Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Side 29
stjórann Quint, Richards Dreyfuss, sem lék sjávarlíffræðinginn Hooper, og Roys Scheiders, sem var í hlut- verki lögreglustjórans Brodys í smá- bænum á Long Island þar sem risa- stór hákarl gerir vart við sig í vígahug einmitt þegar mesta ferða- helgi sumarsins er fram undan. Ian leikur föður sinn í leikritinu, Liam Murray Scott leikur Dreyfuss og Demetri Goritsas túlkar Scheider. Shaw var þeirra þekktastur þegar myndin var tekin árið 1974 á eyjunni Martha’s Vineyard undan ströndum Massachusetts. Hún var byggð á samnefndri metsölubók eftir höf- undinn Peter Benchley. Ian Shaw vissi að samskipti aðal- leikaranna hefðu stundum verið stormasöm. Þá gekk líka ýmislegt á við gerð myndarinnar. Hákarlinn, sem kallaður var Bruce á settinu, bilaði og urðu tafir á tökum á meðan verið var að gera við hann. Ian lagðist í dagbækur, sem faðir hans hélt á árunum áður en Ókindin var gerð. Þar fer mikið púður í að lýsa glímu hans við áfengi. Einnig nýtti hann bókina The Jaws Log, sem handritshöfundurinn Carl Gott- lieb skrifaði um gerð myndarinnar, og fleiri heimildir. Leikritið Hákarl- inn er bilaður skrifaði hann ásamt gömlum vini sínum, Joseph Nixon. Drykkjuskapur og rifrildi Á ýmsu gekk við tökur mynd- arinnar. Shaw drakk mikið meðan á þeim stóð og Steven Spielberg hefur talað um að milli hans og Dreyfuss hafi verið mikill rígur að tjaldabaki. Dreyfuss hefur einnig lýst tök- unum. „Hann var voldugur persónu- leiki,“ sagði Dreyfuss um Shaw. „Prívat var hann besti, blíðasti, fyndnasti náungi sem til var. Svo gengum við á tökustað og á leiðinni var eins og hann yrði andsetinn af illu trölli, sem gerði mig að fórn- arlambi sínu.“ Ekki bötnuðu sam- skiptin þegar Dreyfuss einn daginn fékk nóg af drykkjuskapnum, hrifs- aði viskíglas af Shaw og henti því út í sjó. Shaw gerði ítrekað lítið úr Drey- fuss og reyndi að niðurlægja hann með ágengum athugasemdum rétt áður en byrjað var að taka. Hann reyndi líka að egna hann til ýmissa uppátækja og í eitt skipti klifrað Dreyfuss upp í bátsmastur og kast- aði sér út í sjó að áeggjan Shaws. Í viðtali við The Times fyrir tveimur árum rifjaði Ian upp að hann myndi eftir að hafa farið á tökustað ásamt móður sinni, Mary Ure, þegar verið var að taka Ókind- ina, þá fjögurra ára. „Það var bara venjulegt. Pabbi minn var í vinnunni. Það er mjög leiðinlegt á tökustað kvikmynda, maður fær bara verk í afturendann af sitja og bíða. Ég man þó eftir að hafa hitt há- karlinn og einn tæknimaðurinn sýndi mér framan í Bruce. Þá var ég hræddur.“ Missti foreldrana ungur Móðir Ians var alkóhólisti eins og faðir hans og hún lést árið 1975, að- eins 42 ára. Hún tók ofskammt af lyfjum og drakk of mikið ofan í þau eftir frumsýningu, sem misheppn- aðist hræðilega. Í ágúst 1978 lést Robert Shaw. Hann var að keyra bíl heim á leið þegar hann fékk hjarta- slag. Leikarinn var 53 ára. Ian Shaw ákvað að gerast leikari eins og foreldrar hans eftir að hann missti föður sinn og lærði leiklist. Hann hefur fengið ýmis hlutverk, bæði á sviði og í sjónvarpsþáttum, en aldrei orðið stjarna. Þegar hann eignaðist son sinn fyrir tíu árum vann hann sem bréfberi til að ná endum saman. Eins og Hamlet þegar hann sér drauginn Í viðtalinu við Ian í The Times kem- ur fram að árið 1994 hafi hann farið í prufu fyrir hlutverk Hórasar í Ham- let eftir Shakespeare í Birmingham Rep. Dreyfuss var leikstjórinn. Hann áttaði sig ekki á að ekki hefði allt leikið í lyndi milli leikstjórans og föður hans og sagði Dreyfuss hverra manna hann væri. „Hann leit út eins og Hamlet þegar hann sér draug- inn,“ sagði Ian. Hann fékk ekki hlut- verkið. Í leikritinu hákarlinn er bilaður eiga leikararnir þrír að sitja í bátn- um og bíða eftir að tökur geti hafist. Spennan vex og hjaðnar á milli þeirra og hefur leikritið fengið góðar umsagnir. Heimildir: The New York Times, The Times, The Telegraph, Time Out, The Sun. Beðið eftir viðgerð á Ókindinni í leikritinu Hákarlinn er bilaður, sem nú er sýnt í London. Þar leik- ur Ian Shaw föður sinn Robert. Ljósmynd/Helen Maybanks 7.11. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 STOFNAÐ 1953 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380 20% afsláttur af rúmfötum 8.-20. nóvember ENDURKOMA Sænska sveitin ABBA sneri í vikunni aftur með nýrri plötu, sem nefnist „Voyage“. Hún kom út á miðnætti í öllum tímabeltum á fimmtu- dag og varð þá aðgengileg á tónlist- arveitum. Hljómsveitin gaf síðast út plötu 1981 og hætti ári síðar. Viðmælandi AFP í útgáfuhófi í Stokkhólmi réð sér ekki fyrir kæti, en viðbrögð gagnrýnenda voru blendin. Rolling Stone sagði að platan hefði ver- ið biðarinnar virði, en The Guardian sneri út úr einu af lagaheitum ABBA og sagði „Nei takk fyrir tónlistina“. Abba snýr aftur eftir 40 ára hlé AFP BÓKSALA Í OKTÓBER Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Heimskautsbaugur Liza Marklund 2 Bréfið Kathryn Hughes 3 Stúlka, kona, annað Bernardine Evaristo 4 Úti Ragnar Jónasson 5 Sólstafur Ásdís Þula Þorláksdóttir 6 Launsátur Jónína Leósdóttir 7 Merking Fríða Ísberg 8 Sigurverkið Arnaldur Indriðason 9 Skaði Sólveig Pálsdóttir 10 Þögla ekkjan Sara Blædel 11 Alexander Daníel Hermann Dawidsson Gunnar Helgason 12 Náhvít jörð Lilja Sigurðardóttir 13 Verstu foreldrar í heimi David Walliams 14 Litlir lærdómshestar – stafir Elisabeth Golding 15 Peningar Björn Berg Gunnarsson & Auður Ýr 16 Bærinn brennur ÞórunnValdimarsdóttir 17 Út að drepa túrista Þórarinn Leifsson 18 Sjö systur Lucinda Riley 19 Minn hlátur er sorg – ævi- saga Ástu Sigurðardóttur Friðrika Benónýsdóttir 20 Borð fyrir einn Nanna Rögnvaldardóttir Allar bækur Lengi var ég alveg hræðilega snobbuð í lestrarvali og las helst bara merkilega löngu liðna karla. Svo þegar ég var að ljúka há- skólanámi, að læra fyrstu skrefin í móðurhlutverkinu og komin með leið á óþarfa háfleygni og sjálfhygli, hafði kannski öðlast einhvers konar sjálfsþekkingu, þá uppgötvaði ég mér til undrunar og allnokkurrar ánægju að ég samsamaði mig bara við skáld- sögur eftir konur. Það er eig- inlega enn þá þannig, þótt ég eigi það til að álpast inn í stöku bók eftir karl, og þá er það alltaf jafn mikil uppgötvun og í fyrsta skiptið, hvað bókin er dásamlega djúp, góð og skemmtileg. Hallgrímur Helgason er líklega einn af fáum karl- rithöfundum sem hefur tekist jafn vel til við kven- persónur sínar. Nú viðurkenni ég að hafa logið hér í upphafi, ég man eftir að hafa á mennta- skólaárunum skellt upp úr og há- grátið með annarri hverri per- sónu úr bókum hans og nú get ég ekki beðið eftir að finna ró og næði til að eiga með nýjustu bók- inni hans, Sextíu kíló af kjafts- höggum. Önnur bók sem mig klæjar eftir að lesa er Merking hennar Fríðu Ísberg en ég féll kylliflöt fyrir ljóðum hennar og smásög- um, Kláða, Slitför- um og Leð- urjakkaveðri, það er eiginlega skylda okkar allra að lesa þessi verk. Það er mjög spennandi að sjá hvernig íslensk- um raunveruleika eru gerð skil í þessari framtíðarsýn sem ég hef heyrt að Merking sé, en dystó- píubókmenntir eftir kvenrithöf- unda eru án efa áhugaverðasta samfélagsgreining okkar tíma. Og nú verð ég bara að segja frá sjálfri drottningu dy- stópíanna, Octaviu Butler (1947-2006) og bók hennar The Parable of the So- wer frá árinu 1993. Það er ekki nóg með að hún hafi komið vís- indaskáldsögum á bókmennta- kortið, heldur skrifaði hún um kynþáttafordóma, kynusla og að- lögunarhæfileika mannkyns á undan öllum öðrum, spáði fyrir um bandarísk stjórnmál og fjallaði um loftslagshamfarir og lyfjaiðnaðinn, nokkuð sem talar svo sannarlega til okkar í dag. Og viti menn, það er framhald, Pa- rable of the Talent kom út rétt fyrir aldamótin. Það er líklega sú bók sem ég iða hvað mest í skinn- inu eftir að lesa, en það er svo merkilegt að það eru erfiðustu bæk- urnar sem tala hvað mest til mín, þær sem ógerningur er að leggja frá sér á sama tíma og tilfinning- arnar velkjast um í rússíbana upp á líf og dauða. Og lýsi ég því hér með yfir vilja til að þýða báðar bækur Butler, ef hugrakkur út- gefandi skyldi vera að lesa þessi orð. KATRÍN HARÐARDÓTTIR ER AÐ LESA Gildi erfiðustu bókanna Katrín Harð- ardóttir er þýðandi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.