Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.11. 2021
B
réfritari datt óviljandi inn á hádeg-
isfréttir „RÚV“ á föstudag og þá
virtist ekkert annað vera að gerast í
tilverunni víðri og endilangri en að
kóvíðafbrigði kórónuveirunnar væri
rétt einu sinni komið í ógurlegan
uppgang og mætti nú enn kalla eftir lengra lok og
læs og fjárfestingum í keðjum og hengilásum.
Og hvert afbrigðið á fréttastofunni af öðru útlist-
aði svo ógnvænlegt bakslagið og hvernig heilbrigð-
iskerfinu litist engan veginn á blikuna, ekki frekar
en því hefur litist á hana síðustu 22 mánuðina eða
svo. En tölurnar sem nefndar voru af ótal drama-
drottningum í þessu sambandi virtust þó varla til
þess fallnar að blásið væri í alla tiltæka lúðra þeirra
vegna. Fréttastofan útlistaði síðan að heilbrigðis-
ráðherrann hefði ákveðið hamlandi aðgerðir eftir að
hafa lesið yfir vangaveltur á minnisblöðum sótt-
varnayfirvalda. En þó var niðurstaðan ekki betur
skilin en svo að ágreiningslaust væri að ekkert benti
til þess að aðgerðir á borð við að slökkva á bjór-
þorsta hálftíma fyrr en vant er eða að hafa 500 á
samkomu sem 1.000 máttu vera á daginn áður skil-
uðu árangri.
Grímulaus hugmyndafátækt
Og svo var grímuskyldan tekin upp aftur! Fróður
maður benti á af því tilefni að þótt aðeins 30 þúsund
manns hefðu nennt að mæta til Glasgow hefðu grím-
ur verið sjaldséðari þar en var á meðan Grímur
Thomsen bjó einn á Bessastöðum.
En sú skýring var gefin á því að loftslagsvandi
heimatilbúnu hryllingsbúðarinnar myndi eins og
ósjálfrátt drepa allar bakteríur og veirur frá Wuhan,
enda væri ekki fært að vera með tvo heimsfaraldra í
takinu á svo fámennri ráðstefnu, enda gjörólíkir
hræðslutaktar notaðir, sem hvor aðli væri einangr-
aður sérfræðingur í. Þetta sagði sig náttúrlega sjálft
þegar vísindamenn úr báðum hópum, svo dásamlega
ólíkum, en jafnsannfærðum, staðfestu þessar stað-
reyndir, enda eru það jú einungis staðreyndir sem
allir þessir vísindamenn fjalla um, þótt þær eigi það
til að týnast í reglugerðaskógunum.
Hvernig væri að horfa á samanburð?
Og þar sem ekkert annað var í fréttum þessarar
stofnunar, sem fær hálfan milljarð á mánuði í þving-
aðan styrk frá almenningi til að reka sig, iðulega og
æ oftar í óþökk hans, þá varð það að ráði að skoða
hvort Pallar „RÚV“ væru einir í heiminum eins og
þeir eru svo óþægilega oft.
Og það þurfti vissulega ekkert að hafa mikið fyrir
því að detta inn á fréttir um „kóvíð“ í útlandinu og
það ekki svo mjög fjarri okkur. En þótt upplýsing-
arnar þær byggðust á verulegum tilþrifum veir-
unnar var fréttum um það ekki slegið upp um alla
veggi fréttamanna eins og tíðkast hér.
En vissulega virtust þær vera sýnu verri en þær
sem ríkisreknir íslenskir kollegar gátu í aðdraganda
helgarinnar gert sér svo glaðan dag yfir.
Skýrslugerðarmenn í Bretlandi sögðu að í síðustu
viku hefði 1 af hverjum 50 manneskjum smitast í
Englandi (ekki Bretlandi öllu). Þarna væri um 1,1
milljón manns að ræða. En svo vildi til að þessi 1,1
milljón væri sama tala og vikuna á undan og þær báð-
ar væru á meðal þriggja smithæstu vikna á Englandi
síðan fárið flutti sig frá Kína og kom þá meðal annars
við á Englandi í heimsreisu sinni.
En ósköp rólega var því bætt við að þessar tölur
sýndu að fólk væri fjarri því að smita annað fólk jafn
hratt og áður var og því stæðu yfirgnæfandi líkur til
þess að þessi bylgja myndi hníga hratt.
Síðast þegar fréttist benti ekkert til þess að svo
grípandi tölur hefðu sett allt á annan enda í þessum
hluta ríkis Bretadrottningar eða í öðrum hlutum
þess.
Má kannski gera hlé á annarri heift?
Einn af hverjum 50 í smitleiðangri á Íslandi myndi
nálgast 7.000 manns þar á einni viku. Menn geta rétt
ímyndað sér hvers konar upphlaup yrðu hér og ekki
bara á furðufréttastofu „RÚV“. Það væri hins vegar
alls ekki útilokað að fréttastofan sú myndi þá hafa
fengið samþykki ríkisstjórnarinnar fyrir því að gera
örstutt hlé á áralöngum ofsóknum á hendur
útgerðarfyrirtækinu fyrir norðan, og eins fengið leyfi
til þess að draga um stutta stund úr fréttum sam-
herja sinna héðan og þaðan af lofthræðslutryll-
ingnum sem þau Hans og Greta eru um það bil að
lyftast upp úr límingunum yfir úti í Glasgow um þess-
ar mundir.
Þau tvö og aðrir í barnahópnum þar á öllum aldri
halda því hávaðasöm fram að Glasgow-ráðstefnan
hafi sannað að stjórnmálamenn sem troða sér jafnan í
fremstu sæti á öllum slíkum ráðstefnum reyni að
klessa sér við hliðina á milljarðamæringum sem
koma á 400 ofurþotum til að sýna manngerðu veðri
virðingu sína, sumir eftir að hafa fundið glufu í sinni
stundaskrá frá því að skjóta 5 stykkjum af vinum sín-
um með eldflaugum út í himingeiminn til að þeir geti
verið þar þyngdarlausir í rétt rúmar tvær mínútur og
megi svo kalla sig geimfara alla tíð eftir það.
Sofðu, blíði Biden minn
Til þess var tekið að Joe Biden steinsofnaði í stóra
ráðstefnusalnum í Glasgow og það lengur en tvær
mínútur að sögn Jeffs Bezos sem var nærri og tók
tímann. Það verður seint sagt að Joe Biden hafi verið
þungavigtarmaður á þessari loftslagsráðstefnu og
ekki endilega víst að hann hafi verið algjörlega viss
um hvað hann var að gera þar. Það hefur sjálfsagt átt
við fleiri af þessum þrjátíu þúsundum.
En með því að dotta í þingsalnum, sem var í sjálfu
sér upplögð aðgerð, því þá segir maður enga vitleysu
á meðan, hefur Biden náð algjöru þyngdarleysi sem
stóð mun lengur en í tvær mínútur og náðist án þess
að brenna þyrfti upp ógrynni af andrúmslofti og gera
þar með sitt til að lyfta ísokinu af Okinu og fremja
önnur skemmdarverk af því tagi.
Hvað sem segja má almennt um tilþrif þeirra Joes
og Hunters Bidens eru þau ólík uppákomum Hans og
Gretu. Greta vill nú, vegna hrópandi getuleysis
stjórnmálamanna, efna til byltingar eins og þau Við-
ar, Sólveig og Smárinn knúðu fram í félagi sem þau
höfðu aldrei heyrt nefnt, né höfðu nokkuð með að
gera og náðu undir sig með vel rúmlega 10% at-
kvæða.
Sagan sannar reyndar að miklu færri atkvæði en
þetta geta dugað til, enda verða öll atkvæði, fyrr og
síðar, hreint aukaatriði í því fyrirkomulagi sem stefnt
er að, þegar endanlega er komist yfir lýðræðishall-
ann.
Hinir hjartshreinu grípa boltann
Þótt lofthræðslubyltingin hafi nú staðið í þrjá áratugi
og engu komið til leiðar, og Kína, Indland, Rússland
og fleiri hafi alls ekki útilokað að koma að málinu eft-
ir svo sem sex áratugi í viðbót og vísindunum sé mjög
veifað um veðrið manngerða, eru þau nú þegar að
mestu komin í aukahlutverk.
Í gær stóð yfir í Glasgow ráðstefnuþáttur sem sér-
staklega var helgaður æskunni og margt úr þeim
munnum einkenndist af vonbrigðum yfir svika-
samsæri stjórnmálastéttarinnar sem meinti aug-
ljóslega ekkert í sýndarheimi sínum um andstöðu við
ógnir manngerða veðursins.
Tvö heimsfár er
kannski yfirdrifið
Reykjavíkurbréf05.11.21