands-
sambands hestamanna var vakin á
því að hann hefði hlotið dóm fyrir að
hafa brotið kynferðislega gegn 13 ára
stúlku fyrir 28 árum.
Íslendingar eru í meiri ferðahug en
verið hefur og umheimurinn smám
saman að opnast, þar á meðal Banda-
ríkin, sem aftur taka að hleypa al-
mennum, bólusettum farþegum til
landsins á morgun. Allir áfangastaðir
í beinu flugi frá Íslandi eru í vel bólu-
settum löndum, en smittíðni þar er
mjög mismikil.
154 innanlandsmit kórónuveirunnar
greindust um liðna helgi.
Kórónuveirusjúklingur lést á Land-
spítalanum á sunnudag.
. . .
Ásökunum á hendur forystu Eflingar
rigndi inn á fjölmiðla og félagsmiðla,
sumar undir nafni en aðrar ekki. Þar
voru Sólveig Anna Jónsdóttir for-
maður og Viðar Þorsteinsson borin
þungum sökum um ofríki og ógn-
arstjórnun.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, kvaðst
hafa vitað af vandræðum á skrifstofu
Eflingar áður en þau hefðu flotið upp
á yfirborðið, en sagði að sambandið
tæki ekki fram fyrir hendur aðild-
arfélaganna fyrr en í fulla hnefana.
Varð þó ekki séð annað séð en að
stutt hefði verið hnefana hjá Eflingu,
sem er með kontór í sama húsi og
ASÍ.
Við rannsóknir á íslenskum legháls-
sýnum í Danmörku hefur komið í
ljós að frumubreytingar eru oftar í
sýnum héðan en raunin er í dönskum
sýnum. Það kann að vera vísbending
um að leghálskrabbi sé vangreindur
sjúkdómur hér á landi, en tíðni hans
er annars í lægra lagi.
Ísland er í 11. sæti meðal 163 ríkja
heims, sem metin voru við gerð vísi-
tölu félagslegra framfara. Við þau
tíðindi mátti á félagsmiðlum sjá gólað
„Vanhæf ríkisstjórn“.
Biskupsstofa hugleiðir að flytjast um
set í Grensáskirkju.
Í ljós kom að öflugt skemmtanalíf
helgarinnar skilaði sér í 130 smitum,
en fleiri áttu eftir að koma í ljós.
Ólafur Ormsson rithöfundur lést 77
ára að aldri.
. . .
Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir
hallarekstri til ársins 2023, sem
meirihluti borgarstjórnar telur mik-
inn varnarsigur. Minnihlutinn bendir
á að skuldsetning borgarinnar sé
ósjálfbær og að í hreint óefni stefni.
Þúsundir Íslendinga hafa leitað
tannlækninga í Búdapest í Ung-
verjalandi, þar sem þær eru talsvert
ódýrari en gengur og gerist hér á
landi.
Hluti forystumanna verkalýðshreyf-
ingarinnar kom saman til fundar á
vettvangi Starfsgreinasambandsins
til þess að ræða kjaraviðræður sem
fram undan eru. Væringar í Eflingu
vörpuðu þó löngum skugga á þann
fund.
Umboðsmaður Alþingis sendi frá sér
álit að eigin frumkvæði um ráðn-
ingamál hins opinbera, þar sem
hann varaði sérstaklega við því að
stigamat á umsækjendum gæti eitt
og sér ekki riðið baggamun við ráðn-
ingar. Það breytti engu um ábyrgð
stjórnvalds á ráðningunni.
Færeyska útgerðin Smyril Line
bætti við þriðja vöruflutningaskipinu
í áætlunarsiglingar til Íslands.
Mál & menning hyggst aftur hefja
bóksölu á sínum gamla stað á Lauga-
vegi 18. 60 ár eru síðan forlagið opn-
aði bókabúð sína þar fyrst.
Söngkonan Eivör Pálsdóttir frá
Færeyjum vann tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs.
. . .
Akureyringar eru alræmdir innipúk-
ar en settu ný viðmið í þeim efnum
þegar bæjarstjórnin samþykkti bann
við lausagöngu katta, sem gildi tek-
ur í upphafi árs 2025. Margir urðu til
þess að gagnrýna ákvörðunina og
þótti rökstuðningurinn rýr.
Jólin koma snemma í ár, eins og best
sást á gríðarlegri sölu þegar jóla-
bjórinn kom í sprúttsölu ríkisins.
Sorpa fyrirhugar 31% gjaldskrár-
hækkanir á næsta ári, en aðal-
ástæðan er sögð aukinn kostnaður
vegna gas- og jarðgerðarstöðv-
arinnar Gaju í Álfsnesi. Ekki gera
allir sér þær skýringar að góðu.
Útgerðin Brim skaust upp fyrir
kvótaþakið vegna stóraukinna veiði-
heimilda á loðnu. Hún hefur hálft ár
til þess að koma því í samt lag.
Samkvæmt rannsókn sem gerð var
fyrir Öryrkjabandalagið eru 110 af
113 stoppistöðvum Strætó á lands-
byggðinni með ófullnægjandi að-
gengi fyrir fatlaða.
Jarðfræðingar hafa gætur á Heklu
en þenslan undir henni hefur vaxið
að undanförnu. Þessi fornfrægasta
eldstöð Íslands er þekkt fyrir að
gjósa með örskömmum fyrirvara.
Stjórnarsáttmáli um endurnýjað
samstarf ríkisstjórnarflokkanna
mun vera í augsýn, en viðræðurnar
hafa tekið svo langan tíma að fólk er
hætt að spyrja um þær. Það litla,
sem út af þeim viðræðum hefur
spurst, bendir til þess að lítið hafi
breyst flokkanna á millum frá kosn-
ingum.
. . .
Fjöldasmit á karókí-skemmtun á
Akranesi jók smit í landinu upp úr
öllu valdi, svo Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir lagði til hertar sótt-
varnatakmarkanir eina ferðina enn.
Og ráðherrann hlýddi.
Agnieszka Ewa Ziółkowska tók við
formennsku í verkalýðsfélaginu Efl-
ingu, en lagði þegar í stað á flótta
undan fjölmiðlum. Hún er dyggur
stuðningsmaður Sólveigar Önnu
Jónsdóttur, fráfarandi formanns,
sem jafnframt lét af embætti sem 2.
varaformaður ASÍ.
Mikill uppgangur er í landeldi á laxi,
en verði frekari áform þar að lútandi
að veruleika verða framleidd meira
en 100 þúsund tonn af laxaafurðum í
landinu. Það mun þó ekki gerast í
einu vetfangi og kallar á meira en
100 milljarða króna fjárfestingu.
Útlit er fyrir að viðhald Laugardals-
hallar tefjist enn frekar, þar sem
enn ein kæra hefur verið boðuð um
útboð á framkvæmdunum. Hún hef-
ur nú að mestu verið lokuð í ár eftir
að heitavatnsleki skemmdi viðargólf
hennar mikið.
Framkvæmdir á nýju byggingar-
landi í Vetrarmýri í Garðabæ eru
fyrirhugaðar þegar á næsta ári. Þar
er gert ráð fyrir bæði fjölbýli og at-
vinnustarfsemi.
Þingi Norðurlandaráðs var slitið í
Kaupmannahöfn. Þar var mikið rætt
um nauðsyn frekari opinberra fjár-
útláta, enda víða ófremdarástand
eins og sést á því að löndin tróna
ekki efst á alveg öllum alþjóðlegum
listum um lífsgæði. Þingfulltrúum
bar saman um nauðsyn þess að þeir
hittust oftar á kostnað skattgreið-
enda landanna.
Efling og
skelfing
Ekki köttur á kreiki.
Morgunblaðið/Hari
31.10.-5.11.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
• Íbúðin er á efstu hæð með glæsilegu
útsýni og yfirbyggðum svölum í suðurátt.
• Íbúðin er vel skipulögð með stórum og
björtum stofum.
• Lyfta er í húsinu og fylgir stæði í
bílageymslu.
• Sameignin er öll til fyrirmyndar og má þar
nefna skála á jarðhæð sem er með útgangi
út á hellulagða verönd og garð.
• Tengibygging yfir í þjónustumiðstöð fyrir
aldraða sem býður upp á matsölu, einnig
er rekið þar mikið tómstundarstarf.
• Húsvörður er í húsinu.
Verð 72,9 millj.
Falleg og björt 128 fm útsýnis íbúð á
6. hæð (efstu) ætluð fólki 63 ára eða
eldri. Í húsinu er rekin þjónustu-
miðstöð fyrir eldri borgara.
Hæðargarður 35 - Við Fossvogsdalinn
Opið hús mánudaginn 8. nóvember frá kl. 17:00-17:30